Morgunblaðið - 07.08.2003, Page 38
DAGBÓK
38 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Baldvin Þorsteinsson
og Mánafoss koma í
dag. Discovery, Páll
Jónsson, Bjarni Sæ-
mundsson, Árni Frið-
riksson, Selfoss,
Funchal og Ocean
Monarch fara í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Polar Nattoralik kem-
ur í dag.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað. Smíðastofan er
lokuð til 11. ágúst.
Opin handavinnustofa.
Kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leik-
fimi, kl. 11 boccia. Kl.
13.30 lengri ganga.
Púttvöllur opinn
mánudag til föstudags
kl. 9–16.30.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8–16 hárgreiðsla, kl.
8.30–14.30 bað, kl. 9–
16 handavinna, kl. 9–
17 fótaaðgerð.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 op-
in handavinnustofan,
kl. 9–12 íkonagerð, kl.
10–13, verslunin opin,
kl. 13–16 spilað.
Félagsstarfið Dal-
braut 18–20. Kl. 9 að-
stoð við böðun, hár-
greiðslustofan opin.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12
bað, kl. 9–16 opin
vinnustofa, kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 13.30
söngtími.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
greiðsla, kl. 13 föndur
og handavinna.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Flatahrauni 3.
Félagsheimilið Hraun-
sel verður opnað aftur
eftir sumarfrí mánu-
daginn 11. ágúst.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Brids kl. 13,
spilað í Ölveri. S.
588 2111.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Lokað
vegna sumarleyfa til
12. ágúst.
Gjábakki, Fannborg
8. Handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9–15.
Hraunbær 105. Kl. 9
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 14 félagsvist.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
10 boccia, 13.30 fé-
lagsvist. Hársnyrting
og fótaaðgerðir.
Norðurbrún 1. Vinnu-
stofa. Kl. 10–11
ganga.
Hárgreiðslustofan er
lokuð frá 15. júlí til
12. ágúst.
Vesturgata. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12
bað, kl. 9.15–15.30,
handavinna, kl. 10–11
boccia. Farþegar sem
skráðir eru í ferð á
Snæfellsnes miðviku-
daginn 13. ágúst eru
vinsamlegast beðnir
um að vitja farmið-
anna fyrir 8. ágúst.
Athugið að uppselt er
í ferðina.
Vitatorg. Kl. 9 hár-
greiðsla, kl. 9.30
morgunstund, kl. 10
fótaaðgerð og boccia-
æfing, kl. 13 frjáls
spil.
Minningarkort
Minningarsjóður
Krabbameinslækn-
ingadeildar Landspít-
alans. Tekið er við
minningargjöfum á
skrifst. hjúkrunarfor-
stjóra í síma 560 1300
alla virka daga milli
kl. 8 og 16. Utan dag-
vinnutíma er tekið á
móti minningargjöfum
á deild 11-E í síma
560–1225.
Hranfkelssjóður
(stofnaður 1931)
Minningarkort af-
greidd í símum
551 4156 og 864 0427.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu
Jónsdóttur flugfreyju
eru fáanleg á eftirfar-
andi stöðum: Á skrif-
stofu Flugfreyjufélags
Íslands, s. 561 4307,
fax 561 4306, hjá Hall-
dóru Filippusdóttur, s.
557 3333 og Sig-
urlaugu Halldórs-
dóttur, s. 552 2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skóg-
um fást á eftirtöldum
stöðum: Í Byggða-
safninu hjá Þórði
Tómassyni, s.
487 8842, í Mýrdal hjá
Eyþóri Ólafssyni,
Skeiðflöt, s. 487 1299,
í Reykjavík hjá Frí-
merkjahúsinu, Laufás-
vegi 2, s. 551 1814 og
hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk
9, s. 557 4977.
Minningarkort Félags
eldri borgara Selfossi
eru afgreidd á
skrifstofunni
Grænumörk 5, mið-
vikudaga kl. 13–15.
Einnig hjá Guðmundi
Geiri í Grænumörk 5,
sími 482 1134, og
verslunni Írisi í Mið-
garði.
