Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.07.2003, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ RÚÐUR mölbrotna, þakið fýkur af og hurðir springa af hjörum. Þannig lýsir Víðir Kristjánsson, deildarstjóri hjá Vinnueftirlitinu, áhrifum þess að sprengja innan við eitt kíló af dýna- míti í hanskahólfi fólksbifreiðar. Hann telur að sprengiefnið sem stolið var úr geymslu á Hólmsheiði fyrir helgi, 245 kíló af dýnamíti, dugi til að eyðileggja „nokkuð stóra“ byggingu. Til þess að framkalla sprengingu þarf hvellhettur og fleira en slíku var ekki stolið enda ekki til staðar í geymsl- unni, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Reykjavík. Verðmæti sprengiefnisins er 50–100.000 krónur. Aðspurður segir Víðir að illmögu- legt sé að sprengja dýnamít án þess að hafa hvellhettur. Dýnamít brenni t.a.m. án þess að springa. Þá telur hann litla hættu á að dýnamítstúpa springi við óhapp og myndi tæpast springa þó önnur dýnamítstúpa yrði sprengd henni við hlið. Að sögn Björns Karlssonar, bruna- málastjóra, eru sprengiefnageymsl- urnar á Hólmsheiði einu stóru sprengiefnageymslurnar á landinu, fyrir utan framkvæmdastaði. Þær geta alls geymt 40 tonn af sprengiefni og verða því að standa í ríflega eins kílómetra fjarlægð frá skólum, sjúkrahúsum og íbúðabyggð. Hann segir ljóst að nokkrir mannabústaðir standi nær en sem þessu nemur. Þá mun hluti af fyrirhugaðri byggð á Norðlingaholti lenda innan öryggis- svæðisins. Björn situr í samráðsnefnd um stórslysavarnir sem gerði nýlega könnun á notkun á geymslunum. Að mati nefndarinnar voru öryggisfjar- lægðir ekki nægar, ekki síst ef tekið var tillit til þess að íbúðabyggð færist sífellt nær. „Það er alveg ljóst að það verður að flytja þessa starfsemi,“ seg- ir Björn. Í nóvember sendi nefndin bréf til skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar og óskaði eftir því að borgaryfirvöld leystu úr málinu og kváðust þau ætla að skoða málið. „Skipulagsmál taka stundum svolítið langan tíma en að mínu mati er mik- ilvægt að flýta þeirri vinnu,“ segir Björn. Víðir Kristjánsson bendir enn- fremur á að göngustígar, ak- og reið- vegir lendi einnig innan öryggissvæð- isins. Björn segir að Brunamálastofnun gangi úr skugga um að sprengiefna- geymslur séu byggðar í samræmi við reglur en sveitarfélög eigi að fylgjast með því að reglur um öryggismál séu virtar. Aðspurður segir Björn að ástæða sé til þess að við sprengiefna- geymslur séu öryggiskerfi, s.s. eftir- litsmyndavélar eða þjófavarnakerfi, sem gera viðvart ef reynt er að brjót- ast inn. Slík kerfi eru ekki við geymsl- urnar á Hólmsheiði. Vinnueftirlit ríkisins hefur með höndum eftirlit með færanlegum sprengiefnageymslum sem notaðar eru á framkvæmdastað. Fyrir tveim- ur árum var gerð könnun á ástandi geymslnanna og segir Víðir Krist- jánsson að í ljós hafi komið að margar uppfylltu ekki kröfur. Þess sé krafist að stálið sé geymt í tryggilega læstum sprengiefnagámum sem séu a.m.k. 5 mm á þykkt. Í mörgum tilfellum hafi efnið á hinn bóginn verið geymt í venjulegum gámum eða jafnvel vinnuskúrum. Þá hafi birgðahald sums staðar verið í ólestri. Dæmi hafi verið um innbrot í sprengiefna- geymslu en menn ekki vitað hverju var stolið. Víðir segir að í ljósi mikilla framkvæmda á landinu verði eftirlit með sprengiefni hert. Í lok júní var 8 dýnamíttúpum stol- ið úr verkstæði í Hafnarfirði en Víðir segir að birgðabókhald hafi ekki verið í lagi. Túpurnar hafa ekki fundist. Ljósmynd/Kristján Friðþjófsson Svona kössum var stolið í innbrotinu í sprengiefnageymsluna. Í staflanum er nákvæmlega sama magn sprengiefnis og stolið var. Dugir til að eyðileggja „nokkuð stóra“ byggingu Talið nauðsynlegt að færa sprengiefnageymslur á Hólmsheiði þrautseigju og staðfæstu gætu smá ríki sigrað að lokum. Sagði Sólveig að Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin ættu margt sameiginlegt á mörgum sviðum. Sagði hún ríkin öll stóla á góð tengsl og stuðning hvert við annað. Þá væri samvinna landanna náin á alþjóðavettvangi, s.s. innan NATO og Evrópuþingsins. Sagðist Sólveig þess fullviss að samstarf Íslands og Lettlands ætti eftir að vaxa og dafna enn frekar í framtíðinni. Heimsókn Sólveigar til Lettlands lýkur í dag. SÓLVEIG Pétursdóttir, 3. varafor- seti Alþingis, er fulltrúi Alþingis við hátíðarhöld í Ríga í Lettlandi í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá endurreisn lettneska þingsins. Sól- veig flutti í gær kveðju frá Alþingi við hátíðarathöfn og lagði blóm við minnismerki um frelsisbaráttu Letta. Í ræðu sinni rifjaði Sólveig upp