Morgunblaðið - 21.06.2003, Page 22
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
22 LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SJÁLFSBJÖRG, félag fatlaðra á
Suðurlandi, í samvinnu við Hrein
Óskarsson, skógarvörð í Haukadals-
skógi, hóf brautryðjendastarf í að-
gengismálum fatlaðra í sumar sem
leið. Verkefnið felst í því að leggja
aðgengilega göngustíga um skóginn.
Sjálfsbjörg sótti um styrk í Pokasjóð
í fyrra og fékk þá eina milljón. Þá var
strax hafist handa og byrjað að út-
búa göngustíga sem gætu orðið að-
gengilegir öllum. Í ár á að bæta um
betur og enn hefur fengist milljón úr
Pokasjóði og Ferðamálaráð hefur
styrkt verkefnið um 350 þúsund
krónur. Á aðalfundi Sjálfsbjargar á
Suðurlandi nú í vor var ákveðið að
efla verkefnið enn frekar og ákvað
fundurinn að samþykkja tillögu for-
mannsins, Svans Ingvarssonar, og
gefa 300 þúsund krónur til að vinna
að áframhaldandi göngustígagerð í
Haukadalsskógi. Brautryðjenda-
starf sem nýtast mun öllum sem
leggja leið sína um Haukadalsskóg í
framtíðinni.
Aðgengi í
brennidepli á
ári fatlaðra
Svanur Ingvarsson afhendir Hreini Óskarssyni ávísunina frá Sjálfsbjörgu.
Hveragerði
VIÐ Reykjamörkina búa garð-
yrkjuhjónin Jóhann Ísleifsson og
Sigríður Eiðsdóttir ásamt börnum
sínum. Í garðinum þeirra hefur
bangsi komið sér fyrir, sem minn-
ir um margt á hlaupbangsa sem
hægt er að fá í mörgum litum í
sjoppum. Þessi bangsi er þó öðru-
vísi en hlaupbangsarnir, því að
hann er klipptur úr tré. Bangsinn
blasir við frá götunni og er gaman
að sjá hvað hægt er að móta úr
trjám.
Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir
Bangsinn sem hefur komið sér fyrir
í garðinum í Reykjamörkinni.
Öðruvísi
bangsi
Hveragerði
NÚ stendur yfir tilraunaverkefni á vegum Ung-
mennafélags Stokkseyrar (UmfS) og sveitarfé-
lagsins Árborgar til að auka notkun á sundlaug-
inni á Stokkseyri.
Verkefnið gengur út á að öllum börnum og
unglingum á aldrinum 0–15 ára er boðið frítt í
sund til 15. júlí og er það von UmfS að með þessu
aukist aðsókn í sundlaugina og jafnvel komi for-
eldrarnir með börnunum í sund. Því má við þetta
bæta að í sundlauginni á Stokkseyri er einn heitur
pottur og annar nuddpottur, jafnframt er þar lítil
vatnsrennibraut fyrir krakkana.
En UmfS gerir fleira til að bæta aðstöðu sund-
laugargesta því félagið gaf sundlauginni eitt borð,
sex stóla og sex sólbekki þar sem þeir gömlu voru
orðnir úr sér gengnir og jafnvel hættulegir í notk-
un.
Þessar gjafir voru afhentar er Einar Njálsson
bæjarstjóri og Sigmundur Stefánsson, deild-
arstjóri íþróttadeildar Árborgar, komu til að
skrifa undir samninga við UmfS um áframhald-
andi rekstur íþróttahússins á Stokkseyri. Félagið
hefur rekið íþróttahúsið undanfarin ár af miklum
myndarskap og byggt upp tækjakost þess jafnt og
þétt hvort heldur sem um er að ræða tæki til
íþróttaiðkunar eða búnað til veisluhalda, en
íþróttahúsið er leigt út undir margs konar mann-
fagnað og hefur notkun þess aukist til mikilla
muna upp á síðkastið.
Einnig voru undirritaðir samningar um rekstur
knattspyrnuvallarins á Stokkseyri og um umsjón
með hjólabrettasvæðum í Árborg en félagið hefur
sinnt þessum málum frá stofnun sveitarfélagsins.
Jafnframt var gengið frá samningi við Frey,
sem er sameiginlegt lið Umf. Stokkseyrar og
Umf. Eyrarbakka í meistaraflokki í knattspyrnu
og keppir þar í 3. deild, um rekstur knatt-
spyrnuvallarins á Eyrarbakka.
