Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 07.08.2003, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR 42 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Opna Þönglabakkamótið Ræst verður út frá kl. 08.00 til 10.00 og frá 13.00 til 15.00. Skráning rástíma í síma 486 4495 hefst miðvikudaginn 6. ágúst 2003. Mótsgjald kr. 3000. Haldið á golfvelli Kiðjabergs Grímsnesi, Árnessýslu laugardaginn 9. ágúst 2003 Mótið er punktamót. Hæst er gefið 24 punktar hjá körlum og 28 punktar hjá konum. Einnig er spilað í gestaflokki. Veitt verða verðlaun fyrir fjögur efstu sæti í öllum flokkum. Nándarverðlaun fyrir alla á 3/12, 7/16, annað högg á 9/18 braut. FIMMTA og næst síðasta stigamót Golfsambands Íslands, á Toyotamótaröðinni, Mastercard-mótið, verður haldið á Grafarholtsvelli GR um helgina. Búast má við spennandi keppni enda verða flestir þeir efstu á mótaröðinni með og munu berjast fyrir stigunum sem í boði eru. Heiðar Davíð Bragason úr GKj í Mosfellsbæ er efstur að stigum á mótaröðinni, er með 317 stig, fjórtán stigum meira en Örn Ævar Hjartarson úr GS. Þeir verða báðir með um helgina en Magnús Lárusson úr GKj, sem er í þriðja sæti með 289 stig, getur ekki tekið þátt þar sem hann verður með á sterku móti í Englandi. Næstu menn þar á eftir verða allir með, Sigurjón Arn- arsson, GR, með 282 stig, Helgi Birkir Þórisson, GS með 278 og Hlynur Geir Hjartarson, GOS með stigi minna. Ragnhildur Sigurðardóttir úr GR er með forystu í kvennaflokki og það nokkuð góða því hún er með 285 stig en Þórdís Geirsdóttir úr Keili er með 238 stig. Anna Lísa Jóhannsdóttir úr GR er með 204 og Katrín Dögg Hilm- arsdóttir úr GKj 180. Heiðar Davíð og Örn Ævar berjast GUÐJÓN Þórðarson, knattspyrnustjóri Barnsley, hef- ur loksins fengið staðfestingu á því frá enska knatt- spyrnusambandinu að lið hans geti hafið keppni í 2. deildinni á laugardaginn kemur. Sambandið veitti Barnsley keppnisleyfi á þriðjudag, með þeim skil- málum að fjárgæslumenn félagsins taki fulla ábyrgð á því að Barnsley geti staðið við allar sínar skuldbind- ingar. Nýir eigendur hafa ekki tekið endanlega við stjórn félagsins þó þeir séu langt komnir með það og fjárgæslumennirnir sem skipaðir voru á sínum tíma eru því enn ábyrgir fyrir daglegum rekstri þess. Þeir hafa ekki tilkynnt formlega að þeir ábyrgist leikinn á laugardaginn en talsmaður þeirra sagði í gær að unn- ið væri að því að tryggja hann og aðra leiki Barnsley á tímabilinu. Barnsley mætir Colchester á heimavelli í fyrstu umferðinni á laugardag og Guðjón er með marga leikmenn til reynslu þessa dagana en hann hef- ur aðeins getað stillt liðinu upp í einum opinberum æf- ingaleik á undirbúningstímabilinu. Barnsley með skilyrt leyfi ÚRSLIT KNATTSPYRNA 1. deild karla: Kópavogur: HK – Víkingur .......................19 Ásvellir: Haukar – Breiðablik ...................19 2. deild karla: Siglufjörður: KS – Völsungur ...................19 Þróttarvöllur: Léttir – Selfoss ..................19 3. deild karla A: Tungubakki: Númi – Skallagrímur ..........19 3. deild karla D: Vopnafj.: Einherji – Leiknir F. .................19 1. deild kvenna A: Smárah.: Breiðablik 2 – HSH ....................... KÖRFUKNATTLEIKUR Promotion Cup, smáþjóðakeppni