Slysavarnarfélagið
Landsbjörg, Stang-
arhyl 1, 110 Reykja-
vík. S. 570 5900. Fax:
570 5901. Netfang:
slysavarnafelag-
id@landsbjorg.is.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525 1000
gegn heimsendingu
gíróseðils.
Í dag er fimmtudagur 7. ágúst,
219. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: „Blessið þá er
ofsækja yður, blessið þá, en
bölvið þeim ekki.“
(Róm. 12, 14.)
Sigurður Jóhannessonveltir því fyrir sér í
pistli á vefritinu Heimur
hvernig forgangsraða
eigi í dýrt háskólanám og
bendir á að í ýmsum
deildum verði nú að vísa
nemendum frá þar sem
mun fleiri vilja komast að
en pláss er fyrir.
Hann segir síðan.:„Kostnaðurinn rétt-
lætir út af fyrir sig að
fjöldi námsmanna sé
heftur á einhvern hátt,
hvað sem öðrum rökum
líður. Vist í þessum há-
skóladeildum er verð-
mæt. Með henni fæst dýrt
nám ókeypis og góð von
um háar tekjur að því
loknu.
Nú eru að vísu blikur á
lofti hjá laganemum í Há-
skóla Íslands. Hafin er
kennsla í lögfræði í nýj-
um háskólum hér á landi
og töluverð hætta á að
þeir fái að útskrifa lög-
fræðinga áður en langt
um líður. Enn er sókn í
háskólanám í lækn-
isfræði, tannlækningar
og fleiri háskólagreinar
meiri en framboðið.
Hvernig á að úthluta
skólarýmum? Ýmsir kost-
ir koma til greina. Áður
komust aðeins efstu nem-
endur á miðsvetrar- og
vorprófum áfram. Hinir
eyddu hálfu eða heilu ári
til lítils. Fágætt var að
menn kláruðu fyrsta vet-
urinn í læknisfræði í
fyrstu tilraun. Sú leið að
ákveða í forprófi hverjir
komast inn virðist í fljótu
bragði miklu skyn-
samlegri – þó að vafa-
laust verði eitthvað um
að fólk eyði óhóflega
miklum tíma í undirbún-
ing og fari aftur og aftur
í forprófið.
… Sú spurning vaknar
hvort þetta fyrirkomulag
verði ekki til þess að
óeðlilega hæft fólk veljist
í þessar greinar. Það
hljómar kannski und-
arlega, en ekki er óhugs-
andi að meiri þörf sé ann-
ars staðar í þjóðfélaginu
fyrir eitthvað af því hæfi-
leikafólki sem hefur nám
í læknadeild og sjúkra-
þjálfun í haust. Í lögfræð-
inni er þetta vandamál
kannski augljósara: Tak-
mörkun á fjölda í stétt-
inni tryggði að lögfræð-
ingar voru yfirleitt vel
gefnir og laun þeirra
héldust há. Hitt blasir við
að mörg störf lögfræð-
inga eru afar einföld, til
dæmis ættu inn-
heimtustörf þeirra yf-
irleitt að vera á færi fleiri
en afburðamanna.
Skömmtun inn í stétt-
irnar veldur því að of
hæft fólk vinnur verkin.
Eina leiðin til þess aðúthluta takmörk-
uðum verðmætum eins og
skólaplássum í háskóla
svo að ekki leiði af sér
vandamál er að taka
gjald fyrir námið. Það
eru ekki sannfærandi
mótrök að þetta leiði til
þess að fjárhagur hafi
áhrif á möguleika fólks á
menntun. Ekkert ætti að
vera því til fyrirstöðu að
veita námslán fyrir skóla-
gjöldum, þannig að allt
hæft námsfólk eigi kost á
því námi sem það kýs.“
STAKSTEINAR
Hvernig á að
forgangsraða?
Víkverji skrifar...
ÞAÐ er gott að borða súkkulaði.Hvort sem það er dökkt eða
ljóst, stökkt eða mjúkt þá er súkku-
laði gott. Súkkulaðikaka er líka góð.
Og súkkulaðikex. Kókómjólk er
meiriháttar bragðgóð þó hún heiti
ekki súkkulaðimjólk. Súkku-
laðirúsínur eru algjört hnossgæti,
sérstaklega með kaldri léttmjólk.
