Morgunblaðið - 06.06.2003, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Didda Jónsdóttir er áleitin í skáldskap sínum. Nú
stekkur hún á hvíta tjaldið. Í samtali við Hildi Ein-
arsdóttur talar hún um sjálfsvirðingu, bíó og bækur.
Bræður í framlínunni
Bræðurnir Árni og Páll Magnússynir hafa látið að sér
kveða í Framsóknarflokknum og voru áberandi fyrir
liðnar kosningar. Ragna Sara Jónsdóttir ræddi við þá.
Nýtt líf í öðru landi
Grado og Jelena Arsinejivic eru frá Serbíu, en freista
nú gæfunnar á Íslandi. Í samtali við Önnu Gunnhildi
Ólafsdóttur beina þau gestsauganu að Íslandi.
Sterk og reddar sér
á sunnudaginn
VARNARSAMSTARF RÆTT
Íslenskum stjórnvöldum hefur
borist bréf frá George W. Bush, for-
seta Bandaríkjanna, um varnarsam-
starf ríkjanna. Efni bréfsins hefur
ekki verið gert opinbert en Halldór
Ásgrímsson segir að Bandaríkja-
menn vilji fara nýjar leiðir í varn-
arsamstarfinu. Ljóst sé að málið sé
viðkvæmt og alvarlegt og viðræður
séu framundan milli ríkjanna.
Barnaklámsmál í Reykjavík
Lögreglan í Reykjavík rannsakar
eitt umfangsmesta barnaklámsmál
sem komið hefur upp hér á landi. Við
húsleit hjá fertugum manni hafa
meðal annars fundist klámmyndir í
tugþúsunda tali sem virðast að meg-
inhluta vera barnaklám. Einnig
fundust myndbandsspólur þar sem
maðurinn sést í kynferðislegum at-
höfnum með ungmennum.
Vopnaeign Íraka enn óljós
Enn er margt á huldu um vopna-
eign Íraka en Hans Blix, yfirmaður
vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna,
segir að fyrst að búið sé að koma
Saddam Hussein frá eigi að vera
hægt að komast að sannleikanum
um vopnin.
Ístak og ÍAV buðu lægst
Ístak og ÍAV áttu lægsta tilboð í
byggingu stöðvarhúss Kára-
hnjúkavirkjunar en tilboðin voru
opnuð í gær. Er þetta í fyrsta skipti
sem fyrirtækin tvö taka saman þátt í
útboði.
HABL í rénun
Bráðalugnabólgan hefur náð há-
marki í heiminum og er nú í rénun,
að mati Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar, WHO.
Slegist um gúmmíhringi í skærum litum
Þór Örn Flygenring, 10 ára, safnar svört-
um gúmmíarmböndum, en Sigrún María
Grétarsdóttir, 15 ára, velur armböndin
fremur með tilliti til klæðaburðar.
NÝJASTA æðið hjá æsku landsins eru gúmmíarmbönd í skærum litum. Bæði kynin virðast hafafallið fyrir neonhringjum þessum og eru aðdáendurnir frá þriggja ára til þrítugs. Kveður svohart að þessu æði að í sumum skólum landsins hefur verið brugðið á það ráð að banna arm-
böndin þar sem þau hafa komið af stað slagsmálum. Einnig hefur borið á metingi á milli krakka um
hver eigi flest armböndin og sumir eru sagðir einskis svífast til að verða sér úti um gersemarnar.
En armböndin eru auðvitað fyrst og fremst skraut eða fylgihlutir. Í
erlendum tískublöðum eru fyrirsæturnar með þau upp um alla
handleggi. Litirnir eru þeir sömu og í fatnaði sumarsins: Appels-
ínugult, bleikt, grænt, gult og rautt.
Hringirnir eru svo vinsælir að þeir seljast jafnóðum upp í
verslunum. Þær Stefanía Sigurðardóttir og Edda Viðars í Ex í
Kringlunni sögðu að stundum væri biðröð af krökkum fyrir ut-
an verslunina þegar þær kæmu á morgnana til að opna.
