Morgunblaðið - 07.08.2003, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.08.2003, Qupperneq 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 17 1 ÁRS AFMÆLI Foxxy Santos JuwelIvoryLeonKarat Balu Tobago Útsalan stendur frá 7-23. ágúst. ÚTSALA Spítalavegur 8, Akureyri Til sölu glæsilegt endurbyggt timburhús í innbænum á Akur- eyri. Frábært útsýni yfir fjörð- inn. Eignin er kjallari, hæð og ris, samtals 201 fm. Nánari uppl. veittar á Fasteignasölunni Holt ehf. Akureyri. Sími 461 3095. Veffang www.holtfasteign.is „ÞAÐ er alltaf frábært að koma til Akureyrar. Ég hlakka jafn mikið til þessarar ferðar á hverju ári og okkur líður satt að segja einna best hér af öllum þeim stöð- um sem við ferðumst til,“ sagði gítarleikarinn Robin Nolan í sam- tali við Morgunblaðið í gær en fyrstu tónleikarnir á alþjóðlegu Django-djasshátíðinni á Akureyri verða í kvöld í Ketilhúsinu og þar kemur tríó Nolans einmitt fram. Þetta er sjötta árið í röð sem tríóið snjalla sækir Akureyri heim og öll árin hefur það haldið nám- skeið fyrir unga og efnilega djass- leikara í bænum. Nolan sagðist í gær hafa fylgst með sumum þeirra frá upphafi, og gaman væri að sjá hve þeim hefði farið gríð- arlega mikið fram. Nolan kemur mikið fram í Frakklandi, Kanada, Japan og Bandaríkjunum og tróð einmitt upp á stórum minningartónleikum um Django Rheinhardt í Lincoln Center í New York á dögunum. „Það er gott að koma til Akureyr- ar af ýmsum ástæðum,“ sagði Nol- an í gær; „hér er alltaf hugsað mjög vel um okkur, það er gaman af leika fyrir áheyrendur og svo er auðvitað gott að losna úr hit- anum; komast í kaldara loftslag en við eigum að venjast,“ sagði Nolan, og prýsaði sig sælan að vera ekki í hitabylgjunni einhvers staðar á meginlandi Evrópu. Jón Hlöðver Áskelsson, formað- ur Jazzklúbbs Akureyrar, sagði við Morgunblaðið að sem fyrri mæti margir frábærir djassleik- arar til hátíðarinnar, bæði inn- lendir og erlendir. „Kveikjan að hátíðinni voru árlegar heimsóknir Robin Nolan tríós til Akureyrar, en þeir komu fyrst árið 1998. Há- tíðirnar 2001 og 2002 tókust ein- staklega vel og fengu frábærar undirtektir gesta, sem sóttu vel alla tónleika og á lokahátíðinni sem var á Glerártorgi skapaðist alþjóðlegt andrúmsloft, þar sem okkar frábæru djasstónlistarmenn heilluðu á sjöunda hundrað áheyr- enda með margra klukkustunda dagskrá. Hátíðin veitir Íslend- ingum tækifæri til að sækja slíkan tónlistarviðburð á heimaslóð og veitir aðdáendum víða að úr heim- inum tækifæri til þess að hittast á fallegum stað,“ sagði Jón Hlöðver. Robin Nolan er enn mættur á árlega Django-djasshátíð „Hlakka alltaf jafn mikið til að koma“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Robin Nolan-tríó ásamt fimm hljóðfæraleikurum sem eru á námskeiði hjá tríóinu. Frá vinstri: Kevin Nolan, Unnur Birna, Robin Nolan, Gunnar, Haukur, Pétur, Simon Planting og Magnús Torfi. HIN árlega Handverkshátíð á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit hefst í dag og stendur til sunnudags, 10. ágúst. Um er að ræða sölusýningu handverksfólks sem haldin er á veg- um Eyjafjarðarsveitar og hefur þessi sýning fest sig í sessi sem árviss við- burður í sveitarfélaginu. Dögg Árnadóttir, framkvæmda- stjóri hátíðarinnar, sagði við Morg- unblaðið að þema sýningarinnar yrði að þessu sinni Kýrin. Landbún- aðarráðherra, Guðni Ágústsson, set- ur hátíðina. „Hulda Björk Garðarsdóttir óp- erusöngkona mun syngja á opnuninni og ýmsar uppákomur verða einnig á hátíðinni í anda þemans. Búgarður ráðgjafarþjónusta á Norðausturlandi í samstarfi við fleiri aðila stendur fyr- ir kúasýningunni Kýrin 2003 þar sem keppt verður