Morgunblaðið - 01.08.2003, Síða 50
50 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 6.
YFIR 30.000
GESTIR!
Sýnd kl. 6, 8, 10 og 12.
Sýnd kl. 8, 10.10 og 12.20. B.i. 14 ára.
YFIR 20.000 GESTIR!
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
FRUMSÝNING
Framhaldið af hinni
frábæru Legally
Blond sem sló í
gegn! Resee
Witherspoon er
mætt aftur
sem enn
meiri
ljóska í
enn
meira
fjöri.
HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Miðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4. Ísl. tal. 500 kr.
YFIR 30.000
GESTIR!
FRUMSÝNING
Framhaldið af hinni
frábæru Legally Blond
sem sló í gegn! Resee
Witherspoon er mætt
aftur sem enn meiri
ljóska í enn meira
fjöri.
Frá Leikstjóra Training Day
kemur mögnuð mynd með
harðjaxlinum Bruce Willis og
hinni glæsilegu Monicu
Bellucci.
Missið ekki af þessari!
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 14 ára.
kl. 6, 8.30 og 11.
YFIR 20.000 GESTIR!
Stríðið er hafið!
Tortímandinn er kominn aftur.
Fyrsta flokks spennumynd.
Kvikmyndir.com
SV. MBL
HK. DV
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.15.
„MIG hefur alltaf langað að koma til Íslands,“
segir breska söngkonan Sarah Brightman og
er einlæg í yfirlýsingu sinni. Hún hefur sjálf
ferðast um allan heim en vinsældir hennar
teygja sig víða. „Ég hef heyrt að þetta sé ynd-
islegt land,“ segir hún.
Áhrifin á nýjustu sólóplötu Brightman, Har-
em, sem kom út fyrr í sumar, koma þó úr bæði
suðlægari og austlægari átt. Hvaðan skyldu
þessi arabísku áhrif koma?
„Þau koma víða að. Þær bækur sem ég las
þegar ég var lítil fjölluðu oft um sögur úr austri
og svo las ég Þúsund og eina nótt og rithöfund-
ana C.S. Lewis og T.E. Lawrence,“ segir Sar-
ah, sem ferðaðist líka mikið með foreldrum sín-
um þegar hún var barn. „Við ferðuðumst til
Norður-Afríku, Istanbúl, Spánar, Portúgal svo
eitthvað sé nefnt og í Bretlandi er líka mikið
fjölmenningarsamfélag,“ segir hún.
Brightman á sjálf ættir að rekja á austrænar
slóðir. „Amma mín í móðurætt kom til Bret-
lands frá Suður-Indlandi þegar hún var tólf ára
gömul, þannig að ég hef alltaf haft mikinn
áhuga á þeirri menningu. Þetta hefur alltaf ver-
ið hluti af lífi mínu.“
Sungið á arabísku og hindú
Það er því eðlilegt að Brightman leiti á þess-
ar slóðir og má nefna að það er sungið á arab-
ísku, hindú og frönsku auk ensku á plötunni.
„Mig langaði að syngja aðeins á hindú því málið
tengist sögu fjölskyldu minnar um langan
tíma,“ segir hún. „Ég hef oft sungið á frönsku,
og mér fannst það við hæfi með þemanu því
franska er töluð til dæmis í Norður-Afríku.“
Sarah fær Kadim Al Sahir til liðs við sig á
plötunni en hann syngur þar á arabísku. Kad-
im, sem er Íraki búsettur í Kanada, er einn vin-
sælasti söngvari Mið-Austurlanda og hefur selt
meira en 30 milljón plötur á ferli sínum.
Upptökur á plötunni fóru fram víða, í Ham-
borg, Beirút, Prag, Kaíró, London, París,
Maidenhead og Toronto. Sarah vann jafnframt
með tónlistarfólki frá öllum þessum svæðum.
