Morgunblaðið - 01.07.2003, Page 24

Morgunblaðið - 01.07.2003, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HINN 1. júlí koma fern ný lög á sviði orkumála til framkvæmda, en það eru raforkulög, lög um Orku- stofnun, lög um nýja stofnun, Ís- lenskar orku- rannsóknir, og í fjórða lagi lög sem lúta að tengdum breyt- ingum á ýmsum lögum á orku- sviði. Hér er ætl- unin að gera þessum nýmæl- um nokkur skil. Fyrirkomulag raforkumála hefur verið í endurskoðun um víða veröld s.l. áratug. Tvennt hefur verið að gerast; Sköpuð hafa verið lagaleg skilyrði fyrir samkeppni og eignar- hald hefur færst til einkaaðila. Fram að þessu hefur víðast hvar verið litið á þennan hluta orkugeirans sem þjónustu sem hinu opinbera bæri að standa að. Þetta tvennt – markaðs- væðing, þ.e.a.s. innleiðing sam- keppni, og einkavæðing – hefur þó ekki endilega farið saman. Þannig hafa Norðmenn verið í forystu um markaðsvæðingu en þar í landi hef- ur þó ekki verið einkavætt í neinum mæli. Í sumum þróunarríkjum hef- ur ríkiseinokun verið einkavædd, en án samkeppni. Í Evrópu hófst þessi markaðs- væðing í Bretlandi og í Noregi fyrir rúmum áratug en með tilskipun Evrópusambandsins nr. 92 frá árinu 1996 var mælt fyrir um þetta fyrir- komulag í öllum ríkjum þess. Veitt- ur var nokkur aðlögunarfrestur, en nú hefur verið ákveðið að markaðs- væðingin skuli að fullu komin til framkvæmda árið 2007. Í samræmi við samninginn um Evrópska efna- hagssvæðið var ákveðið að tilskip- unin tæki einnig til þeirra ríkja svæðisins sem eru utan Evrópusam- bandsins, þ.m.t. til Íslands. Íslensk stjórnvöld töldu hvorki unnt né skynsamlegt að standa gegn innleið- ingu tilskipunarinnar og heldur ekki að leita eftir sérstakri undanþágu varðandi framkvæmd hennar. Í hverju felst markaðsvæðingin? Því er lýst á meðfylgjandi mynd. Raforkugeiranum er skipt í fjóra meginþætti, en þeir eru:  Orkuvinnsla  Flutningur  Dreifing  Orkusala Af þessum þáttum eru það orku- vinnslan og -salan sem henta til samkeppni, en hvergi hefur verið talið skynsamlegt að innleiða sam- keppni í flutningi og dreifingu. Til- skipun Evrópusambandsins mælir skýrt fyrir um að þetta skuli vera sérleyfisstarfsemi, en um leið að með henni skuli vera markvisst eft- irlit, bæði til að gæta að eðlilegri verðlagningu en líka að tryggja jafna aðkomu allra framleiðenda og seljenda að því að fá orkunni miðlað frá framleiðslustað til endanlegs neytanda. Íslensk raforkulög Eins og þegar segir ber íslenskum stjórnvöldum að innleiða tilskipun Evrópusambandsins um raforku- markaðinn hér á landi og er það gert með lögum nr. 65/2003 sem sam- þykkt voru á seinustu dögum síðasta löggjafarþings og koma til fram- kvæmda 1. júlí. Helstu nýmæli sam- kvæmt þessum lögum eru eftirfar- andi:  Öllum sem uppfylla almenn skil- yrði er heimilt að framleiða raf- orku, en hingað til hafa stjórnvöld í reynd stýrt framboði á raforku.  Sérstakt fyrirtæki skal annast all- an flutning jafnframt því sem að- skilja verður dreifingu bókhalds- lega frá annarri starfsemi orkufyrirtækjanna.  