Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 36
DAGBÓK 36 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Bjarni Sæmundsson og Brúarfoss koma í dag. Poseidon fer í dag. Mannamót Bólstaðarhlíð 43. Ekið um borgina og nýju hverfin skoðuð. Lagt af stað kl. 13. Kaffi og meðlæti í Golfskála Reykjavíkur. Skráning og greiðsla í síma 568 5052. Í síðasta lagi kl. 12 miðvikudagin 27.08 Allir velkomnir. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Dansleikur í kvöld kl. 20. Caprí-tríó leikur fyrir dansi. Landsbanki Íslands, aðalbanki 2. hæð Aust- urstræti, býður eldri borgurum á mál- verkasýningu Kjarvals undir leiðsögn Að- alsteins Ingólfssonar listfræðings mánudag- inn 25. ágúst kl. 11–12 og kl. 12–13. Takmark- aður fjöldi. Skráning og upplýsingar á skrif- stofu FEB, s. 588 2111. Einnig er sýningin op- in án leiðsagnar á opn- unartíma bankans mánudag og þriðjudag. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12 sími. 588 2111. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Vígsla nýs púttvallar á Ásvöll- um, þriðjudaginn 26. ágúst kl 14. Völlurinn er fyrir eldri borgara í Hafnarfirði allir eldri borgarar velkomnir, boðið upp á léttar veit- ingar á eftir. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar frá hádegi, spila- salur opinn, dans fellur niður. Mánudaginn 8. september hefst nám- skeið í postulínsmáln- ingu, skráning hafin glerskurður hefst þriðjudaginn 9. sept- ember. S. 575 7720. Hana-nú Kópavogi Farið verður í ferð út á Reykjanes laugardag- inn 30. ágúst. Lagt af stað frá Gullsmára kl. 12.50 og Gjábakka kl. 13. Pálína Jónsdóttir, leiðsögumaður. Við- komustaðir verða Kálfatjarnarkirkja, Stekkjarkot og Kefla- víkurkirkja. Þeir sem vilja taka með sér nesti en hægt er að fá sér síðdegishressingu í Dúshúsi. Skráning í Gjábakka s. 554 3400 og Gullsmára s. 564 5260. Skráningu lýkur á hádegi föstu- daginn 29. ágúst. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58–60 mánudaginn 25. ágúst kl. 20. Allir karlmenn velkomnir. Minningarkort Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu Hjartaverndar, Holta- smári 1, 201 Kópavogi, s. 535-1825. Gíró og greiðslukort. Dval- arheimili aldraðra Lönguhlíð, Garðsapó- tek Sogavegi 108, Ár- bæjarapótek Hraunbæ 102a, Bókbær í Glæsibæ, Álfheimum 74, Kirkjuhúsið, Laugavegi 31, Bóka- búðin Grímsbæ v/ Bú- staðaveg, Bókabúðin Embla Völvufelli 21, Bókabúð Grafarvogs, Hverafold 1–3. Minningarkort Hjarta- verndar, fást á eft- irtöldum stöðum á Reykjanesi: Kópavog- ur: Kópavogsapótek, Hamraborg 11. Hafn- arfjörður: Lyfja, Set- bergi. Sparisjóðurinn, Strandgata 8–10, Keflavík: Apótek Keflavíkur, Suðurgötu 2, Landsbankinn Hafn- argötu 55–57. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Vesturlandi: Akranes: Hagræði hf., Borg- arnes: Dalbrún, Brák- arbraut 3. Grund- arfjörður: Hrannarbúð sf, Hrannarstíg 5. Stykkishólmur: Hjá Sesselju Pálsd., Silf- urgötu 36. Ísafjörður: Póstur og sími, Að- alstræti 18. Stranda- sýsla: Ásdís Guð- mundsd. Laugarholti, Brú. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Austurlandi: Egils- staðir: Gallery Ugla, Miðvangur 5. Eski- fjörður: Póstur og s., Strandgötu 55. Höfn: Vilborg Einarsdóttir Hafnarbraut 37. