Morgunblaðið - 08.07.2003, Qupperneq 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2003 33
Sex ára drengur situr í strætis-
vagninum á leiðinni niður í bæ.
Þetta er í fyrsta skipti sem hann fer
einn í strætó og honum finnst hann
vera töluvert stór. Hann ætlar að
heimsækja frænkur sínar Jónínu og
Þórunni. Þær búa í litlu húsi við
Hverfisgötuna. Þar rækta þær
kartöflur, rabarbara og salat í garð-
inum sínum. Stundum fær hann
sykruð salatblöð þegar hann kemur
í heimsókn. Hann borðar þau þæg-
ur og segir að þau séu voða góð
þótt hann langi meira í kökur og
mjólk en það fær hann að vísu alltaf
líka. Jónína og Þórunn eru fastur
punktur í tilverunni. Hann hefur oft
heimsótt þær áður, raunar næstum
því í hvert skipti sem mamma hans
hefur dregið hann á eftir barna-
vagninum með systkinum hans í
bæinn. Hann man minna eftir öllum
heimsóknunum þegar hann var
sjálfur í vagninum. Hann á líka eftir
að koma þar oft við seinna, eftir
tíma í tónlistarskólanum eða önnur
erindi í bæinn. Það er alltaf gott að
JÓNÍNA
JÓNSDÓTTIR
✝ Jónína Jónsdótt-ir fæddist á
Rauðabergi í Vestur-
Skaftafellssýslu 19.
júlí 1901. Hún lést á
Dvalarheimilinu
Grund í Reykjavík
30. júní síðastliðinn.
Foreldrar Jónínu
voru hjónin Ragn-
hildur Steingríms-
dóttir, f. 4. desember
1877, d. 8. desember
1954, og Jón Péturs-
son, f. 1855, d. 4. jan-
úar 1901, þá bóndi á
Rauðabergi í Vestur-
Skaftafellssýslu. Jónína átti tvær
systur, 1) Þórunni, f. 17. septem-
ber 1897, d. 19. október 1989; og
2) Sigríði, f. 3. janúar 1899, d. 7.
október 1992, og eina uppeldis-
systur, Guðríði Pálsdóttur, f. 26.
júlí 1911.
Útför Jónínu fór fram í kyrrþey
7. júlí sl.
koma við hjá Jónínu
og Þórunni, þar eru
allir alltaf velkomnir
og allir fá einhverjar
góðgjörðir. Jónína og
Þórunn virðast alltaf
eiga eitthvað til að
gefa, ullarsokka, vett-
linga eða annað sem
þær prjóna, jafnvel
peninga þegar sá gáll-
inn er á þeim. Samt
eiga þær ekki umtals-
verð veraldleg gæði,
en þær skulda heldur
engum neitt. Miklu
fremur eru allir í skuld
við þær. Það sem er þó allra
skemmtilegast er að þær tala við
lítinn dreng eins og fullorðinn
mann. Setja hann niður í sófann í
stofunni, færa honum kökur og
drykk, spyrja frétta og ræða við
hann um daginn og veginn einsog
hann sé merkilegasti maður sem
þær hafa hitt. Undir hljómar um-
ferðarniðurinn frá Hverfisgötunni.
Níu ára drengur situr í rútu. Rút-
an er á leiðinni niður Kambana.
Honum stendur ekki alveg á sama,
vegurinn virðist mjór og brekkan
brött. Hann á langt ófarið. Hann er
á leiðinni í sveitina til afa og ömmu,
á þann stað sem Jónínu og Þórunni
er hvað hjartfólgnastur. Hann hefur
oft heimsótt þau áður með pabba og
mömmu, en nú fer hann einn. Hann
ætlar að vera hjá þeim í sumar og
hlakkar til. Amma svo æðrulaus og
glettin, alltaf fyrst á fætur að finna
fólkinu sínu mat. Afi mjólkar kýrn-
ar og fer í göngutúra með ungum
afadreng að nefna fugla, blóm og
fjöll.
Jónína, Þórunn og amma Sigríð-
ur voru systur. Þær misstu föður
sinn sex mánuðum áður en Jónína
fæddist og ólust upp hjá móður
sinni á Rauðabergi í V-Skaftafells-
sýslu. Nokkru eftir að Sigríður
amma giftist honum Björgvini afa
og hóf búskap á Rauðabergi fluttust
Jónína og Þórunn til Reykjavíkur
ásamt móður sinni. Þar bjuggu þær
og unnu ýmis störf síðan. Þær voru
tíðir sumargestir á Rauðabergi þar
sem þær aðstoðuðu systur sína við
bústörfin. Þegar fjölskyldan á
Rauðabergi þurfti að leita til
Reykjavíkur, til lengri eða skemmri
dvalar, átti hún alltaf vísan stað og
stuðning á Hverfisgötunni.
