Morgunblaðið - 21.06.2003, Page 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LANDSFRAMLEIÐSLA er talin hafa vaxið um
3,3% að raungildi á 1. ársfjórðungi 2003 miðað við
sama fjórðung fyrra árs. Þetta er mikil breyting frá
síðari hluta ársins 2002, en þá dróst landsfram-
leiðslan saman um 1,3% á 3. ársfjórðungi og um
2,5% á 4. ársfjórðungi. Einkaneysla vegur þyngst í
landsframleiðslunni og jókst hún um 4,6 % á 1. árs-
fjórðungi 2003 samanborið við um 1,3% vöxt á 4.
ársfjórðungi 2002, hvort tveggja borið saman við
sömu fjórðunga áranna á undan. Þessa miklu aukn-
ingu í útgjöldum heimila má að stórum hluta rekja
til bifreiðakaupa og útgjalda erlendis, að því er fram
kemur í frétt frá Hagstofu Íslands.
Í hálf fimm fréttum Kaupþings Búnaðarbanka
kemur fram að stóraukinn innflutningur bifreiða
ætti ekki að koma á óvart þar sem innflutningur
fólksbifreiða á fyrsta ársfjórðungi í fyrra nam að-
eins helming af því sem hann hefur gert að með-
altali undanfarin ár. „Einkaneyslan er þó vafalítið í
vexti og er hagvöxtur að taka við sér á ný eftir sam-
drátt á seinasta ári. Auk vaxtar í einkaneyslu virðist
lítið lát vera á vexti í samneyslu sem vex um 3,8% en
mikill vöxtur hefur verið í samneyslu undanfarin
misseri,“ að því er segir í hálf fimm fréttum.
Kemur á óvart
Birgir Ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri,
segir að tölur um að landsframleiðsla hafi aukist um
3,3% á fyrsta ársfjórðungi komi á óvart þar sem
hækkunin er meiri en gert var ráð fyrir. Samkvæmt
spá Seðlabankans var gert ráð fyrir því að hagvöxt-
urinn myndi aukast um 2,5% á árinu en þess beri að
gæta að hér er einungis um ársfjórðungstölur að
ræða, segir Birgir Ísleifur. „Þetta eru bráðabirgða-
tölur og leiðréttingar eiga eftir að koma inn og
reynsla fyrri ára sýnir að tölur fyrir einstaka árs-
fjórðunga hafa breyst eftir á. Það er hins vegar
óhætt að segja að þetta ber vott um að efnahagslífið
sé að taka mikið við sér, úr þeim litla mínus sem
hagvöxturinn var í á síðasta ári. Einkaneyslan er að
aukast, “segir Birgir Ísleifur.
Aðspurður segir Birgir Ísleifur að ekki verði um
nein viðbrögð að ræða hjá Seðlabanknum að ræða
nú enda einungis ársfjórðungstölur að ræða.
Áfram samdráttur
í fjárfestingu
Samneysla jókst um 3,8% á 1. ársfjórðungi 2003.
Það er heldur meiri aukning en á 1. ársfjórðungi
2002 en vöxturinn er þó sambærilegur og verið hef-
ur undanfarin ár. Áfram gætti samdráttar í fjár-
festingu, nú um 9,4% samanborið við nær 18% sam-
drátt á 1. ársfjórðungi 2002. Stöðugt hefur dregið úr
fjárfestingu frá því á 1. ársfjórðungi 2001. Þjóð-
arútgjöldin, sem eru samtala neyslu og fjárfestinga,
jukust um 1,2% á 1. ársfjórðungi. Þau jukust eilítið
á 4. ársfjórðungi 2002 en höfðu áður farið minnk-
andi allt frá því á 1. ársfjórðungi 2001.
Hætta á halla
af vöruskiptum
Í hálf fimm fréttum kemur fram að athygli veki
samdráttur í fjárfestingu, níunda ársfjórðunginn í
röð.
„Þessi þróun á þó eftir að snúast við er áhrif stór-
iðjuframkvæmda munu koma fram í fjárfestingu.
Að mati Greiningardeildar mun þó aukning í fjár-
festingu að langmestu leiti einskorðast við stóriðju-
framkvæmdir á þessu ári. Þjóðarútgjöld sem er
samtala einka- og samneyslu auk fjárfestingar óx
þó aðeins um 1,2% á fyrsta ársfjórðungi en mikill af-
gangur af vöruskiptum dregur hagvöxt upp í 3,3%.
Hætta er þó á að vöruskipti landsmanna fari hratt
versnandi á næstunni enda sterkt gengi krónunnar
farið að segja verulega til sín hjá útflutningsfyr-
irtækjum,“ að því er segir í hálf fimm fréttum.
