Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 37 http://www.micasa.is Spænskt húsgagnaúrval ALLT NÝJAR VÖRUR Í VERSLUNINNI www.hm.is TÍSKA  GÆÐI  BETRA VERÐ Nýr listi Pantið í síma: 5 88 44 22 ALÞJÓÐLEGA skátamótið Nordjamb 2003 var sett á Garða- torgi sl. þriðjudag. Að sögn Jóns Ingvars Bragasonar, fram- kvæmdastjóra Nordjambs, er þetta í annað sinn sem mótið er haldið hér á landi en stefnt er að því að halda það þriðja hvert ár. Mótið er fyrir drótt- og róverskáta á aldrinum 15-30 ára og stendur fram til 10. ágúst. Hundrað skátar frá 14 þjóðlöndum taka þátt í mótinu og skipta sér í sjö ferða- hópa. Hóparnir fara í mismunandi verkefni en boðið er m.a. upp á ferðir á Hvannadalshnjúk, Lauga- veginn, köfun, hringhjól, Reykja- veginn, snjósleðaferð og sigling- arferð. Ferðunum lýkur á morgun en þá koma skátarnir saman á Úlf- ljótsvatni og eyða helginni þar. Skátar á ferð um landið Aðalfundur TR Aðalfundur Tafl- félags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudagskvöldið 14. ágúst í fé- lagsheimilinu að Faxafeni 12 og hefst fundurinn kl. 20. Verkefni fundarins eru hefðbundin aðalfund- arstörf. Allir eru velkomnir, en ein- ungis fullgildir félagsmenn hafa til- lögu- og atkvæðisrétt. Vatnsmýrarhlaup Vatnsmýr- arhlaupið, á vegum Sri Chinmoy Maraþonliðsins, fer fram í áttunda sinn í kvöld og hefst það við Ráðhús Reykjavíkur kl. 20. Skráning hefst kl. 17 í Ráðhúsinu en einnig er hægt að skrá sig á www.hlaup.is. Hlaupið er í Vatnsmýrinni og ná- grenni Tjarnarinnar og keppt í þremur aldursflokkum karla og kvenna. Fá sigurvegarar að launum glæsileg verðlaun, að sögn aðstand- enda hlaupsins, en einnig verða dregnir út vinningar í lok hlaupsins. Að hlaupi loknu verður boðið upp á ávaxtahlaðborð. Í DAG Opið hús Frjálshyggjufélagsins Frjálshyggjufélagið verður með opið hús á Rauða barnum á veitingahús- inu Einari Ben., Veltusundi við Ing- ólfstorg, frá kl. 20, föstudagskvöldið 8. ágúst. Geta áhugasamir kynnst þar félaginu. Frjálshyggjufélagið er félag fólks sem telur að frelsi sé bæði hagkvæmt og réttlátt. Félagið hefur að markmiði sínu að afla hug- sjónum sínum fylgi með fræðslu. Stefnu félagsins má finna á heima- síðu þess, www.frjalshyggja.is. Á MORGUN Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur Boðsmót Taflfélags Reykjavíkur fer fram í 34. skipti helgina 8.–10. ágúst. Þetta stutta og skemmtilega mót hefst á föstudaginn kl. 19 og eru þá tefldar þrjár atskákir. Á laugardag og sunnudag eru svo tefldar fjórar kappskákir. Teflt er kl. 10 og kl. 17 á laugardeginum en kl. 10.30 og 17 á sunnudeginum. Í ár mun fara fram sýning á ljós- myndum, úrslitum og skákum úr fyrri boðsmótum samhliða mótinu. Nánari upplýsingar eru á heima- síðu T.R. www.skaknet.is. Vinnuvistfræði Norræn ráðstefna um vinnuvistfræði verður haldin á Grand hóteli dagana 10.–13. ágúst nk. Að henni standa Vinnuvist- fræðifélag Íslands í samvinnu við Norrænu vinnuvistfræðisamtökin, NES, og Vinnueftirlitið. Yfirskrift ráðstefnunnar er Hugur og hönd í heimi tækninnar. Meðal þess sem fjallað verður um eru áhrif upplýs- ingatækni á líðan starfsmanna, áhrif breytinga og hagræðingar á vinnustöðum, streita og krónískir verkir, áhættumat, hönnun út frá vinnuvistfræðilegu sjónarhorni, þróun rannsókna, o.fl. Allar nánari upplýsingar og skráning eru á heimasíðunni: www.vinnis.is/ nes.2003 Fornvéladagur á Akranesi Á þessu ári eru 85 ár liðin frá inn- flutningi fyrstu dráttarvélarinnar hingað til lands og 60 ár eru frá því fyrstu ræktunarýturnar komu til landsins. Til að minnast landnáms þessara tækja og þeirrar byltingar sem þau höfðu í för með sér fyrir íslenska bændur stendur Safna- svæðið á Akranesi fyrir svo- nefndum Fornvéladegi nk. laug- ardag, 9. ágúst. Þar verður sýning á ýmsum eldri og nýrri tækjum frá klukkan 12 til 