Morgunblaðið - 06.06.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 6. JÚNÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
Mokveiði á
kolmunna
MOKVEIÐI hefur verið á kol-
munna á svokölluðu Rauða-
torgi, um 80 mílur austur af
Austfjörðum, en Börkur
NK-122 og Ásgrímur Halldórs-
son frá Síldarvinnslunni hafa
verið þar við veiðar síðastliðna
tvo sólarhringa. Ásgrímur kom
með fullfermi í land í gær, eða
1.000 tonn, sem hann fékk í
þremur hollum, og Börkur, sem
tekur 1.700 tonn, var í gær-
kvöldi langt kominn með að
fylla.
Mælt með
auknum
einkarekstri
SENDINEFND Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins mælir með því að hlutur
einkaaðila við að veita almannaþjón-
ustu verði aukinn, sérstaklega í heil-
brigðis- og menntageiranum. Þetta
kemur fram í nýju áliti sendinefnd-
arinnar en þar er einnig mælt með því
að stjórnvöld íhugi að færa í áföngum
meginhluta húsnæðislána Íbúðalána-
sjóðs yfir í bankakerfið þannig að á
endanum sinni Íbúðalánasjóður ein-
ungis félagslegum íbúðalánum.
Í álitinu segir að staða ríkisfjár-
mála sé í meginatriðum góð en út-
gjöld ríkisins hafi verið umfram
áform á síðustu árum og umframút-
gjöldin tengist heilbrigðis- og
menntamálum. Með hliðsjón af út-
gjaldavextinum væri gagnlegt að
auka hlut einkaaðila í heilbrigðis- og
menntageiranum og efla tengsl milli
þjónustugjalda, sem hægt væri að
tekjutengja, og raunverulegs kostn-
aðar við þjónustuna. Þetta eigi sér-
staklega við í fyrrnefndum geirum
þar sem kostnaði hætti til að fara úr
böndum.
Sendinefndin mælir með áfram-
haldandi kerfisumbótum en þær hafi
gengið vel og stuðlað að eftirtektar-
verðum hagvexti hér á landi. Fagnað
er fyrirætlunum um sölu á hlut rík-
isins í Landssímanum og sagt að þó
að nokkuð hafi miðað í átt til frjáls-
Varað við/12
ræðis og hagræðingar í orkugeiran-
um sé enn af nógu að taka.
Þá segir að Ísland viðhafi mestu
hindranir sem þekkist meðal þróaðra
ríkja í viðskiptum með landbúnaðar-
afurðir sem verði á kostnað neytenda.
Skref hafi verið stigin í frjálsræðisátt
en hvatt er til að hætt verði fram-
leiðslustyrkjum og innflutningskvót-
um en bændur njóti þess í stað tíma-
bundinna beinna styrkja.
Yngsti útskriftarneminn í 10. bekk byrjaði í 8. bekk í fyrrahaust
Lauk gagn-
fræðaskóla á
einum vetri
Morgunblaðið/Kristinn
Bjarni Frímann Bjarnason útskrifaðist úr Hagaskóla í gær, 13 ára gamall.
skóla. „Þetta var söngleikur um
mafíósa og sjómenn. Ég samdi
annað lagið, útsetti hitt og stjórn-
aði hljómsveitinni. Þetta var ljóm-
andi skemmtilegt. Það fór svolítill
tími í þetta en maður uppskar
laun erfiðisins,“ segir Bjarni.
Stefnir á frekara
tónlistarnám
Bjarni hefur ekki ákveðið hvað
hann tekur sér nú fyrir hendur en
segist ætla að byrja á að sofa
hraustlega. Í vetur mun hann
halda fiðlunáminu áfram og fram-
tíðardraumarnir tengjast tónlist-
inni. „Ég stefni á að verða tón-
skáld, ef til vill fiðluleikari líka og
hljómsveitarstjórnandi,“ segir
þessi ungi afreksmaður. Hann
segist afar þakklátur öllum þeim
sem gerðu honum mögulegt að
flýta náminu, þá sérstaklega Ein-
ari Magnússyni, skólastjóra Haga-
skóla, sem studdi vel við bakið á
honum.
ars næsthæstur í sínum árgangi í
íslensku, með einkunnina 9,5.
Meðfram skóla stundaði Bjarni
nám við Tónlistarskóla Reykjavík-
ur og lauk þaðan 6. stigi í fiðluleik
í vor. Bjarni segist ekki verja
meiri tíma í heimanám en gerist
og gengur en fyrsta vikan eftir jól
hafi þó kostað vinnu. „Ég las þá
upp námsefni 9. bekkjar og það
sem 10. bekkur hafði gert fyrir
áramót. Annars er ég nú kannski
ekki sá allra iðnasti,“ segir hann.
