Morgunblaðið - 21.06.2003, Page 43
HLUTAVELTA
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
KRABBI
Afmælisbörn dagsins:
Þú kýst snertingu við allar
hliðar lífsins og kynnist
heiminum frá mörgum sjón-
arhornum. Þú ert mikil til-
finningavera og nýtur þess
að fræðast.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú mátt búast við því að
heimili þitt og fjölskylda
þurfi meiri athygli en ella.
Nú er einnig góður tími til
þess að huga að málum er
tengjast fasteignum.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nú þýðir ekkert að húka
heimafyrir. Farðu út og
gerðu eitthvað upp-
byggilegt þér til dægra-
styttingar!
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Án vafa eru peningar þitt
helsta áhyggjuefni. Þú leit-
ar leiða við að afla þeirra
og eyða þeim. Nýjar
áherslur í peningamálum
eru í nánd.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Það er tímabært að safna
kröftum og endur-
skipuleggja sig fyrir það
sem eftir er af árinu. Til
hamingju!
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú verður að virða þörf
þína til hvíldar og afslöpp-
unar. Þú getur ekki gert
allt fyrir alla. Reyndu,
þrátt fyrir áreiti, að hvílast.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Vinsældir þínar aukast til
muna á næstu misserum.
Fólk er áfjáð í félagsskap
þinn. Njóttu þess.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vera þín í sviðsljósinu á sér
margar ástæður. Fólk tek-
ur eftir þér! Sökum þessa
verður þú að leika þitt hlut-
verk af kostgæfni.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú mátt búast við því að
lenda í hringiðu útgáfu-
mála, lagaþrætna og öllu
því sem tengist ferðamálum
og framandi löndum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Tryggingar, eignir og hvað-
eina sem þú átt með öðrum
mun vera í brennidepli í ná-
inni framtíð. Það er mik-
ilvægt að skilgreina hver
ber ábyrgð á hverju.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vegna stöðu himintungl-
anna er hvíldin mikilvæg.
Samtöl við ættingja og vini
eru innileg á þessum tíma.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Skipulagning er orð dags-
ins. Taktu þig á hvað það
varðar, bæði í vinnu og
heimafyrir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Ást, rómantík og flótti frá
hinu daglega amstri ein-
kenna komandi daga. Ú, la,
la! Gerðu hvaðeina sem
gerir þér kleift að tjá sköp-
unargleði þína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VERÖLDIN OG ÉG
Ég hljóp syngjandi út í sumarregnið
til að gefa öllum hlutdeild í gleði minni
og fögnuði yfir fegurð lífsins,
til að segja öllum,
hve mér væri heitt um hjarta
og hamingjan unaðsleg.
En enginn hlustaði á mig,
fremur en ég væri ekki til.
Nú æpi ég afturgenginn
úti í hauststorminum
um bölvun lífsins og brigð,
og allir hlusta á mig
agndofa af skelfingu.
Bragi Sigurjónsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ára afmæli. Mánudag-inn 23. júní verður
áttræð frú Einhildur Þóra
Sigurðardóttir, húsmóðir,
Barónsstíg 11, Reykjavík.
Hún og eiginmaður hennar,
Jóhannes Guðmundsson,
húsgagnasmiður, ætla að
taka á móti ættingjum og vin-
um í félagsheimili starfs-
manna Orkuveitu Reykjavík-
ur í Elliðárdal sunnudaginn
22. júní kl. 14–17.
90 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 21.
júní, er níræð Ingibjörg
Kristjánsdóttir, Tjarnar-
braut 5, Hafnarfirði. Hún
er nú vistmaður á Sólvangi í
Hafnarfirði.