16. Sýningunni lýkur með skrúðakstri gangfærra öku- tækja um götur bæjarins klukkan 16. Meðal þeirra tækja sem á sýn- ingunni verða má nefna tvær af eldri dráttarvélum Búvélasafnsins á Hvanneyri. Auk landbúnaðartækja verða ýmis önnur farartæki á ferð- inni á Fornvéladegi. Nokkrir fé- lagar úr Fornbílaklúbbi Íslands mæta á staðinn með glæsikerrur sínar, bifhjólaklúbbur þenur fáka sína, vörubíll og slökkvibifreið mæta og áfram mætti telja. Safna- svæðið er opið alla daga frá 10–18 og vert er að minna á kaffihlaðborð í Maríukaffi sem í boði verður á Fornvéladegi. Blómaskreytinganámskeið Fimm daga blómaskreytinganámskeið verður haldið í vinnustofu Uffe Balslev, Hvassahrauni, dagana 25.– 29. ágúst frá kl. 9–17. Kennt verður að gera blómvendi, brúðarblóm- vendi, skreytingar, kransa, krossa o.fl. Unnið verður úr ræktuðu efni og náttúrulegu efni sem þátttak- endur tína sjálfir. Landsmót Votta Jehóva. Lands- mótið „Gefið Guði dýrðina“ verður haldið dagana 8.–10. ágúst í Íþróttahúsinu Digranesi, Kópavogi. Landsmótið er þáttur í alþjóðlegri mótaröð sem hófst í maí sl. og stendur fram í janúar á næsta ári. Flutt verða rúmlega 30 erindi á mótinu ásamt umræðum, viðtölum og sýnidæmum. Einnig verður flutt biblíuleikrit. Dagskráin hefst alla morgna kl. 9.30 og síðdegis kl. 14 nema á sunnudag. Þá hefst síðdeg- isdagskrá kl. 13.40. Dagskráin verð- ur túlkuð á táknmál heyrnarlausra á laugardag frá kl. 14 til 17 og á sunnudag frá kl. 13–40 til 16. Á NÆSTUNNI Minningardag- ur á Húsafelli MINNINGARDAGUR á Húsafelli í Borgarfirði verður haldinn laugar- daginn 9. ágúst nk. í tilefni þess að í sumar er 200 ára ártíð séra Snorra Björnsson og 40 ára ártíð Jakobs Guðmundssonar, sem var frum- kvöðull að byggingu kapellunnar á Húsafelli. Jafnframt eru liðin 30 ár frá vígslu kapellunnar. Skipulagning minningardagsins er í höndum stjórnar Húsafellskapellu. Dagskráin hefst klukkan 15 í kap- ellunni og síðan verða seldar kaffiveit- ingar. Klukkan 17 verður hátíðar- messa þar sem séra Geir Waage sóknarprestur í Reykholti messar en í lok hennar verður vígð viðbót við kirkjugarðinn sunnan og austan kap- ellunnar. Kapellan er teiknuð sam- kvæmt hugmynd Ásgríms Jónssonar listmálara en Halldór H. Jónsson gekk frá endanlegum teikningum. Húsið er því eftir því sem næst verður komist eina verk Ásgríms Jónssonar listmálara á sviði byggingarlistar. Dagskráin er opin öllum en upplýs- ingar um dagskrá hátíðarinnar má nálgast á heimasíðu ferðaþjónustunn- ar á Húsafelli. Hestagrafreitur í bígerð Í sumar er unnið að stækkun og viðhaldi kirkjugarðsins en stefnt er að því að gera ýmsar endurbætur á kap- ellunni á næstu árum. Stjórn kapellunnar hefur í hyggju að gera hestagrafreit í Húsafellstúni þar sem hestaeigendum verður boðið að heygja hesta sína og setja stein yfir gegn gjaldi sem rennur í kapellusjóð. Verður þetta fyrsti opinberi hesta- grafreiturinn hérlendis svo vitað sé. Fyrirhugaður grafreitur hefur hlotið heitið Sörlateigur til minningar um þjóðsöguna um gæðinginn Sörla og eiganda hans Skúla. TENGLAR ..................................................... www.husafell.is Skoða landið sem fer undir vatn FERÐAFÉLAGIÐ Augnablik stendur fyrir sex daga leiðangri 11. ágúst næstkomandi um landið sem hverfur vegna Kárahnjúkavirkjun- ar. Samskonar leiðangur 35 manna fór um svæðið 22. júlí síðastliðinn og þriðja ferðin er áformuð 18. ágúst. Í fréttatilkynningu segir að þetta sé í fyrsta sinn sem skipulagðir leið- angrar séu farnir með ferðamenn yf- ir Brúarjökul inn á Kringilsárrana. Hinn 11. ágúst ætlar 40 manna hóp- ur að leggja af stað en ferðin tekur sex daga. Fararstjórar eru Ósk Vil- hjálmsdóttir og Ásta Arnardóttir. Nánari upplýsingar má finna á vefslóðinni www.islandia.is/nature/ kringilsarrani.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.