Útflutningur jókst um 4,8% en innflutningur
dróst saman um 0,5% á 1. fjórðungi þessa árs. Þess-
ar breytingar leggjast á eitt og valda því að lands-
framleiðslan vex um 3,3% þrátt fyrir lítinn vöxt
þjóðarútgjaldanna.
Nýtt hagvaxtarskeið
Greining Íslandsbanka telur að nýtt hagvaxtar-
skeið sé hafið og reiknar með því að hagvöxtur muni
halda áfram á næstu misserum. „Fjárfesting er nú
að taka kröftuglega við sér samhliða því að stóriðju-
fjárfestingar eru hafnar. Búast má við því að strax
nú á öðrum ársfjórðungi sjáist vöxtur í fjárfestingu.
Einkaneysla mun að mati Greiningar ÍSB vaxa
áfram bæði á þessu og næsta ári. Hátt gengi krón-
unnar mun hins vegar draga úr vexti útflutnings á
næstunni og reiknar Greining ÍSB með því að sá
vöxtur verði hægur bæði í ár og á næsta ári. Á heild-
ina litið virðist hins vegar vera bjart framundan í ís-
lenskum efnhagsmálum,“ segir í Morgunkorni Ís-
landsbanka.
Greiningardeild Kaupþings Búnaðarbanka tekur
undir að væntanlega sé nýtt hagvaxtarskeið að hefj-
ast en segir að hafa verði í huga að miklar sveiflur
eru í ársfjórðungslegum þjóðhagsreikningum „og
því ekki gott að draga of sterkar ályktanir af árs-
fjórðungslegum gögnum. Það vekur þó upp spurn-
ingar um framtíðar hagvöxt hversu lítil fjárfesting
einkaaðila er og hvað hagvöxturinn er að miklu leyti
drifinn áfram af samneyslu,“ að því er segir í hálf
fimm fréttum Kaupþings Búnaðarbanka.
Landsframleiðsla eykst um 3,3%
Efnahagslífið að rétta
úr kútnum á ný
SÍÐASTI aðalfundur Baugs Group
hf. áður en sótt verður um af-
skráningu félagsins úr Kauphöll
Íslands var haldinn í gær, en hon-
um hafði verið frestað um einn
mánuð vegna yfirtökutilboðs
Mundar ehf. í hlutabréf félagsins.
Boðað var til fundarins klukkan
eitt eftir hádegi; hann gekk greið-
lega fyrir sig og stóð í um hálf-
tíma. Að þessu leyti bar hann þess
nokkur merki að Mundur hefur
eignast meira en 9⁄10 hlutabréfa fé-
lagsins og að stefnt er að afskrán-
ingu. Sautján hluthafar voru mætt-
ir, samtals fyrir rúmlega 99%
hlutafjár.
Í ræðu sinni á fundinum stiklaði
Hreinn Loftsson, stjórnarformaður
Baugs, á helstu atriðum úr skýrslu
stjórnar. Rekstrarár Baugs er frá
1. mars til 28. febrúar og sagði
Hreinn að síðasta ár hefði verið
um margt viðburðaríkt og vel-
gengnin, bæði á síðasta ári og allt
frá stofnun félagsins fyrir fimm ár-
um, hafi verið eins og í ævintýri.
Fyrirtækið hefði margeflst á þess-
um tíma og hagnaður þess á liðnu
starfsári verið meiri en nokkurt ís-
lenskt fyrirtæki hefði skilað eig-
endum sínum á einu ári, eða 7,4
milljarða króna eftir skatta.
Hreinn skýrði frá því að í árslok
2002 hefði verið greiddur sérstak-
ur 15% arður til hluthafa vegna
rekstrarársins og þegar litið hefði
verið til útgáfu jöfnunarhlutabréfa
hefði verð hlutabréfanna hækkað
um rúm 20% frá upphafi til loka
rekstrarársins. Síðar á fundinum
var samþykkt tillaga stjórnar um
að ekki verði greiddur arður vegna
síðasta rekstrarárs, umfram þann
sem þegar hefði verið greiddur.
Skuggi af
lögreglurannsókn
Hreinn gerði grein fyrir skipu-
lagsbreytingum hjá félaginu á síð-
asta ári, sem meðal annars felast í
því að félaginu var skipt í þrjár
rekstrareiningar; Baug Ísland,
Baug USA og Baug-ID.
„Ljóst er að vegna þessarar
sterku stöðu Baugs Group hf. hér
innanlands,“ sagði Hreinn, „þá hef-
ur fyrirtækið ekki farið varhluta af
mikilli umræðu um starfsemina,
einkum hér á innanlandsmarkaði.
Það verður að teljast eðlilegt, þó
að umræðan hafi verið sérstaklega
neikvæð á árinu 2001 og í árs-
byrjun 2002.