í stúlknaflokki, Ásvöllum: Skotland – Malta ........................................17 Andorra – Gíbraltar ...................................19 Í KVÖLD KNATTSPYRNA Efsta deild kvenna, Landssímadeildin Stjarnan – Þróttur/Haukar....................1:1 Harpa Þorsteinsdóttir 83. – Fjóla Dröfn Friðriksdóttir 73. Rautt spjald: Guðrún Inga Sívertsen Þrótti/ Haukum, 85. Staðan: KR 11 9 2 0 51:10 29 Breiðablik 10 7 0 3 32:22 21 Valur 9 6 2 1 31:12 20 ÍBV 9 6 1 2 34:10 19 Stjarnan 10 2 2 6 12:20 8 Þór/KA/KS 9 2 0 7 6:26 6 FH 10 2 0 8 8:37 6 Þróttur/Haukar 10 1 1 8 8:45 4 Markahæstar: Hrefna Jóhannesdóttir, KR .................... 21 Ásthildur Helgadóttir, KR ...................... 13 Elín Anna Steinarsdóttir, Breiðabliki.... 10 Olga Færseth, ÍBV................................... 10 Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV.............. 9 Kristín Ýr Bjarnadóttir, Val ..................... 8 Ólína G. Viðarsdóttir, Breiðabliki ............ 7 Laufey Ólafsdóttir, Val .............................. 7 Mhairi Gilmour, ÍBV.................................. 6 Erna B. Sigurðardóttir, Breiðabliki......... 5 Margrét Ólafsdóttir, Breiðabliki .............. 5 Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni ......... 5 Meistaradeild Evrópu Önnur umferð í forkeppni, seinni leikir: Maccabi Tel Aviv – Zilina........................1:1  Zilina vann samtals 2:1. Sliema – FC Kaupmannahöfn.................0:6  FC Kaupmannahöfn vann samtals 10:1. Shakhtar Donetsk – Tiraspol..................2:0  Shakhtar Donetsk vann samtals 2:0 . Vardar Skopje – CSKA Moskva.............1:1  Vardar Skopje vann samtals 3:2. Rosenborg – Bohemians..........................4:0  Rosenborg vann samtals 5:0. Slavia Prag – Leotar ................................2:0  Slavia Prag vann samtals 4:1. Omonia Nicosia – Wisla Krakáv.............2:2  Wisla Krakáv vann samtals 7:4. CSKA Sofía – Pyunik...............................1:0  CSKA Sofía vann samtals 3:0. Anderlecht – Rapid Búkarest .................3:2  Anderlecht vann samtals 3:2. Grazer AK – SK Tirana...........................2:1  Grazer AK vann samtals 7:2. HJK Helsinki – MTK Búdapest.............1:0  MTK Búdapest vann samtals 3:2. Celtic – FBK Kaunas...............................1:0  Celtic vann samtals 5:0. Dinamo Zagreb – Maribor ......................2:1  Dinamo Zagreb vann samtals 3:2. Djurgården – Partizan Belgrad..............2:2  Partizan Belgrad vann á mörkum skor- uðum á útivelli 3:3. 3. umferð Liðin sem mætast í þriðju umferð for- keppni Meistaradeildar Evrópu – og keppa um sæti í riðlakeppninni – eru: Vardar (Makedóníu) – Sparta Prag (Tékkl.) MTK (Ungverjal.) – Celtic Glasgow Rangers – FC Kaupmannahöfn Austria Vín – Marseille FC Brugge – Borussia Dortmund Shakhtar Donetsk – Lokomotiv Moskva Lazio – Benfica Dynamo Kiev (Úkr.) – Dinamo Zagreb Rosenborg – Deportivo La Coruna (Spáni) Grasshoppers (Sviss) – AEK Aþena Zilina (Slóvakíu) – Chelsea Celta Vigo (Spáni) – Slavia Prag (Tékkl.) Partizan Belgrade (Serbíu)– Newcastle Galatasaray (Tyrkl.) – CSKA Sofia (Búl.) Anderlecht (Belgíu) – Wisla (Póll.) Grazer AK (Aust.) – Ajax (Hollandi) Intertoto-keppnin Undanúrslit, seinni leikir: Koper – Heerenveen ................................1:0  Heerenveen vann samtals 2:1 Wolfsburg – Cibalia..................................4:0  Wolfsburg vann samtals 8:1 Liberec – Schalke .....................................0:0  Schalke vann samtals 2:1 Werder Bremen – Pasching....................1.1  Pasching vann samtals 5:1 Perugia – Nantes......................................0:0  Perugia vann samtals 1:0 Villarreal – Brno.......................................2:0  Villarreal vann samtals 3:1  Liðin sex sem eftir eru í keppninni leika um þrjú sæti í UEFA-bikarnum. Noregur Bikarkeppnin, 16 liða úrslit: Lillestrøm – Vålerenga........................... 1:1  Vålerenga sigraði 11:12 eftir framleng- ingu og vítaspyrnukeppni. Raufoss – Mandalskameratene ............. 6:1 Skeid – Sogndal ....................................... 1:1  Skeid sigraði 6:5 eftir framlengingu og vítaspyrnukeppni. Viking – Haugasund................................ 1:2 Ørn-Horten – Bodø/Glimt........................1:3 Austurríki Austria Vín – Mattersburg......................3:0 Kärnten – Bregenz...................................1:1 KÖRFUKNATTLEIKUR Promotion Cup Smáþjóðakeppni í stúlknaflokki, Ásvöll- um: Malta – Grikkland.................................71:32 Ísland – Andorra...................................70:52 Evrópumót drengjalandsliða U18, undankeppni á Ítalíu: Ítalía – Ísland .....................................120:80 Stigahæstir: Jóhann Ólafsson 25, Kristján Sigurðsson 15 og Baldur Ólafsson 13 stig. FÓLK  ROBERT Licu, rúmenski hand- knattleiksmaðurinn sem á að leysa Ólaf Stefánsson af hólmi hjá Magde- burg, spilar í kvöld fyrsta leik sinn með félaginu í fimm ár. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar mæta þá Säve- hof frá Svíþjóð í æfingaleik. Licu lék með Magdeburg á sínum tíma en hefur undanfarin ár spilað með Eisenach og Post Schwerin.  ÞAÐ verður nóg að gera hjá Al- freði, Sigfúsi Sigurðssyni og fé- lögum því um helgina tekur Magde- burg þátt í alþjóðlegu móti í Þýskalandi. Þar er liðið í riðli með Savineski frá Rúmeníu og Créteil frá Frakklandi en í hinum riðlinum eru Svíarnir í Sävehof, Snorri Steinn Guðjónsson og félagar í Grosswallstadt og svissneska liðið Grasshoppers.  AIK frá Svíþjóð, mótherji Fylkis í UEFA-bikarnum í knattspyrnu, hef- ur fengið til sín miðjumanninn De- rek Boateng frá Panathinaikos í Grikklandi. Boateng, sem er tvítug- ur Ghanabúi, hefur spilað með Panathinaikos í tvö ár og á að baki leiki með liðinu í Meistaradeild Evr- ópu.  BOATENG verður þó ekki lögleg- ur í leikjunum við Fylki en getur spilað með í 1. umferð UEFA-bik- arsins, komist sænska liðið þangað. Áður hafði AIK fengið annan Ghana- búa, sóknarmanninn Kwame Quansch, að láni frá Ajax í Hollandi.  GYLFI Einarsson skoraði tvö mörk, bæði beint úr aukaspyrnum, þegar varalið Lilleström vann Eids- vold, 4:0, í norsku 2. deildinni í knatt- spyrnu á dögunum. Gylfi þótti besti maður vallarins en hann hefur fá tækifæri fengið með aðalliðinu í sumar. Hann var í byrjunarliðinu í fyrstu fjórum umferðum úrvals- deildarinnar, lenti þá í fjögurra leikja banni og hefur aðeins spilað tvo leiki með aðalliðinu síðan.  