Morgunblaðið - 05.06.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 05.06.2003, Síða 12
ERLENT 12 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ARIEL Sharon, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmud Abbas, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, lofuðu ráðstöfunum til að greiða fyrir friði á fundi með George W. Bush Bandaríkjaforseta í Jórdaníu í gær. Með leið- togafundinum hófst nýr kafli í friðarumleitun- um í Mið-Austurlöndum og Bush vonar að ráð- stafanirnar verði til þess að svonefndur Vegvísir til friðar í Mið-Austurlöndum komist í framkvæmd. Sharon hét því að hefja þegar í stað niðurrif ólöglegra byggða gyðinga á svæðum Palestínu- manna og Mahmud Abbas, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar, hafnaði hvers konar hryðjuverkum gegn Ísraelum og lofaði að gera sitt ýtrasta til að binda enda á vopnaða uppreisn gegn hernámsliði Ísraela. Gyðingar hafa reist tugi byggða án heimildar á svæðum Palestínumanna frá því að uppreisn Palestínumanna hófst og flestar þeirra eru á Vesturbakkanum. Landtökumennirnir segja að byggðir þeirra styrki tilkall Ísraela til sögu- slóða Biblíunnar en aðrir Ísraelar segja þær hindra samninga sem gætu orðið til þess að þeir þyrftu ekki að halda áfram kostnaðarsömu hernámi Vesturbakkans og Gaza-svæðisins. Ofbeldi hafnað Forsætisráðherra palestínsku heimastjórn- arinnar kvaðst „fordæma og afneita hryðju- verkum gegn Ísraelum hvar sem þau eru fram- in“. Hann lofaði „kröftugum aðgerðum“ gegn þeim sem hvettu til ofbeldis og kyntu undir hatri á Ísraelum. „Slíkar aðferðir samræmast ekki trúarlegum og siðferðislegum gildum okk- ar og hindra stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis. Þær eru einnig í andstöðu við þá tegund ríkis sem við stefnum að þar sem hún byggist á virð- ingu fyrir mannréttindum og reglum réttarrík- is.“ Abbas hét því að stöðva vopnaða uppreisn Palestínumanna og beita til þess öllum tiltæk- um ráðum þar sem ekki væri til nein hern- aðarleg lausn á deilum Palestínumanna og Ísr- aela. „Og okkur mun takast það. Framtíð þjóðar okkar er í veði og engum verður leyft að stofna henni í hættu,“ bætti hann við. „Við verðum að beita friðsamlegum aðgerðum í bar- áttu okkar fyrir því að hernáminu ljúki og að þjáningum Palestínumanna og Ísraela linni. Við hunsum ekki þjáningar gyðinga í rás sög- unnar. Það er kominn tími til að þessum þján- ingum linni.“ Palestínski forsætisráðherrann lagði einnig áherslu á að bæta þyrfti aðstæður Palestínu- manna og gera þeim kleift að lifa eðlilegu lífi, án blóðsúthellinga, auðmýkingar og stöðugs ótta. Svæði Palestínumanna verði samfelld Sharon sagði að forgangsmál sitt væri að tryggja öryggi Ísraels og bætti við að aðgerðir til að koma í veg fyrir að hvatt væri til ofbeld- isverka myndu skipta sköpum. „Ella verður enginn friður,“ sagði hann. Sharon sagði að Ísraelar myndu hefjast handa við að fjarlægja ólöglegar landtöku- byggðir gyðinga og stjórn Ísraels hefði skilning á mikilvægi þess að yfirráðasvæði Palestínu- manna á Vesturbakkanum væru samfelld, en það er ein af helstu kröfum Palestínumanna. Sharon kvaðst styðja stofnun Palestínuríkis ef árásunum á Ísraela linnti. „Það þjónar ekki hagsmunum Ísraela að þeir stjórni palestínsku þjóðinni, heldur að hún stjórni sér sjálf,“ sagði hann. „Við ætlum að leitast við að bæta líf Pal- estínumanna og stuðla að framförum í átt að palestínsku framtíðarsýninni.