Morgunblaðið - 01.07.2003, Blaðsíða 1
Lögin
spretta fram
Hera komin til landsins með ný
lög í farteskinu Fólkið 44
Í brúnni hjá
Barnsley
Guðjón Þórðarson stjórnar
ensku liði að nýju Íþróttir 39
Leikið fyrir
landann
Guðni Emilsson stýrir þýskri
kammersveit í Salnum Listir 22
STOFNAÐ 1913 175. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
KIRKJAN í Grikklandi sak-
ar borgaryfirvöld í Aþenu
um að stuðla að eflingu kyn-
lífsferðamennsku í kringum
Ólympíuleikana 2004, vegna
tillögu sem þau hafa lagt
fram um að rýmka löggjöf
um vændi fyrir leikana.
Vændi er leyfilegt í landinu
en með nokkrum takmörkun-
um þó, þar sem það má ein-
ungis fara fram á vændis-
húsum.
Í yfirlýsingu segist kirkjan
vera hissa og sorgmædd yfir
tillögunni sem samræmist
ekki þeim gildum sem leik-
arnir eigi að standa fyrir.
Krefst þess að tillagan
verði dregin til baka
Hún krefst þess að að yf-
irvöld dragi tillöguna til baka
þar sem hún sé auglýsing
fyrir kynlífsferðamennsku
og efli kynlífsiðnaðinn, einn-
ig þar sem börn séu notuð.
Hún bætir við að viðhorf
borgaryfirvalda réttlæti þá
ákvörðun bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins að setja
Grikkland á svartan lista yfir
lönd sem dragi lappirnar í
baráttunni gegn verslun með
fólk til kynlífsþrælkunar.
Embættismaður hjá borg-
inni segir hins vegar að til-
lagan eigi ekki að veita algert
frelsi hvað varðar vændi en
að hætta sé á að lögum verði
ekki fylgt þar sem reynslan
sýni að vændi sé mikið stund-
að í kringum leikana.
Sakar yf-
irvöld um
að stuðla
að vændi
Aþena. AFP.
Ólympíuleikar/6
TALIÐ er að tugir Íraka hafi látist í
sprengingu í vopnabúri í bænum Hadithah
um 250 km norðvestur af Bagdad, á laug-
ardag. Ekki var
ljóst í gær hvað
olli sprengingunni
en engir hermenn
bandamanna fór-
ust. Áður höfðu
borist fregnir um
að fjórir Írakar
hefðu látist og
þrír særst en AFP-fréttastofan hefur eftir
lækni á sjúkrahúsi bæjarins að mun fleiri
hafi týnt lífi. Læknirinn sagði erfitt að gefa
upp hversu mörg líkin hefðu verið þar sem
þau voru mikið brennd en þak vopna-
geymslunnar hefði fallið niður á fólkið.
Ríkisstjóri handtekinn fyrir spillingu
Stjórn herliðs bandamanna lét handtaka
ríkisstjóra í borginni Najaf vegna gruns um
mannrán og spillingu. Auk þess voru 62
samstarfsmenn hans handteknir.
Bandaríkjaher hafði skipað ríkisstjórann,
Abu Haidar Abdul Munim, til bráðabirgða.
Bandarískur embættismaður í Írak segir að
Munim sé sakaður um mannrán og að hafa
haldið bankastarfsmanni í gíslingu og hafa
að auki látið greipar sópa um sjóði Najaf.
Hann var óvinsæll meðal borgara sem
tengdu hann margir við stjórn Saddams
Hussein.
Bandaríski embættismaðurinn sagði að
Paul Bremer, yfirmanni borgaralegrar
stjórnar Bandaríkjamanna í Írak, þætti
mjög miður að Munum hefði misnotað stöðu
sína til að fremja glæpi af þessu tagi.
Háttsettur sjía-klerkur í Írak, Ayatollah
Ali al-Shistani, gaf út trúarlega tilskipun í
gær þar sem lýst er yfir harðri andstöðu við
áætlanir Bandaríkjamanna um að skipa
stjórnarráð sem geri drög að stjórnarskrá
landsins. Hann segir þær óviðunandi og að
íraska þjóðin eigi sjálf að fá að kjósa sér
stjórn.
Reuters
Telur tugi
Íraka hafa
látið lífið
Camp Boom. AFP.
Al-AQSA-SAMTÖKIN, hin vopn-
uðu undirsamtök Fatah-hreyfing-
arinnar, lýstu yfir í gær að þau
myndu virða þriggja mánaða
vopnahlé eins og önnur samtök
Palestínumanna hafa sagst ætla að
gera. Ísraelar hófu að draga herlið
sitt frá hluta Gaza-svæðisins eftir
yfirlýsinguna og færðu burt eftir-
litsstöðvar sínar á svæðinu. Palest-
ínumenn tóku aftur við löggæslu á
Gaza en þeir hafa ekki gegnt henni
síðan í september 2000. Þá hafa
Ísraelar samþykkt að draga her
sinn frá Jerúsalem á miðvikudag.
Yfirlýsing Al-Aqsa-samtakanna
þykir hafa töluvert gildi fyrir frið-
arhorfur á svæðinu, því þau hafa
tekið þátt í vopnaðri baráttu Pal-
estínumanna. Sex önnur samtök
Palestínumanna sendu út sams
konar yfirlýsingar í gær. Þrátt fyr-
ir yfirlýsinguna skutu liðsmenn Al-
Aqsa búlgarskan vörubílstjóra til
bana á Vesturbakkanum í gær.