Jónína og Þórunn voru sterkar
konur, bæði til líkama og sálar, og
þær urðu langlífar. Þórunn dó árið
1989, þá 92 ára gömul. Þær systur
voru ákaflega samrýndar og það
var mikið áfall fyrir Jónínu að
missa eldri systur sína og lífsföru-
naut. Ef til vill má segja að við frá-
fall Þórunnar hafi Jónína týnt svo-
litlu af sjálfri sér. Hún flutti
fljótlega af Hverfisgötunni á Dval-
arheimilið Grund þar sem hún bjó
síðustu árin. Nú er Jónína dáin, síð-
ust af sinni kynslóð í fjölskyldunni.
Hún, sem fæddist í torfbæ í af-
skekktri sveit, upplifði sannarlega
tímana tvenna.
Það er fullorðinn maður sem
skráir þessi minningabrot á blað.
Hann grætur þetta fólk sem var
órjúfanlegur hluti af lífi hans svo
lengi en þó svo stutt. Þetta fólk
snerti hann svo djúpt og mótaði að
svo mörgu leyti og tengdi hann for-
tíð sem nútíminn ekki þekkir. Þó að
Jónína hafi fallið frá síðust er það
samt einhvern veginn þannig að
þær systur, allar þrjár, eru og
verða ein eining í minningunni. Það
er huggun að vita að gott fólk hlýt-
ur góða vist á nýjum stað og hittir
ef til vill aftur gamla lífsförunauta.
Jónas Þór Snæbjörnsson.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Sjúkraþjálfarar
Stjá sjúkraþjálfun ehf.
vill ráða sjúkraþjálfara til starfa. Um er að ræða
stöðu í fullum rekstri. Vinnutími frá 8.00 til 17.00.
Getur byrjað 1. september eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur Kristín í síma 848 1828.
Stjá sjúkraþjálfun ehf.,
sími 551 1120,
netfang: stja@stja.is,
pósthólf 5344,
125 Reykjavík.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Hellisbraut 32, 380 Reykhólum, Króksfjarðarnesi, þingl. eig. Jón
Þór Kjartansson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Tryggingamið-
stöðin hf., föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 10.00.
Hjallar 4, 450 Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig. Kristín Fjeldsted,
gerðarbeiðendur Orkubú Vestfjarða hf. og Vesturbyggð, föstudaginn
11. júlí 2003 kl. 16.30.
Mýrar 19, 450 Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig. Ýr Harris Einars-
dóttir og Skúli Theódór Haraldsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóð-
ur og Sparisjóður Vestfirðinga, föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 14.30.
Mýrar 9, 450 Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig. Sigríður Erlings-
dóttir og Páll Líndal Jensson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður
og Sparisjóður Vestfirðinga, föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 15.00.
Tjarnarbraut 10, 465 Bíldudal, Vesturbyggð, þingl. eig. Burðarafl
ehf., gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Íslandssími hf., Lífeyrissjóðir
Bankastræti 7, Tollstjóraembættið, Vesturbyggð og Vörður-Vátrygg-
ingafélag, föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 18.30.
Túngata 15, neðri hæð, 450 Patreksfirði, Vesturbyggð, þingl. eig.
Rannveig Haraldsdóttir, gerðarbeiðendur Sparisjóður Vestfirðinga
og Vesturbyggð, föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 15.30.
Túngata 18, 450 Patreksfirði, Vesturbyggð, eignarhluti Árna Magnús-
sonar, þingl. eig. Anna Guðbjört Valsdóttir og Árni Magnússon,
gerðarbeiðandi Sparisjóður Vestfirðinga, föstudaginn 11. júlí 2003
kl. 16.00.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
4. júlí 2003.
Björn Lárusson, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á skrif-
stofu embættisins í Aðalstræti 92, Patreksfirði, 2. h., sem
hér segir:
Hafsúla BA 741, sknr. 1470, ásamt rekstrartækjum og veiðiheimildum,
þingl. eig. Háanes hf., gerðarbeiðandi Hafnasjóður Vesturbyggðar,
föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 13.30
Jörundur Bjarnason BA 10, sknr. 1733, ásamt rekstrartækjum og
veiðiheimildum, þingl. eig. Gunnar Karl Garðarsson, gerðarbeiðend-
ur Hafnasjóður Vesturbyggðar og sýslumaðurinn á Patreksfirði,
föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 17.30.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
4. júlí 2003.
