Morgunblaðið - 01.08.2003, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 01.08.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Uss, ég vorkenni ykkur ekkert þó þið þurfið að halda þrenn bra-bra-jól, Sigmar minn. Umferðin um verslunarmannahelgina Aldrei of varlega farið Verslunarmanna-helgin, stærstaferðahelgi sum- arsins, er nú framundan. Fjöldi fólks heimsækir há- tíðir, tjaldar eða heldur í sumarbústaði. Ævintýra- legar halarófur bifreiða af öllum stærðum og gerðum eru þá á ferðinni, meðal- hraðinn er á lægri nótun- um vegna fjöldans og á stundum er ástand öku- manna væntanlega mis- jafnt eftir því hvað aðhafst var um helgina. Á vegum úti er því rétt að fara með gát og ætla sér ekki um of með hrað- eða fram- úrakstri sem oft getur haft ófyrirsjáanlegar og slæmar afleiðingar. Sig- urður Helgason, sviðs- stjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu, gefur okkur nokkur góð ráð út í umferðina. Hvers ber helst að gæta þegar ekið er um þjóðvegina? Okkar helsti óvinur er auðvitað of mikill hraði, svo og raunar ójafn hraði því það getur líka ver- ið dálítið hættulegt þegar fólk ek- ur of hægt. Þá er framúrakstur alltaf áhyggjuefni og hefur í mörgum tilvikum síðustu ára ver- ið valdur að banaslysum sem er mikið áhyggjuefni. Um svona skemmtanahelgar er líka meiri hætta á ölvuðum ökumönnum undir stýri en áfengi og akstur eiga ekki samleið eins og allir ættu að vita. Hvaða hættur leynast á þjóð- veginum sem ekki finnast í þétt- býli? Segja má að umferðin sé mjög ólík á þjóðvegum annars vegar og í þéttbýli hins vegar. Það er mun meiri hraði á þjóðvegunum og auk þess eru margir óvanir að aka utan þéttbýlis. Þá hefur dreg- ið úr hæfni fólks til að aka á mal- arvegum frá því sem áður var og því getur fylgt hætta. Hvað þarf helst að hafa í huga þegar ekið er með vagna í eft- irdragi? Leyfilegur hámarkshraði með tjaldvagn er áttatíu km á klukku- stund og þarf að huga að ýmsu þegar keyrt er með slíkt í eft- irdragi. Það þarf t.d. að komast að því hvað bíllinn er þungur en það kemur fram í skráningarskír- teini hversu þungan eftirvagn bíll má draga. Þetta er mikilvægt at- riði og eins að fólk sé með fram- lengingu á speglunum sjái það ekki almennilega aftur fyrir sig með þeim. Svokallaðar eftirvagn- ar, tjaldvagnar og fellihýsi þurfa auðvitað að uppfylla reglur um gerð og búnað ökutækja. Það kveður á um atriði eins og t.d. ljósabúnað. Hvaða hlutverki gegnir Um- ferðarstofa um helgina ? Við erum í samstarfi við vega- gerð, lögreglu og aðra sem koma að umferðarmálum. Við verðum með útvarpsútsendingar alla helgina, frá föstudagskvöldi, þó minna á sunnudag því þá dregst umferðin alltaf svolítið saman. Í útvarpinu leitumst við við að koma á framfæri þeim skilaboðum sem við teljum mikilvægt að koma á framfæri til fóks til þess að um- ferðin gangi örugglega og vel fyr- ir sig. Núorðið höfum við aðgang að mjög góðum upplýsingum eins og t.d. umferðargreinum Vega- gerðarinnar og veðurstöðvunum sem eru á líklega hátt í fimmtíu stöðum á landinu. Við höfum því nokkuð góða tilfinningu fyrir því hvar umferðin er mest og hvernig aðstæður eru. Að sjálfsögðu fáum við einnig upplýsingar frá lög- reglu og frá almenningi sem hef- ur gjarnan samband við okkur á svona helgi. Virðist umferð á Íslandi hafa breyst sýnilega á undanförnum árum? Ég held að það sem helst hafi gerst, sé litið á umferðina yfir verslunarmannahelgina, sé það að umferðin er orðin dreifðari. Fólk fer fyrr af stað og fólk fram- lengir jafnvel helgina, tekur sér frí ef til vill sitt hvorum megin við hana. Það má segja að yfir sum- armánuðina, júlí og fyrri helm- inginn af ágúst, sé mikil umferð um hverja helgi og ástæða til að vera vel á verði. Við sjáum það aftur og aftur að það er einhver truflun sem veldur slysunum, fólk er kannski að skipta um geisla- disk, stilla útvarpið eða gera eitt- hvað sem dregur úr athyglinni eitt augnablik og það getur haft afdrifaríkar afleiðingar. Hvernig er bílbeltanotkun Ís- lendinga háttað? Bílbeltanotkun á þjóðvegum landsins er nokkuð góð, en tals- vert vantar enn á að menn noti beltin í þéttbýli, ekki síst á minni stöðum á landsbyggðinni. Við vit- um hins vegar aldrei hvenær slys getur átt sér stað og þá geta belt- in bjargað öllu. Hvað einkennir góðan öku- mann? Hann er alltaf með hugann við aksturinn, gætinn og fylgir um- ferðarlögum. Slys verða oftast vegna þess að einhver fer ekki að lögum og menn gleyma sér eitt andartak sem hefur slys í för með sér. Telur þú Íslendinga almennt góða öku- menn? Ég held að þeir séu flestir ágætir öku- menn, þó svo að nátt- úrulega megi líka segja að innan um séu einstaklingar sem jafnvel ættu alls ekkert að hafa ökurétt- indi. Flestir íslenskir bílstjórar eru þó fyllilega sambærilegir við það sem við sjáum í öðrum lönd- um og ég leyfi mér að fullyrða það að ökukennsla og menntun öku- manna hefur stórbatnað á Ís- landi. Þar stöndum við að vissu leyti framar öðrum þjóðum. Sigurður Helgason  Sigurður Helgason fæddist ár- ið 1954. Hann stundaði nám í sagnfræði og bókasafnfræði við Háskóla Íslands. Sigurður hefur starfað við kennslu, var upp- lýsingafulltrúi Umferðarráðs árin 1988 til 2002 en tók þá við starfi sviðsstjóra umferðarör- yggissviðs Umferðarstofu. Sig- urður er kvæntur Önnu B. Ólafs- dóttur og eiga þau þrjú börn. Margir eru óvanir að aka utan þéttbýlis ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H U S 21 83 0 0 7/ 20 03 byrjar í Húsasmiðjunni 1.990 kr. 1.690kr. 9.980 kr. 7.990kr. Regnsett blá, gul, græn og camo 5868465-5868471 Gönguskór 389 leður, með gritex öndun 5860542-5860552 stærðir 37-47 Flíspeysur kvenpeysur með hettu (nýtt) 5860180-5860189 Flísteppi 150x200 sm 5860387-5860392 grænt, beige og blátt 3.995 kr. Verð 2.990 kr. Verð Gasvörur í miklu úrvali 20% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.