Á þessu má sjá að það ríkir engin lognmolla yfir
starfi félagsins og megi svo vera áfram.
Unglingum boðið frítt í sund
Stokkseyri
Morgunblaðið/Gísli Gíslason
Við undirskrift samninga, sitjandi eru Ingibjörg Ársælsdóttir, formaður Umf. Stokkseyrar, Einar
Njálsson bæjarstjóri og Gísli Gíslason, forsvarsmaður Freys. Standandi eru Guðrún Jóna Valdimars-
dóttir, stjórnarmaður í UmfS, og Sigmundur Stefánsson, deildarstjóri íþróttadeildar Árborgar.
„ÉG verð auðvitað óskaplega feginn
og þakklátur fái ég þessi gögn mín
aftur,“ segir Þorsteinn Pálsson, tann-
læknir á Selfossi, sem varð fyrir því 8.
júní að brotist var inn í tannlækna-
stofu hans að Austurvegi 9 á Selfossi
og þaðan stolið nýrri tölvu tann-
læknastofunnar ásamt einhverju af
deyfilyfjum.
Tölvan er Þorsteini dýrmæt að því
leyti að í henni voru upplýsingar fyrir
tannlæknastofuna og vinnugögn Þor-
steins sem tannlæknis en hann segir
þessi gögn ekki nýtast neinum nema
sér og starfsemi tannlæknastofu
hans. Um er að ræða ýmsar upplýs-
ingar um starfsemina og vinnuferla
sem tímafrekt er að vinna upp. „Þetta
eru almennar upplýsingar sem kem-
ur sér afar illa fyrir mig að hafa ekki
við hendina. Tölvan sjálf skiptir ekki
öllu en gögnin eru mér nauðsynleg.
Þess vegna er ég tilbúinn að greiða
fundarlaun fyrir að fá gögnin til baka.
Það eina sem ég hugsa um er að geta
nálgast þessi gögn sem eru mikil-
vægt verkfæri fyrir mig á stofunni,“
segir Þorsteinn. Hann sagði engar
skemmdir hafa verið unnar á stofunni
í innbrotinu og segja mætti að þeir
sem þarna fóru um hafi gert það
mjög snyrtilega.
Þorsteinn sagði auðvelt að finna
gögnin inni á tölvunni því þegar
kveikt væri á henni kæmi upp lítill
kassi undir heitinu þjónn. Hægt væri
að afrita hann á floppy-disk og koma
til sín eða senda hann í tölvupósti.
Netfang Þorsteins er: stonet@sim-
net.is og hægt er að ná sambandi við
hann í síma 898 3405. „Það væri af-
skaplega gott að fá þjóninn til baka,“
sagði Þorsteinn Pálsson, tannlæknir
á Selfossi.
Tannlæknir á Selfossi leitar vinnugagna sinna eftir innbrot
„Verð feginn og þakklátur
fái ég gögnin aftur“
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þorsteinn Pálsson, tannlæknir á Selfossi, á stofu sinni á Austurvegi 9.
Selfoss
ÞRJÚ þúsund laxaseiði úr laxastofni
Ölfusár hafa verið sett í eldiskví á
einu af stangaveiðisvæðunum á Sel-
fossi, miðsvæðinu við Hrefnutanga.
Um er að ræða framtak af hálfu
Stangaveiðifélags Selfoss en mikil
umræða hefur verið um aðgerðir til
þess að auka laxagengd í ánni og örva
sem frekast má vera stangveiði á
svæðinu við Selfoss og reyndar á öllu
vatnasvæði Ölfusár og Hvítár.
Stjórn Stangaveiðifélags Selfoss
hefur mælt fyrir því undanfarin ár
ásamt öðrum stangaveiðifélögum og
leigutökum stangveiðisvæða að neta-
veiði verði hætt á vatnasvæðinu og
því hjálpað með seiðasleppingum að
gefa af sér meiri veiði og skapa um
leið aukna veltu. Þó svo netaveiði sé
ekki hætt þá takast stangaveiðimenn
á Selfossi þetta verkefni á hendur og
vilja með því leggja áherslu á að hver
lax veiddur á stöng leiðir af sér marg-
falt meiri tekjur heldur en netaveidd-
ur lax, bæði fyrir veiðiréttareigendur
og aðra aðila í ferðaþjónustu.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Guðmundur Sigurðsson, einn forsvarsmanna seiðasleppinga í Ölfusá/
Hvítá, fóðrar seiðin við Hrefnutanga á Selfossi.
Þrjú þúsund seiði
í eldiskví í Ölfusá
Selfoss