Morgunblaðið - 24.08.2003, Page 8

Morgunblaðið - 24.08.2003, Page 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Verða „bensínbræður“ úti í hinu íslenska réttarkerfi? Sumartónleikar í Listasafni Sigurjóns Með sönginn í blóðinu SÍÐUSTU sumartón-leikar í ListasafniSigurjóns, undir yf- irskriftinni Norrænt síð- sumar, verða haldnir þriðjudagskvöldið 26. ágúst klukkan 20.30. Það eru þau Hallveig Rúnars- dóttir sópransöngkona og Árni Heimir Ingólfsson pí- anóleikari sem þar munu leika verk eftir norræn tónskáld. Sönglög eftir Jean Sibelius og Hjálmar R. Ragnarsson, íslensk þjóðlög í útsetningu Hildi- gunnar Rúnarsdóttur og söngflokkinn Haugtussa eftir Edvard Grieg. Hvað réð efnisvali á tón- leikunum? Þegar við sóttum um að halda tónleika í Listasafni Sigurjóns lögðum við höfuðið í bleyti. Við héldum tónleika með mikið af franskri og þýskri tónlist í nóvember og nú langaði okkur að flytja eitthvað annað. Okkur hafði lengi langað að flytja þennan ljóðaflokk Griegs, Haugtussa. Á íslensku er þetta nú frekar óþægi- legt nafn og veldur því held ég, að hann er ekki mikið sunginn en þetta er gífurlega falleg tónlist. Við ákváðum að láta slag standa og vonum að nafnið muni ekki fæla frá. Grieg, sem er stórkost- legt söngtónskáld, sagði sjálfur að þetta væru bestu lögin sem hann hefði skrifað. Það varð úr að við ákváðum að leggja upp með nor- rænt prógramm. Við völdum tvö lög eftir Sibelius og þrjár þjóð- lagaútsetningar eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, systur mína. Þau lög eru meðal 30 annarra þjóð- lagaútsetninga eftir Bjarna Þor- steinsson sem hún útsetti fyrir Ríkisúvarpið. Frægar eru útsetn- ingar Ferdinards Ratuers á þjóð- lögum úr safni Bjarna sem gefnar voru út fyrir mörgum árum. Þessi lög valdi hins vegar Una Margrét Jónsdóttir hjá Ríkisútvarpinu úr áður óútgefnum lögum og fékk Hildigunni til að útsetja þau á ein- faldan en mjög fallegan hátt. Þá syng ég lagið Embla eftir Hjálmar H. Ragnarsson sem hann samdi til Vigdísar Finnbogadóttur í tilefni 60 ára afmælis hennar en ljóðið er eftir Njörð P. Njarðvík og var einnig afmælisgjöf hans til Vigdís- ar. Ég hef áður flutt eftir Hjálmar lagið Ástarljóð mitt. Það hefur ekki heyrst mikið hér á landi en ég hef flutt það bæði hér og eins í Englandi. Mér finnst skemmti- legra að syngja eitthvað sem ekki allir þekkja og hef sungið mjög mikið af nútímatónlist. Það er sér- staklega spennandi að frumflytja lag, þá er maður að búa til lifandi hlut úr einhverju sem áður hefur aðeins verið í höfðinu á tónskáld- inu. Hvernig finnst þér íslenskt tón- listarlíf vera í dag? Það er alveg hreint ótrúlegt hvað hér er mikið tónlistarlíf, fjöldi tónleika og þeir eru vel sótt- ir. Maður fer á tónleika í milljónaborg og þar er jafnvel svipuð að- sókn og hér. Mér finnst sorglegt hvað tónlistar- lífi hér er lítið sinnt af stjórnvöldum. Það er í raun og veru út í hött miðað við allan þann fjölda sem sækir nám í tónlistar- skólum og syngur í kórum. Það er örugglega ekki minni tónlistariðk- un hér heldur en íþróttaiðkun en samt virðast allir peningarnir vera settir í hana. Ég er á því að hér vanti nú helst óperusal. Ég hef sungið í óperu í Borgarleik- húsinu sem var miklu skárra en ég bjóst við en byggingin er samt sem áður hönnuð sem leikhús en ekki með óperuflutning í huga. Þú ert komin af tónelsku fólki, hefur það haft áhrif? Já, ég byrjaði 5 ára gömul í Skólakór Garðabæjar sem mamma stjórnaði. Þar söng ég til að byrja með en þegar kom á ung- lingsárin var ég lengst af í Hamra- hlíðarkórnum sem