spennuna í Alþingi þegar Saeima, lettlenska þingið, var endurreist fyrir tíu árum. Sagði hún end- urreisnina hafa verið merki um að heimurinn hefið breyst til fram- búðar og verið sönnun þess að með Sólveig Pétursdóttir fulltrúi Alþingis við hátíðarhöld í Lettlandi AFI Sólveig lagði blóm að minnismerki um endurreisn lettneska þingsins. Tíu ár liðin frá endur- reisn lettneska þingsins AFI Sólveig Pétursdóttir ræðir við talsmann lettneska þingsins, Ingrida Udre. Á milli þeirra er Kristinn Björnsson, eiginmaður Sólveigar. Tugir tonna notaðir við Kárahnjúka VIÐ framkvæmdir vegna Kárahnjúkavirkjunar er notast við tugi tonna af sprengiefni. Héraðsverk hafa sprengt um 50.000 m3 af efni til Vegagerðar úr Norðastafelli og til þess hefur fyrirtækið notað 20– 30 tonn af sprengiefni að sögn framkvæmdastjórans, Björns Sveins- sonar. Aðspurður segir hann sprengiefnageymslurnar í samræmi við reglugerðir en ekki hafi verið hugað að því að efla þær frekar. „Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem dýnamíti er stolið í Reykjavík en þetta virðist vera eitthvað sport þar. En það hefur ekki gerst annars staðar á landinu,“ segir hann. Kvaðst Björn ekki óttast að sprengiefni Hér- aðsverks yrði stolið en ef það myndi gerast yrði örugglega ekki erfitt að hafa upp á þjófunum. Ekki náðist í fulltrúa Arnarfells og Impregilo en fyrirtækin eru einnig stórtækir notendur sprengiefnis. Frestun Héðins- fjarðarganga rædd í ríkisstjórn Siglfirðingar funduðu með forsætis- ráðherra GUÐMUNDUR Skarphéðinsson, formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðis- flokksins á Siglufirði, gekk á fund Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, í ráðherrabústaðnum í gærmorgun til að kynna hugmyndir Siglfirðinga um breytingar á tímasetningum vegna frestunar Héðinsfjarðarganganna. Hann segir að Davíð hafi tekið hug- myndunum vel og ætlaði að kynna þær fyrir ráðherrum í gær og að öll- um líkindum á ríkisstjórnarfundi í dag. Að öðru leyti vildi hann ekki tala um efnisatriði fundarins. Guðmundur segir hugmyndirnar ganga út á að milda höggið sem heimamenn hafa orðið fyrir vegna frestunar framkvæmda við göngin milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar. Davíð hafi orðið við beiðni um fund strax þar sem forystumenn á Siglu- firði eigi erfitt með að róa fólk. „Þetta er mikið pólitískt áfall fyrir menn sem eru búnir að vera fyrir nokkrum vikum í kosningabaráttu og segja hluti sem ekki er hægt að standa við núna,“ segir Guðmundur. Búið hafi verið að bjóða verkið út og allir staðið í þeirri trú að fram- kvæmdir hæfust árið 2004. „Síðan kemur seinkum upp á tvö ár sem ekki er hægt að sætta sig við,“ segir Guð- mundur og vill flýta þessum fram- kvæmdum svo ástandið verði bjart- ara. Ásamt Guðmundi sóttu fundinn Gunnar Sigvaldason frá Ólafsfirði og Unnar Már Pétursson frá Siglufirði. Einnig sátu Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og Halldór Blöndal, forseti Alþingis, fundinn með þeim og Davíð Oddssyni. Viljum ekki að komið sé aftan að okkur með alla hluti „Við erum að vinna fyrir þennan flokk og viljum ekki að komið sé aftan að okkur með alla hluti. Það var búið að segja allt annað en staðið var við núna,“ segir Guðmundur. Hann segir aðspurður ekki erfitt að labba um byggðarlagið og horfa fram- an í íbúa Siglufjarðar. Skiljanlegt sé þó að fólk sé reitt yfir þessu. Ástandið á þessum stöðum sé þannig að það megi ekki við neinu svona höggi. Fleiri leggja leið sína í miðborgina STÖÐUGT fleiri leggja leið sína í miðborg Reykjavíkur samkvæmt viðhorfskönnun Gallup sem gerð var fyrir Reykjavíkurborg í júní. Að meðaltali fóru Reykvíkingar 5,2 sinnum í miðbæinn á fjórum vik- um. Meðaltalið var lægst í október og nóvember 2002, en þá fóru Reyk- víkingar fjórum sinnum í mánuði í miðbæinn. Um 70% aðspurðra fara í miðbæinn til að skoða sig um og um 45–50% sækja sér þangað þjónustu, versla eða fara á kaffihús. Fjöldi ferðamanna í miðbænum Könnunin nær ekki til erlendra ferðamanna, en tölur sýna að 278.000 erlendir ferðamenn hafi komið til landsins árið 2002. 94% þeirra sem komu til landsins yfir sumartímann gistu að minnsta kosti eina nótt í Reykjavík. Í upplýsingamiðstöð ferðamála í Bankastræti komu rétt rúmlega eitt hundrað þúsund ferða- menn árið 2002. Áætlað er að um 160 þúsund manns heimsæki Hallgríms- kirkju á ári. Einnig má geta þess að samkvæmt upplýsingum frá Iceland Refund fer um 70% verslunar er- lendra ferðamanna fram í Reykja- vík, og þar af 70% hennar í miðborg- inni. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.