Morgunblaðið - 07.08.2003, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
VIÐSKIPTI innlendra aðila með erlend verðbréf
voru mun meiri fyrstu sex mánuði þessa árs en á
sama tíma í fyrra. Alls námu viðskiptin tæpum
14,5 milljörðum króna en voru 6,8 milljarðar árið
2002. Mest eru viðskipti með erlend hlutabréf en
innlendir aðilar hafa selt erlend skuldabréf. Ís-
lenskir lífeyrissjóðir eru langstærstu aðilarnir í
þessum viðskiptum.
Bjarni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri lífeyr-
issjóðsins Framsýnar, segir að erlendar fjárfest-
ingar lífeyrissjóða hafi aukist frá árinu 1997 en
aftur hafi dregið úr þeim á árunum 2000 til 2002.
Nú séu þær að aukast aftur eftir að sumir lífeyr-
issjóðir hættu alveg að fjárfesta erlendis þegar
lægð var á mörkuðum. Hann segir að erlendar
fjárfestingar séu hluti af áhættudreifingu sjóð-
anna auk þess sem sterk króna geri þessi viðskipti
eftirsóknarverðari.
Héldu að sér höndum í fyrra
Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lífeyr-
issjóðs sjómanna, segir það tilfinningu sína að líf-
eyrissjóðirnir stefni í auknum mæli með fjárfest-
ingar sínar til útlanda. Stjórnendur sjóðanna hafi
haldið að sér höndum í fyrra og fjárfest lítið er-
lendis. Í fjárfestingarstefnu flestra lífeyrissjóða sé
hlutfall erlendra fjárfestinga af eignasafni mun
hærra en það sé í dag.
„Menn hafa verið að bíða eftir jákvæðum frétt-
um til að fara af stað aftur. Ég held að það sé alveg
augljóst að meira er fjárfest úti en gert hefur verið
undanfarin ár,“ segir Árni. Það hafi komið vel út
að fara hægt í sakirnar í þessum efnum árið 2001.
Samt sé vont ef hlutfall erlenda eigna sé lítið og
sjóðirnir njóti ekki uppsveiflu á markaðnum.
Árni segir starfsmenn lífeyrissjóðanna öðlast sí-
fellt meiri þekkingu og reynslu í þessum fjárfest-
ingum. Fjárfestingarstefna sjóðanna sé í stöðugri
endurskoðun.
„Ég held að fjárfestingarstefnur lífeyrissjóð-
anna í dag séu mun betur og ítarlegar unnar en
fyrir sjö árum síðan. Það byggist m.a. á aukinni
þekkingu sjóðanna. Vinnubrögðin eru alltaf að
verða faglegri og faglegri með hverju árinu,“ segir
Árni og bætir við að stöðugt sé verið að velja hæf-
ari aðila til samstarfs.
Kjöraðstæður fyrir erlendar fjárfestingar
Albert Jónsson, forstöðumaður eignastýringar
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, segir að veik-
ing krónunnar og lækkun á hlutabréfamörkuðum
hafi haft þau áhrif að lífeyrissjóðir fjárfestu minna
en ella erlendis á árunum 2001 og 2002. Botninum
hafi svo verið náð á síðasta ári; fyrst í júlí og síðan í
október. Eftir stríð í Írak og vaxtalækkanir sé um-
hverfi erlendra fjárfestinga hagstætt. „Það eru
kjöraðstæður fyrir lífeyrissjóði til að fjárfesta er-
lendis og það má gera ráð fyrir að þeir haldi sinni
stefnu þó menn hafi dregið lappirnar á meðan
krónan var sem veikust,“ segir Albert.
„Það er lykilatriði að íslenskir lífeyrissjóðir
flytji áhættuna úr íslensku hagkerfi yfir í önnur
hagkerfi heimsins. Það íslenska er smátt og ein-
hæft að mörgu leyti miðað við önnur hagkerfi.
Margir þættir í umhverfinu segja að það sé skyn-
samlegt núna,“ segir Albert.
Lífeyrissjóðir fjárfesta á
ný erlendis í auknum mæli
UM síðustu áramót voru erlend verðbréf stærstu
lífeyrissjóðanna um og undir 20% af heildar-
eignum. Í fjárfestingastefnum þeirra er tilgreint
hve hátt hlutfallið skuli vera. Langtímamarkmið
margra þeirra er að allt að 40% eigna verði í er-
lendum verðbréfum.
Friðjón Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Lífiðnar, segir ekkert hafa verið fjárfest erlend-
is það sem af er árinu. Um 14,5% af eignum
sjóðsins séu í erlendum verðbréfum en lang-
tímamarkmið sé að þetta hlutfall verði allt að
35%. Það er sama hlutfall og hjá Lífeyrissjóði
verzlunarmanna. Að sögn Alberts Jónssonar,
forstöðumanns hjá Lífeyrissjóði starfsmanna
ríkisins, er stefnt að því að allt að 40% af eigna-
safni sjóðsins verði í erlendum verðbréfum árið
2012. Bjarni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri líf-
eyrissjóðsins Framsýnar, segir stefnt að því að
allt að 40% af eignum sé í erlendum verðbréfum.