ég á mikið að þakka, sérstaklega Þorgerði Ing- ólfsdóttur kórstjóra. Öll systkini mín syngja, Óli var einmitt að klára söngnám í Skotlandi. Hinn bróðir minn, hann Þorbjörn, hefur þó haft einna mest að gera við sönginn, þótt það sé ekki hans að- alstarf enda er hann mjög hár og klingjandi tenór sem er sjaldgæft. Mamma og pabbi eru bæði lærðir söngvarar en hafa þó aldrei haft sönginn að atvinnu. Hvað ráðleggur þú fólki sem er að hefja söngnám? Það sem skiptir mestu máli er að bera mikla virðingu fyrir því sem verið er að gera. Þú ert að flytja tónlistina fyrir tónlistina en ekki fyrir þig. Maður heyrir um leið ef einhver er meira upptekinn af sjálfum sér heldur en því sem hann er að gera. Aldrei nokkurn tímann leyfa sér að fara óundirbú- inn á sviðið, í kirkjuna eða tón- leikana. Hvað er á döfinni hjá þér? Ég er að kenna tónfræði og síð- an verður alveg nóg að gera hjá mér í söngnum. Þar er helst á döf- inni frumflutningur á nýju verki eftir Hildi- gunni systur mína með Caput-hópnum og svo er draumurinn að flytja Italienisches Lieder- buch eftir Hugo Wolf og þá á móti Keith Reed baritónsöngvara. Ég söng með honum í fyrra í Óperu- stúdíói Austurlands hlutverk Fiordiligi í óperunni Cosi fan Tutte eftir Mozart sem mér fannst ákaflega gaman. Draumur- inn væri sá að syngja fleiri hlut- verk í framtíðinni, annars er ég til í að syngja hvað sem er nema kannski kántrítónlist. Hallveig Rúnarsdóttir  Hallveig Rúnarsdóttir er fædd 1974. Hún hóf söngnám hjá Sigurði Demetz árið 1991 en færði sig síðan yfir í Tónlistar- skólann í Reykjavík. Þar lauk hún prófi á áttunda stigi í söng undir handleiðslu Rutar L. Magnússon árið 1998. Það sama ár hóf hún nám við Guildhall School of Music and Drama í London hjá Theresu E. Gobleb og útskrifaðist þaðan árið 2001. Hallveig er í sambúð með Jóni Heiðari Þorsteinssyni stjórn- málafræðingi og eiga þau eina dóttur. Til í hvað sem er nema kántrítónlist VEL gengur með undirbúnings- framkvæmdir við Kárahnjúkavirkj- un og hyggjast menn byrja að steypa meginstífluvegginn í vetur. „Nú er verið að gera tvenn hjárennslisgöng fram hjá stíflunni til að geta veitt ánni um meðan stíflan verður reist,“ segir Sigfinnur Snorrason, eftirlits- maður Landsvirkjunar við Kára- hnjúkavirkjun. „Búið er að sprengja nálægt þrjú hundruð metrum. Síðan erum við að hreinsa stíflugrunninn, bæði austan og vestan við Jöklu og það gengur ágætlega. Við erum komnir niður í hæð 630, sem er um það bil stífluhæðin hægra megin að uppistöðunni og eigum þá eftir að hreinsa niður að botninum á gljúfr- inu. Vestan megin eru ýtur að ýta jarðvegi úr stíflustæðinu alla daga og langt fram á kvöld og gengur mjög vel og er að verða langt komið.“ Unnið er í aðrennslisgöngum á þremur stöðum. „Aðgöngin á Teigs- bjargi eru komin u.þ.b. 500 m og ganga mjög vel,“ segir Sigfinnur. „Í aðgöngum tvö erum við um það bil að fara að byrja, erum búnir að sprengja um 20 metra inn og síðan hægir aðeins á þeim í bili. Í aðgöng- um þrjú er Héraðsverk að ljúka við að gera klárt, þannig að við getum bráðum farið að sprengja þar inn.“ Sigfinnur hefur ekki áhyggjur af komandi vetrarveðrum. „Þau hægja auðvitað á og ráð er gert fyrir í áætl- unum að lítið sem ekkert sé hægt að vinna í nokkra daga í hverri viku yfir háveturinn. Það er þó lengi hægt að halda áfram með ýmis verk.“ Sig- finnur segir að mestallri vegagerð á virkjanasvæðinu sé lokið. Undirbúningsframkvæmdir við virkjunina ganga vel Byrjað að steypa Kára- hnjúkastíflu í vetur Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.