Morgunblaðið - 19.06.2003, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kosningaréttur
kvenna 88 ára!
Bandalag kvenna í Reykjavík, Feministafélag
Íslands, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenrétt-
indafélag Íslands og Kvennasögusafn Íslands
efna til samfelldrar dagskrár í tilefni dagsins:
Kl. 16:30 Ganga um kvennasöguslóðir í Kvosinni undir
leiðsögn Auðar Styrkársdóttur, forstöðumanns
Kvennasögusafns Íslands.
Kl. 17:15 Skemmtidagskrá að Hallveigarstöðum,
Túngötu 14.
Kynning: Þorbjörg Inga Jónsdóttir,
formaður KRFÍ.
Ávarp: Sif Friðleifsdóttir, umhverfismálaráð-
herra. Margrét Ákadóttir leikkona flytur atriði úr
leikþættinum „Ólafía“
eftir Guðrúnu Ásmundsdóttur
Ávarp: Birna Þórarinsdóttir,
Feministafélagi Íslands
Fundarstjóri: Anna Gunnhildur Ólafsdóttir,
blaðamaður.
Kaffiveitingar - Allir velkomnir
Mætum í bleiku!
MIKIÐ var um dýrðir á 17. júní-hátíðahöldum í
Reykjavík. Að venju hófust hátíðahöldin með
samhljómi kirkjuklukkna í Reykjavík en að því
loknu lagði Árni Þór Sigurðsson, forseti borg-
arstjórnar, blómsveig á leiði Jóns Sigurðs-
sonar.
Hátíðardagskrá á Austurvelli var með hefð-
bundnu sniði og hófst með ávarpi Önnu Krist-
insdóttur, formanns þjóðhátíðarnefndar. Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, lagði
blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar
og Davíð Oddsson forsætisráðherra flutti
ávarp.
Flutti ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur
Inga María Valdimarsdóttir leikkona gegndi
hlutverki fjallkonunnar í ár og flutti ljóð eftir
Ingibjörgu Haraldsdóttur.
Það sem eftir var dagsins var nóg um að
vera í miðborginni fyrir unga jafnt sem aldna.
Höfuðborgarbúar létu ekki dapurt veður aftra
sér og fjölmenntu í miðbæinn til að skemmta
sér og öðrum. Á Arnarhóli og Ingólfstorgi var
boðið upp á fjölbreytta skemmtun frá morgni
til kvölds. Meðal skemmtiatriða voru dans-
atriði, leiksýningar og söngflutningur. Að auki
voru ýmsir viðburðir víðs vegar um höfuðborg-
ina. Til dæmis var skemmtidagskrá í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum og Árbæjarsafnið
var með þjóðhátíðardagskrá.
Talið er að um 20–30.000 manns hafi verið í
miðbænum þegar mest var en að sögn lögreglu
fóru hátíðahöld að mestu friðsamlega fram.
Hátíðahöld
með hefð-
bundnu sniði
Morgunblaðið/Golli
Í Reykjavík var mikið fjör á 17. júní-hátíðahöldunum á Arnarhóli og Ingólfstorgi.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Inga María Valdimarsdóttir fjallkona flutti ljóð
eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur.
Morgunblaðið/Júlíus
Birgitta Haukdal var meðal þeirra sem tóku lagið á sviðinu við Arnarhól á þjóðhátíðinni.
KOMIN er út hjá
lagadeild Háskól-
ans í Reykjavík
bókin „Um for-
dæmi og vald-
mörk dómstóla“
eftir Jón Steinar
Gunnlaugsson
prófessor.
Í bókinni er
fjallað um réttar-
heimildina for-
dæmi en með því hugtaki er átt við
að notkun réttarheimildar við úr-
lausn í einu dómsmáli eða fleirum
verði fyrirmynd að notkun hennar í
öðru máli síðar, þar sem leysa þarf
úr sams konar álitaefni.