Að uppfylltum almennum skil- yrðum er hverjum sem er heimilt að stunda raforkuviðskipti, þ.e.a.s. að miðla raforku, en neytendur eiga val um það við hvern þeir skipta. Eins og jafnan hefur gerst annars staðar taka þessi ákvæði gildi í áföngum. Frelsi til framleiðslu tekur strax gildi. Fyrirkomulag flutnings verður með bráðabirgðahætti fyrsta árið, en fram til 1. júlí 2004 mun flutningssvið Landsvirkjunar annast flutninginn, enda er flutningskerfið á sama tímabili skilgreint sem há- spennulínukerfi þess. Eftir það ganga í gildi ítarleg ákvæði um flutning, þar sem flutningskerfið er m.a. skilgreint víðfeðmara. Þessi ákvæði um flutning hafa sætt gagn- rýni og því mæla lögin fyrir um skip- an nefndar sem á að freista þess að ná frekari sátt um fyrirkomulag flutningsins, sem unnt verði að setja í lög fyrir 1. júlí 2004. Síðasta atriðið, frelsi neytenda til að velja sér raforkusala, tekur gildi í þremur skrefum. Til ársloka 2004 hafa einungis stórnotendur þetta val, þ.e.a.s. þeir sem nota m GWst af raforku á ári. Í rey þetta aðeins til stóriðjufyrir anna. Eftir það bætast þeir eru aflmældir og nota meira 100 kW, en það á t.d. við um framleiðslufyrirtæki. En frá byrjun 2007 hafa allir neyte frelsi. Þannig verður nýja fy irkomulaginu endanlega ko hérlendis á sama tíma og þv lokið annars staðar á Evróp efnahagssvæðinu. Á meðan endur hafa ekki val um rafo ber dreifiveitunum að selja skiptavinum sínum orkuna. Hefur orðið árangu Tilgangurinn með marka væðingunni er hvarvetna að raforkukerfið skilvirkara en nýta til þess kosti samkeppn Reynslan hefur nær undant arlaust sýnt að raforkuverð lækkað eftir að markaðsvæ hefur verið komið á; mismik vísu. Að vísu er ekki auðvelt greina orsakir í öllum tilviku eð fleira hefur komið til á sa svo sem lækkun eldsneytisv hefur verið bent á að þessi l kunni að einhverju leyti að v tímabundin þar eð víðast hv verið fjárfest um of í orkum virkjum á tímum opinberra unnar og að lækkunin kunn ganga til baka þegar þetta o framboð er horfið. Umræða stjórnvöldum, t.d. innan Ev sambandsins, snýst einmitt hvernig bæta megi fyrirkom þannig að það skili einnig til árangri þegar „fitulagið frá er uppurið. Nokkur reynsla fékkst af við knappt framboð á nýliðn á hinum Norðurlöndunum, lítillar úrkomu urðu veruleg þrengingar á hinum sameig raforkumarkaði þessara lan lega stóð Norræna ráðherra fyrir ráðstefnu um orsakir o ingar þessarar kreppu og hv dóma mætti af því draga. Þa nánast samdóma álit þeirra Nýskipan orkum Eftir Þorkel Helgason Myndin sýnir flæði orku og fjár milli orkuframleiðenda, flutnin irtækis, dreifiveitna, orkusala og neytenda. BJÖRN Ingi Hrafnsson ritaði laug- ardaginn 28. júní sl. harðorða en af- ar ónákvæma og grunnhyggna grein um lyfja- mál í Morgun- blaðið. Hann beinir spjótum sínum að ýmsum aðilum vegna hækkandi lyfja- kostnaðar hjá hinu opinbera og í ljósi fjárhags- vanda Landspítala – háskólasjúkra- húss (LSH). Lyfjaverð hefur lækkað Það virðist seint ætla að komast á hreint hjá Birni Inga og öðrum fulltrúum stjórnvalda að lyfjaverð er ekki það sama og lyfjakostnaður. Þessi misskilningur er til þess fall- inn að rugla almenning og stjórn- öllum ráðum og gefa í skyn ,,eðlilegu ástandi“ standi lyf aður í stað. Nýjum lyfjum o notkun þeirra er kennt um þ hækkanir sem orðið hafa og nýjungagjarnir læknar hels blórabögglarnir í þeirri notk lendar rannsóknir hafa sýnt ástæða kostnaðarhækkana ný lyf, heldur skiptast ástæ næstum jafnt í þrennt: vegn hækkana lyfja sem fyrir vor markaði, notkunaraukninga sem fyrir voru á markaði og lyfja. Lyfjanotkun er þjóðhagslega hagkv Þegar lyfjakostnaður