Morgunblaðið - 21.06.2003, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JÚNÍ 2003 47
FJÓRAR stúlkur þurfa ekki að
vakna snemma í dag til að taka þátt
í 16 manna úrslitum á Íslands-
mótinu í holukeppni sem fram fer í
Leirunni um helgina. Ástæðan er
að stúlkurnar eru það fáar að fjórar
þeirra sitja hjá í fyrstu umferð og
þurfa því ekki að mæta til leiks fyrr
en í átta manna úrslit eftir hádegi.
Stúlkurnar léku 18 holu höggleik
í gær til að raða niður fyrir holu-
keppnina og þar lék Ragnhildur
Sigurðardóttir úr GR best, lék á 75
höggum eða þremur yfir pari, og
situr hjá ásamt Þórdísi Geirsdóttur
úr Keili, Helgu Rut Svanbergs-
dóttir úr Keili og Ingibjörgu Ósk
Einarsdóttur úr GR.
Herborg Arnarsdóttir úr GR, nú-
verandi holumeistari, ætlaði að
vera með en boðaði forföll í fyrra-
dag. Hún er nýorðin móðir og hefur
í mörg horn að líta.
Karlarnir léku 36 holur í gær til
að ákvarða hvaða 16 kylfingar
kæmust áfram í holukeppnina
sjálfa. Niðurstaðan varð sú að Sig-
urjón Arnarson lék best og mætir
hann Hauki Jónssyni sem varð í 16.
sæti. Aðrir sem mætast í 16 manna
úrslitum í dag eru: Sigurpáll Geir
Sveinsson (2) og Willy Blumenstein
(15). Sigmundur Másson (3) og
Ingvar Ingvarsson (14). Hlynur
Geir Hjartarson (4) og Örlygur
Helgi Grímsson (13). Guðmundur R.
Hallgrímsson (5) og Birgir Vigfús-
son (12). Gunnar Þór Gunnarsson
(6) og Davíð Jónsson (11). Haraldur
H. Heimisson (7) og Tryggvi
Traustason (10). Heiðar D. Braga-
son (8) og Magnús Lárusson (9).
Fjórar sitja hjá í fyrstu umferð
Íslandsmótsins í holukeppni
JÓN Oddur Halldórsson vann í
gær önnur gullverðlaun sín á
Evrópumeistaramóti fatlaðra í
frjálsíþróttum þegar hann kom
fyrstur í mark í 100 m hlaupi í
flokki spastískra, T35. Jón Oddur
hljóp á 13,46 sekúndum. Á mið-
vikudaginn vann Jón Oddur gull-
verðlaun í 200 m hlaupi í sama
flokki.
Heimsmethafinn, heims- og Ól-
ympíumeistarinn Lloyd Upsedell,
frá Bretlandi, tók ekki þátt í
hlaupinu í gær vegna meiðsla
sem hann hlaut í keppni í 200 m
hlaupi þar sem hann laut í lægra
haldi í keppni við Jón Odd.
Jón Oddur
vann annað
gull á EM
Leikurinn fór vel af stað og sam-spil var lipurt, það vantaði að-
eins fleiri góð skot að marki. Fljót-
lega náðu Blikar
undirtökunum með
því að gefa leik-
mönnum HK aldrei
færi á að byggja upp
sinn leik. Hvort lið fékk tvö ágæt
færi og HK-menn vildu fá víta-
spyrnu þegar boltinn hrökk að því
er virtist í hönd Blika inn í teig en af
því varð ekki. Eftir hlé var ekki eins
mikil yfirvegun en í staðinn vantaði
ekki færin. Blikar voru atkvæða-
meiri og Olgeir Sigurgeirsson skor-
aði af stuttu færi á 61. mínútu.
Kristófer Sigugeirsson bætti um
betur 7 mínútum síðar er Gunnleifi
Gunnleifssyni, markverði HK, mis-
tókst að sparka frá marki og boltinn
rann rétt út fyrir teig. Leikmenn
HK vöknuðu af værum blundi og
fóru að skipta sér af leiknum. Reyn-
ir Bjarni Egilsson minnkaði mun-
inn 7 mínútum fyrir leikslok eftir
frábæra sendingu Gunnars Arnar
Helgasonar en þar við sat.
„Ég er mjög ánægður nema hvað
við duttum aðeins út síðustu tíu
mínúturnar en mér fannst við betri
allan leikinn,“ sagði Jón Þórir Jóns-
son, þjálfari Blika, sem stýrt hefur
liðinu í tveimur leikjum og unnið
báða. „Við ætluðum að stöðva þá við
eigin vítateig og það gekk enda
vissum við að markvörður þeirra
ætti í erfiðleikum með að sparka frá
markinu vegna meiðsla en hann
varði samt oft ótrúlega.“ Þorsteinn
Sveinsson var eins og klettur í
vörninni og Hákon Sverrisson kom
til þegar leið á leikinn. Í framlín-
unni voru Hörður Bjarnason og
Kristófer Sigurgeirsson iðnir við að
hrella varnarmenn og markvörð
HK.