um fegurstu kúna og börn sýna tamda kálfa sína. Alla sýn- inguna verða kýr og kálfar í túni á svæðinu. Til gamans munu gestir og gangandi geta spreytt sig á að lyfta steinum á þyngd við kálfa en gamalt húsráð er að lyfta sama kálfinum einu sinni á dag og þá eykst styrkur manns í samræmi við aukna þyngd kálfsins. Hægt verður að fylgjast með mjólkurvinnslu upp á gamla mátann en við hliðina á því getur svo að líta nútímalegri mjólkurvinnslu. Keppt verður í spunakeppni sem er orðin að hefð á hátíðinni en einnig verður á staðnum blásið til ein- staklingsspunakeppninnar Taktu hár úr hala mínum. Uppskeruhátíð hand- verksfólks verður svo á laugardags- kvöldinu þar sem afhentar verða við- urkenningar og ýmis skemmtiatriði verða í boði,“ sagði Dögg. Boðið verður upp á þrjú námskeið, blöndukönnugerð hjá Curt Bengtson, útskurð á spæni hjá Siggu á Grund og eldsmíðanámskeið undir leiðsögn Therese Johanson, nýkrýnds Norð- urlandameistara. Handverkshátíð á Hrafnagili Hver vill lyfta steinum á þyngd við kálfa? TENGLAR ..................................................... www.handverkshatid.is LEIKFÉLAG Akureyrar og fram- leiðslufyrirtækið Sögn, sem er í eigu Baltasars Kormáks og Lilju Pálma- dóttur, hafa ákveðið að ganga til sam- starfs um uppsetningu á leikritinu Erling eftir Ingvar Ambjørnsen. Þorsteinn Bachmann, leikhússtjóri LA, segir að verkið verði frumsýnt á Akureyri í september. „Verkið verður svo sýnt jöfnum höndum bæði á Akureyri og í Loft- kastalanum í Reykjavík. Leikararnir flytjast á milli en aðalhlutverk eru í höndum Stefáns Jónssonar í hlut- verki Erlings og Jón Gnarr í hlutverki Karls Bjarna. Hallgrímur Helgason þýddi og staðfærði verkið, Axel Hall- kell Jóhannsson sér um leikmynd og búninga, ljósahönnun er í höndum Al- freðs Sturlu Böðvarssonar og hljóð- mynd er gerð af Halli Ingólfssyni. Auk þeirra Stefáns og Jóns Gnarr mun Hildigunnur Þráinsdóttir, leik- kona hjá LA, leika fjöldann allan af gyðjum og freyjum sem verða á vegi þeirra félaga. Gísli Pétur Hinriksson og Skúli Gautason munu skipta á milli sín hlutverki stuðningsfulltrúans Franks. Það er svo Benedikt Erlings- son leikari og leikstjóri sem leikstýrir verkinu, en það er í leikgerð Axels Hallstenius,“ sagði Þorsteinn. „Þar sem verið er að vinna að end- urbótum á húsnæði leikfélagsins, þá verðum við að sýna í öðru húsnæði en því. Það eru ýmsar þreifingar í gangi og eins og staðan er í dag þá eru það nokkrir staðir sem koma til greina,“ sagði Þorsteinn. Leikritið Erling frum- sýnt hjá LA Fimmtudagur 7. ágúst Djangójazz. Ketilhúsið kl. 21:30, Robin Nolan-tríó. Handverkshátíð sett á Hrafnagili kl. 16, stendur yfir til 10. ágúst. Föstudagur 8. ágúst Söngtónleikar í föstudagshádegi í Ketilhúsinu kl. 12. Sönghópurinn Hymnodia. Þórhildur Örvarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Sigrún Arn- grímsdóttir, Kristín Kjartansdóttir, Pétur Halldórsson, Hjörleifur Hjálmarsson, Eyþór Ingi Jónsson og Skúli Gautason. Tónleikar Huldu Bjarkar Garð- arsdóttur í Laugarborg kl. 20. Söngvaka í Minjasafnskirkjunni kl. 20.30. Djangójazz í Ketilhúsinu kl. 21.30. Sígaunastórsveit, með Georg Wahsingmachine, söngvara og fiðlu- leikara og Randy Greer, söngvara frá Barcelona. Laugardagur 9. ágúst Myndlist – Lystigarðurinn á Ak- ureyri kl. 15. Opnun á sýningunni „Þrettán + þrjár“. Samsýning 13 norðlenskra listakvenna og 3ja frá Færeyjum. Myndlist – Ketilhúsið kl. 16. „1x1 málverk“. Opnun á samsýningu yfir 20 akureyrskra listamanna. Djangójazz á Glerártorgi – Grand finale frá kl. 21. til 01. Hrafnaspark, Robin Nolan og allir hinir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.