hæ tala fulltrúar stjórnvalda um fellt vandamál. Við viljum a sögðu ekki draga úr fjárhag ríkissjóðs og LSH vegna he ismála, heldur benda á að yf lyfjamála hafa löngum verið þeim farvegi að horfa aðein málamenn í ríminu. Hér er ástæða til að ráða bót á. Áður hefur komið fram að lyfja- verð hefur lækkað á undanförnum misserum. Þá er átt við það verð sem apótek greiða heildsölum og heildarverð lyfja út úr apóteki hefur lækkað hlutfallslega. Sem kunnugt er skiptist greiðsla þessa verðs oft- ast í tvennt, þ.e. sjúklingur ber hluta kostnaðarins við lyfið á móti Tryggingastofnun. Síðan er talað um lyfjakostnað Tryggingastofn- unar og Landspítala – háskóla- sjúkrahúss o.s.frv. en það er heild- arkostnaður þessara aðila vegna lyfja. Þá er einnig hægt að tala um lyfjakostnað heimilanna, en það er sá kostnaður sem fellur á sjúklinga vegna lyfja. Kostnaðarhækkanir hafa margar skýringar Björn Ingi og aðrir málsvarar hins opinbera í lyfjamálum vilja halda lyfjakostnaði í skefjum með Lyfjaverðið bólgnar Eftir Önnu Birnu Almarsdóttur HEIMSÓKN FORSETA ÞÝSKALANDS Johannes Rau, forseti Þýskalands,hefur þriggja daga opinberaheimsókn sína til Íslands í dag. Heimsókn þessi er enn ein staðfest- ingin á innilegu og traustu sambandi Íslands og Þýskalands. Sagan tengir þýsku og íslensku þjóðirnar nánum böndum og menning okkar er á mörg- um sviðum samofin. Á síðustu árum hefur samband Ís- lands og Þýskalands haldið áfram að dafna og styrkjast, jafnt í gegnum formlegt samstarf ríkjanna sem og með þeim miklu og fjölbreyttu sam- skiptum einstaklinga sem daglega eiga sér stað. Fjöldi Íslendinga stund- ar nám í Þýskalandi og þúsundir Þjóð- verja koma til Íslands ár hvert til að ferðast um landið og kynnast landi og þjóð. Mennningarsamskipti ríkjanna eru í miklum blóma og taka á sig margvíslega mynd. Má nefna að í för með Þýskalandsforseta er Tübinger- kammersveitin en stjórnandi hennar er Guðni A. Emilsson. Annað nýlegt dæmis sem nefna má í þessu sambandi er að íslensk nútímalist var í öndvegi á norrænu menningarhátíðinni Nor- discher Klang, sem haldin var í Greifswald í Þýskalandi í maí síðast- liðnum. Forseti Þýskalands og Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, voru verndarar þeirrar hátíðar. Á sviði viðskipta hafa tengsl ríkjanna sömuleiðis verið mikil. Þýskaland er mikilvægur markaður fyrir íslenskar sjávarafurðir og á móti hafa þýskar vörur, ekki síst bifreiðar og rafmagnsvörur ýmiss konar, sterka stöðu á íslenska markaðnum. Í huga flestra neytenda er það mikill gæða- stimpill á vöru ef hún er hönnuð og framleidd í Þýsklandi. Hin pólitísku tengsl við Þýskaland eru hins vegar ekki síður mikilvæg og verða stöðugt mikilvægari. Ísland tengist Evrópusambandinu og þar með Þýskalandi nánum böndum í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. Sá samningur trygg- ir okkur aðgang að hinum innra mark- aði Evrópuríkjanna. Eftir því sem tengslin við Evrópu verða nánari hafa þær ákvarðanir sem teknar eru á vett- vangi Evrópusambandsins stöðugt meiri áhrif á íslenskt samfélag. Þýska- land er forysturíki Evrópu, jafnt efna- hagslega sem pólitískt. Í viðtali við Morgunblaðið í gær segir Johannes Rau meðal annars: „Ég lít því svo á að einnig í framtíðinni muni ríkin eiga gjöfult samstarf. Áhersla Íslendinga á tækni framtíðarinnar og styrkur þeirra á sviði þjónustuviðskipta gerir Ísland jafnframt að áhugaverðum samstarfsaðila fyrir Þýskaland.