Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 15
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 15
K
O
R
T
E
R
NORÐUR-kóresk stjórnvöld settu á
þriðjudag í bið þau samstarfsverkefni
sem unnið hefur verið að milli Norð-
ur- og Suður-Kóreu og sökuðu suður-
kóreska óvildarmenn sína um póli-
tískt „morð“ á suður-kóreskum for-
stjóra, sem sætti ákæru fyrir að hafa
komið opinberu fé frá Suður-Kóreu í
hendur Norður-Kóreumanna.
Chung Mong-Hun, einn forstjóra
suður-kóresku Hyundai-samsteyp-
unnar, svipti sig lífi á mánudag með
því að kasta sér út um glugga á skrif-
stofu sinni í Seoul en verið var að
rannsaka þátt hans í fjármála-
hneyksli frá árinu 2000. Þar var fyr-
irtækið sakað um að hafa millifært
hálfan milljarð dollara, um 38 millj-
arða króna, frá stjórninni í Suður-
Kóreu til stjórnvalda í Norður-Kóreu
fyrir viðræðufund sem haldinn var á
milli ríkjanna tveggja árið 2000.
Norður-kóreska ríkisfréttastofan
KCNA sendi frá sér tilkynningu í þar
sem fullyrt er að dauði Chungs hafi
verið pólitískt morð sem suður-kór-
eski íhaldsflokkurinn GNP og ríkis-
saksóknarar bæru ábyrgð á.
Chung Mong-Hun var sonur
Chung Ju-Yung, stofnanda Hyundai,
og stýrði Hyundai Asan, þeirri deild
samsteypunnar sem sinnti viðskipt-
um við Norður-Kóreu. Chung skildi
eftir sig þrjú kveðjubréf þar sem
hann óskaði þess að fyrirtækið héldi
áfram uppbyggingu í Norður-Kóreu.
Í tilkynningu KCNA segir einnig
að fyrirhugaðum viðræðum um efna-
hagsleg samstarfsverkefni milli
Norður- og Suður-Kóreu séu í upp-
námi og áformuðu ferðaþjónustusam-
starfi, sem átti að opna ferðamönnum
úr suðri – á vegum Hyundai Asan –
leið til fagurra staða í fjalllendi Norð-
ur-Kóreu, yrði skotið á frest.
Hyundai Asan hefur nánast einok-
að umsjón með viðskiptum á milli
Norður- og Suður-Kóreu.
Sjálfsmorðstíðni hefur aukist mjög
í Suður-Kóreu síðustu ár og tengjast
þau oftar en ekki fjárhagsörðugleik-
um. Fólk leggur gjarnan mikið á sig
til að standa sig gagnvart fjölskyld-
unni, á vinnustað og í skóla og stund-
um stenst það ekki þrýstinginn og
velur þessa leið.
N-Kóreumenn kalla sjálfsvíg forstjóra Hyundai-samsteypunnar morð
Samskipti Kóreuríkja í uppnámi
Seoul. AP, AFP.
MICHAEL McKevitt, leiðtogi
Hins sanna IRA, var í gær
fundinn sekur um hryðjuverk
fyrir dómstól í Dyflinni á Ír-
landi. Hinn sanni IRA, sem er
klofningshópur út úr Írska lýð-
veldishernum, IRA, bar ábyrgð
á mesta hryðjuverkinu í þriggja
áratuga langri sögu átakanna á
Norður-Írlandi, sprengingunni
í bænum Omagh en hún varð 29
manns að bana. Í málaferlunum
var stuðst mjög við vitnisburð
Davids Ruperts, fyrrverandi
starfsmanns FBI, bandarísku
alríkislögreglunnar. Rupert
vann einnig fyrir bresku leyni-
þjónustuna og tókst að komast
inn í samtök McKevitts undir
fölsku flaggi.
Sárasótt
í sókn
HINN hættulegi kynsjúkdóm-
ur sárasótt eða sýfilis verður æ
algengari í Danmörku. Haft er
eftir Carsten Sand Petersen,
yfirlækni á Bispebjerg-sjúkra-
húsinu, að nú séu greind mörg
tilfelli í viku hverri en fyrir
nokkrum árum varð ekki vart
við nema eitt mánaðarlega.
Segir hann, að margir sjúklinga
sinna séu samkynhneigðir og
hafi smitast eftir dvöl í ýmsum
borgum í Evrópu, ekki síst
Berlín.
Fundu
ekki olíu
FJÓRÐA tilraunin til að finna
olíu á færeyska landgrunninu
bar engan árangur. Það var
ítalska olíufélagið ENI, sem að
henni stóð og boraði niður á
3.847 metra við línuna, sem
skilur milli Færeyja og Hjalt-
landseyja. Fannst þar hvorki
olía né gas. Áður hafa Statoil og
BP borað án árangurs en sam-
steypu með bandaríska fyrir-
tækinu Amerada Hess tókst að
finna olíu. Mörg ár munu þó
líða áður en ljóst verður hvort
hún er vinnanleg. Færeyska ol-
íuráðuneytið vinnur nú að því
að bjóða út nýjar boranir.
Bílsprenging
í Tel Aviv
SPRENGJA sprakk í bíl í Tel
Aviv í Ísrael í gær og varð
sprengingin einum manni að
bana og særði nokkra. Tals-
maður lögreglunnar í borginni
sagði, að ekki hefði verið um
hryðjuverk í þeim skilningi að
ræða, heldur uppgjör milli
glæpaflokka. Ekki er óalgengt,
að ísraelskir glæpamenn ryðji
hver öðrum úr vegi með þess-
um hætti. Þannig lauk einn
helsti glæpaforinginn í Tel Aviv
ævi sinni 30. júní síðastliðinn.
Sonur Shar-
ons fyrir rétti
DÓMSTÓLL í Tel Aviv hefur
skipað Gilad, syni Ariels Shar-
ons, forsætisráðherra Ísraels,
að afhenda skjöl varðandi spill-
ingarmál, sem Gilad er flæktur
í. Gilad er sakaður um að hafa
tekið við mútum seint á síðasta
áratug frá byggingarverktaka,
David Appel, en hann hefur
stutt Likudflokkinn, flokk
Sharons, með miklu fé. Hingað
til hefur Gilad neitað að svara
spurningum lögreglunnar um
þessi mál.
STUTT
Dæmt
á Írlandi