Morgunblaðið - 01.08.2003, Page 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 1. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI
ÁLAGNING hátekjuskatts til ríkis-
sjóðs hækkar um 24,7% frá árinu
2002 til 2003, skv. upplýsingum á
heimasíðu Ríkisskattstjóra. Þannig
var hún rúmlega 1,4 milljarðar í
fyrra en tæplega 1,8 milljarðar í ár.
Nemur hækkunin um 350 milljónum
kr. milli ára. Þeim sem greiða há-
tekjuskatt fjölgar um 9,7% milli ár-
anna eða úr 13.300 í rúmlega 14.500.
Það eru um 6,4% framteljenda.
Álagning hátekjuskattsins til rík-
issjóðs lækkaði á hinn bóginn um
9,8% milli áranna 2001 og 2002, eða
úr 1,6 milljörðum í 1,4 milljarða. Var
sú lækkun rakin til sérstakrar hækk-
unar á frítekjumörkum sem leiddi til
þess að greiðendum fækkaði um
12%.
Heimild rennur út um áramót
Hátekjuskattur er 7% tekjuskatt-
ur sem lagður er, til viðbótar almenn-
um tekjuskatti, á tekjur einstaklings
sem hefur meira en rúmlega 3,9
milljónir í árslaun. Á álagningarseðli
þeirra sem greiða hátekjuskatt er
gerð grein fyrir álögðum hátekju-
skatti vegna tekna ársins 2002 en
einnig er gerð grein fyrir fyrirfram-
greiddum hátekjuskatti vegna tekna
ársins 2003. Þær eru því áætlaðar
fram til næstu áramóta.
Skv. lögum er hátekjuskattur
tímabundinn og rennur heimild um
hann út um næstu áramót nema hún
verði endurnýjuð.
Fleiri greiða hátekjuskatt
Skattamál/4, 10, 11
VEÐURKLÚBBURINN á elliheimilinu Dalbæ á
Dalvík hefur birt spá sína fyrir verslunarmanna-
helgina. Klúbburinn birtir reglulega spár sínar
og undanfarin tvö ár hefur hann spáð rétt fyrir
um veður yfir verslunarmannahelgina. Spáin fyr-
ir helgina fram undan er eftirfarandi: „Það má í
raun segja að heilt yfir verði hvergi vont veður
eða einhver illindi, það verður nokkuð sanngjörn
skipting á þessu en í heildina best norðan- og
austanlands, þ.e.a.s. hlýjast og mest af blessaðri
sólinni, þó við verðum ekki laus við rigninguna,
veðrið verður síst sunnan- og suðaustanlands og
það er þá helst vætan sem gæti angrað ferða-
langa þar.“ Síðan segir að búast megi við ágætu
veðri norðanlands og „laugardagurinn og sunnu-
dagurinn verða með besta móti og stærsti hluti
laugardagsins verður afbragðs góður, í heildina
verður veðrið á okkar svæði milt, hlýtt og sól á
köflum en smá væta þess á milli. Farið varlega í
umferðinni og elskið náungann.“ Yfirleitt eru
spár veðurklúbbsins hugsaðar út frá norður-
landssvæðinu en margir eru farnir að þekkja til
aðferða klúbbsins og geta því heimfært spána yf-
ir á sinn landshluta.
Veðurstofa Íslands spáir norðlægum áttum um
helgina. Dálítil væta verður norðan- og austan-
lands, en annars skýjað með köflum og stöku
skúrir. Dregur úr úrkomu á sunnudag. Hægviðri
á mánudag og bjartviðri, en stöku skúrir norð-
austanlands og búist er við 10 til 17 stiga hita.
Landsmót ungmennafélaganna verður á Ísafirði
um helgina og búist við mörg þúsund gestum.
Gestir voru að byrja að tjalda í Tungudal í gær.
„Hvergi vont
veður eða ein-
hver illindi“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Spá veðurklúbbsins á Dalvík
TÖLUVERÐ umferð út úr höfuðborginni var í
gær og þyngdist fram á kvöldið. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á Hvolsvelli
streymdi fólk að Bakkaflugvelli í allan gærdag
og þá þyngdist umferð í Fljótshlíð og Galtalæk í
gærkvöld.
Dagurinn gekk stóráfallalaust fyrir sig, en
tveir erlendir ferðamenn sluppu ómeiddir er
jeppabifreið sem þeir voru í lenti út af veginum
á Mýrum í Austur-Skaftafellsýslu. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar á Hornafirði fór bíll-
inn út af veginum á beinum vegarkafla austan
Hólmsár en talið er að rekja megi slysið til þess
að ökumaðurinn hafi verið að huga að farsíma í
vasa sínum.
Vaxandi umferð
úr borginni
ÞÆFÐ ull hefur verið talsvert not-
uð í íslenskri hönnun á síðari tím-
um, en ullarband upp á gamla mát-
ann er þó síður en svo fallið úr gildi.
Ung kona, Sonja Bent, stendur á
bak við nýstárleg ullarklæði sem
hún segir tilvalin til þess að klæðast
úti á lífinu.
Settið byggist á gömlu, góðu ull-
arsíðbrókunum, að viðbættum
gylltum þræði og rykkingum við
hné. Ýmist má klæðast hálferma-
peysu í stíl eða ullarbol með brydd-
ingum.
Ullin er gamaldags – en getur líka
verið smart.
