Morgunblaðið - 07.08.2003, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 39
DAGBÓK
75 ÁRA afmæli. Ingi-björg Pálsdóttir,
Ólafshúsi á Blönduósi, er
sjötíu og fimm ára í dag,
fimmtudaginn 7. ágúst. Af-
mælisbarnið verður ekki
heima við á afmælisdaginn.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 28. júní sl. í Trond-
heim Tinghus í Noregi Rós-
lind Bergmann Sveins-
dóttir og Dag Bordal.
Heimili þeirra er í Noregi.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1
b5 7. Bb3 d6 8. c3 0–0 9. h3
Ra5 10. Bc2 c5 11. d4 Dc7 12.
Rbd2 cxd4 13. cxd4 Bd7 14.
Rf1 Hac8 15. Re3 Rc6 16. d5
Rb4 17. Bb1 a5 18. a3 Ra6 19.
b4 axb4 20. axb4 Db7 21. Bd2
Ha8 22. Bd3 Rc7 23. Bc3
Hxa1 24. Dxa1 Ra8 25. Rd2
Rb6 26. Rb3 Ra4 27. Ra5
Da8 28. Hc1 Hc8 29. Bd2 Bf8
30. Rc2 Rb6 31. Ra3
Rc4 32. R3xc4 bxc4
33. Rxc4 Dxa1 34.
Hxa1 Rxe4
Staðan kom upp í
ofurmótinu í Biel sem
lauk fyrir skömmu.
Ísraelinn Ilya Smirin
(2.656) hafði hvítt
gegn gamla brýninu
Viktori Kortsnoj
(2.628). 35. Rb6!
Rxd2 36. Rxc8 Bxc8
37. Ha7! Þótt svartur
hafi tvo menn fyrir
hrók er hvíta staðan
unnin vegna frípeðs-
ins á b-línunni og þess
hversu illa menn svarts
vinna saman. 37… e4 38.
Be2 Rb3 39. Hc7 Bf5 40. Bc4
Rd4 41. g4 Bg6 42. b5 Rxb5
43. Bxb5 e3 44. f3 f6 45. Bd7
h5 46. Bf5 og svartur gafst
upp. Minningarmót Guð-
mundar Arnlaugssonar
hefst í dag, 7. ágúst, kl. 17.00
og fer fram í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð.
Áhorfendur eru velkomnir til
að fylgjast með sterkustu
skákmönnum þjóðarinnar
etja kappi í hraðskák.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
HLUTAVELTA
Þessar duglegu stúlkur héldu tombólu og söfnuðu þær
8.727 krónur til styrktar Rauða krossi Íslands. Þetta
eru þær Brynhildur, Sæunn, Sigurbjörg Eva, Guðrún
Björg og Sigrún Alda.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
LJÓN
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert dularfull persóna sem
dregst að hinu óvenjulega.
Samskiptahæfileikar þínir
eru með besta móti og fólki
finnst þú hafa góðan húmor.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú skalt ekki láta ímyndunar-
aflið hlaupa með þig í gönur. Í
dag átt þú það á hættu að
blekkja sjálfa(n) þig og æsa
þig upp úr öllu valdi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eina stundina eru allir að ríf-
ast og þá næstu þykjast þeir
vera Móðir Theresa. Þú skalt
ekki trúa því að einhver
standi við gefin loforð í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ef til vill dreymir þig um að
halda af stað til framandi
landa og veita hinum þurfandi
hjálparhönd. Í dag sækja
þessir draumar á þig. Horfðu
á sjónvarpið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur mikla löngun til þess
að eyða peningum í hluti sem
auka á þægindi þín. Ef þú
hefur efni á því skaltu láta
verða af því, annars ekki.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú átt það á hættu að láta
blekkja þig í dag. Það lítur út
fyrir að allt sé með felldu en
það er ef til vill ekki raunin.
Sýndu varkárni.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft ekki að fórna þér í
vinnunni til þess að skipta
einhverju máli. Þú ert engu
síðri en aðrir og skalt ekki
láta telja þér trú um annað.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Forðastu það eins og heitan
eldinn að ímynda þér ástar-
samband sem er fullkomið.
Að öllum líkindum gefur þú
mikið af þér en færð ekkert í
staðinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú hefur áhyggjur af vini
þínum gæti dagurinn í dag
verið tilvalinn til þess að rétta
honum hjálparhönd.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú átt erfitt með að einbeita
þér í dag. Það ríkir mikil ring-
ulreið og þú átt það á hættu
að tileinka þér lífsreglur sem
eru ekki til eftirbreytni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú skalt ekki sýna of mikla
gjafmildi í dag. Þú átt það á
hættu að gefa meira en þú
hefur efni á. Slíkar gjafir
koma engum vel, sérstaklega
ekki þér.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Í dag er kjörið að hugsa um
ástvini sína. Þú sérð þó sjald-
an gallana í fari þeirra sem þú
elskar. Allir hafa einhverja
galla.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Einhver gæti rétt þér hjálp-
arhönd í vinnunni í dag. Vertu
viss um að það hangi ekkert á
spýtunni. Hjálp án skilyrða er
óvenjuleg.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
FYLGD
Komdu, litli ljúfur,
labbi, pabba stúfur,
látum draumsins dúfur
dvelja inni um sinn,
heiður er himinninn.
