Morgunblaðið - 07.08.2003, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 210. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Ljónið með
pókerfésið
Kirk Kerkorian byrjaði sem blaða-
sali og á nú milljarða Viðskipti 7
Vandi
talsetjarans
Örn Árnason lýsir talsetningu
Ástríks og Steinríks Fólk 45
Ágeng
aðkomujurt
Skógarkerfillinn ryður
sér til rúms í Reykjavík 16
ÍTALSKIR vísindamenn tilkynntu í gær að þeim
hefði tekist að einrækta hest en það er í fyrsta
sinn sem það er gert. Þar með aukast líkur á að
hægt verði að klóna framúrskarandi keppnis-
hesta og aðra gæðinga en íþróttasambönd í Eng-
landi hafa þegar fordæmt einræktunina sem var
opinberuð í nýjasta hefti tímaritsins Nature.
Erfðavísar folaldsins, sem kom í heiminn 28.
maí, eru úr húðfrumum móður þess. Folaldið er
sagt þroskast eðlilega. Það var nefnt Prometea
eftir Prómeþeifi sem í grískum goðsögum stal
eldinum frá guðunum og gaf mönnum.
Fyrsti einrækt-
aði hesturinn
London. AFP.
INDÓNESÍSKA lögreglan vissi að hryðjuverka-
menn hefðu í hyggju að gera árás á svæðið í grennd
við Marriot-hótelið í Jakarta, höfuðborg Indónes-
íu, þar sem öflug sprengja sprakk á þriðjudag með
þeim afleiðingum að a.m.k. þrettán létu lífið og á
annað hundrað slösuðust. Þetta kom fram í banda-
ríska blaðinu The Washington Post í gær.
Skjöl, sem sýndu fram á fyrirætlanir hryðju-
verkamannanna, fundust í síðasta mánuði þegar
lögreglan handtók sjö meinta meðlimi samtakanna
Jemaah Islamiah, róttæks félagsskapar múslíma
sem talinn er hafa tengsl við al-Qaeda-hryðju-
verkasamtökin. Í kjölfarið jók lögreglan öryggis-
gæslu í kringum hótelið. Lögreglan sagði ýmislegt
benda til þess að Jemaah Islamiah hefði staðið á
bak við árásina á þriðjudag þar sem margt væri
líkt með henni og mannskæðri árás sem gerð var á
Balí í október í fyrra.
Að því er Singapore’s Straits Times greindi frá
herma óstaðfestar fregnir að samtökin hafi þegar
lýst sprengingunni í Jakarta á hendur sér.
Sprengjutilræðið í Jakarta-borg
Upplýsingar
um árás
lágu fyrir
Jakarta. AFP.
ÍSLENSKAR friðarhreyfingar stóðu fyrir árlegri
kertafleytingu á Reykjavíkurtjörn í gærkvöldi í
minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á jap-
önsku borgirnar Hírósíma og Nagasakí 6. og 9.
ágúst 1945.
Stemmningin var róleg og um tvö þúsund
manns á öllum aldri söfnuðust saman til að fleyta
kertum í frábæru veðri, sagði Steinunn Þóra
Árnadóttir, friðarsinni og einn af aðstandendum
kertafleytingarinnar.
Morgunblaðið/Arnaldur
Fórnarlamba kjarnorku-
árása í Japan minnst
BANDARÍSK stjórnvöld lýsa yfir gríðarleg-
um vonbrigðum með þá ákvörðun íslenskra
stjórnvalda að hefja hrefnuveiðar í vísinda-
skyni síðar í þessum mánuði. Veiddar verða
alls 38 hrefnur í ágúst og september, en það
er minna en upphaflega var gert ráð fyrir.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra
kynnti áform um vísindaveiðarnar í gær, en
hvorki hafa verið teknar ákvarðanir um
framhald hrefnuveiða á næsta ári né veiðar á
öðrum hvalategundum.
Blaðafulltrúi bandaríska utanríkisráðu-
neytisins lýsti afstöðu ráðuneytisins í samtali
við Morgunblaðið í gær og sagði ákvörðun
Íslendinga gríðarleg vonbrigði. „Allt frá því
Íslendingar tilkynntu fyrr á þessu ári að þeir
hygðust byrja dráp á hvölum, hafa Banda-
ríkin hvatt Íslendinga til að láta ekki verða
af þeim fyrirætlunum,“ sagði hann.