Djammað í ull
Daglegt líf/2
HÆKKUN gengis krónunnar skýr-
ir ekki ein þann vanda sem við er að
etja í sjávarútvegi. Gengishækkunin
hefur vissulega rýrt afkomu sjáv-
arútvegsins frá því í fyrra en þá var
hún með besta móti. Hins vegar er
um að ræða sérstakan vanda í ýms-
um greinum eins og rækju og að
hráefnisverð til vinnslunnar fylgir
ekki afurðaverði fyllilega eftir, að
því er segir í ágústhefti Peninga-
mála – ársfjórðungsrits Seðlabanka
Íslands.
Að sögn Birgis Ísleifs Gunnars-
sonar seðlabankastjóra telur banka-
stjórn Seðlabankans ekki tilefni til
breytinga á vöxtum nú og líklegt sé
að þeir haldist óbreyttir um hríð.
„Í ljósi þess hvað verðbólga er nú
lítil er hins vegar ekki hægt að úti-
loka að breytingar sem draga úr
innlendri eftirspurn og innfluttri
verðbólgu kalli á tímabundna lækk-
un vaxta frá því sem nú er. Þetta
gæti til dæmis komið til ef ekki
verður af framkvæmdum vegna
Norðuráls, innlend eftirspurn vegna
annars en stóriðjuframkvæmda
reynist mun minni en nú er talið eða
að verðhjöðnunarþrýstingur heldur
áfram að magnast í umheiminum,“
segir seðlabankastjóri.
Hátt gengi
ekki eina
skýringin á
vandanum
Efnahagsbatinn/28
Sjávarútvegur
GARÐABÆR og Hjallastefnan
undirbúa nú stofnun grunnskóla
sem á að taka til starfa í haust.
Starfsemi skólans verður í anda
Hjallastefnunnar og verður
fyrst í stað kennt á yngstu
skólastigum, þ.e.a.s. fimm og
sex ára börnum. Síðan er áætlað
að skólinn vaxi ár frá ári.
Hjallastefnan gengur meðal
annars út á jafnréttisuppeldi
þar sem kynin eru aðskilin að
hluta. Þannig sé betur mögulegt
að mæta ólíkum þörfum
kynjanna. Skólinn verður að öll-
um líkindum rekinn í húsnæði
vistheimilisins á Vífilsstöðum.
Ný nálgun á
grunnskólanámið
Nýi grunnskólinn verður í
beinu framhaldi af því starfi sem
unnið er á Hjallaleikskólunum,
enda lítur Margrét Pála Ólafs-
dóttir, frumkvöðull Hjallastefn-
unnar, svo á að ekki megi líta á
grunnskóla og leikskóla sem al-
gerlega ólík fyrirbæri með ólík-
um forsendum. Því verður reynt
að hafa flutninginn úr leikskóla
yfir í grunnskóla sem mýkstan.
Skólinn verður lítill og bekkir
fámennir. Þó verður námið ekki
leikur einn, enda er stefnan að
bjóða upp á undirbúning að
tungumálanámi og tölvunámi
fyrir 5 og 6 ára börn. Ennfremur
er skólanum skylt að fylgja öll-
um þeim lágmarkskröfum sem
settar eru fram í námskrám
leikskóla og grunnskóla.
Mikilvægur nýr valkostur
Ásdís Halla Bragadóttir,
bæjarstjóri Garðabæjar, segir
skólann verða valkost fyrir for-
eldra og börn í Garðabæ og góð
og nauðsynleg viðbót í mennt-
unarflóru bæjarfélagsins. „Við
lítum svo á að það sé mjög mik-
ilvægt að fjölga valkostum í
skólastarfi. Á undanförnum ár-
um hefur fjölbreytnin aukist
mjög á leikskólastiginu og það
er tímabært að auka fjölbreytn-
ina á grunnskólastiginu líka.“
Stofnun skólans hefur verið
lengi í undirbúningi og er und-
irbúningur á lokastigi. Ráðgert
er að kennsla hefjist í í haust.
Nýr einkaskóli í
Garðabæ í haust
Lítill skóli
og bekkir
fámennir
Hjallastefnan/16
EINN vandaðasti laxastigi landsins er við
Skuggafoss í Langá á Mýrum, en þegar jafnlítið
vatn er í ám og raunin hefur verið lengst af í
sumar, eiga laxar það til að gefa fiskvegagerð
mannskepnunnar langt nef og sýna henni hvern-
ig forfeður þeirra og -mæður fóru að í árdaga
þegar engir laxastigar voru til. Eins og laxinn á
meðfylgjandi mynd og fjöldi annarra hafa gert í
Skuggafossi í Langá í allt sumar.
Laxveiði er annars misskipt milli landshluta
það sem af er sumri. Góð veiði hefur verið á
Suður-, Suðvestur- og Vesturlandi upp að
Breiðafirði, en Breiðafjörður hefur farið var-
hluta af rigningunni og Norðurlandið varhluta
af smálaxagöngum og veiði hefur þar verið
fremur rýr á heildina litið þrátt fyrir góðar
göngur stórlaxa. Á norðausturhorninu hefur
hins vegar verið góð veiði til þessa og þar eru
einnig á ferðinni óvenju kröftugar stórlaxa-
göngur.
Ljósmynd/Ólafur Ágúst JenssonLaxinn lítur ekki við laxastiganum góða sem sést í baksýn.
Fiskvegagerðinni gefið langt nef
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