Morgunblaðið - 24.08.2003, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ
1 2 3 4 5 6
7
8 9
10 11
12
13
14 15 16 17 18
19 20
21 22
23 24
25
26 27
28 29
30
31
Lárétt
1. Feitur félagi. (6,8)
8. Tá meyjarinnar á himni? (9)
10. Lundarfar krata? (11)
12. Það sem hestar drekka úr að lokum? (9)
13. Hlutur eins systkinis er ætíð meiri en hinna. (12)
14. Í sumarhug fleiri eru vegna sérstaks skinns. (10)
20. Hafi mun sér í hag og hljómar líkt og bær við vatnsfall.
(7)
22. Sæti um borð í bátum. (10)
23. Heimskur að fá tryggingarfélag til sín. (5)
24. Helvíti tapar einum til manns af þekktum ættflokki.
(6)
26. Erla mont sýnir í erlendri borg. (8)
27. Spil í blóma um vetur. (10)
28. Getur lauf fallið í sænska á. (9)
30. Elektra óð yfir rafskauti. (9)
31. Gata indjánaættbálks er ekki bein. (11)
Lóðrétt
1. Við erum öll hann inn við beinið. (6)
2. Afburða laugardagur þar sem íslenskur jólamatur
finnst. (10)
3. Það er ekki gott að verða fyrir siglu Drottins. (5,4)
4. Slæmar spyrja: „Rella ég?“ (7)
5. Ekur aura með 10 nautum og vagni. (8)
6. Set part af kindum í bréf í fyrirtæki. (7)
7. Lélegur hestur er kjánalegur án þess að egna nokk-
urn. (6)
9. Samtals verð að öllu leyti. (4,6)
11. Sort fugls á holtasóley. (10)
15. Síðasta hlaup þess slóttuga undan Þór? (12)
16. Það mikill að einhver nenni að tal um hann. (12)
17. Vot við rigningu. (8)
18. Afdrep fanta er aðeins yfirvarp. (11)
19. Ekkert H2O. (7)
21. Lítill skyndibiti handa miðstéttarmanni. (10)
25. Ball og latneskur dans. (6)
29. Bý til úlf. (4)
1. Elton John er að fara að end-
urútgefa lag. Hvað heitir það?
2. Hvað heitir unnusti Liz Hurley?
3. Í hvaða mánuði verður keppnin
um Dragdrottningu Íslands?
4. Hvaða ár gáfu Spaðarnir fyrst út
efni?
5. Hvaða tvær kvennasveitir eru
að fara að spila saman á
næstunni?
6. Hvaða „böskari“ gaf út diskinn
Óð til norðursins á dögunum?
7. Hljómsveitin The Kills er að
koma til landsins í haust. Af
hverju?
8. Hvernig tónlist leikur hljóm-
sveitin Total F***ing De-
struction?
9. Hver er spúsa Bobby Brown?
10. Hvað heitir nýstofnuð útvarps-
stöð þeirra Sigurjóns Kjart-
anssonar og Dr. Gunna?
11. Í hvaða landi starfar rokk-
sveitin Kimono?
12. Hver er mesti mömmustrák-
urinn samkvæmt nýlegri könn-
un?
13. Eyjólfur B. Eyvindarson (Ses-
ar A) er að taka upp stutt-
mynd. Hvað heitir hún?
14. Í hvaða hljómsveit er söng-
konan Gwen Stefani?
15. Hvaða hljómsveit er þetta og af
hvaða tilefni birtist þessi mynd í lið-
inni viku?
1. Are You Ready For Love. 2. Arun Nayar. 3. September. 4. Árið 1987. 5. Dúkkulísur og Rokk-
slæður. 6. JoJo. 7. Hún ætlar að leika á Airwaves tónlsitarhátíðinni. 8. Mulningsrokk eða „grind-
core“. 9. Whitney Houston. 10. Skonrokk. 11. Hún starfar á Íslandi. 12. Puff Daddy. 13. Síðustu
orð Hreggviðs. 14. No Doubt. 15. Þetta eru Todmobile. Ástæða myndbirtingar er sú, að sveitin
mun leika á hljómleikum í haust ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Spurt er Spurningakeppni um efni sem finna má ásíðum Fólks í fréttum í Morgunblaðinu.