Blærinn faðmar bæinn,
býður út í daginn.
Komdu, kalli minn.
Göngum upp með ánni,
inn hjá mosaflánni,
frammeð gljúfragjánni,
gegnum móans lyng,
– heyrirðu, hvað ég syng,–
líkt og lambamóðir
leiti á fornar slóðir
innst í hlíðahring.
Guðmundur Böðvarsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
„HVER sem er getur unnið
fimm tígla,“ segir Bobby
Wolff í formála sínum að
þessu spili og bætir við í
hvatningarskyni: “Aðeins
góðir spilarar sjá hvernig
best er að spila fjögur
hjörtu.“
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ DG9872
♥ DG7
♦ K
♣D62
Suður
♠ --
♥ ÁK842
♦ ÁD97654
♣3
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 tígull
Pass 1 spaði 2 lauf 2 hjörtu
Pass 2 spaðar Pass 3 hjörtu
Pass 4 hjörtu Allir pass
Vestur kemur út með
laufgosa og fær að eiga slag-
inn. Aftur kemur lauf, sem
suður verður að trompa.
Tólf slagir gætu hæglega
staðið til boða ef tígullinn
kemur 3–2 og trompið ekki
verr en 4–1, en hér er vand-
inn að tryggja tíu slagi ef
rauðu litirnir liggja báðir
illa. Hvernig á að spila með
það í huga?
Segjum sem svo að báðir
lykillitirnir brotni 4–1. Þá
gengur ekki að spila beint af
augum, taka tígulkóng, síð-
an trompin og spila tígl-
unum. Suður þarf að gefa
tígulslag og á ekki tromp
eftir til að nýta tígulinn. Á
sama hátt hrynur spilið ef
sagnhafi reynir að stinga
tígul í borði og spaða heim.
Norður
♠ DG9872
♥ DG7
♦ K
♣D62
Vestur Austur
♠ K6543 ♠ Á10
♥ 3 ♥ 10965
♦ G1083 ♦ 2
♣G108 ♣ÁK9754
Suður
♠ --
♥ ÁK842
♦ ÁD97654
♣3
Eina leiðin til að ráða við
þessa legu er að fórna a.m.k.
einum trompslag. Tígul-
kóngur er tekinn í öðrum
slag, síðan er hjarta spilað á
ás, tígull stunginn með gosa,
hjartadrottning yfirdrepin
með ás og tígli spilað. Aust-
ur fær vissulega tvo slagi á
tromp, en sagnhafi heldur
valdi á spilinu með smá-
trompunum tveimur heima.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
FRÉTTIR
Verkið hefur gengið mjög vel en
það felst í styrkingu og lengingu á
eldri sjóvarnargarði, en áætlað
magn af flokkuðu grjóti og kjarna-
fyllingu var um 11.000 rúmmetrar.
Grjótið var sprengt úr námu við
bæinn Hvalnes sunnanvert við
fjörðinn um 7 til 8 km frá þorpinu.
NÚ ER að ljúka framkvæmdum við
grjótvörn utan á gömlu bryggju á
Stöðvarfirði. Verkið var boðið út á
vordögum og bárust fjögur tilboð í
verkið. Lægsta tilboðið átti Guðjón
Sverrisson, verktaki frá Egils-
stöðum, 16.450 þúsund krónur sem
var 79,1% af kostnaðaráætlun.
Morgunblaðið/Bjarni Gíslason
Grjótvörn utan á bryggju
Stöðvarfirði. Morgunblaðið.
SJÚKRAVÖRUR EHF. Verslunin Remedia
í bláu húsi v/Fákafen, sími 553 6511.
Sendum í
póstkröfu.
Sumaruppbót í
versluninni Remedíu
Nýkomnar hinar sívinsælu
handunnu mokkasíur.
Einnig með reimum.
15% afsláttur
Mikið úrval af opnum
þýskum sjúkraskóm í hörlit
og svörtu. Tvær nýjar
tegundir
Mikið úrval af
stuðnings- og
flugsokkum frá
Samson og
Delilah.
Stuðnings-
sokkabuxur.
Allar stærðir af
Sigvaris 503
sjúkrasokkum.
15% afsláttur af öllum
sokkum og sokkabuxum.
10% afsláttur
af öðrum skóm.