„Armböndin renna út eins og heitar lummur og það er stöð-
ugur straumur af krökkum sem koma hingað í búðina til að
kaupa sér djásnin. Við fengum fyrstu sendinguna af hringj-
unum í síðustu viku og ætluðum rétt að prófa, en hún seldist
upp á tveimur tímum svo við vorum snöggar að panta meira,“
segja þær stöllur og bæta við að litlu krakkarnir vilji hafa sem
mest af hringjunum á sér í einu og í sem flestum litum en gelgj-
urnar og fullorðna fólkið kjósi frekar einn lit í einu og fáa
hringi.
„Fólk á milli tvítugs og þrítugs vill hafa hringina í sama
lit og belti eða skór sem það klæðist hverju sinni og sá
aldurshópur kaupir einnig breiðari hringi.“
Stefanía og Edda segja að yngri krakkarnir
safni sem flestum litum í armböndunum og bíði
spennt eftir nýjum litum. „Appelsínuguli liturinn
virðist vera vinsælastur, hann klárast alltaf fyrst
hjá okkur. Krakkarnir skiptast líka á eða býtta
eins og það er kallað og þá er auðvitað mest
spennandi að fá sjaldgæf eintök eins og til
dæmis armband með glimmeri eða munstri. Við
vitum um stelpu sem fékk í skiptum „öðru-
vísi“ armband sem átti uppruna sinn norð-
ur á Akureyri.“
Armhringirnir eru ódýrir og kannski
einmitt þess vegna hefur æðið gripið um
sig meðal yngri kynslóðarinnar. Þau hafa
jú flest efni á að kaupa sér dýrgripi sem
kosta aðeins 10 krónur stykkið.
Tískudjásn á tíkall
M
orgunblaðið/G
olli
F Ö S T U D A G U R 6 . J Ú N Í 2 0 0 3 B L A Ð C
GRÚPPÍA Á VESTFJARÐAVÍKINGNUM/2 ÞAÐ ER LEIKUR AÐ LÆRA
SPÆNSKU/2 KYNLÍF TÆPITUNGULAUST/4 AMMA KENNDI MÉR
AÐ SPÁ Í BOLLA/6 LITRÍKIR ROÐSKÓR/7 AUÐLESIÐ EFNI/8
2003 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ BLAÐ B
FRAMARAR sögðu í gær Kristni
Rúnari Jónssyni, þjálfara úrvals-
deildarliðs félagsins í knattspyrnu,
upp störfum en hann hefur stýrt því
í hálft þriðja ár. Eftirmaður hans
hafði ekki fundist í gærkvöld og
munu Brynjar Jóhannesson og Guð-
mundur Hreiðarsson stjórna æf-
ingu liðsins í dag.
„Ekki skemmtileg ákvörðun“
„Þetta var ekki skemmtileg
ákvörðun. Kristinn hefur lagt allt
sem hann átti í þetta starf og við
höfum verið ánægðir með hann
lengst af. Undanfarin tvö ár hefur
liðið spilað ljómandi góða knatt-
spyrnu þó að úrslitin hafi oft látið á
sér standa, en í lokaleikjum vorsins
og þeim sem búnir eru af Íslands-
mótinu hefur liðið hins vegar leikið
afleitlega. Úrlausnir voru ekki sjá-
anlegar og því ákváðum við að
stíga þetta skref núna þar sem
þetta var eini tíminn fyrir þjálf-
araskipti ef þau ættu á annað borð
að eiga sér stað,“ sagði Brynjar Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri
hlutafélagsins Fram, Fótbolta-
félags Reykjavíkur, sem sér um
rekstur elstu flokka Fram, í samtali
við Morgunblaðið í gær.
Kristinn tók við Framliðinu
haustið 2000. Þetta er í þriðja skipt-
ið á nokkrum árum sem fyrrver-
andi leikmenn Fram, sem þjálfuðu
liðið, eru leystir frá störfum. Mar-
teinn Geirsson 1995 og Guðmundur
Torfason 2000.
Magnús Jónsson tók við starfi
Marteins og Pétur Ormslev við
starfi Guðmundar, en Pétur stjórn-
aði Framliðinu aðeins í tveimur
leikjum.
RONNIE Hartvig, nýi Daninn sem
er á leið til knattspyrnuliðs KA, byrj-
ar dvöl sína hjá félaginu í leikbanni.
