Morgunblaðið - 01.08.2003, Síða 14

Morgunblaðið - 01.08.2003, Síða 14
ERLENT 14 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ INNRÁSIN í Írak hefur ekki dregið úr þeirri ógn, sem Bret- um stafar af hryðjuverkastarf- semi og gereyðingarvopnum. Er það álit þverpólitískrar þingnefndar, sem segir í áliti sínu, að hugsanlega hafi Íraks- stríðið lagt stein í götu barátt- unnar gegn al-Qaeda-hryðju- verkasamtökunum. Ekki sé ólíklegt, að Íraksstríðið hafi beinlínis bætt ímynd al-Qaeda í augum margra múslíma, eink- um í Persaflóaríkjunum. Að- stoðarráðherra í bresku stjórn- inni mótmælti niðurstöðum nefndarinnar í gær og sagði, að með því að fjarlægja Saddam Hussein hefði um leið verið fjarlægður einn helsti stuðn- ingsmaður alþjóðlegrar hryðju- verkastarfsemi. Krefjast framsals LUIS Macchiavello, sendiherra Perús í Japan, lagði í gær fram formlega kröfu um, að Alberto Fujimori, fyrrverandi forseti Perús, yrði framseldur þangað. Sagði hann, að Perúmönnum væri það lagalega og siðferðilega skylt að draga hann fyrir dóm vegna aðild- ar hans að spillingu og dauða sak- lausra borg- ara. Fujim- ori fékk ríkisborgararétt í Japan árið 2000 vegna þess, að foreldrar hans voru Japanir þótt þeir hefðu sest að í Perú. Stríðsglæpa- maður dæmdur SERBNESKI læknirinn Mil- omir Stakic var í gær dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir glæpi gegn mannkyni en Alþjóða- sakamáladómstóllinn í Haag sýknaði hann hins vegar af ákæru um þjóðarmorð. Stakic, sem er rúmlega fertugur að aldri, var fundinn sekur um beina ábyrgð á einum ljótasta kaflanum í sögu Bosníustríðs- ins, hinum alræmdu fangabúð- um í Prijedor en þar voru unnin mörg grimmdarverk. Á sama tíma var hann borgarstjóri í Prijedor og yfirmaður heilsu- gæslustöðvarinnar þar. Færri ferðamenn FERÐALÖGUM útlendinga til Bandaríkjanna hefur fækkað mikið. Árið 2001 sóttu 10,4 milljónir manna um vegabréfs- áritun til að komast þangað en 8,3 milljónir á síðasta ári. Í fyrra fengu 68% áritun eða 5,7 milljónir manna en 8,3 milljónir í hitteðfyrra. Í dag verða reglur um áritun hertar enn og verður þess víðast hvar krafist, að um- sækjendur komi í viðtal í sendi- ráði Bandaríkjanna í viðkom- andi landi. Mörg dæmi eru um, að ungu fólki, sem fengið hefur skóla- vist vestra, hafi verið neitað um áritun og almennt hefur þetta komið illa niður á bandarískum háskólum. STUTT Sama ógn eftir Íraks- innrás Alberto Fujimori FULLTRÚAR stjórnvalda í Banda- ríkjunum og stalínistastjórnarinnar í Norður-Kóreu skiptust á hörðum ásökunum í gærmorgun og sagði John Bolton, aðstoðarutanríkisráð- herra Bandaríkjanna, að líf margra N-Kóreumanna væri eins og „mar- tröð í víti“. Stjórn Kim Jong-ils í N-Kóreu sagði hins vegar að Bandaríkjastjórn væri sek um „lyg- ar og samsæri“. Bolton sagði að Kim Jong-il, leið- togi N-Kóreu, væri „harðstjóri“ og gagnrýndi harkalega mann- réttindabrot kommúnista. „Hann [Kim] lifir sjálfur eins og kóngur í Pyongyang en heldur hundruðum þúsunda manna í fangabúðum og milljónum að auki í skelfilegri fátækt, fólkið rótar í mold- inni til að reyna að finna eitthvað að borða,“ sagði hann. „Fyrir marga er lífið í N-Kóreu eins og martröð í víti.