Palestína fái milljarð dollara
Ríkisstjórnir víða um heim fögn-
uðu vopnahléinu, m.a. sagði Ari
Fleischer, talsmaður Hvíta húss-
ins, friðarferlið vera komið á nýtt
stig. Condoleezza Rice, þjóðarör-
yggisráðgjafi Bandaríkjafoseta,
lagði til að Bandaríkjamenn
myndu veita Palestínumönnum
einn milljarð dollara til að auðvelda
uppbyggingu í landinu en þjóðin er
afar illa sett efnahagslega eftir
þriggja ára stríð við Ísrael.
Í dag er fyrirhugaður fundur
Mahmud Abbas, forsætisráðherra
Palestínu, og Ariels Sharon, for-
sætisráðherra Ísraels, þar sem
þeir munu ræða frekar hinn svo-
kallaða Vegvísi til friðar.
Reuters
Nokkrir Palestínumenn fagna hér ákaft er þeir aka óhindrað um eina helstu samgönguleið Gaza-svæðisins
eftir að Ísraelar fjarlægðu vegatálma þar í gær. Í gær fengu þeir að aka þar óhindrað um í fyrsta sinn í 3 ár.
Al-Aqsa-samtökin
lýsa yfir vopnahléi
JÚNÍMÁNUÐUR var með eindæm-
um hlýr um allt land og lítið um úr-
komu. Í Reykjavík hefur meðalhit-
inn til að mynda ekki mælst hærri í
rúm 60 ár eða síðan árið 1941, að
sögn Þórönnu Pálsdóttur veður-
fræðings.
Veðrið hefur annars verið ein-
staklega milt og gott það sem af er
ári en fyrstu fimm mánuði ársins
var hitinn vel yfir meðaltali. Janúar
var hlýr og þurrviðrasamur, mikil
hlýindi voru í febrúar- og marsmán-
uði, en meðalhitinn í Reykjavík var
þá hæstur frá upphafi mælinga.
Meðalhiti í apríl var svo með því
hæsta sem mælst hefur. Í maí var
hitinn rétt um meðallag og hafði
þar áhrif stutt kuldakast í byrjun
mánaðarins.
Mesti hiti í
Reykjavík
í rúm 60 ár
SHELL Petroleum Company seldi allan hlut
sinn í Skeljungi hf. í gær til Burðaráss hf. og Sjó-
vár-Almennra trygginga hf. á genginu 12 krónur
á hlut. Lokagengi félagsins í
Kauphöll Íslands á föstudag
var hins vegar 15,70 krónur.
Miðað við það gengi nemur
markaðvsirði félagsins um
11,8 milljörðum króna. Sé svo-
kallað Q-hlutfall (markaðs-
virði/eigið fé) skoðað sést að Skeljungur er metið
mun hærra á markaði en hin olíufélögin. Hlutfall
markaðsvirðis og eigin fjár hinna olíufélaganna
tveggja, Olíuverzlunar Íslands hf. og Kers hf.,
sem var afskráð úr Kauphöllinni fyrir um mán-
uði, er að meðaltali í kringum 1,5. Sama hlutfall
hjá Skeljungi er hins vegar 2,05 miðað við loka-
gengi í gær. Því hærra sem markaðsvirði félags
er miðað við eigið fé, því hærra er hlutfallið.
Hlutfall Skeljungs er um 38% hærra en hinna
félaganna. Sé miðað við gengið 12 krónur á hlut
verður markaðsvirði Skeljungs rúmir 9 milljarð-
ar króna og Q-hlutfallið nær því að vera jafnt hin-
um félögunum tveimur. Þeim, sem Morgunblaðið
ræddi við í gær og þekkja vel til hlutabréfamark-
aðarins, bar saman um að gengi Skeljungs í
Kauphöll Íslands hefði um nokkurn tíma verið
óeðlilega hátt og gengið í viðskiptunum í gær
væri nær því að teljast „eðlilegt“ mat á virði fé-
lagsins. Gengi bréfa í Skeljungi var 15,70 krónur
á hlut við lok markaða sl. föstudag áður en við-
skiptin áttu sér stað. Gengið í lok dags í gær var
15 og hafði lækkað um 4,45% frá föstudegi.
Hlutur Burðaráss í Skeljungi nemur 23,35%
eftir viðskiptin og hlutur Sjóvár-Almennra
25,02%. Kaupþing-Búnaðarbanki jók einnig hlut
sinn í Skeljungi í gær með kaupum á 8% hluta-
fjár. Hlutur bankans í Skeljungi er nú 35,28%.
Sjóvá-Almennar er orðið næststærsti hluthafi í
Skeljungi á eftir Kaupþingi-Búnaðarbanka.
Aðspurður hvort harka hafi verið hlaupin í
samkeppni um bréf í Skeljungi segir Benedikt
Jóhannesson, stjórnarformaður Skeljungs, að
aldrei hafi verið nein illindi á milli félaga sem
hann tengdist og Kaupþings-Búnaðarbanka.
Samkvæmt nýjum lögum er taka gildi í dag fellur
yfirtökuskylda á hluthafa sem eiga meira en 40%
í félagi, en samkvæmt gömlu lögunum taldist
50% hlutur vera ráðandi. Í kjölfar viðskipta gær-
dagsins eiga Burðarás og Sjóvá-Almennar
48,37% hlut í Skeljungi.
Shell selur hlut sinn í
Skeljungi á genginu 12
Lokagengi 15,70 krón-
ur á hlut á föstudag
Shell selur/13