Hartvig, sem er 25 ára varnarmaður
og kemur frá 1. deildarfélaginu Hell-
erup IK, átti eftir að afplána tveggja
leikja bann í Danmörku og þarf hann
að taka það út hér á landi.
Hann er þegar búinn að taka út
fyrri leikinn þó hann sé ekki kominn
til landsins. Gengið var frá félaga-
skiptunum þann 31. maí, sem var
lokadagur áður en „glugganum“ fyr-
ir félagaskipti milli landa var lokað
hérlendis. Þar með var Hartvig í
banni þegar KA tók á móti KR á
þriðjudagskvöldið og verður einnig í
banni þegar KA sækir Selfoss heim í
32-liða úrslitum bikarkeppninnar
eftir viku.
Hartvig, sem er væntanlegur til
landsins um helgina, getur því spilað
með KA þegar liðið sækir Skaga-
menn heim í 5. umferð úrvalsdeild-
arinnar mánudaginn 16. júní. Mikil
meiðsli hafa herjað á KA-menn að
undanförnu og Hartvig ætti því að
vera þeim kærkominn liðsauki.
Hartvig
byrjar í
banni
hjá KA
Þetta er sérstök stund fyrir migað spila minn síðasta alvöru leik
á Íslandi. Vonandi verður þetta
skemmtilegur leikur
fyrir mig og ég
hlakka mjög til
stundarinnar. En til
þess að geta kvatt ís-
lenska knattspyrnuunnendur al-
mennilega þurfum við að fá sigur á
móti Færeyingum. Við erum komnir
með nýja þálfara og þeim fylgja nýj-
ar áherslur eins og alltaf með nýja
menn, sama hvort um er að ræða
leikmenn eða þjálfara. Þeir hafa rætt
við okkur og sagt hvað þeir vilja fá út
úr leik okkar. Við höfum verið að
vinna með hugmyndafræði þeirra
hér á æfingum og það hefur gengið
vel enda góð stemmning í hópnum.
Ég óttast ekki að það sé vanmat í
hópnum því Færeyingar hafa náð í
góð úrslit að undanförnu. Þannig að
það skal enginn halda að við getum
bara labbað inn í þennan leik og
haldið að þetta komi allt af sjálfu sér.
En að sama skapi viljum við trúa því
og treysta að við séum með betra lið
en Færeyingarnir og með góðum
leik ættum við að sigra.
Nú ætla ég að einbeita mér að því
að klára þessa síðustu leiki mína með
sóma,“ sagði Guðni, sem telur að
hann hafi tekið út sinn skammt af
knattspyrnu. „Ég er næstum orðinn
þrjátíu og átta – eins og börnin segja.
Þetta hefur gengið vel undanfarin ár
og mig langar að hætta þegar ég
stend enn fyrir mínu. Svo hef ég líka
að mörgu öðru að hyggja. Fjölskyld-
an flutti heim á undan mér og nú get
ég snúið mér að henni,“ sagði Guðni
Bergsson í samtali við Morgunblaðið
á Laugardalsvelli í gær.
Morgunblaðið/Golli
Guðni Bergsson umkringdur af ungum aðdáendum eftri landsliðsæfingu í gær á Laugardalsvell-
inum, þar sem hann gaf sér tíma til að gefa þeim eiginhandaráritanir á mydnir sem Hekla gaf.
Guðni vill kveðja
með sigurleik
GUÐNI Bergsson, leikmaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu,
leikur á morgun kveðjuleik sinn á Laugardalsvelli – þegar Ísland
mætir Færeyjum. Leikurinn er 80. leikur Guðna með íslenska
landsliðinu. Guðni hefur ekki spilað leik á Laugardalsvelli síðan Ís-
land tapaði gegn Írum hinn 6. september árið 1997, en þá var hann
fyrirliði liðsins. Guðni var valinn aftur í landsliðið fyrr á þessu ári
þegar liðið lék gegn Skotum.