EIN af snjöllustu brids-
konum heims, Kerri
Sanborn, er við stýrið í spili
dagsins.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ 10975
♥ KG2
♦ DG6
♣ÁG7
Vestur Austur
♠ D86 ♠ G4
♥ 43 ♥ D109
♦ 10954 ♦ ÁK732
♣9854 ♣KD10
Suður
♠ ÁK32
♥ Á8765
♦ 8
♣632
Spilið kom upp á fyrri
stigum parasveitakeppn-
innar í Menton, þar sem
Sanborn spilaði í sveit Rose
Meltzer með Peter Weich-
sel sem makker. Í andstöð-
unni eru Ítalirnir Lanz-
arotti og Gianardi:
Vestur Norður Austur Suður
Lanzarotti Weichsel Gianardi Sanborn
– – – 1 hjarta
Pass 1 grand * Pass 2 lauf *
Pass 3 hjörtu Pass Pass
Pass
Weichsel fer í gegnum
kröfugrand til að sýna 11–
12 punkta geimáskorun
með þrílit í hjarta, en San-
born afþakkar gott boð,
enda með lágmarksopnun.
Lanzarotti kom út með
smáan spaða og Sanborn
tók gosa austurs með ás.
Sanborn svínaði strax
hjartagosa, sem austur
drap og spilaði spaða um
hæl. Nú blasa við fimm
tapslagir: Einn á spaða,
einn á tromp, einn á tígul
og tveir á lauf. En Sanborn
lét einn þeirra gufa upp.
Hún drap með spaðakóng,
tók kóng og ás í hjarta, og
spilaði síðan tígli á drottn-
ingu blinds. Austur átti
slaginn og spilaði laufkóng,
en það var aðeins tíma-
bundin lausn, því Sanborn
dúkkaði. Nú voru austri all-
ar bjargir bannaðar og í ör-
væntingu reyndi Gianardi
að taka slag á tígul. En
Sanborn trompaði og gat
svo hent laufi niður í tíg-
ulgosa.
Á hinu borðinu spiluðu
Ítalir fjóra spaða í NS, sem
fóru einn niður.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
Tvíburarnir Þórhalla Mjöll og Rakel Sif Magnúsdætur og
vinkonur þeirra, Helga Liv Gísladóttir og Ásgerður Arn-
ardóttir, færðu Barnaspítala Hringsins kr. 7.500 sem þær
söfnuðu með því að halda tombólu. Stelpurnar óska eftir að
peningarnir verði notaðir til tækjakaupa.
80 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 21.
júní, er áttræð Sólveig
Kristjánsdóttir frá Sauðár-
króki, Nökkvavogi 42,
Reykjavík. Hún verður að
heiman í dag.
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4
cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3
a6 6. Rxc6 bxc6 7. Bd3 d5
8. 0–0 Dc7 9. De2 Rf6 10.
b3 Be7 11. Bb2 0–0 12.
Hae1 Bb7 13. f4 c5 14.
exd5 c4 15. Bxc4 Bc5+ 16.
Kh1 exd5 17. Bd3 Bb4 18.
Rd1 Re4 19. c3 Bc5
20. f5 Hfe8 21. Dh5
Staðan kom upp
á Evrópumeist-
aramóti ein-
staklinga sem lauk
fyrir skömmu í Ist-
anbúl. Pólski stór-
meistarinn Pavel
Jaracz (2.549) laut
hér í lægra haldi
gegn rússneska of-
urstórmeistaranum
Sergei Rublevsky
(2.670) sem hafði
svart. 21 … Rg3+!
22. hxg3 Hxe1 23. Hxe1
Dxg3 24. He2 Dxd3 25.
Rf2 Db1+ 26. Kh2 Bd6+
27. g3 d4 28. Dh4 h5 29.
Dxh5 d3 30. Hd2 Df1 31.
Dh3 De1 32. Bc1 Dxc1 33.
Hxd3 Bc5 og hvítur gafst
upp saddur lífdaga. Hið sí-
vinsæla Mjóddarmót Tafl-
félagsins Hellis hefst í
göngugötunni í Mjódd kl.
14.00 í dag, 21. júní.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
FRÉTTIR
Þetta gerðist þegar
ég var á útsölunni …
FIMMTÁN
manna hópur
ungs fólks af ís-
lenskum ættum
frá Kanada og
Bandaríkjunum
kom til landsins
á sunnudag til
að taka þátt í
sex vikna fjöl-
breyttri dag-
skrá Snorra-
verkefnisins
sem hefur það
að markmiði að
tengja þau fast-
ar böndum við
gamla landið.