Fyrirliði HK, Guðbjartur Har-
aldsson, var ekki eins kátur. „Við
vorum aldrei tilbúnir til að spila
þennan leik. Það var mikil stemmn-
ing fyrir leikinn og við byrjuðum
með látum en vorum síðan ekki til-
búnir þegar á reyndi, vorum alltaf á
eftir þeim og þeir sýndu meiri vilja
til að vinna og gerðu það. Við vorum
bara með skotæfingar fyrir
ákveðna leikmenn okkar og þeir
gerðu ekki það sem fyrir þá var
lagt,“ sagði Guðbjartur. Það er
hægt að taka undir það, leikmenn
náðu sér engan veginn á strik og að-
eins Hörður Már Magnússon sýndi
lipra takta auk þess að Ásgrímur
Albertsson tók á í vörninni. Gunn-
leifur varði oft mjög vel.
Maður leiksins: Þorsteinn
Sveinsson, Breiðabliki.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tveir reyndir eigast við í Kópavogsslagnum í gærkvöldi, Kjart-
an Einarsson hjá Breiðabliki og Haraldur Hinriksson hjá HK.
Blikasigur í
nágrannaslag
YFIRBURÐIR Blika voru afgerandi þegar nágrannaslagur við HK fór
fram á Kópavogsvelli í gærkvöld. Mótspyrna HK var snemma brotin
á bak aftur og Blikar gengu á lagið en það var ekki fyrr en eftir hlé
að markastíflan brast. Breiðablik skoraði tvö en mótherjar þeirra
náðu upp spennu með því að taka duglega við sér í lokin og minnka
muninn, en 2:1 sigur Breiðabliks var sanngjarn.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Þór byrjaði betur og Ingi Hrann-ar Heimisson komst í gott færi
á 6. mínútu en skaut í hliðarnetið.
Síðan tóku Víkingar
smám saman völdin
og spiluðu mun bet-
ur. Hins vegar voru
þeir mjög sparir á
markskotin og skoruðu raunar úr
eina skoti sínu að marki í fyrri hálf-
leik. Stefán Örn Arnarson fékk þá
knöttinn óvaldaður rétt utan mark-
teigs og skoraði örugglega. Þetta
var á 17. mínútu og héldu gestirnir
stöðuyfirburðum meðan heimamenn
beittu löngum sendingum fram.
Á 36. mín. stakk Jóhann Þór-
hallsson sér inn fyrir vörn Víkinga
og skoraði en markið var dæmt af
vegna meintrar rangstöðu. Um-
deildur dómur. Kapp hljóp í Þórs-
ara við þetta og fóru þeir loks að
bíta frá sér en tókst ekki að jafna.
Alexander Santos átti skot í þverslá
á 41. mín.
Seinni hálfleikur var jafn framan
af en lítið um færi. Jóhann Þór-
hallsson fiskaði vítaspyrnu á 70.
mín. og skoraði úr henni sjálfur.
Eftir þetta voru Þórsarar sterkari
og pressuðu stíft síðustu mínúturn-
ar og voru í tvígang nálægt því að
skora en inn vildi boltinn ekki og
Víkingar halda því 2. sætinu en
Þórsarar eru áfram í 3. sæti deild-
arinnar.
Jóhann var að vanda skeinuhætt-
ur í liði Þórs og Hlynur Birgisson
afar traustur. Hjá Víkingum var
Bjarni Hall öflugur í fyrri hálfleik
og þeir Stefán Örn Arnarson og
Daníel Hafliðason áttu góða spretti.
Maður leiksins: Jóhann Þórhalls-
son, Þór.
Þórsarar lán-
lausir heima
Stefán Þór
Sæmundsson
skrifar
LIÐ Þórs hefur iðulega átt góðu gengi að fagna á heimavelli en nú
ber svo við að þessu er öfugt farið. Þórsarar hafa sigrað í útileikjum
sínum en eru án sigurs heima. Í gær komu Víkingar í heimsókn og
lyktaði leiknum með jafntefli, 1:1. Heimamenn pressuðu ákaft í lok-
in og sköpuðu sér færi en heppnin var ekki með þeim. Víkingur
missti þar með efsta sætið í hendur Keflvíkinga og Þór færðist nið-
ur í þriðja sæti 1. deildar.
Stjarnan og Njarðvík skildu jöfnþegar liðin áttust við í Garða-
bænum í gærkvöld. Stjörnunni
hafði ekki enn tekist
að landa fyrsta
sigrinum og ekki
varð breyting á því í
gær. Lokatölur
leiksins 1:1.
Heimamenn fengu óskabyrjun
þegar Brynjar Sverrisson kom
Stjörnunni yfir. Sigurður Sigurðs-
son, markmaður Njarðvíkur, ætlaði
að hreinsa hættulítinn bolta frá
marki, en varð fyrir því óhappi að
skjóta knettinum í Snorra Má Jóns-
son samherja sinn með þeim afleið-
ingum að boltinn féll fyrir fætur
Brynjars sem skilaði honum í autt
mark gestanna. Snorri Már var aft-
ur í sviðsljósinu á 16. mínútu þegar
hann jafnaði metin fyrir Njarðvík
með skalla eftir hornspyrnu. Eftir
markið náðu Njarðvíkingar smám
saman tökum á leiknum en færin
létu þó á sér standa og því var jafnt
þegar flautað hafði verið til leik-
hlés.