Súkkulaðihúðaðar hnetur eru næst-
um því eins ljúffengar og súkku-
laðihúðaður lakkrís. Og það er hvorki
hægt að fá leið á ís með súkku-
laðidýfu né á súkkulaðikaramellum.
Súkkulaði er einfaldlega ómót-
stæðilega gott. Víkverji hefur þess
vegna aldrei skilið hvers vegna sumir
geyma súkkulaðið sitt. Víkverji
geymir nefnilega aldrei súkkulaði.
Hann borðar það. Það er að segja ef
það er til á heimilinu og hann finnur
það. Víkverji þekkir á hinn bóginn
dæmi þess að sumir geyma súkku-
laðið til betri tíma, eins og þeir segja.
Geyma súkkulaðið svo þeir geti
dregið það fram þegar einhver kem-
ur í heimsókn, t.d. gestur. Víkverji
hefur aldrei skilið þessa hegðun al-
mennilega. Ef óvæntan gest ber að
garði er sjaldan svo langt út í sjoppu
að það megi ekki skjótast þangað og
kaupa gestasúkkulaði ef ekkert ann-
að er til á heimilinu. Raunar er til
tvenns konar fólk í þessum heimi.
Þeir sem geyma súkkulaðið og þeir
sem borða það. Sjálfsagt fer það eftir
erfðum og uppeldi í hvorum flokkn-
um fólk lendir. Sú kenning heyrist
stundum að þeir sem borða súkku-
laðið sitt hafi verið aldir upp á heim-
ilum þar sem súkkulaði var sjaldan
til, lítið keypt í einu og einkum boðið
upp á það þegar gesti bar að garði
(sjá að ofan). Þeir sem geyma súkku-
laðið sitt hafi á hinn bóginn bók-
staflega vaðið í súkkulaði sem börn.
Alltaf nóg til af súkkulaði og öðru
nammi og algjörlega ómögulegt
nema fyrir mestu átvögl að klára allt
súkkulaðið á heimilinu. Súkkulaðið
hafi því aldrei verið neitt sérlega
spennandi. Víkverji treystir sér ekki
til að dæma um hvor uppeldis-
aðferðin er betri. Hann veit bara
hvorum flokknum hann tilheyrir.
Hann borðar súkkulaðið.
x x x
ÞEGAR Víkverji tekur strætó íDublin, Helsinki eða Kaup-
mannahöfn þarf hann ekki að vita ná-
kvæmlega hvað farið kostar. Hann
getur nefnilega skipt og fengið til
baka. Það er hins vegar ekki hægt í
Reykjavík, hvernig sem á því stend-
ur. Þetta er auðsjáanlega óþægilegt
fyrir ferðamenn og þá sem ferðast
sjaldan í Strætó en þeir hafa í besta
falli óljósa hugmynd um hvert far-
gjaldið er. Auðvitað á að vera hægt
að gefa til baka eins og í flestum öðr-
um viðskiptum, a.m.k. ef greitt er
með 500 eða 1.000 króna seðlum. Ef
þetta er hægt í Dublin, Helsinki og
Kaupmannahöfn er það hægt í
Reykjavík.
Morgunblaðið/Ásdís
Auðlesinn
mbl.is
AUÐLESINN mbl.is er
sérvefur fyrir sjóndapra og
blinda þar sem að hægt er
að nálgast efni mbl.is á
þægilegan og greinagóðan
hátt. Þetta framtak Morg-
unblaðsins er ánægjulegt
og vil ég þakka þeim fyrir
góða þjónustu. Aðrir fjöl-
miðlar mættu taka Morgun-
blaðið sér til fyrirmyndar í
þessum efnum.
Aðalfélagi í
Blindrafélaginu.
Þakkir til
Björgvins
ÉG EIGNAÐIST geisla-
diskinn Íslandslög 6 nú á
dögunum og er yfir mig
hrifin af lagavali, útsetning-
um og flutningi. Eftir því
sem mér skilst bar Björgvin
hitann og þungann af þess-
ari útgáfu og vil ég þakka
honum innilega fyrir þessar
yndislegu söngperlur sem
eiga að vera í heiðri hafðar
um alla framtíð. Megi Ís-
landslög 7 heppnast jafnvel.
