Morgunblaðið - 21.06.2003, Side 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 41
Röng vefsíða
Í frétt um matsáætlun vegna Út-
nesvegar í blaðinu í gær var rang-
hermt að nálgast mætti tillöguna á
vefsíðu Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen. Hið rétta er að hana er
einungis hægt að nálgast á vefsíðum
Vegagerðarinnar og VSO. Þá má fá
matsáætlunina hjá Skipulagsstofn-
un.
Fallið var frá málsókn
Ranghermt var í frétt í blaðinu í
gær að erfingjar Einars heitins Sig-
urðssonar útgerðarmanns hafi verið
dæmdir í Hæstarétti til að greiða
Samtökum um kvennaathvarf 4,5
milljónir króna vegna kaupa á hús-
eigninni Bárugötu 2. Hið rétta er að
málið var höfðað gegn Auði Einars-
dóttur einni. Upphaflega var málið
einnig höfðað gegn systkinum Auðar
en fallið var frá öllum kröfum á
hendur þeim undir rekstri málsins.
Beðist er velvirðingar á þessum mis-
tökum.
LEIÐRÉTT
LAXVEIÐI er enn fremur skrykkj-
ótt og yfirleitt frekar lítið af stóra
laxinum sem verið hefur tvö ár í
sjó. Það glæðir þó veiðina að smá-
lax er mjög víða farinn að sýna sig
og þykir mönnum það í fyrra lagi
og vita á gott í framhaldinu.
Hítará opnaði nýverið og veiddist
einn lax og nokkrar vænar sjó-
bleikjur. Laxinn var vænn að sögn
og fleiri sáust þótt ekki litu þeir við
agni.
Gott gengi Langár
Gengi Langár er gott miðað við
allt og allt. Fyrsta hollið með ellefu
laxa og síðan hefur kroppast jafnt
og þétt og síðast er við fregnuðum
var komið vel á fjórða tug laxa á
land. Þar í hópi var þó ekki tröllið
sem lá í Glanna. Það færði sig ofar í
ána eftir stuttan stans og hefur
ekki sést síðan.
Líflegt í
Laugardalsá
Byrjunin í Laugardalsá verður
að teljast nokkuð góð. Hollið sem
opnaði fékk tvo væna laxa, annan á
maðk og hinn á flugu, en báðir
veiddust neðarlega í ánni, í svoköll-
uðu Nefi. Veiðimenn sáu þó laxa
víðar, m.a. ofan við laxastiga.
Núllað í Laxá
Enginn lax veiddist í opnun í
Laxá á Ásum og er það sama gengi
og í fyrra. Hins vegar fór allt af lím-
ingunum þegar kom fram í síðustu
viku júní, er hörkugöngur skiluðu
sér í ána.
Hér og þar
Það er bara kropp enn sem kom-
ið er í Norðurá, Þverá/Kjarrá og
víðar á Vesturlandinu. Nýlega var
holl í Norðurá með 12 laxa. Á sama
tíma sjá menn talsvert líf í Straum-
unum þar sem sex laxar hafa veiðst
síðustu fjóra dagana og margir slit-
ið sig lausa. Eru menn að sjá þar
laxa með halalús eftir hverja nótt,
mest 3,5 til 5 punda smálaxa. Reyna
menn nú mjög að magna regndansa
í Borgarfirðinum.
Fjórir úr Víðidalsá
Veiði hófst í Víðidals á í Húna-
vatnssýslu í fyrradag. Um hádegi í
gær voru komnir fjórir laxar á
land, 11 til 12 punda þungir.
Smálaxar
mæta með
fyrra fallinu
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
FJÖLBRAUTASKÓLI Vesturlands
á Akranesi brautskráði 49 nem-
endur við hátíðlega athöfn á sal
skólans á dögunum. Af þeim sem
brautskráðust voru 38 með stúd-
entspróf. Fyrir athöfnina lék Þjóð-
lagasveit Tónlistarskólans á Akra-
nesi undir stjórn Ragnars
Skúlasonar. Hörður Ó. Helgason
skólameistari ávarpaði sam-
komugesti og afhenti útskrift-
arnemum skírteini sín. Listamenn
úr hópi nemenda og fyrrverandi
nemenda komu fram með tónlist og
söng.
