Morgunblaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 163. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Tónlist
við Djúpið
Fjögurra daga tónlistarhátíð
haldin á Vestfjörðum | Listir 25
Kraftar
í kögglum
Benedikt Magnússon sterkasti
maður Íslands 2003 | Fólk 52
Heldur
í vonina
Sendiherra Palestínu í samtali
við Morgunblaðið | Erlent 14
Kringlukast
hefst í dag
Opið til kl. 21
BANDARÍSKA hernámsliðið í Írak
hefur handtekið nánasta samstarfs-
mann Saddams Husseins, Abid
Hamid Mahmud,
og er hann hæst-
setti fyrrverandi
embættismaður-
inn sem tekinn
hefur verið hönd-
um í landinu til
þessa, að sögn
bandarískra emb-
ættismanna í
gær.
Bandaríska
herstjórnin sagði
að Mahmud, fjarskyldur ættingi
Saddams, hefði verið handtekinn í
Írak á mánudag en veitti ekki frekari
upplýsingar um handtökuna. Mah-
mud bar titilinn forsetaritari, en
samkvæmt skýrslu bresku stjórnar-
innar bar hann ábyrgð á öryggi
Saddams og fór einnig með varnar-,
þjóðaröryggis- og leyniþjónustumál.
Mahmud er númer fjögur á listan-
um yfir þá Íraka sem Bandaríkjaher
leggur mesta áherslu á að hand-
sama. Þegar Saddam Hussein var
við völd sást hann sjaldan opinber-
lega án Mahmuds, sem var álitinn
nánasti ráðgjafi hans og getur að öll-
um líkindum veitt upplýsingar um
afdrif íraska forsetans fyrrverandi í
stríðinu.
Nánasti
ráðgjafi
Saddams
handtekinn
Bagdad. AFP, AP.
Abid Hamid
Mahmud
fræðideild og 87 úr raungreinadeild.
Konur eru í miklum meirihluta
þeirra sem útskrifast. Þær eru 497,
eða tæplega 64%, en karlar einungis
282, eða rúmlega 36%. Aldrei fyrr
hefur munurinn verið jafnmikill.
Karlar eru þó mun fleiri í útskrift-
arhópi verkfræðideildar, eða 87.
Konurnar eru 26.
Munurinn á kynjunum er lang-
mestur í hjúkrunarfræðideild. Þar
útskrifast 77 konur en enginn karl.
Úr heimspekideild verða 72 konur
ALLS munu 779 kandídatar útskrif-
ast frá Háskóla Íslands næstkom-
andi laugardag. Þetta er stærsti
hópur sem brautskráðst hefur frá
skólanum. Athöfnin fer fram í Laug-
ardalshöll.
Flestir útskrifast úr félagsvís-
indadeild, eða 210, en 113 útskrifast
úr verkfræðideild. Hvorug deild-
anna hefur áður brautskráð svo
marga að vori. Úr heimspekideild
útskrifast 113, 141 úr heilbrigðis-
greinum, 91 úr viðskipta- og hag-
brautskráðar en 28 karlar og frá fé-
lagsvísindadeild útskrifast 150 kon-
ur og 60 karlar.
Vegna mikillar fjölgunar braut-
skráninga í júní-útskrift Háskóla Ís-
lands hefur umræða skapast um það
hvort leita þurfi að stærra húsnæði
en Laugardalshöll til þess að hýsa
athöfnina. Búast má við að húsfyllir
verði á laugardag. Á síðustu árum
hefur nokkuð verið kvartað yfir
þrengslum og hita og eru þess dæmi
að fólk hafi fallið í yfirlið.
Stærsta brautskráning HÍ
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
upplýsti í þjóðhátíðarræðu sinni á
Austurvelli að fulltrúar Íslands og
Bandaríkjanna myndu hittast hér á
landi „á næstunni“. Það hefði verið
ákveðið á grundvelli þeirra bréfa-
skipta sem átt hefðu sér stað að und-
anförnu milli hans og George W. Bush
Bandaríkjaforseta um varnarmál.
Spurður í gærkvöldi um nánari dag-
setningu sagði aðstoðarmaður for-
sætisráðherra, Illugi Gunnarsson, við
Morgunblaðið að viðræður ríkjanna
myndu hefjast í Reykjavík næstkom-
andi mánudag, 23. júní.
Viðræðurnar verða á forræði for-
sætisráðuneytisins en Illugi sagði að
þær færu fram í nánu samráði og sam-
starfi við utanríkisráðherra og utan-
ríkisráðuneytið. Illugi gat á þessu stigi
ekki upplýst hverjir nákvæmlega
myndu hefja viðræðurnar á mánudag
fyrir hönd ríkjanna eða hve lengi þær
myndu standa yfir.
Þjóðirnar beri gæfu til að finna
sanngjarna niðurstöðu
Forsætisráðherra sagðist í þjóðhá-
tíðarræðu sinni hafa átt hreinskilin og
vinsamleg bréfaskipti við Bandaríkja-
forseta að undanförnu.