Sólveig Ólafsdóttir.
Góð þjónusta
á Kaffi Rót
ÁNÆGÐUR viðskiptavin-
ur hafði samband við Vel-
vakanda og vildi koma á
framfæri ánægju sinni
vegna þjónustunnar á Kaffi
Rót á Rauðarárstíg. Þar er
frábær þjónusta og þar inni
er gott að vera.
Dýrahald
SOS
ER EKKI einhver sem vill
bjarga níu vikna sætum
kettlingum frá ótímabær-
um dauða? Upplýsingar í
síma 551 8494 eða 860 5566.
Tapað/fundið
Gullarmband tapaðist
ÉG VAR á ferðalagi 30. júlí
sl. og tapaði þá gullarm-
bandi. Fjórir staðir koma til
greina, Hólar í Hjaltadal,
Gallerý Ash í Varmahlíð,
OB-bensínstöðin á Blöndu-
ósi og Staðarskáli. Skilvís
finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 554 5098
eða 899 5098. Fundarlaun.
Gleraugu töpuðust
GRÆN plastgleraugu töp-
uðust í miðbæ Reykjavíkur
laugardaginn 2. ágúst sl.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 561 6888 eða
865 1517. Fundarlaun í
boði.
Bækur um sögu
Hafnarfjarðar
ÞAÐ gleymdust 4 bækur í
10–11, Staðarbergi, Hafn-
arfirði, fyrir um 3 mánuð-
um. Þetta eru bækur um
sögu Hafnarfjarðar og
Hafnfirðinga. Eigandi get-
ur vitjað þeirra í 10-11,
Staðarbergi, í síma
555 3511.
Myndavél tapaðist
MYNDAVÉL tapaðist við
vegamótin að Staðarhóls-
kirkju á Skarðsströnd laug-
ardaginn 2. ágúst. Skilvís
finnandi vinsamlegast hafi
samband í síma 561 2177
eða 897 4531.
Bakpoki fannst
LÍTILL bakpoki, dökkblár
að lit, fannst á Sogavegi
hinn 5. ágúst sl. Í bakpok-
anum var barnaregngalli
nr. 6 og nestisbox. Sakni
einhver ofangreindra hluta
væri ráð að hafa samband í
síma 581 3005.
Lyklar fundust
SUNNUDAGINN 3. ágúst
sl. fundust lyklar á Seltjarn-
arnesi. Upplýsingar í síma
562 2437.
Barnagönguskór
fundust
LAUGARDAGINN 2.
ágúst sl. fundust barna-
gönguskór á lóð Laugar-
nesskóla. Upplýsingar í
síma 695 1321.
Saknar þú ilmvatns
eða varalitar?
VARALITUR og ilmvatn
fannst við lyftuna í Aspar-
felli 12. Upplýsingar í síma
587 1714.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
LÁRÉTT
1 brotlegur, 4 fall, 7
málms, 8 fnykur, 9 veð-
urfar, 11 afmarkað
svæði, 13 skelfingu, 14
yndis, 15 gæslumann, 17
beitu, 20 tjara, 22 böggla,
23 umberum, 24 smápen-
ingum, 25 mjólkur-
afurðar.
LÓÐRÉTT
1 fugl, 2 lagvopn, 3
kaldakol, 4 dreyri, 5
heimilað, 6 hindra, 10
seytlaði, 12 nöldur, 13
reykja, 15 vatns, 16 litar
rautt, 18 sálarfriður, 19
búa til, 20 brjóst, 21 léleg
skrift.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 handbærar, 8 álmur, 9 lipur, 10 iða, 11 auðið,
13 rýrar, 15 stáls, 18 sakna, 21 tap, 22 feitu, 23 eflir,
24 hundeltur.
Lóðrétt: 2 afmáð, 3 dýrið, 4 ætlar, 5 Alpar, 6 hása,
7 frír, 12 ill, 14 ýja, 15 sefa, 16 álitu, 17 stund, 18 spell,
19 köldu, 20 arra.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16