Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 31
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 31
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
EINAR KR. EIRÍKSSON
frá Brekku, Fáskrúðsfirði,
Seljahlíð,
Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 13. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánu-
daginn 25. ágúst kl. 13.30.
Kristbergur Einarsson,
Pétur Einarsson, Margrét Aðalsteinsdóttir,
Matthildur Einarsdóttir, Ólafur Ben Snorrason,
Erlingur Einarsson, Hanna Júlíusdóttir,
Stefán Einarsson, Þuríður Júlíusdóttir
og afabörnin.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
KJARTAN GUNNARSSON
fyrrverandi apótekari,
lést sunnudaginn 17. ágúst.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 27. ágúst kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlega
bent á líknarfélög.
Dóróthea Jónsdóttir,
Guðlaug Kjartansdóttir, Fjölnir Ásbjörnsson,
Gunnar Kjartansson,
Sigurður Kjartansson, Sólborg Hreiðarsdóttir,
Guðrún Kjartansdóttir, Agnar Hansson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÍÐUR ÁSTRÁÐSDÓTTIR
Dista,
Vesturgötu 7,
Reykjavík,
sem andaðist laugardaginn 16. ágúst, verður
jarðsungin frá Kristskirkju, Landakoti, þriðju-
daginn 26. ágúst kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á líknarfélög.
Ástráður S. Guðmundsson, Erlín Óskarsdóttir,
Reynir K. Guðmundsson,
Gunnar F. Guðmundsson,
Guðmundur Garðar Guðmundsson, Sigríður Valgeirsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir mín, frænka, systir, mágkona og
tengdamóðir,
HELGA SIGRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR,
Starhaga 14,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni föstu-
daginn 15. ágúst, verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni fimmtudaginn 28. ágúst kl. 13.30.
Ingibjörg R. Guðmundsdóttir,
Andrés Jón Esrason, Bjarni Jónsson,
Jón Eiríksson, Áslaug K. Sigurðardóttir,
Timothy David Creighton, Ruth Barnett Creighton.
Okkar ástkæri faðir,
ANTON LÍNDAL FRIÐRIKSSON,
lést á heimili sínu, Vesturgötu 7, Reykjavík,
föstudaginn 22. ágúst.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Antonsdóttir,
Eyrún Antonsdóttir,
Arnrún Antonsdóttir,
Dóróthea Sturludóttir.
Elskuleg móðursystir mín, Ólöf
Guðmunda, hefði orðið áttræð 22.
ágúst. Væri hún enn á meðal vor
yrði auðvitað slegið upp stórveizlu,
en nú verður fátækleg minningar-
grein að duga.
Margar minningar koma upp í
hugann; lítill stelpukrakki skríður
árla morguns upp í rúm hjá frænku,
sem reynir að blunda áfram; Lóa
frænka syngjandi óperur, dægur-
lög, sálma; Lóa og stelpukrakkinn
syngjandi Carmen fullum hálsi í
eldhúsinu, en amma flúði þá; Lóa að
kenna stelpukrakkanum að prjóna,
sauma út, lesa eða að reka hann út í
ÓLÖF G.
JÓNSDÓTTIR
✝ Ólöf Guðmunda Jónsdóttirfæddist á Gvendareyjum á
Breiðafirði 22. ágúst 1923. Hún
lést 18. ágúst 1983 og var jarðsett
í Stykkishólmi.
góða veðrið að leika sér; rúntað á
Volkswagen bjöllu á 30 km. hraða
um Stykkishólm og nærsveitir, eftir
að hún fékk bíl; öll símtölin hennar
til mín til Frakklands, eftir að ég
fluttist þangað.
Lóa fæddist í Gvendareyjum á
Breiðafirði, en flutti ung með for-
eldrum sínum til Stykkishólms þar
sem hún bjó með þeim alla æfi.
Ungabarn fékk hún lömunarveiki,
sem olli því að hún missti fótinn um
16 ára aldur og fékk í kjölfarið
gervifót. Oft hefur mér orðið hugs-
að til Lóu og hve líf hennar hefði
orðið öðruvísi, er ég horfi uppá
kraftaverkin, sem stoðtækjafyrir-
tækið Össur hf gerir í dag. Fótleys-
ið háði henni allt lífið.Lóa vann úti
allt sitt líf og fyrst í Kaupfélaginu í
Stykkishólmi, en síðar á símstöð-
inni þar í bæ, undir stjórn Árna
Helgasonar. Árni og Ingibjörg,
kona hans, reyndust Lóu minni ein-
staklega vel og fékk hún jafnvel að
gista hjá þeim, þegar veður og snjó-
ar urðu til þess að hún átti erfitt
með að komast heim. Er þeim mikil
þökk fyrir elskusemi þeirra við
hana. Líf Lóu varð auðveldara, eftir
að hún fékk sérútbúinn bíl, en áður
hafði hún farið allra sinna ferða
gangandi, sem var oft á tíðum erf-
itt. Síðustu árin, eftir fráfall for-
eldra sinna, bjó Lóa ein í húsinu að
Sunnuhvoli, en Birgir, bróðir henn-
ar, og Inga kona hans, aðstoðuðu
hana eins og þau gátu. Lóa var
glaðlynd og stutt í dillandi hlátur-
inn hjá henni, þótt oft væri erfitt.