Eftir
Hjörvar
Hafliðason
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
KÖRFUKNATTLEIKSMENN STEFNA Á GULL Á MÖLTU / B6
Kristni sagt
upp hjá Fram
LOGI Gunnarsson, körfuknattleiksmaður, mun
leika á æfingamóti á Spáni að loknum Smá-
þjóðaleikunum á Möltu. Þar mun Logi reyna
fyrir sér hjá Valladolid sem leikur í efstu deild
á Spáni en að margra mati er sú deild önnur í
röðinni hvað styrkleika varðar á eftir NBA-
deildinni. „Ég mun leika nokkra leiki á sér-
stöku móti sem sett er upp til þess að þeir geti
skoðað leikmenn. Það veit enginn hvað mun
gerast í framhaldinu en ég er með allar klær úti
þessa dagana í gegnum umboðsmann minn,“
sagði Logi í gær en hann lék með Ulm í þýsku 2.
deildinni s.l. vetur. „Síðar í sumar mun ég fara
til Frakklands þar sem ég mun æfa og leika
með nokkrum frönskum liðum þannig að ég fæ
ekki mikið sumarfrí að þessu sinni, enda er ég í
atvinnuleit,“ sagði Logi en hann valdi að semja
ekki við Ulm á ný.
Logi til reynslu
hjá Valladolid
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 32/33
Viðskipti 12/16 Minningar 34/41
Erlent 17/21 Bréf 44
Höfuðborgin 22 Brids 59
Akureyri 22 Dagbók 46/47
Suðurnes 23 Staksteinar 46
Landið 24 Leikhús 48
Listir 25/26 Fólk 48/53
Menntun 27 Bíó 50/53
Forystugrein 28 Ljósvakamiðlar 54
Viðhorf 32 Veður 55
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir auglýsingablaðið Sparimaga-
zín. Blaðinu er dreift um allt land.
TOLLGÆSLAN á Seyðisfirði lagði
hald á nærri sex grömm af kannabis-
efnum sem fundust í bifreið erlendra
ferðamanna um borð í ferjunni Nor-
rönu við komuna til Seyðisfjarðar í
gær. Tollgæslan naut aðstoðar fíkni-
efnahunda frá lögreglunni á Eski-
firði og tollstjóranum í Reykjavík.
Skv. upplýsingum lögreglunnar
hefur kannabisefni áður fundist í fór-
um farþega með Norrönu og toll-
gæslan einnig lagt hald á 1.000 olíu-
málverk og ótilgreint magn af
áfengi, tóbaki og hráu kjöti.
Fíkniefni
í Norrönu
♦ ♦ ♦
FYRRVERANDI aðalgjaldkera
Landssímans var sleppt úr gæslu-
varðhaldi í gærkvöldi en varðhald
hans átti að renna út í dag, föstudag.
Ekki var talin ástæða til að halda
honum lengur í gæsluvarðhaldi
vegna rannsóknar fjársvikamálsins
innan Landssímans. Hafa því allir
sakborningarnir fjórir sem sætt hafa
gæsluvarðhaldi vegna málsins verið
leystir úr haldi.
Rannsókn málsins miðar vel þrátt
fyrir mikið umfang þess að sögn
Jóns H. Snorrasonar, saksóknara
hjá efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra.
Fyrrverandi aðal-
gjaldkeri Símans
Laus úr
gæslu-
varðhaldi
KOMIÐ hefur til tals innan Brims-
samstæðunnar að Fiskverkun GPG
á Húsavík yfirtaki rekstur Jökuls
ehf. á Raufarhöfn. Gunnlaugur Karl
Hreinsson, framkvæmdastjóri Fisk-
verkunar GPG, staðfesti þetta í sam-
tali við Morgunblaðið en hann á
helmingshlut í fyrirtækinu á móti
Útgerðarfélagi Akureyringa.
Gunnlaugur segir þetta skýrast á
næstu dögum. Persónulega telur
hann þetta mögulegt og þá líklegt í
framhaldinu að hægt verði að ráða til
vinnu alla þá 50 starfsmenn Jökuls
sem nýlega var sagt upp störfum.
Fiskverkun GPG hefur stundað
saltfiskvinnslu og -þurrkun til
margra ára á Húsavík og er með 35–
40 manns í vinnu að jafnaði. Eftir að
Útgerðarfélag Akureyringa keypti
helmingshlut í fyrirtækinu fyrir
tveimur árum, og það fór að tilheyra
Brimssamstæðunni, dótturfélagi
Eimskips, hefur það verið saltfisk-
deild Brims.