Samdi tónlist fyrir atriði
Hagaskóla í Skrekk
Bjarni segir að tónlistarnámið
taki mestan sinn tíma en auk þess
að sækja fiðlutíma í vetur var
Bjarni í píanótímum, tónfræði og
strengjasveit tónlistarskólans.
Þegar hann er spurður hvort
hann hafi endalausa orku og verði
aldrei þreyttur segir Bjarni að
það komi fyrir. „Stundum er mað-
ur svolítið latur í þessu og vill
gera eitthvað annað, til dæmis að
lesa eða vera í félagslífi.“ Þar hef-
ur hann heldur ekki látið sitt eftir
liggja og samdi meðal annars tón-
listina fyrir siguratriði Hagaskóla
í Skrekk, hæfileikakeppni grunn-
MEÐAL þeirra nemenda sem út-
skrifuðust úr Hagaskóla í gær var
13 ára gamall drengur, Bjarni
Frímann Bjarnason, en hann hóf
nám við 8. bekk skólans síðastliðið
haust. Um miðjan vetur tók hann
stöðupróf og var eftir áramót
hækkaður upp um tvo bekki.
Bjarni, sem er sonur Bjarna Frí-
manns Karlssonar og Sólveigar
Diðriku Ögmundsdóttur, útskrif-
aðist með glæsibrag, hafði 8,8 í
meðaleinkunn og var meðal ann-
19 ÁRA piltur, sem sætti gæslu-
varðhaldi fyrir vopnað bankarán í
Sparisjóði Hafnarfjarðar í apríl sl.,
var samkvæmt heimildum blaðsins
handtekinn á ný í gær vegna gruns
um annað bankarán, að þessu sinni
í útibúi Landsbankans í Grindavík.
Gert er ráð fyrir að krafist verði
gæsluvarðhalds yfir honum í dag.
Ránið var framið kl. 12.48 í gær
þegar ræninginn kom inn í bankann
vopnaður hnífi. Ógnaði hann starfs-
fólki sem þar var að vinna en
meiddi engan. Tveir voru við störf
þegar ránið var framið og einn við-
skiptavinur. Ræninginn var klædd-
ur bláum samfestingi með græna
lambhúshettu á höfði og náðust
myndir af honum í eftirlitskerfi
bankans. Þær voru þó ekki nógu
skýrar til að unnt væri að bera
kennsl á ræningjann af þeim einum.
Ræninginn flúði á hlaupum að ráni
loknu og hvarf með ótilgreindar
fjárhæðir. Lögregluembættin í
Grindavík, Keflavík, Selfossi og
Hafnarfirði auk ríkislögreglustjóra
sameinuðust um aðgerðir á vett-
vangi með vegatálmum á vegum út
úr Grindavík og vettvangsrannsókn
með aðstoð tæknideildar lögregl-
unnar í Reykjavík. Um kl. 15 kom
maður akandi að einum vegatálm-
anum og vakti grunsemdir lögreglu
á grundvelli lýsinga vitna á ræn-
ingjanum. Var maðurinn handtek-
inn og færður til yfirheyrslu í
Keflavík. Hann er ekki búsettur í
Grindavík, að sögn lögreglu.
Í kjölfar ránsins voru fulltrúar
yfirstjórnar Landsbankans sendir
til Grindavíkur til þess að veita að-
stoð og áfallahjálp.
Ránið í gær er þriðja vopnaða
bankaránið á níu vikna tímabili. Öll
hafa ránin verið framin á
suðvesturhorninu, fyrst í Sparisjóði
Hafnarfjarðar 1. apríl, næst í Spari-
sjóði Kópavogs 16. maí og nú síðast
í Grindavík.
Handtekinn aftur
vegna bankaráns
Morgunblaðið/Júlíus
Nágrenni ránsstaðarins var girt af með vegatálmum á vegum út úr Grinda-
vík á meðan rannsóknarlögreglumenn unnu á vettvangi.
Á SPÆNSKU
er pils falda og
þar sem ein
kennimynd ís-
lensku sagn-
arinnar að fela
hljómar mjög
líkt er hún notuð á vefnum tungu-
malstrax.com til að hjálpa námfús-
um að læra tiltekið orð. Á upphafs-
síðunni er smellt á „gömul orð“, þá
blasa við myndir af huglægum fyr-
irbærum sem og hlutum og sé til
dæmis smellt á mynd af pilsi kemur
upp hreyfiteiknimynd af Fjólu, sem
er með falda myndavél í pilsinu.
Framangreint er dæmi um ný-
stárlega aðferð í tungumála-
kennslu, sem Einar Trausti Ósk-
arsson, kennari við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja, hefur að eigin frum-
kvæði sett upp á vefsíðu á Netinu til
að kenna lykilorðin í spænsku.
Spænskunám í
anda tölvuleikja
Daglegt líf/B2