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Norðurlandi: Ólafs- fjörður: Blóm og gjafa- vörur Aðalgötu 7. Hvammstangi: Versl- unin Hlín Hvamms- tangabraut 28. Ak- ureyri: Bókabúð Jónasar Hafnarstræti 108, Möppudýrin Sunnuhlíð 12c. Mý- vatnssveit: Pósthúsið í Reykjahlíð. Húsavík: Blómasetrið, Héðins- braut 1, Raufarhöfn: Hjá Jónu Ósk Péturs- dóttur, Ásgötu 5. Minningarkort Hjarta- verndar fást á eft- irtöldum stöðum á Suð- urlandi: Vestmannaeyjar: Apó- tek Vestmannaeyja Vestmannabraut 24. Selfoss: Selfossapótek Kjarninn. Í dag er sunnudagur 24. ágúst, 236. dagur ársins 2003, Barth- ólómeusmessa. Orð dagsins: „Ef þér hafið þekkt mig, munuð þér og þekkja föður minn. Héðan af þekkið þér hann og hafið séð hann.“ (Jóh. 14, 7.)     Guðni Ágústsson land-búnaðarráðherra sagðist í Morgunblaðinu á föstudaginn ekki hafa nein tæki til að stöðva það sem kallað hefur verið undirboð á kjöt- markaði. „Það eru lög- mál markaðarins sem þarna ríkja. Það eru frekar búgreinarnar sjálfar sem geta komið sér saman um eða hætt undirboðum.“ Eftir umræðu um verðsamráð fyrirtækja í sumar er einkennilegt að einn ráðherra rík- isstjórnarinnar beinlínis beinir því til framleið- enda kjötafurða að þeir komi sér saman um að hætta að keppa um hylli neytenda með því að lækka verð. Öðruvísi verða orð landbún- aðarráðherra ekki skil- in. Ef til vill kemur þetta viðhorf ekkert á óvart þar sem það hefur viðgengist lengi innan landbúnaðargeirans á Íslandi – oft fyrir til- stuðlan ríkisins. Enda er landbúnaður styrktur af skattgreiðendum um marga milljarða á hverju ári.     Enn er í gildi opinberverðlagning á mjólk- urvörum sem eru ein helsta nauðsynjavara á íslenskum heimilum. Samkeppnisráð beindi þeim tilmælum til land- búnaðarráðherra seint á síðasta ári að þessi framkvæmd yrði lögð af svo fljótt sem auðið er og heildsöluverðlagning á búvörum gefin frjáls. Þessu hefur ráðherra staðið gegn og sagt að breytingar verði ekki gerðar fyrr en árið 2004, þótt þessi op- inbera stýring á verði mjólkurafurða hafi átt samkvæmt búvörusamn- ingi frá 1997 að leggjast af strax 1. júlí 2001. Í hverju þessar breyt- ingar felast er ekki enn vitað en af reynslunni að dæma er ólíklegt að ríkið láti af afskiptum sínum af þessari fram- leiðslu.     B æði seinkun áfrjálsri verðlagn- ingu landbúnaðarafurða og verðsamráð á kjöt- markaðnum fara gegn hagsmunum neytenda. Samkvæmt frétt Morg- unblaðsins á fimmtudag- inn lækkaði verð á svínakjöti um 26% í fyrra. Lambakjöt lækk- aði um 15,5% og fugla- kjöt um 8,2%. Þetta er hrein búbót fyrir ís- lenskar fjölskyldur og hefur breytt neyslu- mynstri þeirra mikið undanfarin ár. Þrátt fyrir gríðarlega nið- urgreiðslu á lambakjöti, sem neytendur standa undir með skatt- greiðslum sínum, reyn- ist það mun dýrara en bæði svína- og fuglakjöt. Þá staðreynd verða bændur að horfast í augu við í stað þess að reyna að hækka verð á þeim afurðum sem keppa við lambakjötið. Það er ekki í þágu al- mennings. STAKSTEINAR Landbúnaðarráðherra hvetur til samráðs Víkverji skrifar... OFT hefur verið fjallað um eins-leitt úrval matar sem hægt er að kaupa á veitingastöðum og sjoppum á landinu. Mest er lagt upp úr að selja hamborgara og franskar kart- öflur, pylsur og