Hún hafði yndi af samvistum við
aðra og átti traustar vinkonur, sem
hún heimsótti reglulega. Og þótt
hún tuðaði oft í stelpukrakkanum,
þá átti hún svo stórt hjarta. Elsku
Lóa mín, þakka þér alla elskusem-
ina og ég er viss um að Guð er með
þér.
Þín
Katrín Þorvaldsdóttir.
Elsku amma mín.
Mig langar til að
skrifa smá kveðju til
þín. Þakka þér fyrir að
hafa gætt mín fyrstu árin þegar við
mamma bjuggum hjá ykkur afa.
Alltaf var passað upp á að ég fengi
nú örugglega nóg að borða og þá
VIGDÍS
GÍSLADÓTTIR
✝ Vigdís Gísladótt-ir fæddist á
Gjögri í Stranda-
sýslu 27. ágúst 1924.
Hún lést á hjúkrun-
arheimilinu Garð-
vangi í Garði 12.
ágúst síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá safnaðar-
heimilinu í Sand-
gerði 22. ágúst.
ósjaldan eldaðir þú
grjónagraut handa mér
og bakaðir pönnukök-
urnar frægu. Ég mun
ávallt minnast þín fyrir
glaðværa hláturinn og
það var alltaf mikil
kæti þegar þú komst.
Þú fylgdist vel með
búskapnum hjá okkur
Magga og fyrstu árin
komst þú stundum og
gistir hjá okkur en svo
síðustu árin fór heim-
sóknunum fækkandi.
Þú náðir aldrei að
heimsækja okkur í
Dvergholtið, mig langaði svo að sýna
þér gróðursæla garðinn okkar því þú
hafðir svo gaman af blómunum eins
og ég. Ég veit að nú líður þér vel eftir
erfið veikindi og afi hefur tekið vel á
móti þér.
Mamma, Steina, Sigga, Signý og
fjölskyldur, Guð veri með ykkur í
sorginni.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ellý.
LANDSPÍTALI
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni
og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–
16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið kl. 8–24. Sími 564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum sím-
um.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir utan skrifstofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska-Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112 Háteigskirkja. Eldri borgarar. Fé-
lagsvist á morgun í Setrinu kl. 13.
Pútt alla daga kl. 10 ef veður leyfir.
Hallgrímskirkja. Sumarkvöld við org-
elið. Orgeltónleikar kl. 20. Mark And-
erson frá Bandaríkjunum leikur.
Laugarneskirkja. Mánudagur: Opinn
12 sporafundur í safnaðarheimilinu
kl. 18. Allt fólk velkomið. Vinir í bata.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka
daga frá kl. 9-17 í síma 587 9070.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld
sunnudag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma að
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Fríkirkjan KEFAS, Vatnsendabletti
601. Í kvöld er samkoma kl. 20.00.
Sigrún Einarsdóttir talar. Lofgjörð og
fyrirbænir. Barnagæsla fyrir 1-7 ára
börn á samkomutíma. Kaffi og sam-
félag eftir samkomu. Allir eru hjart-
anlega velkomnir.
Safnaðarstarf
Móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTBJÖRG EINARSDÓTTIR,
áður til heimilis að Bárugötu 35,
Reykjavík,
andaðist föstudaginn 22. ágúst.
Þórunn Benjamínsdóttir, Magnús K. Sigurjónsson,
Eiríkur Benjamínsson,
Einar Benjamínsson, Erla M. Indriðadóttir,
Sólveig Benjamínsdóttir, Árni Páll Jóhannsson,
Guðbjörg Benjamínsdóttir, Gunnar Harðarson.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug vegna
andláts móður okkar,
JÓNÍNU H. HALBLAUB,
Digranesheiði 17,
Kópavogi.
Sigríður Halblaub,
Sólveig Halblaub,
Ólöf Halblaub,
Helga Halblaub,
Björn Halblaub
og fjölskyldur.