Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ HERDÍS Þórðardóttir, formaður bæjarráðs, hefur unnið samantekt á því hvernig embætti og nefndir bæj- arins raðast á milli kynja hér í Hveragerði. „Hlutfallið er svo til hnífjafnt, ef eitthvað er þá er hlut- skipti kvenna aðeins betra. Mér finnst þetta mjög jákvætt og sér- stakt í bæjarfélagi og það sem gerir þetta einstaklega skemmtilegt er að ekki var lagt upp með það í upphafi að kynjaskiptingin ætti að vera jöfn. Það sem hefur að mínu mati skilað konum eins vel og raun ber vitni inn í bæjarmálin er, að konur voru mjög virkar og áhugasamar við síðustu bæjarstjórnar kosningar,“ segir Herdís. Skiptingin er sem hér segir: Bæj- arfulltrúar Hveragerðisbæjar eru 7 og skiptast þannig eftir kynjum: Konur eru þrjár en karlar eru fjórir. Bæjarráðið skipa þrír fulltrúar, tvær konur og einn karl. Embætti og stjórnunarstöður skiptast á eftirfarandi hátt: Konur eru í stöðum skrifstofu- stjóra, formanns bæjarráðs, félags- málastjóra, umhverfisstjóra, tveggja leikskólastjóra og forstöðumanns bókasafnsins. Karlar eru í stöðum bæjarstjóra, forseta bæjarstjórnar, bæjartæknifræðings, skólastjóra grunnskólans, íþrótta- og tóm- stundafulltrúa og verkstjóra áhalda- húss. Formennska nefnda skiptist á milli kynja á eftirfarandi hátt: Konur hafa formennsku í atvinnu- og heilsubæjarnefnd, menningar- málanefnd, félagsmálanefnd, bygg- inganefnd, starfshópi aldraðra og bókasafnsnefnd. Karlar gegna aftur á móti formennsku í skipulagsnefnd, hitaveitunefnd, umhverfisnefnd, skólanefnd, starfshóp um vímuefna- varnir, ferlinefnd og íþrótta- og æskulýðsnefnd. Í ofangreindum nefndum sitja 33 konur og 30 karlar. Jafnara getur kynjahlutfallið varla verið hjá bæjarfélagi. Jafnrétti í stjórn bæjarins Hveragerði Morgunblaðið/Margrét Ísaksdóttir Sigurður Ingvarsson og Adda Þórey Jónsdóttir, sem eru á öðru ári, ættu að eiga jafna möguleika á að stjórna bænum sínum þegar þau verða „stór“. FRAMKVÆMDIR standa yfir við endurlagningu á um 6 km kafla á Út- nesvegi sunnan við Hellissand. Verktakinn, Stafnafell ehf., hefur staðið sig vel gagnvart þeirri miklu umferð ferðamanna sem farið hefur um veginn og kappkostað að haga framkvæmdunum þannig að sem minnst óþægindi hlytust af. Alltaf verða þó einhverjar tafir á umferð við svona aðstæður. Lögð verður klæðning á veginn um Gufuskálamóður að Móðulæk. Við það styttist kaflinn sem unnið er við og allt verður í lagi um komandi helgi. Allir, og ekki síst þeir sem eru í ferðaþjónustu, fagna betri vegum. áfanga með því að koma með rjóma- tertu til vegagerðarmannanna til að gæða sér á með eftirmiðdagskaffinu. Vinnuflokkur frá Klæðningu hf. að verki á Gufuskálamóðum undir Jökli. Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Starfsmenn Stafnafells ehf. fá sér tertu. Hildur hótelstjóri lengst til vinstri. Klæðning undir Jökli Hellissandur Hótelstjóri Hótels Eddu sem annast rekstur Hótels Hellissands, Hildur Ýr Arnarsdóttir, fagnaði þessum MENN notuðu frídag verslunar- manna til ýmissa hluta, flestir þó til ferðalaga. Á vissan hátt gerði þús- undþjalasmiðurinn Ketill Sigurjóns- son á Hellnum það einnig. Ketill sem er lærður húsasmiður og orgelsmið- ur notaði daginn til að sjósetja lítinn bát sem hann hefur verið að dunda sér við að smíða undanfarna mánuði. Bátinn smíðaði hann eftir eigin teikningu og því ríkti