Morgunblaðið - 19.06.2003, Blaðsíða 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2003 49
BRJÁLAÐ KRINGLUKAST
Í COSMO 19.-22. júní
KRINGLUNNI
• Dragtir áður 28.900
nú aðeins 19.900
• Allar buxur áður 8.990
nú aðeins 3.990
• Skyrtur áður 6.990
nú aðeins 2.990
• Bolir áður 5.990
nú aðeins 2.990
• Allar töskur áður 7.990
nú aðeins 1.990
• Allir skór áður 5.990
nú aðeins 1.990
o.fl. o.fl. frábær tilboð
TUTTUGASTA Skjálftakeppnin frá
upphafi var haldin um helgina þar
sem rúmlega 500 tölvuleikjakappar
hittust og spiluðu frá föstudags-
síðdegi fram á sunnudagskvöld.
Fyrir þá sem ekki vita er Skjálfti
tölvuleikjakeppni þar sem menn
koma með tölvur sínar að heiman,
tengja þær saman og spila hver á
móti öðrum í ýmiskonar skot-
leikjum. Húsakynnin voru opin allan
sólarhringinn á Skjálftamótinu, sem
var annað mót ársins, og öttu menn
kappi – ýmist maður á mann eða lið
gegn liði – í leikjum á borð við
Quake III (en keppnin var upp-
haflega nefnd eftir þeirri leikjaröð),
Counter-Strike, Action Quake, Day
of Defeat og Warcraft III. Að sögn
Árna Rúnars Kjartanssonar, stjórn-
anda mótsins, gekk keppnin öll vel
fyrir sig en einkenndist af því hve
jöfn hún var og oftar en ekki var
mjög mjótt á munum. Meðal þátttak-
enda á mótinu var sænski leikmað-
urinn Magnus Olsson sem gegnir
spilaranafninu ic-fox en hann þykir
með allra sterkustu Quake-spilurum
í Evrópu. Hann mætti þó ofjarli sín-
um í einvígi á móti Erni Ingólfssyni
(með leikmannsnafnið Con) sem
skaut honum ref fyrir rass. Sig-
urliðið í Counter-Strike var MurK-
liðið sem hefur verið að gera það
gott í alþjóðlegri keppni en í Quake
III-liðakeppni sigruðu þeir sömu-
leiðis.
Í Quake III-fánaleik sigraði liðið
Fallen og í Action Quake 2 liðið PR.
Í sigurlaun voru farsímar, tölvu-
leikir og bíómiðar, en næsta mót í
Skjálfta er áætlað í ágúst.
Fimm hundruð þátttakendur í Skjálftamóti um helgina
Skipst á skotum á skjánum
Morgunblaðið/Golli
Fjöldi þátttakenda mætti á Skjálftamótið sem stóð frá föstudegi fram á sunnudagskvöld.
www.skjalfti.is
www.hugi.is/skjalfti
Knattspyrnukappinn David
Beckham kom til Japans í
gær ásamt eiginkonu sinni,
Victoriu. Þau eru á ferðalagi
um Asíu og munu heim-
sækja Japan, Víetnam, Mal-
asíu og Taíland. Meira en
þúsund manns, aðallega
ungar stúlkur og frétta-
menn, biðu þess að Beck-
ham kæmi út úr flugstöð-
inni í Tókýó. Í fyrradag var
gengið frá sölu á Beckham
til Real Madrid og hefur
kappinn þegar leikið sinn
síðasta leik fyrir Manchest-
er United.
Beckham mun skrifa
undir fjögurra ára samning
við félagið 21. júlí. Real
Madrid greiðir 20 milljónir
punda fyrir Beckham, en
vikulaun hans hjá Real
Madrid verða 90.000 pund sem sam-
svarar 11 milljónum íslenskra króna.
Mikil öryggisgæsla var á flugvell-
inum vegna komu Beckham-
hjónanna til landsins. Beckham nýt-
ur mikilla vinsælda í Japan.
„Hann er miklu meira spennandi
en japanskir knattspyrnumenn,“
sagði japanska stúlkan Mari Koba-
yashi, sem hafði beðið í þrjár klukku-
stundir á flugvellinum. „Hann er
glæsilegur,“ sagði hún.
Beckham-fár gríp-
ur um sig í Japan
Beckham-hjónin á leið um borð í flugvélina
sem flutti þau austur en þar um slóðir er
enginn knattspyrnumaður vinsælli en nýjasti
liðsmaður Real Madrid, hann David.
Reuters
HÖFUNDUR bókanna um Harry
Potter segist hafa grátið þegar hún
skrifaði kaflann þar sem ein af lyk-
ilpersónum bókanna lætur lífið.
JK Rowling ljóstraði þessu upp í
eina viðtalinu, sem hún veitir vegna
útgáfu bókarinnar Fönixreglunnar,
sem var við Jeremy Paxman, stjórn-
anda sjónvarpsþáttarins Newsnight
á BBC.
Í viðtalinu lýsti Rowlings því einn-
ig yfir að hún væri farinn að hlakka
til þess að lifa lífinu án Harrys Pott-
ers og hafnar því alfarið að hafa
þjáðst af ritstíflu og að það hafi orðið
til þess að útgáfa bókarinnar dróst á
langinn.
Fimmta Potter-bókin heitir á
frummálinu Harry Potter & the
Order of the Phoenix og kemur út í
þeirri útgáfu á miðnætti aðfaranótt
laugardagsins næsta. Bókabúð Máls
og menningar á Laugavegi 18 verður
opin af því tilefni og mun selja fyrsta
eintakið af bókinni „þegar ein mín-
úta er genginn í eitt“, eins og segir í
tilkynningu, á sömu mínútu og salan
hefst annars staðar í heiminum.
Í fréttatilkynningunni segir einnig
að þeir fyrstu sem beðið hafa lengst í
röðinni fái bókina að gjöf. Allir sem
mæti í búning fái sérstakan glaðning
og að sjálfsögðu fái allir galdra-
drykk. Einnig verði boðið upp á ýmis
skemmtiatriði á meðan beðið er í
röðinni. Víkingahetjur munu halda
uppi lögum og reglu í röðinni.
Lykilpersóna deyr í
nýju Potter-bókinni
Kápumynd bókarinnar langþráðu.
Rowling
táraðist við
skriftirnar