Morgunblaðið - 07.08.2003, Side 12
ERLENT
12 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HITASTIG fór enn og aftur yfir 40 gráður í mörgum evrópskum borg-
um í gær og virtist hitabylgjan ekkert vera í rénun. Slökkviliðsmenn
héldu áfram að berjast við skógarelda í sunnanverðri álfunni og meng-
un jókst enn frekar.
Franskir veðurfræðingar lýstu hitanum sem nokkurs konar „hvelf-
ingu af heitu lofti“ sem næði yfir hluta Evrópu. Mörgum til mikillar
hrellingar sögðu þeir ástandið vera þannig að kæling loftsins, sem yf-
irleitt ætti sér stað að næturlagi, yrði nú sífellt minni svo hætta væri á
að hver dagur yrði alltaf heitari en sá fyrri. Hitinn orsakast af hæð sem
liggur yfir Vestur-Evrópu en hún heldur lægðum af Atlantshafi í burtu
en hleypir að heitu lofti frá Afríku sem streymir yfir álfuna.
26 grunaðir brennuvargar í haldi
Í gær var hitamet ársins slegið á Bretlandseyjum þegar hitinn fór
upp í 36,4 gráður í suðausturhluta landsins og í London mældist hitinn
35,9 gráður en það er hæsti hiti sem nokkurn tíma hefur mælst í borg-
inni. Skógareldar hafa nú kviknað í Frakklandi, Króatíu, Ítalíu, á Spáni
og Portúgal og hafa meira en 30 manns látist vegna þeirra og þúsundir
þurft að flýja heimili sín. Af þeim hafa 14 látist í Portúgal en eldarnir
þar eru þeir verstu í sögu landsins. Slökkviliðsmenn náðu þó nokkrum
tökum á eldinum í gær en lögreglan í Lissabon sagðist hafa í haldi 26
grunaða brennuvarga. Í Toskanahéraði á Ítalíu voru íbúðarhús og
ferðamannastaðir rýmdir vegna skógarelda.
Íssala aukist um 60%
Í Serbíu íhuga yfirvöld að stöðva jafnvel umferð eftir Dóná þar sem
vatnsmagnið er hið minnsta í heila öld og við landamæri Rúmeníu og
Serbíu hafa komið í ljós nokkur gömul skipsflök nasista úr seinni
heimsstyrjöldinni sem sukku þar árið 1944.
Ísgerðarmenn ættu þó að gleðjast yfir hitanum því sala á ís, frost-
pinnum ýmiss konar og vatni hefur stóraukist í Evrópu, til dæmis til-
kynnti breska verslunarkeðjan Sainsburys að íssala hefði rokið upp um
60% að undanförnu vegna hitans.
Hitinn ekk-
ert í rénun
París. AFP.
Reuters
Tvær litlar stelpur standa undir vatnsbunum gosbrunna
í Barcelona til að kæla sig í hitasvækjunni í fyrradag.
AP
Ísbjörn í dýragarðinum í Antverpen í Belgíu gæðir sér einbeittur á stærð-
arinnar ísklumpi sem í eru uppáhaldsfiskurinn hans og gulrætur.
AP
„Ó, en sú mæða,“ gæti gelatinn verið að segja er hann reyndi að skýla sér í skugga í
dýragarðinum í Zurich í Sviss gær en þar fór hitinn yfir 35 gráður.
HITARNIR sem geisa nú í Evópu hafa
haft margvísleg áhrif á íbúa álfunnar og
sum nokkuð óvænt. Þannig hefur aust-
urrískur læknir varað fólk við því að
stunda ástarleiki í hitanum þar sem slíkt
geti beinlínis verið hættulegt fyrir þá sem
hafa veilt hjarta. „Að stunda mikið kynlíf
í hitabylgju eykur marktækt líkurnar á
hjartaáfalli,“ segir læknirinn Norbert
Bachl frá Vínarborg.
Gera má ráð fyrir að elskendur í Evr-
ópu eigi þó erfiðara með að hemja sig en
venjulega því þegar heitt er í veðri eykst
kynhvöt um 28% hjá körlum og 21% hjá
konum samkvæmt nýrri rannsókn sem
greint er frá í nýjasta hefti tímaritsins
Men’s Health.