“ Norður-kóreska dagblaðið Rodong Sinmun sagði að draga ætti Banda- ríkjastjórn fyrir alþjóðlegan dómstól fyrir að hafa réttlætt innrás í Írak með „villandi upplýsingum“ um að Saddam Hussein ætti gereyðingar- vopn. Einnig hefði Bandaríkjastjórn eflt lið sitt á landamærum Kóreuríkj- anna með það að markmiði að gera innrás, rægt norðanmenn og staðið fyrir hvers kyns samsærum. Nauðsynlegt að tjá sig skýrt Bolton var spurður hvaða áhrif hann teldi að ummæli hans hefðu á stjórn kommúnista. Sagði hann að nauðsynlegt væri að Bandaríkjamenn tjáðu sig skýrt og létu þjóðir heims vita hvers vegna þeir hefðu svo mikl- ar áhyggjur af stuðningi N-Kóreu- manna við hryðjuverkamenn og til- raunum þeirra til að smíða gereyðingarvopn. Bandaríkjamenn telja að N-Kóreumenn eigi nú þegar nokkrar litlar kjarnorkusprengjur. Ágreiningur ríkjanna tveggja hef- ur harðnað mjög síðustu mánuði. Bandaríkjamenn vilja koma í veg fyr- ir að N-Kóreumenn haldi áfram að flytja út eldflaugar til landa sem grunuð eru um að reyna að komast yfir gereyðingarvopn og aðstoða hryðjuverkamenn. Eldflaugar eru ein helsta útflutningsafurð norðanmanna en efnahagur landsins er í rúst. Á síð- ari árum hefur oft komið þar til hung- ursneyðar, milljónir manna hafa fall- ið. Geysilegu fé er hins vegar varið í að halda uppi afar öflugum her sem ógn- ar stöðugt grannríkinu S-Kóreu. Hafa Japanar, S-Kóreumenn og Bandaríkjamenn þrátt fyrir þetta oft sent mikið af matvælum og eldsneyti til N-Kóreu til að reyna að draga úr neyð almennings en norðanmenn krefjast meiri hjálpar og vilja auk þess að Bandaríkin heiti því að gera aldrei árás á landið. Bolton sagði m.a. að fjárkúgun norðanmanna væri nú á enda. „Kim Jong-il er á algerum villigötum ef hann heldur að hann muni auka ör- yggi sitt með því að smíða kjarnorku- vopn,“ sagði hann. Bolton gagnrýndi öryggisráð SÞ fyrir að taka ekki mál- ið á dagskrá og sagði að trúverðug- leiki ráðsins væri í húfi. Bandaríkjamenn hafa haft herlið á landamærum Kóreuríkjanna til varn- ar sunnanmönnum síðan Kóreustríð- inu lauk fyrir réttum 50 árum. Þeir hafa hafnað kröfum N-Kóreustjórnar um tvíhliða viðræður til að reyna að jafna deilurnar en krafist þess að þær yrðu fjölþjóðlegar. Fyrir íbúana eins og „martröð í víti“ Seoul. AP, AFP. Bandaríkjamenn segja Kim Jong-il lifa kóngalífi meðan þegnar hans svelti John Bolton Stjórnarfar í Norður-Kóreu gagnrýnt ÖLDRUÐ, írösk kona gleðst yfir því að hafa loks fundið vatnsbrunn í grennd við heimili sitt, 30 km suður af borginni Mosul. Íbúar í sveitum Íraks búa við mikla fátækt og þurfa oft að láta sér duga mengað vatn til matargerðar og þvotta. Paul Bremer, landstjóri Banda- ríkjamanna í Írak, sagðist í gær vonast til þess að hægt yrði að efna til kosninga í landinu innan árs en það myndi gera bandarísku herliði kleift að snúa aftur heim. Kosn- ingar verða þó ekki haldnar fyrr en búið er að koma á efnahagslegum stöðugleika og tryggja öryggi borgaranna. Bandarískur hermað- ur lést eftir að hafa ekið yfir jarð- sprengju í Bagdad í gær og annar féll fyrir hendi leyniskyttu. Tals- maður Colin Powells, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, til- kynnti í gær, að búið væri að greiða þeim, sem sagði til sona Saddams Husseins, það fé, sem sett var til höfuðs þeim, um 2,3 milljarða ísl. kr. Reuters Kosningar í Írak innan árs PÁFAGARÐUR hefur hafið herferð gegn hjónaböndum samkynhneigðra og varað