ákveðin spenna yfir því hvernig hann myndi liggja í vatni við sjósetninguna. Báturinn, sem smíðaður er úr stál- plötum utan á timburgrind, rann léttilega á flot og lá vel og þótt aðeins væru komnar í hann tvær þóftur tók Ketill með sér farþega í jómfrúrferð- ina. Það voru þau Hjörtur Sturluson og Heiða Dögg Jónsdóttir sem reru með honum yfir að Baðstofuhellinum og til baka, meðan eiginkona hans, Sveinbjörg Eyvindsdóttir, tók myndir af sjósetningunni. Eftir að hafa haldið upp á sjósetninguna með hádegisverði í Fjöruhúsinu fóru þau saman á sjó, Ketill og Sveinbjörg, með veiðistangir og renndu fyrir fisk, en lítið var um afla í þetta sinn, en sjóferðin var þó góð. Ketill lítur á árabátinn sem fyrsta stig bátasmíðinnar, því hann hefur það á stefnuskránni að þróa hann frekar og setja í hann utanborðsmót- or þannig að hann verði fjölnota. Morgunblaðið/Guðrún G. Bergmann Nýr bátur í flota Hellna- manna Hellnar MIKILL ferðamannastraumur hef- ur verið undanfarna góðviðrisdaga á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Allt umhverfið iðar af mannlífi og svo auðvitað af fugli og öðrum dá- semdum náttúrunnar. Sú var tíð að þarna var ekki margförult. Gár- ungar töluðu um að á Arnarstapa hefði lífið verið svo frjálst að strák- ar hefðu verið komnir með bíl- prófið um tíu ára aldurinn. Enginn kemur að Arnarstapa án þess að skoða höfnina sem er afar sérstök og kúrir vært undir klettunum. Blíðviðri á Arnar- stapa Morgunblaðið/Helgi Kristjánsson Ólafsvík ÆRIN Dís var að bíta gras uppi á þaki á gömlum hlöðnum kofa með torfþaki og þó að grasið væri girnilegt og veðrið gott gaf hún sér aðeins tíma til að líta upp og stilla sér upp fyr- ir myndatöku. Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Dís uppi á þaki Fagridalur ÚTSKRIFTARNEMAR handavinnudeildar Kenn- araskólans 1953 komu sigl- andi með Sæfara til að fagna stórafmæli – handavinnu- kennarar í 50 ár – í Grímsey. Það er glaður, samheldinn og unglegur hópur sem er saman kominn í Félagsheim- ilinu Múla. Útskriftarnem- arnir hafa sannarlega notið samveru í öll þessi 50 ár. Það voru 16 stúlkur og 6 piltar sem fengu handa- vinnukennararéttindi sín 1953 og héldu til starfa vítt og breitt um allt Ísland. Frá 1985 ákvað hópurinn að styrkja enn böndin og hafa farið í ferðalög innanlands og utan öll árin síðan. Þeg- ar fór að fækka í hópnum voru makar teknir inn og sagði einn þeirra, Þorsteinn Gíslason, fyrrum skipstjóri, kennari og fiskimálastjóri, sem er eiginmaður Vilborgar handavinnu- kennara, að hann teldi óvenjulegt, ef ekki einstakt hvað svona stór hópur hefði haldið dyggilega saman í hálfa öld. Einn úr útskriftarhópnum, Tryggvi Eyjólfsson á Lambavatni, vildi þakka konunum í árganginum það hvað samheldnin væri mikil og 50 ára útskriftar- afmæli á baugnum Grímsey samfundirnir margir og þá sér- staklega fyrirliða þeirra Rósu Árna- dóttur á Höskuldsstöðum í Eyja- fjarðarsveit en hún átti einmitt hugmyndina um afmælisfagnað í Grímsey. Rósu, sem kom nokkur vor til Grímseyjar að kenna skólabörn- um sund, fannst tilvalið að gleðjast á þessum merku tímamótum á heim- skautsbaug. Gestirnir í landgangi Sæfara, f.h., Tryggvi Eyjólfsson Rauðasandi, Rósa Árnadóttir Eyjafjarðarsveit, Vilborg Vilmundardóttir Garðabæ og Erla Ásgeirsdóttir Hveragerði. Morgunblaðið/Helga Mattína

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.