Þessu til staðfestingar er í frásögn
danska síðdegisblaðsins BT greint frá því
að pör í Kaupmannahöfn stundi nú í
auknum mæli ástaratlot á almannafæri
eftir að hitabylgjan skall á. Lögreglan
hefur fullan skilning á málinu og segist
aðeins grípa inn í ef kvartanir berist.
„Ekki allt er leyfilegt, og við bregðumst
við ef við finnum par í heitum ástarleik í
almenningsgarði, til dæmis þar sem börn
geta séð til. Þá biðjum við fólkið að klæða
sig,“ sagði lögreglumaður í borginni.
Strætóbílstjóri í pils
Þrátt fyrir kæfandi hitann fá ekki allir
að klæða sig eftir veðri en stuttbuxur og
sandalar eru yfirleitt illa séð eða jafnvel
bönnuð á skrifstofum, t.d. er svo í fjár-
málahverfinu í Frankfurt í Þýskalandi.
Þá var sænski strætisvagnabílstjórinn
Mats Lundgren í bænum Umeå í Norður-
Svíþjóð afar ósáttur þegar honum var
bannað að klæðast stuttbuxum við vinnu
en sneri þá á vinnuveitandann og mætti í
heiðbláu pilsi í staðinn. Yfirmenn hans
segjast ekkert geta gert í málinu því að í
reglugerð um strætóbílstjóra séu ein-
ungis stuttbuxur bannaðar en ekkert
minnst á karlmenn sem klæðist kven-
mannsfötum.
Lundgren er hæstánægður þar sem
hann situr í pilsinu með sína hvítu loðnu
leggi. „Þetta er jafnvel betra en stutt-
buxur. Það er óbærilegt að keyra strætis-
vagn í síðum buxum þegar sólin steikir
mann í gegnum framrúðuna, en þegar
maður er í pilsi er það bara fínt,“ segir
Lundgren og er glaður í bragði.
Ráðleggja
fólki að
forðast
ástarleiki
LEIÐTOGAR biskupakirkjunnar í
Bandaríkjunum samþykktu í gær að
Gene Robinson, samkynhneigður
prestur í New Hampshire, yrði bisk-
up, með 62 at-
kvæðum gegn 42.
Kjörið hefur vald-
ið miklum deilum
innan kirkjunnar
en atkvæða-
greiðslunni, sem
átti að fara fram á
mánudag, var
frestað þegar
fram komu ásak-
anir um að Robin-
son hefði snert mann á óeðlilegan hátt
og mælt með klámsíðu á netinu. Hann
var hreinsaður af áburðinum í gær.
Robinson, sem var að vonum hæst-
ánægður með niðurstöðuna, sagðist
búast við að aðrar kirkjur myndu
fylgja í kjölfarið og bjóða samkyn-
hneigðum leiðtogastöður.
Íhaldsmenn innan kirkjunnar sem
margir hverjir hafa harðlega mót-
mælt kjöri Robinsons voru fljótir að
láta óánægju í ljós og 24 biskupar í
Bandaríkjunum hótuðu að segja af
sér yrði hann valinn. „Það er alltaf
mjög sorglegt þegar einhver ákveður
að yfirgefa kirkjuna. Og ég hef vissu-
lega beðið fyrir því að svo verði ekki,“
sagði Robinson.
Hörð mótmæli víða um heim
Frammámenn í biskupakirkjunni
víða um heim brugðust ókvæða við
tíðindunum en andlegur leiðtogi
kirkjunnar, Rowan Williams, erki-
biskup af Kantaraborg, reyndi að róa
fólk. Hann sagði kjör Robinsons
mundu hafa „umtalsverð áhrif“ á
biskupakirkjuna í heiminum en of
snemmt væri að segja hver þau yrðu.