stjórnmálamenn úr röðum kaþólskra við því að þeir sem styðji slík hjónabönd séu að ýta undir „mjög ósiðlegt“ at- hæfi. Gefin var út 12 síðna yf- irlýsing um málið í gær í Róm og eru þar leiðbeiningar fyrir kaþólskt fólk um afstöðu til málsins, samþykktar af Jó- hannesi Páli II páfa en und- irritaðar af Joseph Ratzinger kardínála. Íhaldssamur kardínáli Ratzinger þykir afar íhalds- samur en hann hefur það hlut- verk að fylgja eftir kenningum Páfagarðs og er oft talinn valdamestur í kirkjunni að páfa undanskildum. Sett hafa verið lög í nokkr- um vestrænum ríkjum um að heimila hjónabönd samkyn- hneigðra. Talsmenn kirkjunn- ar segja að ekki sé nauðsynlegt að sambönd samkynhneigðra séu staðfest með lögum frekar en hefðbundin vináttusambönd milli fólks. Taka beri tillit til hagsmuna barna og banna samkynhneigðum að ættleiða og ala upp barn. Börn verði að njóta uppeldis beggja kynja ef þau eigi að þroskast með eðli- legum hætti, annars séu brotin á þeim mannréttindi. „Það er alls engin ástæða til að líta svo á að sambönd sam- kynhneigðra séu á nokkurn hátt af sama tagi eða á nokk- urn hátt hliðstæð þeirri skipan sem Guð hefur sett um hjóna- band og fjölskyldu,“ segir í yf- irlýsingunni. „Hjónaband er heilagt en atferli samkyn- hneigðra gengur gegn siðalög- málum náttúrunnar.“ Bent er á að munur sé á því annars veg- ar að lögleiða heimild til „hins illa“ sem ekki jafngildi því að „umbera illt“. Samkvæmt kenningum kirkjunnar ber ekki að fordæma samkyn- hneigða heldur kynlíf þeirra, það sé synd. Bandarískir hægrimenn uggandi Margir hægrimenn í Banda- ríkjunum eru mjög andvígir því að kristin trúfélög leyfi hjónabönd samkynhneigðra. Hyggjast nokkrir repúblikana- þingmenn leggja fram frum- varp til laga um að lagðar verði hömlur á rétt samkynhneigðra til að giftast. Óttast þeir að ný- legur úrskurður hæstaréttar í Washington muni opna fyrir heimild til slíkra hjónabanda í landinu öllu en þing einstakra sambandsríkja setja að öðru jöfnu lög um slík mál. George W. Bush Banda- ríkjaforseti sagðist á miðviku- dag álíta að hjónaband ætti að vera „milli karls og konu“ og rétt væri að tilgreina einhvers staðar fastar reglur um þau efni. Hann sagði að samfélagið ætti vissulega að vera opið og vinsamlegt en þar með væri ekki sagt að hann væri nauð- beygður til að slaka til varð- andi málefni á borð við hjóna- bandið. Páfa- garður í her- ferð Páfagarði. AP, AFP. Vilja banna hjóna- bönd samkyn- hneigðra BANDARÍSKA leyniþjónustan, CIA, dró í efa fullyrðingar bresku stjórnarinnar, sem komu fram í skýrslu sem gefin var út í septem- ber í fyrra, um að Írakar hefðu reynt að kaupa úran frá Afríku, að sögn BBC. Í skýrslu utanríkismálanefndar neðri deildar breska þingsins, sem undanfarið hefur rannsakað rök- semdir fyrir stríðinu í Írak, kemur fram að CIA hafi gert fleiri athuga- semdir við fyrrnefnda skýrslu. Þannig greindi breska blaðið Guard- ian frá því að CIA hefði m.a. efast um að fullyrðingar um að Írakar gætu beitt sýkla- og lífefnavopnum á innan við 45 mínútum væru réttar. Donald Anderson, þingmaður Verkamannaflokksins, sagði í gær að það hefði verið „skynsamlegt“ ef ríkisstjórnin hefði greint frá efa- semdum CIA í fyrrnefndri septem- ber-skýrslu. CIA dró röksemdir Breta í efa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.