Í upphafi seinni hálfleiks sóttu
liðin á víxl og aðeins klaufaskapur
upp við mörk andstæðinganna kom
í veg fyrir að staðan breyttist.
Besta færi hálfleiksins fékk Brynj-
ar Sverrisson en skot hans af mark-
teig fór rétt framhjá marki Njarð-
víkur. Eftir því sem líða tók á
hálfleikinn hresstist sóknarleikur
Stjörnunnar til muna og héldu þeir
mikilli pressu að marki gestanna.
Mörkin létu hins vegar á sér
standa. Á lokamínútum leiksins
fengu bæði lið færi á að gera út um
leikinn en klaufaskapur kom í veg
fyrir að fleiri mörk væru skoruð og
niðurstaðan því jafntefli, 1:1.
Valdimar Kristófersson, þjálfari
Stjörnunnar, var ekki ósáttur með
leik sinna manna: „Ég tel að þetta
hafi verið ágætis leikur hjá okkur.
Seinni hálfleikurinn var okkar eign,
við áttum mörg færi, en ef menn
vilja tala um einhverja lukku þá er
hún ekki okkar megin þessa stund-
ina. Það vantar kannski eitthvað
upp á sjálfstraustið hjá okkur, en
leikur okkar er samt að batna. Við
vorum miklir klaufar að nýta ekki
þau færi sem við fengum, vonandi
fer það að lagast svo við getum far-
ið að hala inn einhver stig.“
Stjarnan enn
án sigurs
Benedikt Rafn
Rafnsson
skrifar
KRISTINN Björgúlfsson, hand-
knattleiksmaður úr ÍR, hefur skrifað
undir tveggja ára samning við
Gróttu/KR. Kristinn, sem er 21 árs
leikstjórnandi, hefur ekki verið mikið
í byrjunarliði ÍR-inga en þó spilað
talsvert með liðinu síðustu árin.
Hann lék 24 af 26 leikjum ÍR í 1. deild
í vetur og skoraði 31 mark.
JEB Ivey, bandarískur körfuknatt-
leiksmaður, hefur samið við KFÍ frá
Ísafirði, nýliðana í úrvalsdeildinni.
Hann er 23 ára gamall bakvörður og
hefur leikið með háskólaliði Portland
og er samkvæmt upplýsingum um
hann mikil þriggja stiga skytta.
ÚRSLITIN í einvígi Real Madrid
og Real Sociedad um spænska
meistaratitilinn í knattspyrnu ráðast
á morgun. Real Madrid leikur á
heimavelli gegn Athletic Bilbao, og
verður meistari með sigri. Misstígi
stórveldið sig hirða Baskarnir í Real
Sociedad titilinn af þeim, takist þeim
að sigra Atletico Madrid á heima-
velli.
KAUP Real Madrid á David Beck-
ham hafa truflað undirbúning liðsins
fyrir þennan mikilvæga leik. „Þetta
er erfitt, en við verðum að hafa í huga
hve mikið er í húfi á sunnudag. Við
verðum að hugsa um leikinn við
Bilbao og ekkert annað. Þetta var
ekki góður tími til að tilkynna kaupin
á Beckham,“ sagði Michel Salgado,
varnarmaður Real Madrid, í gær.
XABI Alonso, miðjumaður Real
Sociedad, sagði að úrslitin væru
hvergi nærri ráðin. „Vissulega er
þetta ekki í okkar höndum lengur, en
við erum vissir um að leikmenn
Bilbao geta náð í stig á Bernabeau.
Þeir þurfa að sigra til að komast í
UEFA-bikarinn og munu leggja sig
alla fram,“ sagði Alonso.
BARCELONA þarf að treysta á að
erkifjendurnir í Real Madrid sigri
Bilbao til að eiga möguleika á
UEFA-sæti. Þá þarf Barcelona að
vinna heimaleik sinn við Celta Vigo
en þar með kæmist Katalóníuliðið
upp í 6. sæti sem væri sárabót eftir
afspyrnu slakt tímabil.
DAVID Seaman, fráfarandi mark-
vörður Arsenal, ber mikið lof á
knattspyrnustjórann Arsene Weng-
er, fyrir hvernig hann brást við
brotthvarfinu frá félaginu. „Hann
sagði mér einfaldlega hvað hann
hefði upp á að bjóða og að ef ég
myndi ekki taka því myndi hann
virða mína ákvörðun. Það er ekki
hægt að koma heiðarlegar fram en
það,“ sagði Seaman, sem leikur með
Manchester City næsta vetur.
SEAMAN, sem verður fertugur í
ár, hefur spilað með Arsenal í 13 ár.
Wenger tjáði honum í vor að hann
myndi kaupa markvörð í fremstu röð
í sumar þannig að hann ætti ekki vísa
stöðu í liðinu næsta vetur.
FÓLK