SPÁNSKI hjólreiðakappinn Jav- ier Pascual Llorente féll á lyfjaprófi í Tour de France hjólreiðakeppninni á dögunum og er hann sá eini sem féll á fjölmörgum lyfjaprófum sem tekin voru í mótinu. Sá spánski var tekinn í próf eftir 12. leiðina þann 18. júlí, en hann lauk þó keppni og varð í 27. sæti.  ÞAÐ voru leifar af EPO í sýni Pascuals. „Ég er saklaus og treysti engu sem Frakkar gera því þeir of- sækja spánska hjólreiðamenn,“ sagði kappinn eftir að tilkynnt var um niðurstöður prófanna. Landi hans, Txema del Olmo var settur í þriggja ára bann í Frakklandi árið 2001.  FRANSKA liðið Lyon hefur hug á að fá ástralska miðherjann Mark Viduka, 27 ára, til sín frá Leeds og er liðið tilbúið að láta brasilíska varn- armanninn Edmilson í skiptum, en aftur á móti er hann ekki spenntur fyrir að fara til Leeds. NORSKU bikarmeistararnir, Vål- erenga, eru komnir í 8 liða úrslit bikarkeppninnar eftir sigur á Lille- ström eftir framlengdan leik og vítaspyrnukeppni, 12:11. Leikurinn fór fram á heimavelli Lilleström, Ärasen. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var 1:1 en eftir það tók við ótrúleg víta- spyrnukeppni. Allir 22 leikmenn- irnir á vellinum höfðu skorað. Því varð að að grípa til annarrar um- ferðar. Spilandi þjálfari Vålerenga, Kjet- il Rekdal, skoraði úr fyrstu spyrnu annarrar umferðar. Arild Sundgot tók síðan spyrnu fyrir Lilleström, en þá loks tóks öðrum markverð- inum að verja og bikarmeistararnir fögnuðu sigri. Indriði Sigurðsson var eini Ís- lendingurinn í liði Lilleström en þurfti að fara meiddur af leikvelli um miðjan síðari hálfleik. Óvæntustu úrslit gærkvöldsins voru í Stavanger þegar heimamenn úr Viking voru slegnir út af 1. deildarliðinu Haugasund, 2:1. Hannes Þ. Sigurðsson kom inná sem varamaður í liði Viking. Ótrúlegur bikarleikur STJARNAN og Þróttur/Haukar skildu jöfn í efstu deild kvenna í gærkvöldi í Garðabæ, 1:1. Fyrri hálfleikur var mjög tíðindalítill og fátt var um fína drætti. Þróttur/ Haukar komst yfir á 73. mínútu, þar var að verki Fjóla Dröfn Frið- riksdóttir. Harpa Þorsteinsdóttir jafnaði leikinn fyrir Stjörnuna tíu mínútum síðar með fallegu marki og þar við sat. Þegar fimm mínútur voru eftir af leiknum fékk Guðrún Inga Sívertsen, Þrótti/Haukum, sitt annað gula spjald og þar með rautt. Stjarnan, sem lék í gær undir stjórn Auðar Skúladóttur, var nær sigrinum en fór illa með góð færi í síðari hálfleik. Stjörnustúlkur eru nú komnar með sjö stig en Þróttur/ Haukar situr sem fastast á botn- inum með fjögur stig. Hins vegar eru þær langt frá því að vera falln- ar því stutt er í liðin fyrir ofan þær. Jafnt í Garðabæ Reuters Talað heim… David Beckham og samherjar hans hjá Real Madrid eru komnir til Hong Kong, eftir að hafa leikið í Kína og Japan í Asíuferð sinni. Þeir leika síðan síðasta leikinn í Taí- landi áður en haldið er heim eftir vel heppnaða ferð. Rosenborg mætir La Coruna ÁRNI Gautur Arason var ekki í marki Rosenborg, sem vann stórsigur á írska liðinu Bohemians á Lerkendal í gær- kvöldi, 4:0, og samanlagt 5:0. Rosenborg mætir Deportivo La Coruna frá Spáni í næstu umferð og það lið sem fagnar sigri kemst í Meistaradeild Evrópu. Fyrri leikurinn verð- ur í Rosenborg og er óhætt að segja að róður norska liðsins verði þá erfiðari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.