“ Það skiptir Íslendinga miklu að rækta sambandið við Þýskaland og Þjóðverja, sem hafa margsinnis sýnt að þeir eru vinaþjóð í raun. TÆKIFÆRIN Í VATNSMÝRINNI Þórólfur Árnason borgarstjóri lýstií viðtali við Morgunblaðið sl. sunnudag sjónarmiðum sínum um framtíð Vatnsmýrarinnar í Reykjavík og segir m.a.: „Vatnsmýrin er augljós- lega tækifæri innan borgarmarkanna. Skipulagið gerir þó ekki ráð fyrir að ráðist verði í framkvæmdir á svæðinu næstu árin en áform eru uppi um sam- keppni um heildarskipulag svæðisins á kjörtímabilinu.“ Borgarstjóri bætir við að flugvall- armálið, sem hefur verið umdeilt, muni leysa sig sjálft innan nokkurra ára. „Ég hef fulla trú á því af því að ég tel að samgöngur á landi eigi enn eftir að batna,“ segir hann. „Fólk utan af landi fer í framhaldinu af því að gera ríkari kröfu um að komast beint úr innanlandsflugi í utanlandsflug og stór hópur erlendra ferðamanna á eft- ir að fagna því að komast beint frá Keflavík út á land. Ég held að bæði landsbyggðin og ferðaþjónustan muni hagnast á því að boðið verði upp á inn- anlandsflug beint frá Keflavík.“ Þetta er áreiðanlega rétt mat hjá borgarstjóra. Morgunblaðið hefur í umræðum um flugvallarmálið bent á að eftir nokkur ár verði allt önnur sjónarmið uppi í því en verið hefur, m.a. vegna þróunar í samgöngum á landi og vaxandi fjölmennis á höfuð- borgarsvæðinu. Blaðið hefur t.d. bent á að íbúi á Kjalarnesi, sem tilheyrir óumdeilanlega höfuðborgarsvæðinu, sé væntanlega álíka lengi að aka til Reykjavíkurflugvallar þar sem hann er nú í Vatnsmýrinni og íbúi í Kópa- vogi er að aka í Leifsstöð á Keflavíkur- flugvelli. Fyrir þann, sem býr í Hafn- arfirði, getur verið mun fljótlegra að fara suður til Keflavíkur, einkum og sér í lagi eftir tvöföldun Reykjanes- brautarinnar, en að brjótast í gegnum umferðina til Reykjavíkurflugvallar. Önnur sjónarmið auka jafnframt líkurnar á að innanlandsflugið flytjist til Keflavíkur. Þar má nefna flugör- yggismál – atvik á borð við það, sem varð í fyrrakvöld er erlend flugvél straukst nánast við húsþökin í Þing- holtunum á leið inn til lendingar á Reykjavíkurflugvelli, ýta auðvitað undir kröfur um að flugvöllurinn fari. Sömuleiðis er hæpið að Íslendingar hafi efni á að reka tvo stóra flugvelli á sama svæði. Hingað til hafa Bandarík- in borið kostnaðinn af rekstri Kefla- víkurflugvallar að stórum hluta. Sennilegt er að í þeim viðræðum, sem nú fara fram milli Bandaríkjanna og Íslands, verði niðurstaðan m.a. sú að Íslendingar verði að taka á sig mun stærri hluta þess kostnaðar. Síðast en ekki sízt þarf Reykjavík á byggingarlandinu í Vatnsmýrinni að halda. Svæðið á að skipuleggja í heild sem hluta af öflugum miðbæjarkjarna, í góðum tengslum við háskólasvæðið og gömlu miðborgina. Það væri mis- ráðið að skipuleggja það og byggja í bútum, án þess að hafa heildarmynd- ina og tengslin við aðra borgarhluta í huga. Það er rétt hjá Þórólfi Árnasyni að í Vatnsmýrinni eru fólgin gífurleg tækifæri; þar liggja mestu vaxtar- möguleikar miðborgarkjarnans. Á miklu ríður að nýta þessi tækifæri rétt og þess vegna er jákvætt að borgaryf- irvöld skuli ætla að efna til alþjóðlegr- ar samkeppni um skipulag svæðisins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.