Markvisst hefur verið unnið að
því innan félagsins að bregðast
með jákvæðum hætti við gagnrýni
á starfshætti fyrirtækisins og gera
starfsfólki grein fyrir með hvaða
hætti því beri að umgangast við-
skiptavini, byrgja og samkeppnis-
aðila. Haldin hafa verið námskeið
og kynningarfundir með fjölmörg-
um aðilum til að upplýsa um stöðu
og starfshætti fyrirtækisins, eyða
misskilningi og tortryggni. Ekki
verður annað séð en að verulegur
árangur hafi náðst í þessu efni,
enda benda kannanir til þess að
Bónus, Hagkaup og 10-11 séu öll í
hópi vinsælustu fyrirtækja lands-
ins.
Það fer ekki hjá því að lög-
reglurannsóknin, sem hófst með
húsleit í höfuðstöðvum Baugs
Group 28. ágúst síðastliðinn, hafi
varpað nokkrum skugga á starf-
semi fyrirtæksins undanfarna
mánuði. Rannsóknin hefur reynst
tímafrek og orðið umfangsmikil og
kallað á mikla gagnaöflun hjá fyr-
irtækinu. Á þessari stundu er ekki
vitað hvenær vænta megi niður-
stöðu, en væntanlega er þess ekki
langt að bíða.“
Jón Ásgeir Jóhannesson, for-
stjóri Baugs, gerði grein fyrir
helstu lykiltölum úr reikningum fé-
lagsins. Hagnaður síðasta árs nam
7.440 milljónum króna á rekstr-
arárinu, en var 924 milljónir króna
næstu 14 mánuði á undan. Eignir
félagsins uxu úr tæpum 38 millj-
örðum króna í rúma 46 milljarða
króna á rekstrarárinu, skuldir
hækkuðu um tæpa fjóra milljarða
króna í rúma 28 milljarða króna og
eigið fé óx um tæpa 6 milljarða
króna í rúma 17 milljarða króna.
Þá taldi Jón Ásgeir í stuttu máli
upp helstu atburði félagsins á liðnu
ári. Fyrst nefndi hann sölu á 20%
hlut Baugs í Arcadia, en sú sala
skilaði félaginu miklum hagnaði á
síðasta ári og er mestur hluti 7,9
milljarða króna söluhagnaðar fé-
lagsins vegna hlutabréfanna í Ar-
cadia. Þá nefndi hann að félagið
hefði eignast 8% í The House of
Fraser, það hefði keypt 45% í
Eignarhaldsfélagi Húsasmiðjunnar
ehf., eignast tæplega 50% hlut í
Fasteignafélaginu Stoðum hf.,
keypt 19% í Big Food Group en
ætti nú um 23% í því félagi, keypt
3% í Somerfield og opnað 10.000
fermetra verslun Debenhams í Sví-
þjóð.
Að loknum ræðu stjórnarfor-
manns og forstjóra voru fyrirliggj-
andi tillögur samþykktar sam-
hljóða og ný stjórn kjörin. Í
aðalstjórn sitja nú Hans Kristian
Hustad, Hreinn Loftsson, Ingi-
björg S. Pálmadóttir, Jóhannes
Jónsson og Kristín Jóhannesdóttir.
Í varastjórn sitja Einar Þór Sverr-
isson og Pétur Björnsson. Að aðal-
fundi loknum var haldinn stjórn-
arfundur þar sem Hreinn Loftsson
var endurkjörinn formaður stjórn-
ar.
„Ævintýraleg
velgengni“
Stjórnarformaður Baugs segir
ekkert íslenskt fyrirtæki hafa skilað
jafn miklum hagnaði á einu ári
Morgunblaðið/Arnaldur
Frá aðalfundi Baugs. Jóhannes Jónsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín
Jóhannesdóttir og Hreinn Loftsson stjórnarformaður.
FIMM stærstu hluthafar í Stein-
steypunni hf. munu eignast meiri-
hluta í Basalti hf. á móti Loftorku
Borgarnesi ehf. Steypustöðin hf. er
meðal eigna Basalts.
Bjarni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Hraðflutninga ehf. og stjórn-
arformaður Steinsteypunnar, segir
vel hugsanlegt að fleiri bætist í þann
hóp sem er að kaupa Basalt. Hann
segir að markmiðið með kaupunum
sé að snúa vörn í sókn á þeim mark-
aði sem fyrirtækin starfa á. Í sam-
einingu séu þau sterkt afl sem bjóði
heildarlausnir fyrir byggingamark-
aðinn.
Konráð Andrésson, stjórnarfor-
maður Loftorku, segir að hluthaf-
arnir í Steinsteypunni hafi sýnt
áhuga á að koma inn í kaup Loftorku
á Basalti, eftir að tilkynnt var um
þau í síðustu viku. Sparisjóður
Mýrasýslu keypti þá allt hlutafé í
Basalti fyrir hönd Loftorku. Basalt
var í eigu 19 byggingaverktaka.