40% eigna erlendis
SAMIÐ hefur verið um breytt
eignarhald á fjölskyldufyrir-
tækjunum Ingvari Helgasyni
hf. og Bílheimum ehf. sem
stunda innflutning á bílum.
Bræðurnir Júlíus Vífill og Guð-
mundur Ágúst Ingvarssynir og
móðir þeirra, Sigríður Guð-
mundsdóttir selja eignarhluti
sína þriðja bróðurnum, Helga
Ingvarssyni, og hópi fjárfesta með honum. Í kjölfar-
ið láta þeir af störfum sínum hjá fyrirtækjunum;
Júlíus Vífill hefur verið stjórnarformaður og Guð-
mundur forstjóri. Ekki hefur verið gengið frá því
hverjir taka við störfum þeirra.
Gengið frá samningum í fyrradag
Júlíus Vífill Ingvarsson tjáði Morgunblaðinu í
gær að gengið hefði verið frá samningum um söluna
í fyrradag. Verða samningarnir staðfestir á næst-
unni að lokinni áreiðanleikakönnun. Júlíus Vífill
sagði söluna hafa verið í undirbúningi í nokkrar vik-
ur. Kvaðst hann sjálfur hafa um hríð hugsað sér að
selja hlut sinn og snúa sér að öðru og nú væri hag-
stæður tími til þess. Uppgangur væri í efnahagslíf-
inu og sóknarfæri á mörgum sviðum fyrir nýja eig-
endur sem hann kvaðst vilja óska allra heilla. Sagði
hann fyrirtækið verða áfram öflugt á sínu sviði.
„Ég hef starfað við fyrirtækin í rúma tvo áratugi
og hef öðru hverju íhugað að snúa mér að öðru,“
sagði Júlíus Vífill. Sem kunnugt er var Júlíus Vífill
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á síðasta kjör-
tímabili, hann hefur starfað sem óperusöngvari og
er einnig lögfræðingur að mennt. Aðspurður sagð-
ist hann geta hugsað sér að starfa á þessum sviðum
eða að öðrum fyrirtækjarekstri og kvaðst hann ætla
að taka sér góðan tíma til að íhuga hvað tæki við.
Breytingar hjá Ingvari
Helgasyni og Bílheimum
Fjölskyldu-
fyrirtækin
seld hópi
fjárfesta
FÉLÖGIN þrjú sem standa að
yfirtökutilboði í Skeljung hf.
hyggjast standa sameiginlega
að rekstri Skeljungs á næstu
mánuðum og selja eignir sem
ekki tengjast kjarnastarfsemi
félagsins.
Forstjóri Burðaráss hf., Ingi-
mundur Sigurpálsson, segir
þetta helsta atriði samkomu-
lagsins. Tíminn muni leiða í ljós
hvort Burðarás heldur bréfun-
um til lengri tíma eða nýtir sér
sölurétt á þeim, sem er hluti
samningsins.
Að sögn Sigurðar Einarsson-
ar, stjórnarformanns Kaup-
þings-Búnaðarbanka hf., mun
ekkert gerast í málinu næstu
3–6 mánuði. Yfirtakan og af-
skráning Skeljungs úr Kauphöll
Íslands taki sinn tíma.
Einar Sveinsson, forstjóri
Sjóvár-Almennra trygginga hf.,
segir að öllum leiðum sé haldið
opnum varðandi framtíðareign-
arhald á Skeljungi. Hann hafnar
því einnig að beðið sé eftir nið-
urstöðum úr athugunum Sam-
keppnisstofnunar á olíufélögun-
um hvað framhaldið varðar.
Öllum leið-
um haldið
opnum
Viðskiptablað/3&8
Kaupin á Skeljungi
GÆSIR eru nú óðum að koma úr sárum og fá flugfjaðrirnar aftur. Þessi hópur
heiðagæsa hefur haldið til í Oddkelsveri í Þjórsárverum síðustu vikurnar, en bú-
ast má við að hann dreifist hvað úr hverju þegar ungar verða fleygir og eldri
fuglarnir koma úr sárum. Leyfi var fengið hjá Umhverfisstofnun fyrir mynda-
töku úr lofti yfir verunum.
Gæsirnar flýja út á vatnið þegar hætta steðjar að, og það gerðu líka svanahjón-
in með ungana sína þegar ljósmyndari gerðist of nærgöngull. Gerðu svanirnir sig
breiða og skýldu ungum sínum fyrir myndavélinni eftir bestu getu.
Gæsirnar sem halda til í Þjórsárverum eru væntanlega fjölskyldufuglar, segir
Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur. „Hver fugl er ófleygur í tvær til þrjár vik-
ur á meðan hann er í sárum. Í Þjórsárverum eru aðallega varpstöðvar, og svo
fellir þar einhver hópur varpfugla.“ Arnór segir að þegar gæsirnar geti þá fljúgi
þær úr Þjórsárverum og dreifi úr sér til að finna betra beitarland. Svo stefna þær
á Skotland í september.
Morgunblaðið/Jóhann Ísberg
Heiðagæsir taka
brátt flugið á ný
Morgunblaðið/Kristinn