„Þessi plata var mikil áskorun, við undir-
bjuggum okkur mjög vel en vinnan hófst fyrir
um þremur árum. Það eru margar sögur á bak
við hana og er hún því mjög persónuleg fyrir
mig,“ segir hún. „Þetta er ævintýraplata.“
Harem hefur líka notið vinsælda um allan
heim og má nefna að hún hefur farið á toppinn í
Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Taív-
an auk þess sem Harem náði gullplötusölu í
Kanada eftir aðeins tvær vikur á lista. Sarah er
mikið á ferð og flugi og hefur nýlega ferðast til
Mexíkó, Brasilíu, Suður-Afríku, Noregs,
Bandaríkjanna og Portúgal auk þess að spila í
Hyde Park í London um síðustu helgi.
Söng með Bocelli
Sarah er frægust hér á landi fyrir dúettinn
„Time to Say Goodbye“ með Andrea Bocelli. Í
júní síðastliðnum, um sex árum eftir að lagið
náði fyrst vinsældum, fékk Sarah verðlaun í
Þýskalandi fyrir lagið en smáskífan er þar sú
söluhæsta síðustu 25 árin.
Sarah er enn á ferðinni um helgina og kemur
fram ásamt fyrrnefndum Kadim Al Sahir á
Beiteddine-hátíðinni í Beirút í Líbanon í dag og
á morgun en hátíðin er á meðal þeirra virtustu í
Mið-Austurlöndum. Kadim syngur í laginu
„War is Over“ á Harem og syngja þau dúett á
hátíðinni en Sarah kemur líka ein fram.
Sarah tekur því áhrifin úr austri og fer með
útkomuna þangað aftur og finnst gaman að al-
menningi í Mið-Austurlöndum líki tónlistin.
Fiðluleikarinn þekkti, Nigel Kennedy, er
einn þeirra, sem vinna með Brightman á plöt-
unni. „Hann er frábær, hann hefur skemmti-
legan persónuleika og er góður tónlistarmaður.
Hann hefur líka alltaf haft hugrekki til að til-
einka sér mismunandi tónlistartegundir,“ segir
Sarah en þau hafa þekkst í mörg ár.
Það sama má segja um Söruh, að hún sé ekki
hrædd við að tileinka sér nýjar stefnur í tónlist.
Hún er komin langan veg frá því þegar hún var
vinsæl söngleikjastjarna og lék í fjölmörgum
uppsetningum á West End og Broadway á
verkum þáverandi eiginmanns hennar, Andr-
ews Lloyds Webbers. Hún lærði ballett frá
unga aldri og fór snemma að syngja. Hún var í
popphljómsveitinni Hot Gossip, sem árið 1978
skaust á toppinn í Bretlandi með smáskífunni
„I Lost My Heart to a Starship Trooper“ þann-
ig að hún hefur komið víða við.
Hún segir aðspurð ekki mikið eima eftir af
áhrifum frá tímabili hennar sem söngleikja-
stjörnu í því sem hún er að gera núna. „Í raun-
inni ekki. Ég tókst á við það á sínum tíma en hef
ekki tekið það áfram með mér, nema reynsluna
af því að koma fram á sviði. Ég hef lært hverju
er hægt að koma áleiðis á sviði,“ segir hún.
Sarah ætlar að halda áfram að kynna arab-
íska ævintýraheiminn sinn fyrir heiminum.
„Ég hef ferðast víða til að kynna plötuna og
held því áfram til loka þessa árs. Svo held ég
líklegast af stað í tónleikaferðalag um heiminn í
janúar.“
Sarah Brightman sendir frá sér plötuna Harem
Arabískur
ævintýraheimur
Hún var gift Andrew Lloyd Webber og var vinsæl söngleikja-
stjarna. Inga Rún Sigurðardóttir ræddi við Söruh Brightman
um Harem, nýjustu sólóplötu hennar, sem kemur úr annarri átt.
Sarah Brightman hefur notið vinsælda um allan heim. Þekktust er hún hér á landi fyrir dúett
með Andrea Bocelli, „Time to Say Goodbye“.
Platan Harem með Söruh Brightman
er komin út.
www.sarah-brightman.com
ingarun@mbl.is