Nokkrir útskriftarnemar fengu
verðlaun og viðurkenningar fyrir
góðan námsárangur eða störf að fé-
lagsmálum. Bestum námsárangri
náði Fríða Bjarnadóttir nýstúdent
og hlaut hún viðurkenningu Efna-
fræðifélags Íslands fyrir ágætan ár-
angur í efnafræði og stærðfræði,
viðskiptagreinum, dönsku og
frönsku. Fríða hlaut ennfremur við-
urkenningu skólans fyrir bestan ár-
angur á stúdentsprófi á vorönn
2003 og þá hlaut hún námsstryk
Akraneskaupstaðar sem Kristján
Sveinsson bæjarfulltrúi afhenti.
Einar Bragi Hauksson nýstúdent
fékk viðurkenningu fyrir ágætan
árangur í stærðfræði og tölvufræði,
Erla Björk Gísladóttir, sem útskrif-
aðist með stúdentspróf frá skól-
anum í desember, hlaut viðurkenn-
ingu fyrir störf að félagsmálum
nemenda. Grétar Björn Halldórsson
fékk viðurkenningu úr sjóði Elínar
Írisar Jónasdóttur fyrir íslenskan
stíl, Líney Hermannsdóttir nýstúd-
ent hlaut viðurkenningar fyrir
ágætan árangur í dönsku, þýsku, líf-
fræði og náttúruvísindum Einnig
fékk Líney viðurkenningu úr sjóði
Elínar Írisar Jónasdóttur fyrir ís-
lenskan stíl og verðlaun úr sjóði
Guðmundar P. Bjarnasonar á Sýru-
parti fyrir framúrskarandi árangur
í námi. Sigmundur Erling Ingimars-
son, sem lauk burtfararprófi af
starfsbraut, fékk viðurkenningu
skólans fyrir góða ástundun og
skemmtilega framkomu og Sylvía
Hlynsdóttir nýstúdent viðurkenn-
ingu fyrir störf að félagsmálum
nemenda.
Skólameistari veitti styrk úr
minningarsjóði Karls Kristins Krist-
jánssonar, fyrrum nemanda við
skólann, sem lést af slysförum árið
2001. Sjóður þessi var gefin skól-
anum af foreldrum Karls og að
þessu sinni hlaut nemendafélag
skólans styrkinn sem ætlað er að
nota á næsta skólaári til að greiða
kostnað við ræðunámskeið og styðja
þátttakendur í tónlistarkeppni sem
þurfa að greiða leigu fyrir æfinga-
húsnæði. Dagbjört Friðriksdóttir
færði skólanum gjöf til minningar
um dóttur sína Kristbjörgu Sigurð-
ardóttur sem útskrifaðist með stúd-
entspróf frá skólanum í maí 1998 og
lést skömmu síðar.
Gjöfinni verður varið til kaupa á
listaverki sem prýða mun húsa-
kynni skólans og verða til minn-
ingar um Kristbjörgu.
Atli Harðarson aðstoðarskóla-
meistari flutti annál vorannar 2003
og Elva Hrund Þórisdóttir nýstúd-
ent flutti ávarp fyrir hönd útskrift-
arnema. Hörður Ó. Helgason skóla-
meistari ávarpaði útskriftar-
nemendur í lok athafnarinnar,
árnaði þeim heilla og þakkaði þeim
fyrir samveruna.
Fjöl-
brauta-
skóla
Vestur-
lands slitið
Morgunblaðið/Jón Á. Gunnlaugsson
Útskriftarnemar á vorönn 2003 í Fjölbrautaskóla Vesturlands ásamt Herði Helgasyni skólameistara og Atla Harðarsyni aðstoðarskólameistara.