“ Erfiðustu deilumálin lítið rædd Abbas lýsti ekki yfir tafarlausu vopnahléi þótt Bush hefði beitt sér fyrir því. Ísraelar höfðu látið í ljósi efasemdir um slíka yfirlýsingu og sögðu að hún myndi aðeins gefa herskáum hreyfingum Palestínumanna tíma til að end- urskipuleggja og efla starfsemi sína. Leiðtogarnir ræddu lítið erfiðustu deilumál- in, svo sem framtíð annarra landtökubyggða á Vesturbakkanum, framtíðarstöðu Jerúsalem- borgar og deiluna um hvort palestínskir flótta- menn ættu að fá að snúa aftur til Ísraels. Gestgjafi leiðtoganna, Abdullah II Jórdaníu- konungur, sagði að fundur þeirra væri mikil- vægur þáttur í því að láta „drauminn um frið, hagsæld, friðsamlega sambúð og sættir“ í Mið- Austurlöndum rætast. Þetta var fyrsti fundur Bush með leiðtogum Ísraela og Palestínumanna frá því að hann tók við forsetaembættinu. Daginn áður átti hann fund með leiðtogum arabaríkja sem lofuðu að stöðva peningastreymi til hryðjuverkahreyf- inga í Mið-Austurlöndum. Sharon heitir því að fjar- lægja ólöglegar byggðir Abbas lofar að gera sitt besta til að binda enda á vopnaða upp- reisn Palestínumanna Aqaba. AP. AFP. Reuters Mahmud Abbas, forsætisráðherra palestínsku heimastjórnarinnar (t.v.), og Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, takast í hendur eftir fund þeirra í bænum Aqaba í Jórdaníu í gær. TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, samþykkti í gær að taka þátt í sjálfstæðri rannsókn breska þingsins á því hvort ríkisstjórn hans hefði á einhvern hátt átt við skýrslu breskra leyniþjónustumanna um gereyðing- arvopnaeign Íraka er stjórnarand- staðan kallaði eftir því að „óháðir“ að- ilar myndu rannsaka málið. Snarpar umræður sköpuðust um málið í fyr- irspurnartíma í neðri deild breska þingsins í gær. Ef ásakanir um að átt hafi verið við skýrslu bresku leyni- þjónustunnar reynast sannar er talið að það gæti orðið Blair að falli þrátt fyrir að hann njóti enn mikils stuðn- ings meðal þingmanna Verkamanna- flokksins. Blair vísaði því algerlega á bug að ríkisstjórn hans hefði gert of mikið úr gereyðingarvopnaeign Íraka eða mis- notað upplýsingar bresku leyniþjón- ustunnar þar að lútandi í aðdraganda Íraksstríðsins en meginrök hans fyrir stríðinu í Írak voru ógnin sem stafaði af vopnaeign Íraka. Trúverðugleiki stjórnarinnar að veði „Sannleikurinn er sá að enginn trú- ir lengur orði af því sem forsætisráð- herrann segir,“ sagði Ian Duncan Smith, leiðtogi breska Íhaldsflokks- ins, sem þurfti að hrópa til að yfir- gnæfa frammíköll stuðningsmanna Blairs, og bætti því við að trúverð- ugleiki ríkisstjórnarinnar væri að veði í deilunum. Blair lét gremju sína í ljós vegna fyrrnefndra ásakana á þinginu í gær. „Margt hefur verið fullyrt varðandi Íraksstríðið. Til að mynda var sagt að hundruð þúsunda manna myndu deyja, að þetta yrði mitt Víetnam- stríð, að Mið-Austurlönd myndu loga og nú síðast að staðreyndir um ger- eyðingarvopnaeign væru uppfinning bresku ríkisstjórnarinnar,“ sagði Blair. „Sannleikurinn er sá að sumum líkar það illa að það hafi verið rétt ákvörðun að fara í stríð. Við unnum stríðið, þökk sé frábæru framlagi breska herliðsins og Írak er nú frjálst land. Við ættum að vera stolt af því.