„Ég hef haft tækifæri til þess á und-
anförnum árum að fylgjast með forset-
anum í návígi fjalla um slík mál á vett-
vangi Atlantshafsbandalagsins og tel
að hann hafi gert það með miklum
ágætum og sýnt góðan skilning á þeim
grundvallaratriðum sem hér eru í húfi.
Ég leyfi mér því að hafa traust á því
að þessar góðu vinaþjóðir beri gæfu til
að finna sanngjarna niðurstöðu á þeim
álitaefnum sem nú eru til umræðu. Á
grundvelli framangreindra bréfaskipta
hefur nú verið ákveðið að fulltrúar
ríkjanna muni hittast hér á landi á
næstunni til að fara yfir þá kosti sem
fyrir hendi eru og þá auðvitað einnig
þau meginsjónarmið sem við Íslend-
ingar höfum um þann lágmarksvarn-
arviðbúnað, sem hver þjóð hlýtur að
gera kröfu til á þessum tíma sem öðr-
um,“ sagði Davíð Oddsson m.a. í ræðu
sinni á Austurvelli 17. júní.
Viðræður
við Banda-
ríkjamenn
hefjast á
mánudag
Öryggi okkar/28–29
ANNELI Jäätteenmäki sagði af
sér sem forsætisráðherra Finn-
lands í gær, aðeins tveimur mán-
uðum eftir að hún varð fyrsta kon-
an til að gegna embættinu, vegna
ásakana um að hún hefði logið að
þinginu og þjóðinni um hvernig
trúnaðarskjöl úr utanríkisráðu-
neytinu komust í hendur hennar
fyrir þingkosningarnar í mars.
Tarja Halonen, forseti Finn-
lands, féllst á afsagnarbeiðni
Jäätteenmäki og stjórnar hennar
í gærkvöldi en bað ráðherrana að
sitja áfram í stjórninni þar til nýr
forsætisráðherra tæki við. For-
ystumenn stjórnarflokkanna
þriggja, Miðflokksins, Jafnaðar-
mannaflokksins og Sænska þjóð-
arflokksins, gáfu til kynna að þeir
hygðust reyna að mynda nýja
stjórn.
Að sögn heimildarmanna
fréttastofunnar AFP er líklegt að
Matti Vanhanen, varnarmálaráð-
herra og varaformaður Mið-
flokksins, flokks Jäätteenmäki,
taki við forsætisráðherraembætt-
inu.
Gert er ráð fyrir því að þingið
að Jäätteenmäki hefði falast eftir
skjölunum og gefið honum upp
óskráð faxnúmer sitt.
Finnskir lögspekingar sögðu að
Jäätteenmäki kynni að verða sak-
sótt og ætti yfir höfði sér allt að
tveggja ára fangelsisdóm. Hún
notaði upplýsingar úr skjölunum í
kosningabaráttunni til að koma
höggi á Paavo Lipponen, þáver-
andi forsætisráðherra, og hann
kvaðst ekki líta á afsögnina sem
sigur fyrir sig. „Í þessu máli er
enginn sigurvegari,“ sagði hann.
ákveði í næstu viku hvaða breyt-
ingar verða gerðar á stjórninni.
Verður hugsanlega ákærð
Fyrr um daginn kom Jäätteen-
mäki fyrir þingið og varðist ásök-
unum um að hún hefði sagt ósatt
um hvernig hún fékk trúnaðar-
skjölin frá utanríkisráðuneytinu.
Hún fullyrti að hún hefði ekki ósk-
að eftir trúnaðarskjölunum og
verið mjög undrandi þegar hún
hefði fengið útdrætti úr þeim á
faxi. Nokkrum klukkustundum
síðar skýrði aðstoðarmaður for-
setans, Martti Manninen, frá því
Lehtikuva
Anneli Jäätteenmäki tilkynnir afsögn sína sem forsætisráðherra Finnlands á blaðamannafundi með Timo
Kalli (til vinstri), formanni þingflokks Miðflokksins, eftir fund í þingflokknum um mál hennar í gær.
Forsætisráðherra
Finna segir af sér
Jäätteenmäki sökuð um að hafa logið að þinginu
Lehtikuva
Jäätteenmäki með afsagnarbréfið á leið til fundar við forsetann.
Helsinki. AP, AFP.
Írakslekinn/12
NEÐRI deild ítalska þingsins sam-
þykkti í gær umdeilt lagafrumvarp
sem veitir Silvio Berlusconi, for-
sætisráðherra Ítalíu, friðhelgi fyrir
dómsákærum meðan hann gegnir
embættinu.
Frumvarpið var samþykkt með
319 atkvæðum gegn sautján og
þrettán þingmenn sátu hjá. Þing-
menn stærstu vinstriflokkanna tóku
ekki þátt í atkvæðagreiðslunni til að
mótmæla frumvarpinu.
Öldungadeild þingsins samþykkti
frumvarpið fyrir hálfum mánuði.
Berlusconi
veitt friðhelgi
Róm. AFP.
Kallaði vitni/15
♦ ♦ ♦