flatbökur. Verðið er hátt og gæði matarins oft lítil. Einn stað rakst Víkverji óvænt á í Reykjahlíð sem stingur í stúf við marga aðra veitingastaði úti á landi og það er Gamli bærinn. Þar var hægt að fá úrvalsmat á sanngjörnu verði og ekki spillti fyrir að þjón- ustan var alveg fyrsta flokks. Annan son Víkverja langaði í silung en ótt- aðist að skammtur sem ætlaður er fullorðnum væri sér ofviða. Að fyrra bragði bauðst þjónninn til að minnka skammtinn fyrir unga manninn sem var himinlifandi og borðaði hann gómsætan silunginn af bestu lyst. Í Gamla bænum borðaði fjögurra manna fjölskylda Víkverja hollan og góðan mat fyrir sanngjarnt verð sem var kærkomin tilbreyting á ferðalag- inu frá sjoppufæðinu og víst er að næst þegar farið verður um þessar slóðir verður Gamli bærinn aftur fyrir valinu. x x x VÍKVERJI getur ekki stillt sig umað minnast á aðstöðu ferða- manna við Dettifoss sem lýsir ís- lenskum kotungshætti. Þegar Vík- verji kom að Dettifossi á dögunum í blíðskaparveðri var þar fjöldi út- lendinga, margt af því var eldra fólk. Flestir treystu sér ekki til að klöngr- ast stíginn niður að fossinum frá bílastæðunum, en hann er brattur og torfær. Voru það greinileg von- brigði hjá mörgum sem komnir voru til að sjá vatnsmesta foss Evrópu að þurfa að horfa á hann úr fjarlægð. Hvernig stendur á því að ekki er mögulegt að laga stíginn þannig að hann verði öllum fær? Binda jarð- veginn svo að fólk standi ekki í sand- stormi ef eitthvað hreyfir vind eða þurfi að vaða for í rigningartíð? Eins og staðan er nú þá á ekki einungis eldra fólk í erfiðleikum með að kom- ast niður að fossinum heldur er fötl- uðum einnig ómögulegt að komast í tæri við þennan gimstein. x x x ÞÁ ER eystri afleggjarinn fráþjóðvegi 1 að fossinum óvið- unandi. Verið var að vinna á hluta vegarins og óskandi er að það skili sér í bættum vegi í framtíðinni. Vörubifreiðastjórarnir sem þar óku um og Víkverji mætti á fjölskyldubíl sínum sýndu litla tillitssemi og óku greitt þannig að við lá að hætta skapaðist. Ekki verður skilið við Dettifoss og aðstöðuna án þess að minnast á kamrana. Þann dag sem Víkverji var á staðnum var keytulyktin svo yfir- gnæfandi inni á kömrunum að hann þakkaði sínum sæla fyrir að þurfa aðeins að kasta af sér vatni. Aðstaða ferðamanna við Dettifoss mætti vera mikið betri. BRÉF þetta er ritað í til- efni af bréfi sem birtist í Velvakanda þriðjudaginn 19. ágúst þar sem bréfrit- ari fjallar um og ber sam- an verðskrá Bláa lónsins – heilsulindar og sundlauga. Það er að okkar mati ekki sambærilegt að bera saman verðskrá Bláa lóns- ins – heilsulindar og sund- lauga. Í fyrsta lagi vegna þess að sundlaugarekstur er þjónustustarfsemi á veg- um sveitarfélaga og er að- gangseyrir að sundlaugum að stórum hluta niður- greiddur af sveitarfélög- unum. Í öðru lagi er Bláa lónið – heilsulind ekki staður þar sem fólk kemur til að stunda sund heldur til að slaka á, njóta vellíðanar, fjölbreyttrar heilsulindar- þjónustu og heilsubætandi eiginleika jarðsjávarins, sem er einstakur á heims- vísu, m.