Hann segir að markmiðið sé að þessi
fyrirtæki snúi bökum saman m.a. til
að styrkja samkeppni á sements-
markaði hér á landi, en fyrirtækin
kaupa sement af Aalborg Portland.
Að sögn Konráðs hefur samvinna
milli Loftorku, Steinsteypunnar og
Steypustöðvarinnar verið mikil á
undanförnum árum. Hann segir að
Steinsteypan hafi til að mynda selt
mikið af framleiðslu Loftorku til
sinna viðskiptavina og selt Loftorku
ýmis bætiefni og annað í stein-
steypu. Eins sé með Steypustöðina
en lager Loftorku fyrir höfðuborg-
arsvæðið sé hjá Steypustöðinni.
Aðspurður segir Konráð að Aal-
borg Portlandi komi ekki með
nokkrum hætti að kaupunum á Bas-
alti.
Hluthafar í Stein-
steypunni kaupa
meirihluta í Basalti
Markmiðið
að styrkja
samkeppni
FRAMKVÆMDANEFND um
einkavæðingu ákvað í gær að
halda áfram viðræðum við hóp
fjárfesta um kaup á Sementsverk-
smiðjunni hf. á Akranesi. Í hópn-
um eru Framtak fjárfestingar-
banki, BM Vallá og Björgun. Þá
hefur norski sementsframleiðand-
inn Norcem komið inn í hópinn
stað Steypustöðvarinnar, en nýir
eigendur hennar hafa ákveðið að
draga fyrirtækið út úr samstarf-
inu.
Að sögn Stefáns Jóns Friðriks-
sonar, ritara einkavæðingarnefnd-
ar, er stefnt að því að niðurstöður
um hvort farið verður út í form-
legar viðræður við hópinn liggi
fyrir í lok næstu viku. Hann segir
að innkoma Norcem gæti styrkt
þetta mál. Þá sé það áframhald-
andi forsenda að Sementsverk-
smiðjan verði rekin áfram.
Í síðustu viku keypti Sparisjóð-
ur Mýrasýslu allt hlutafé í Basalti
ehf. fyrir hönd Loftorku Borgar-
nesi ehf. Steypustöðin var meðal
eigna Basalts. Frá því var greint í
fyrradag að nýir eigendur Steypu-
stöðvarinnar hefðu ákveðið að
semja við Aalborg Portland um
viðskipti og þar með draga sig út
úr samstarfinu um kaupin á Sem-
entsverksmiðjunni.
Ákvörðun
um form-
legar við-
ræður í
næstu viku
Salan á Sements-
verksmiðjunni
♦ ♦ ♦
MUNDUR ehf. á nú rúmlega 92% í
Baugi Group hf. Mundur gerði yf-
irtökutilboð í Baug 21. maí síðast-
liðinn og rann það út í fyrradag.
Áður en yfirtökutilboðið kom fram
hafði Mundur eignast rúmlega 62%
hlut í Baugi. Að Mundi ehf. standa
Fjárfestingarfélagið Gaumur ehf.
og tengdir aðilar, Kaupþing banki
hf., Eignarhaldsfélagið Vor ehf.,
Eignarhaldsfélagið ISP ehf. og
Ingibjörg Pálmadóttir. Fjárfesting-
arfélagið Gaumur ehf. er í eigu
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, for-
stjóra Baugs og fjölskyldu hans.
Í fréttatilkynningu vegna loka yf-
irtökutilboðsins segir að stjórn
Mundar muni hlutast til um að ósk-
að verði eftir afskráningu hluta-
bréfa Baugs úr Kauphöll Íslands.
Kristín Jóhannesdóttir, stjórn-
arformaður Mundar og fram-
kvæmdastjóri Gaums, segist ánægð
með hvernig yfirtökutilboðið hafi
gengið. Þó væru enn nokkur hundr-
uð litlir hluthafar eftir og unnið
yrði í því á næstunni að kaupa hluti
þeirra, en Kristín sagði að ákveðið
yrði á næstu dögum hvort til inn-
lausnar hlutanna kæmi. Þar sem
Mundur hefur eignast meira en 90%
hlutafjárins hefur hann rétt til að
leysa til sín bréf annarra hluthafa.
Auk smærri hluthafa á Fast-
eignafélagið Stoðir hf. 7% hlut í
Baugi. Kristín er stjórnarformaður
þess félags, sem er að 49,6% í eigu
Baugs. Aðrir stórir hluthafar Stoða
eru Ingibjörg Pálmadóttir og Eign-
arhaldsfélagið ISP ehf. með 19,2%
hlut og Eignarhaldsfélagið Lang-
brók ehf. með 11,2% hlut. Kristín
segir að stjórn Stoða taki ákvörðun
um hlutinn í Baugi innan skamms.
Mundur með 92% í Baugi