Leiðtogar kirkjunnar í Afríku og
Asíu hótuðu að kljúfa sig úr kirkjunni
þar sem samkynhneigð væri óviðun-
andi og bryti gegn ritningunni. „Við
getum ekki átt samleið með þeim þeg-
ar þau brjóta gegn svo skýrum
ákvæðum í ritningunni,“ sagði Peter
Karanja, æðsti maður kirkjunnar í
Nairobi í Kenía. „Samkynhneigð er
menningarlega og lögum samkvæmt
ekki viðunandi hér,“ sagði Lim Cheng
Ean, leiðtogi biskupakirkjunnar í
Malasíu. Hann tilkynnti að biskupar
frá níu löndum í Suðaustur-Asíu
myndu hittast í næstu viku og ræða
hvort slíta ætti tengslin við banda-
rísku kirkjuna.
Hinn samkynhneigði Gene Robinson
Verður biskup
Lundúnum, Washington. AP, AFP.
Gene Robinson
TALSMAÐUR utanríkisráðuneytis
Bandaríkjanna, Philip Reeker, stað-
festi í gær að svo gæti farið að Ísr-
aelum yrði refsað ef þeir héldu áfram
byggingu öryggismúrs milli Ísraels og
svæða Palestínumanna á Vesturbakk-
anum. Ekki hefði þó verið tekin
ákvörðun í þessum efnum. Bandaríkja-
menn telja að múrinn geti grafið und-
an friðarviðleitninni í deilum Ísraela og
Palestínumanna. Ísraelsstjórn sleppti í
gær úr haldi meira en 300 palestínsk-
um föngum og var þeim ákaft fagnað
af ættingjum á Vesturbakkanum og
Gaza.
„Ég hef saknað þín, faðir minn. Ég
vildi óska að móðir mín væri enn á lífi,
þá gæti hún séð mig og orðið ham-
ingjusöm,“ sagði Hussein Abu Eid, 32
ára gamall maður. Hann hefur setið
inni í 13 ár vegna aðildar að herskáum
hópi hryðjuverkamanna, Íslamska
Jihad.
En margir Palestínumenn sögðu að
um væri að ræða látalæti Ísraela sem
hefðu ekki staðið við loforð um að láta
flesta fanga lausa. Nær 6.000 Palest-
ínumenn eru enn í ísraelskum fang-
elsum, sumir sakaðir um beina þátt-
töku í hryðjuverkum en aðrir fyrir
minni sakir.
Ísraelskir hermenn réðust inn í
borgina Jeríkó á Vesturbakkanum í
gær og handtóku þar 18 liðsforingja í
öryggisþjónustu stjórnar Palestínu-
manna. Lýst var yfir útgöngubanni í
borginni. Þjálfunarstöð er í Jeríkó fyr-
ir liðsmenn í sérsveit er nefnist Lið 17
og tengist Yasser Arafat, leiðtoga Pal-
estínumanna.
Hugmynd um
refsingar mótmælt
Hugmyndinni um viðskiptalegar
refsiaðgerðir var þegar andmælt í
Bandaríkjunum af áhrifamiklum þing-
mönnum sem styðja Ísrael. Öldunga-
deildarþingmaðurinn Joe Lieberman,
sem keppir að því að verða útnefndur
forsetaefni demókrata, hvatti George
W. Bush forseta til að hafna slíkum
hugmyndum.
Að sögn háttsetts bandarísks emb-
ættismanns, sem ekki vildi láta nafns
síns getið, myndi refsing Bandaríkja-
manna að öllum líkindum felast í því að
skerða lán, sem Bandaríkjastjórn hef-
ur lofað Ísraelum, um fjárhæð sem
nemur þeirri upphæð sem bygging
múrsins kostar. Múrinn á að fylgja
nokkurn veginn landamærunum eins
og þau voru fyrir sex daga stríðið 1967
en sums staðar á hann samt að verða á
svæðum Palestínumanna og skerða
því enn land þeirra.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagðist í viðtali við
Sawa, stöð sem útvarpar á arabísku í
Mið-Austurlöndum og er styrkt af
bandarískum yfirvöldum, hafa áhyggj-
ur af því að múrinn næði sums staðar
yfir á yfirráðasvæði Palestínumanna.
Fyrirhugaður öryggismúr Ísraela umdeildur erlendis
Bandaríkjamenn
íhuga refsiaðgerðir
Washington, Jerúsalem. AFP, AP.
Hundruðum pal-
estínskra fanga
sleppt úr haldi
Hitabylgjan í Evrópu síðustu daga hefur haft víðtæk áhrif á íbúa álfunnar