“ Þá tilkynnti forsætisráðherrann að upplýsinga- og öryggismálanefnd þingsins hefði snemma í síðasta mán- uði farið þess á leit við bresku rík- isstjórnina að fá að rannsaka leyni- legar upplýsingar um Írak. Hins vegar er óvíst að sú rannsókn muni lægja deilurnar. „Ég minni [þing- heim] á að forsætisráðherrann mun einungis leyfa nefndinni að sjá þau leynilegu gögn sem hann vill að hún sjái,“ sagði Duncan Smith að lokinni ræðu Blairs. Spánn lýsir yfir stuðningi við Blair Deilurnar um gereyðingarvopna- eign Íraka og rök bresku ríkisstjórn- arinnar þar að lútandi risu fyrst þeg- ar fréttastofa sjónvarpsstöðvarinnar BBC hafði eftir heimildarmanni inn- an bresku leyniþjónustunnar að stað- hæfing í skýrslu bresku leyniþjónust- unnar um að Írakar gætu beitt gereyðingarvopnum með aðeins 45 mínútna fyrirvara væri byggð á frá- sögn eins heimildarmanns og hefði verið bætt inn í skýrsluna til að styðja rök ríkisstjórnarinnar. Forsætisráð- herrann sagði fréttir BBC „algerlega ósannar“. Hann sagði jafnframt rangt að upplýsingarnar hefðu verið fengn- ar frá einum íröskum heimildar- manni. Blair sagði upplýsingarnar byggðar á „traustum og áreiðanleg- um“ heimildum. Ana Palacio, utanríkisráðherra Spánar, hélt því í gær ákveðið fram að Írakar ættu gereyðingarvopn og lof- aði um leið að styðja breska forsætis- ráðherrann í deilum hans við bresku stjórnarandstöðuna. Stjórnarandstaðan krefst „óháðrar“ rannsóknar Blair svarar ásökunum í neðri deild breska þingsins London. AP. AFP. HERSKÁAR hreyfingar Palest- ínumanna sögðust í gær ætla að halda áfram vopnaðri baráttu sinni gegn Ísr- aelum eftir að Mahmud Abbas, forsætis- ráðherra palestínsku heimastjórn- arinnar, hét því að binda enda á ofbeldið. „Við munum standa með palestínsku þjóðinni og beita vopnum,“ sagði leið- togi Hamas-hreyfingarinnar, Abdul Aziz Rantissi. Forystumenn Jíhad-hreyfingarinnar og Alþýðufylkingarinnar fyrir frelsun Palestínu (PFLP) tóku í sama streng. „Andspyrnunni verður haldið áfram þar til hernáminu lýkur,“ sagði einn leiðtoga Jíhads, Mohammad al-Hindi, og lýsti lof- orði Abbas sem „ástæðulausu tilboði“. „Abu Mazen [Abbas] hunsaði þján- ingar palestínsku þjóðarinnar og talaði aðeins um hana sem hryðjuverkamenn sem vildu drepa gyðinga,“ sagði Rant- issi. „Hann talaði aðeins um vandamál gyðinga og fór á fundinn til að leysa þau.“ Hindi sagði að Abbas „hefði átt að for- dæma hryðjuverk og hernám síonista. Þess í stað fordæmdi hann hryðjuverk gegn gyðingum“. Hindi viðurkenndi að „Palestínumenn kynnu að ná samningum sín á milli“ en bætti við að Sharon myndi gera frið- arvegvísinn að engu með því að svíkja loforð sín. Talsmaður ísraelskra landtökumanna á svæðum Palestínumanna sagði að þeir myndu berjast gegn því að ólöglegar byggðir gyðinga yrðu fjarlægðar eins og Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, lofaði. Ætla að halda áfram vopn- aðri baráttu Gaza-borg. AFP. BANDARÍSKA kaupsýslukonan Martha Stewart, sem er helst þekkt fyrir að uppfræða Bandaríkjamenn um allt sem viðkemur lífsstíl, var í gær formlega ákærð fyrir að hafa nýtt sér innherjaupplýsingar í hluta- bréfaviðskiptum með bréf í lyfjafyr- irtækinu ImClone. Hún neitaði sekt. Í árslok 2001 seldi Stewart hluta- bréf sín í ImClone skömmu áður en bréf í fyrirtækinu hrundu í verði þegar tilkynnt var að því hefði verið synjað um leyfi til framleiðslu á nýju krabbameinslyfi. Sam Waksal, stofnandi og for- stjóri ImClone, er náinn vinur Stew- arts og hann vissi af ákvörðun lyfja- eftirlitsins áður en hún var tilkynnt. Hann hefur viðurkennt að hafa látið fjölskyldu sína selja bréf í ImClone á grundvelli þessara upplýsinga og verður refsing hans ákveðin fyrir rétti síðar í vikunni. Stewart hefur aftur á móti alfarið neitað að hafa fengið innherjaupp- lýsingar frá Waksal og sagt að sala bréfanna hafi byggst á samkomulagi við verðbréfasala sinn um að bréfin yrðu seld ef verð þeirra færi niður fyrir ákveðið viðmið. Reuters Martha Stewart mætir til dóms í New York í gær þar sem hún var ákærð. Martha Stewart formlega ákærð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.