Gunnlaugur segir að ef þau áform
gangi eftir að á Raufarhöfn fari fram
einhvers konar saltfiskvinnsla í
framtíðinni þá muni það gerast undir
merkjum Fiskverkunar GPG.
Rætt um að Fiskverkun GPG
yfirtaki Jökul á Raufarhöfn
BRETINN Jonathan Burleigh
hyggst næstu 3–4 mánuði gera til-
raun til að róa kajak sínum einn
síns liðs í kringum Ísland við ein-
hverjar þær erfiðustu aðstæður
sem kajakræðarar glíma við. Þeg-
ar hann lagði upp frá Ólafsvík um
hádegisbil á fimmtudag mældist
vindur 15 m/sek og sjórinn gekk
yfir kajakinn þegar hann reri út
yfir Gömluvík en Burleigh ætti að
vera á lygnari sjó þessa stundina.
Róbert Schmidt, sem hefur að-
stoðað Burleigh á ýmsan hátt hér
á landi, segir hann þaulvanan
björgunarsveitarmann og kajak-
ræðara og hafi skipulagt ferða-
lagið í nokkur ár ásamt föður sín-
um. Fyrsti leggurinn var yfir
Grundarfjörð, síðan yfir í Stykk-
ishólm og loks yfir Breiðafjörð-
inn. Helstu farartálmarnir á Vest-
fjörðum eru miklar rastir sem oft
myndast undan Látrabjargi,
Straumnesi og Hornbjargi. Erf-
iðasti áfanginn er þó við suður-
ströndina en frá Höfn í Horna-
firði og langleiðina að
Reykjanesskaga er yfirleitt tals-
vert brim og fáir hentugir lend-
ingarstaðir. Chris Duff, Leon
Somné og Shawna Franklin, sem
lentu í sandstormi við Skaftárósa
fyrir skemmstu, ætla einnig að
sigla í kringum landið í sumar. Í
frétt um hrakninga þeirra í Morg-
unblaðinu var sagt að slíkt hefði
ekki áður verið gert. Þær upplýs-
ingar voru ekki réttar. Að sögn
Róberts Schmidts reru Bretarnir
Nigel Foster og Geoff Hunter í
kringum landið árið 1977. Árið
1986 síðar lögðu Bandaríkja-
mennirnir Harry House og John
Bauman upp í slíka hringferð og
segir Róbert að þeir hafi lokið
hringnum. Íslendingar hafi þó
haft litlar fregnir af ferðum
þeirra þar til fyrir skemmstu.
Enginn hefur þó róið í kringum
landið einn síns liðs. Jonathan
Burleigh ætlar að verða sá fyrsti.
Einn á kajak í
kringum landið
Ljósmynd/Róbert Schmidt
Bretinn Jonathan Burleigh er þaulreyndur kajakræðari.
TENGLAR
..............................................
http://www.iceland2003.co.uk/
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 16 ára gamlan pilt í
sex mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn 15 ára
gamalli stúlku í marsmánuði 2002.
Var ákærði enn fremur dæmdur til
að greiða stúlkunni 500 þúsund
krónur í miskabætur, auk sakar-
kostnaðar.
Ákærða var gefið að sök að hafa í
félagi við tvo aðra ósakhæfa pilta
þröngvað stúlkunni með ofbeldi til
samræðis og sumpart notfært sér
að stúlkan gat ekki spornað við
samræðinu sökum ölvunar og svefn-
drunga. Héraðsdómur taldi ekki,
gegn eindreginni neitun ákærða frá
upphafi, að komið hefði fram lögfull
sönnun þess að hann hefði þröngvað
stúlkunni til samræðis.
Stúlkan sagði að einn pilturinn
hefði haldið í hendur sér á meðan
ákærði hafði við hana samræði og
einnig taldi hún að sér hefði verið
haldið fastri á hárinu um tíma. Að
mati dómsins var erfitt að ráða af
framburði hvernig atburðarásin var.
Aftur á móti taldi dómurinn sannað,
með vitnisburði stúlkunnar, vitna og
að hluta með framburði ákærða, að
aðstæður hefðu verið þannig, þegar
ákærði hafði samræði við stúlkuna,
að hann hefði komið fram vilja sín-
um með ólögmætri nauðung.
Hálfs árs
fangelsi fyrir
kynferðisbrot
♦ ♦ ♦