ö.o. Bláa lónið – heilsulind er ekki sund- laug. Mun raunhæfara er að bera verðskrá Bláa lónsins – heilsulindar saman við verðskrá annarra heilsu- linda. Í því efni má benda á heilsulindarþjónustu bæði á Hótel Nordica eða Hótel Sögu og einnig Saga Spa í Kópavogi. Einnig má nefna aðra fjölbreytta möguleika, sem standa fólki til boða til að njóta vellíðanar og afþreyingar, t.d. skíði, golf o.þ.h. Mig langar einnig til að vekja athygli á afsláttar- kortum okkar sem veita ótakmarkaðan aðgang að heilsulindinni, en þriggja mánaða kort kostar 7.200 kr. og árskort 12.000 kr. Þá má einnig geta þess að það er frítt fyrir börn 11 ára og yngri í fylgd með fullorðnum og unglingar (12–15 ára) greiða hálft gjald. Kveðja, Magnea Guðmunds- dóttir, markaðsstjóri Bláa lónsins hf. Hver er maðurinn? ÞESSA mynd tók Ólafur Magnússon, konunglegur ljósmyndari, en ekki er ljóst af hverjum hún er, myndin fannst í eigu Guðna Brynjólfssonar, sonar Brynjólfs Stefáns- sonar, sem eitt sinn var forstjóri Sjóvár. En hver er maðurinn? Gott væri ef upplýsingar gætu borist í síma 568 6457. Tapað/fundið Gullhringur í óskilum GULLHRINGUR fannst nálægt Hlemmi, fyrir 3 til 4 vikum. Upplýsingar í síma 553 3472. Pakki til Emilíu í óskilum PAKKI er í óskilum stíl- aður á Emilíu Sigurðar- dóttur í Danmörku sem ekki fannst. Ekki er skráð- ur sendandi á pakkanum. Þeir sem kannast við pakkann vinsamlega hafið samband í síma 866 0908. Fingravettlingur í óskilum SVARTUR með hvítri rönd, hægri handar fingra- vettlingur, fannst á efra bílaplaninu við Kringluna sl. föstudag. Upplýsingar í síma 581 4185. Húfa og jakki í óskilum BRYNJAR Örn, Folda- skóla, skildi húfu og jakka eftir við dælustöð Hita- veitunnar í Logafold, Grafarvogi. Hann getur sótt það í Logafold 140, sími 567 6204, ef hann vill. Digital Nikon- myndavél týndist DIGITAL Nikon coolpix 3100-myndavél týndist í miðbænum á menningar- nótt síðastliðinni. Ef þú hefur einhverjar upplýs- ingar ertu beðinn um að hringja í Davíð í síma 865 4238 eða Fríðu í síma 822 5523. Fjólublátt hjól týndist 11 ÁRA gamalt fjólublátt DBS (classic city) karl- mannsreiðhjól hvarf í síð- ustu viku í Vesturbænum. Ef einhver athugull les- andi hefur rekist á það þá vinsamlegast hafið sam- band í síma 551 9438 eða 662 2374. Dýrahald Kettlingar fást gefins 4 SVARTIR kettlingar með hvítar loppur leita að góðum heimilum. 8 vikna gamlir, ljúfir og kassavan- ir. Kattavinir hafi sam- band í síma 869 3847 Kettlingar fást gefins FJÓRIR, litlir kelnir kett- lingar fást gefins á gott heimili. Upplýsingar í síma 697 3761 eða 661 8019. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Bláa lónið – heilsulind LÁRÉTT 1 vel við aldur, 8 radd- arhæsi, 9 krap, 10 skart- gripur, 11 juða, 13 til- biðja, 15 karlfugl, 18 sjá eftir, 21 sé, 22 dimmviðri, 23 ræktuð lönd, 24 liggur í makindum. LÓÐRÉTT 2 orðrómur, 3 móka, 4 dáin, 5 ótti, 6 lítill, 7 ósoðna, 12 háttur, 14 fiskur, 15 heiður, 16 guð- lega veru, 17 kátt, 18 eina sér, 19 dýr af froska- ætt, 20 hina. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 hrafl, 4 fætur, 7 tengt, 8 öngul, 9 Týr, 11 lært, 13 gróa, 14 elfur, 15 rugl, 17 árás, 20 kal, 22 dysja, 23 jakki, 24 aðall, 25 teiti. Lóðrétt: 1 hótel, 2 asnar, 3 létt, 4 fjör, 5 tugur, 6 rolla, 10 ýlfra, 12 tel, 13 grá, 15 rudda, 16 gusta, 18 rukki, 19 skipi, 20 karl, 21 ljót Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.