Björn Lárusson, ftr.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Aðalstræti
92, Patreksfirði, 2. h., föstudaginn 11. júlí 2003 kl. 14.00
á eftirfarandi eignum:
Höfrungur BA 60, sknr. 1955, ásamt rekstrartækjum og veiðiheimild-
um, þingl. eig. Þórður Jónsson ehf., gerðarbeiðendur Hafnasjóður
Vesturbyggðar og Íslandsbanki hf.
Sýslumaðurinn á Patreksfirði,
7. júlí 2003.
Björn Lárusson, ftr.
TIL SÖLU
Ljósritunarvélar
Til sölu notaðar og yfirfarnar ljósritunarvélar
af ýmsum stærðum.
Kjaran — tæknibúnaður,
Síðumúla 12,
sími 510 5520.
ÞJÓNUSTA
Þak- og gluggaviðgerðir
Geri föst tilboð. Hröð og vönduð þjónusta.
Sigurjón Hákonarson, s. 847 1374.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA www.nudd.is
Afmælis- og minningargreinum má skila í
tölvupósti eða á disklingi (netfangið er
minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um
leið og grein hefur borist). Ef greinin er á
disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð-
synlegt er að símanúmer höfundar og/eða
sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi
með. Þar sem pláss er takmarkað getur
þurft að fresta birtingu greina, enda þótt
þær berist innan hins tiltekna frests. Nán-
ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát-
inn einstakling birtist formáli og ein aðal-
grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en
aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300
orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50
línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn-
anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til
þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín-
ur, og votta virðingu án þess að það sé gert
með langri grein. Greinarhöfundar eru
beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.
Fyrstu kynni mín
og Kristjáns Marinó
Falssonar voru fyrir
tilstilli Kára Elísonar,
skálds og magisters í
kraftaíþróttum. Á
þeim tíma átti ég
nokkuð oft erindi til
Akureyrar vegna stöðu minnar
sem ritari KRAFT svo og til
keppni. Bar svo við í þeim ferðum
að ég kom á heimili Kristjáns og
er mér minnisstætt hversu hag-
lega var þar frá öllu gengið. Virtist
mér þó að Kristján hefði af mér
nokkurn beyg en það kann að
stafa af viðurnefni forníslensku er
Kári gaf mér um brosnauð mína.
Lyftum við Kristján þó oft brag-
arfulli að kraftaleikum loknum.
Minnist ég nú norræns drengskap-
ar hans og velvilja í garða annarra
keppnismanna. Nokkrum árum
síðar hitti ég Kristján fyrir utan
kraftþjálfunarstöð í Reykjavík.
KRISTJÁN MARINÓ
FALSSON
✝ Kristján MarinóFalsson fæddist á
Akureyri 15. júlí
1956. Hann lést á
heimili sínu 5. mars
síðastliðinn og var
útför hans gerð í
kyrrþey.
Virtist mér æ síðan að
honum fylgdu brostn-
ar finnskar ástir forn-
ar og æ dimmari
ískaldar veturnætur. Í
Völsungakviðu má
finna fegurstu nátt-
úrusamlíkingu karl-
mennis frumnorrænn-
ar tungu þar sem
hetju er líkt við hjört:
„er efri fer / öllum
dýrum / og horn glóa /
við himin sjálfan“.
Kristján vann sín lífs-
afrek til mennta og í
skáldlist á tímum áð-
ur en vá sú er einelti í skóla og á
atvinnumarkaði valda hugskotsvé
var leyst úr þagnargildi þjóðar.
Ræktaði Kristján þó með sér þær
íþróttir íslenskar sem dýrastar
teljast – að yrkja ljóð og ofuraflið.
Ek minnist Kristjáns á hans björt-
ustu stundu fyrir nú rúmum tveim
tugum ára þá er hann gengur fram
keppnispallinn til móts við hinn
Þriðja eður Þríeina: lyftingastöng-
ina – þyngdaraflið – og þorið.
Glæstur og stæltur. Á því augna-
bliki er maður og stál verða eitt.
Þrjú hvít ljós. Gild lyfta.
Halldór E. S. Jónhildarson
(Don).
Ástkær móðir mín,
JÓHANNA ARADÓTTIR,
áður til heimilis
í Stangarholti 20,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðju-
daginn 24. júní, verður jarðsungin frá Háteigs-
kirkju miðvikudaginn 9. júlí kl. 15.00.
Ásmundur Halldórsson.