Kristján Ragnarsson formaður Lands-
Alþjóðleg samtök um verndun hvala og
höfrunga (WDCS) lýstu undrun sinni og
gremju yfir ákvörðun sjávarútvegsráðherra
og sögðu enga þörf fyrir vísindadráp.
Samtök ferðaþjónustunnar á Íslandi mót-
mæltu vísindaveiðunum og segir í ályktun
samtakanna að þau hafi varað við því að
hvalveiðar yrðu hafnar að nýju, nema í góðu
samráði og þokkalegri sátt við Alþjóðahval-
veiðiráðið.
Ásbjörn Björgvinsson forstöðumaður
Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík og formað-
ur Hvalaskoðunarsamtaka Íslands, segir
ákvörðunina koma verulega á óvart og menn
séu slegnir yfir því að það skuli ekki vera
samið um þessa hluti áður en farið sé af stað
í þá.
sambands íslenskra útvegsmanna, LÍÚ,
fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra. Seg-
ir hann að LÍÚ hafi lengi talið þörf á að nýta
þessa auðlind eins og aðrar í hafinu og af-
skaplega mikilvægt sé að halda jafnvægi í
lífríkinu.
Veiðarnar ekki vísindalegs eðlis
Richard Mott varaforseti náttúruverndar-
samtakanna World Wildlife Fund, fordæmdi
vísindaveiðarnar. „Við teljum að hrefnuveið-
arnar séu ekki vísindalegs eðlis og að mark-
mið með veiðunum séu ekki í takt við stefnu
Alþjóðahvalveiðiráðsins,“ sagði Mott.
Viðbrögð við ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að hefja hvalveiðar í vísindaskyni
Bandarísk stjórnvöld lýsa
gríðarlegum vonbrigðum
Veiðarnar eru
fagnaðarefni að
mati formanns LÍÚ
Telja/4
38 hrefnur/26
KONRÁÐ Eggertsson, hrefnuveiðimaður á Ísa-
firði, segist tilbúinn að halda til hvalveiða á bát
sínum, Halldóri Sigurðssyni ÍS. Sjávarútvegs-
ráðuneytið tilkynnti í gærmorgun að í þessum
mánuði yrði hafist handa við hvalveiðar í vís-
indaskyni samkvæmt tveggja ára rannsóknaáætl-
un Hafrannsóknastofnunar. Ákveðið hefur verið
að veiddar verði 38 hrefnur í þessum mánuði og
hinum næsta.
„Félag hrefnuveiðimanna mun sjá um þessar
veiðar og ég verð með einn af þeim bátum. Byss-
an er á sínum stað og tilbúin til notkunar. Hún
hefur verið tákn um hvalveiðar alla tíð frá því
þær voru lagðar af“, segir Konráð.
Á myndinni sést hvar Guðmundur, sonur Kon-
ráðs, mundar byssuna á tog- og hrefnuveiðiskip-
inu Halldóri Sigurðssyni.
Byssan tilbúin
ÍTALSKI
tónleika-
haldarinn
Titti Sant-
ini hefur
óskað eftir
því að fá
Hrafna-
galdur Óð-
ins á tón-
listarhátíðina La Musica dei
Cieli (Tónlist af himnum) sem
fram fer á Ítalíu 10.–20. des-
ember nk. Á þessari árlegu
tónlistarhátíð er boðið upp á
tónlist ólíkra trúarbragða og í
ár verður m.a. afrísk messa
með Miriam Makeba auk þess
sem Palestínumenn og gyð-
ingar halda stóra tónleika
saman.
Stuttur fyrirvari
á flóknu máli
„Þetta er afar stórt dæmi
og skipulagslega náttúrlega
fremur flókið. Eftir er að at-
huga hvort allir komast, því
þetta er fremur stuttur fyr-
irvari, en vissulega finnst öll-
um þetta mjög spennandi,“
sagði Þórunn Sigurðardóttir,
stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík, en Hrafnagaldur
var frumfluttur á Listahátíð
2002.
„Mér finnst þetta mjög
magnað og skemmtilegt að
fara á hátíð sem tileinkuð er
trúartónlist, en það gefur
verkinu dýpri merkingu og
skírskotun,“ sagði tónskáldið
Hilmar Örn Hilmarsson, höf-
undur tónverksins.
Hrafna-
galdur til
Rómar
Hrafnagaldur/23
♦ ♦ ♦