Snorraverkefn-
ið er samstarfs-
verkefni Nor-
ræna félagsins og
Þjóðræknisfélags Íslend-
inga.
Þetta er í fimmta sinn
sem hópur kemur hingað
til lands á vegum verk-
efnisins og fara vinsældir
þess sívaxandi. Aldrei
hafa jafn margir þátttak-
endur komið frá Banda-
ríkjunum, en að þessu
sinni eru sjö þátttakend-
ur þaðan og átta frá Kan-
ada. Karlkyns þátttak-
endum fer einnig
fjölgandi, en að þessu
sinni eru þeir sex. Fjöldi
stúlkna í verkefninu hefur
alltaf verið í meirihluta.
Svonefndir ,,Snorrar“
tóku þátt í hátíðarhöldum
17. júní í Hafnarfirði sem endaði
með kvöldverði hjá formanni
Snorrasjóðs, Almari Grímssyni,
þar sem ungu Vestur-Íslending-
arnir gæddu sér á hangikjöti og
pönnukökum. Þar voru einnig þátt-
takendur í svokölluðu Snorri-West
verkefni, fimm íslenskar stúlkur
sem munu dvelja sex vikur í
byggðum Vestur-Íslendinga í
Manitoba í sumar. Þátttakendur
Snorraverkefnisins og Snorri-West
munu svo fá tækifæri til að hittast
að nýju á Íslendingadeginum í
Gimli nú í sumar.
Næstu tvær vikurnar munu
þátttakendur Snorraverkefnisins
sækja náms- og menningardagskrá
í Reykjavík með áherslu á nám-
skeið í íslensku, sögu vesturfar-
anna og sögu og menningu Íslands.
Dagskráin er skipulögð í samstarfi
við Stofnun Sigurðar Nordals.
Eftir dvölina í Reykjavík fer
unga fólkið út á land og dvelur þá
hjá ættingjum sínum. Í þær þrjár
vikur sem ,,Snorrarnir“ eru á
landsbyggðinni taka þeir þátt í
starfsþjálfun. Meðal þeirra fyrir-
tækja sem styrkja þann hluta
verkefnisins eru Akureyrarbær,
Útgerðarfélag Akureyringa, ÍTR,
Kaupþing, Vopnafjarðarhreppur
og ýmsir fleiri aðilar. Að lokum
fara þau í viku ævintýraferð um
landið.
Ungt fólk af íslenskum
ættum í heimsókn
Valgerður Stella Kristjánsdóttir, Jóhanna Katrín Frið-
riksdóttir og Aðalheiður Dóra Albertsdóttir eru á leið á
Íslendingaslóðirnar í Manitoba í lok mánaðarins.
Heather, Kristin Hillman, Crystal og Kristjan
Adam Heimir skemmtu sér vel á þjóðhátíðar-
deginum í Hafnarfirði.
Sögur og leikir
Nokkur pláss laus á 5 daga námskeiðunum
sem hefjast 23. og 30. júní
Háteigskirkja - Sími 511 5400
HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS
EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ
Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum
og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar
þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn
á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir.
Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd.
Leiðbeinandi er Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur.
Upplýsingar í síma 694 5494
Áskorun hugljómunar (Enlightenment intensive)
í Bláfjöllum 26.-29. júní.
Magnað fyrir þá sem þrá að kynnast sannleikanum um sjálfan sig, lífið og aðra.
Kynningarkvöld sunnudaginn 22. júní kl. 20.00 hjá:
Hómópatar og heilsulausnir, Ármúla 17, 3. hæð.
www.friddi(a)hn.is • Fáðu sendan bækling • sími 562 0037 og 869 9293.
Leiðbeinandi:
Guðfinna S.
Svavarsdóttir
SÖGUSÝNING LÖGREGLUNNAR
Síðasta sýningarhelgi
Sýningin er á Skúlagötu 21, Reykjavík, jarðhæð
(í sömu byggingu og ríkislögreglustjórinn)
Opið frá kl. 11-17 daglega til 22. júní 2003
Aðgangur ókeypis.
Ríkislögreglustjórinn