Höfundur fellst ekki á útbreiddar
kenningar um að dómstólar hafi
heimildir til að skapa nýjar réttar-
reglur sem þeir megi síðan beita með
afturvirkum hætti til að byggja úr-
lausnir sínar á. Telur hann að leggja
verði til grundvallar að réttarreglan
sem við á hafi verið til, þegar þau at-
vik urðu, sem úr þarf að leysa. Byggi
stjórnskipun landsins á þessari meg-
inhugsun og beri enga þörf til að
víkja frá henni.
Í bókinni eru þessi álitamál skoð-
uð frá ýmsum hliðum og er þar leit-
ast við að greina það sem höfundur
nefnir réttarlegt eðli fordæma. Kem-
ur þar fram sú skoðun, að við mynd-
un fordæmis liggi jafnan önnur rétt-
arheimild til grundvallar, sem leiddi
til þeirrar niðurstöðu um efni rétt-
arreglu, sem lögð er til grundvallar
dómi. Um sambærileg tilvik sé síðan
nóg að vísa til dómsins án þess að
þurfa í hvert sinn að kanna efni við-
komandi heimildar.
Nefnd eru fjölmörg dæmi úr
dómaframkvæmd Hæstaréttar þar
sem þessi álitamál koma við sögu.
Ýmis dæmi eru nefnd, þar sem höf-
undur telur dómstólinn hafa farið út
fyrir valdheimildir sínar.
Bókin er sú fyrsta sem lagadeild
Háskólans í Reykjavík gefur út. Hún
er 156 blaðsíður.
Ný bók eftir Jón
Steinar Gunnlaugsson
Álitamál um
fordæmi og
valdmörk
dómstóla
Jón Steinar
Gunnlaugsson
NOKKRIR einstaklingar héldu
mótmælaspjöldum á loft þegar
Davíð Oddsson forsætisráðherra
flutti ávarp á Austurvelli 17. júní.
Lögregla bað mótmælendur
vinsamlega að víkja af hátíð-
arsvæðinu en skv. upplýsingum
sem fengust hjá lögreglu í gær er
ekki leyfilegt lögum samkvæmt
að mótmæla á fyrirfram
ákveðnum og auglýstum hátíð-
arsvæðum.
Að sögn lögreglu fóru flestir
mótmælenda út fyrir svæðið en
þó þurfti að bera einn út af því.
Einn var handtekinn og færður á
lögreglustöð en látinn laus eftir
viðræður.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögregla biður mótmælendur að færa sig út fyrir hátíðarsvæðið.
Mótmæli á Austurvelli
ÁBYRGÐASJÓÐUR launa hefur
hafnað kröfum fyrrverandi starfs-
manna Fréttablaðsins ehf. sem hófu
störf hjá nýju útgáfufélagi Frétta-
blaðsins um laun sem þeir fengu ekki
greidd eftir að Fréttablaðið ehf. varð
gjaldþrota. Stjórn sjóðsins tók end-
anlega ákvörðun um þetta á fundi í
gærmorgun.
Í apríl sl. kynnti sjóðurinn sam-
hljóða ákvörðun fyrir lögmönnum
málsaðila og þeim gefinn kostur á að
koma við mótrökum. Guðjón Braga-
son, formaður sjóðsins, segir að um
20 fyrrverandi starfsmenn Frétta-
blaðsins ehf. hafi fengið vinnu hjá
Frétt ehf. sem nú gefur út Frétta-
blaðið. Þessum starfmönnum hafi
verið synjað um greiðslur úr sjóðn-
um vegna vangoldinna launa og bent
á að sækja greiðslur til núverandi út-
gáfufélags. Á hinn bóginn hafi fyrr-
verandi starfsmenn Fréttablaðsins
ehf. sem ekki hófu störf hjá hinu nýja
félagi fengið greiðslur úr sjóðnum.
„Við bjuggumst alveg við þessu,“
segir Kristján Hjálmarsson, trúnað-
armaður blaðamanna á Frétta-
blaðinu. Hann segir að til standi að
funda með lögfræðingum Blaða-
mannafélags Íslands í dag til að fara
yfir stöðu mála og hvert næsta skref
verði.
Fá endanlega
synjun hjá
Ábyrgðar-
sjóði launa