Lárétt: 1. Sómafólk, 4. Heljarstökk, 7. Fáfarinn,
9. Testamenti, 10. Loftkastali, 12. Skamm-
hlaup, 14. Rabbíni, 15. Ráma, 17. Prédikarinn,
20. Mannbroddur, 22. Eldvatn, 25. Farangur,
26. Neptúnus, 27. Koparstunga, 29. Lótus-
blóm, 30. Illdeila, 31. Hálftími, 32. Formalín.
Lóðrétt: 1. Systurskip, 2. Afstyrmi, 3. Lageröl,
4. Hefilspónn, 5. Loftfar, 6. Katalónía, 8. Rík-
arður, 11. Tíbrá, 13. Haukfránn, 16. Músarrind-
ill, 18. Radíus, 19. Olnbogabarn, 20. Mannafli,
21. Raflost, 23. Landselur, 24. Stálull, 28.
Ábót.
Vinningshafi krossgátu
Elínborg Sveinbjarnardóttir, Álftamýri 25,
108 Reykjavík. Hún hlýtur í verðlaun bók-
ina Reisubók Guðríðar Símonardóttur
eftir Steinunni Jóhannesdóttur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
1 2 3 4 5 6
7 8
9
10 11
12 13 14
15 16
17 18 19
20 21 22 23
24 25
26
27
28
29 30
31 32
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgát-
unnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni
og heimilisfangi ásamt
úrlausninni í umslagi
merktu Krossgáta
Sunnudagsblaðsins,
Morgunblaðið, Kringlan
1, 103 Reykjavík. Skila-
frestur á úrlausn kross-
gátunnar rennur
út fimmtudaginn 28.
ágúst.
Heppinn þátttakandi
hlýtur bók af bóksölu-
lista, sem birtur er í
Morgunblaðinu.
VINNINGUR ER GEFINN AF FÉLAGI ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFENDA.
K r o s s g á t u v e r ð l a u n
HEIMILSFANG
PÓSTFANG
NAFN
ALLIR sem keyptu fartölvu á far-
tölvuhátíð framhaldsskólanna sem
Penninn gekkst fyrir nýverið fengu
15.000 króna prentara gefins.
Þá var einnig happdrætti þar
sem í vinning var IBM ThinkPad
R40-fartölva að verðmæti 164.900
kr., þráðlaust net að verðmæti
19.900 kr., HP PSC 1210 fjölnota
prentari að verðmæti 20.000 kr.,
innistæða á Námsmannareikningi
hjá Sparisjóðnum að upphæð
20.000 kr., tvær 10.000 kr. inn-
eignir á Svarta kortið frá VISA,
kassar af Pepsi X og fleiri góðir
vinningar.
Vinninginn hlaut Rán Bachmann
Einarsdóttir. Rán Bachmann Einarsdóttir
Fartölvu-
hátíð
framhalds-
skólanna
FLOKKSRÁÐ Vinstrihreyfing-
arinnar samþykkti um síðustu
helgi ályktun þar sem er hnykkt á
því að réttur sveitarfélaga til
sjálfsákvörðunarréttar sé virtur.
Flokksráðið varar við hugmynd-
um um að smærri sveitarfélög
verði þvinguð til sameiningar.
Í tilefni af því að nú eru um
hundrað dagar liðnir frá því að
ríkisstjórnin var mynduð vekur
flokksráðið „athygli á því hvernig
ósvífin framganga og óvandaður
málatilbúnaður stjórnarflokkanna
í kosningabaráttunni sl. vor [hafi]
afhjúpast undanfarnar vikur“. VG
segir að alvarlegum málum eins
og verðsamráði olíufélaga og bréfi
um fyrirhugaðan brottflutning
herflugvéla Bandaríkjanna hafi
verið haldið leyndum fyrir al-
menningi.
VG gagnrýnir einnig frestun
framkvæmda við Héðinsfjarðar-
göng og tafir við upptöku á línu-
ívilnun. Í þessum málum segir VG
að ríkisstjórnin hafi gengið á bak
orða sinna. Þá átelur flokksráð
VG ríkisstjórnarflokkana og Sam-
fylkinguna fyrir að hafa ekki birt
fjárhagsupplýsingar eftir af-
staðna kosningabaráttu.
Að lokum samþykkti flokksráð
VG ályktun um sjálfstæða ís-
lenska utanríkisstefnu. Í ályktun-
inni er stefna ríkisstjórnarinnar í
málefnum Íraks fordæmd.
„Flokksráð Vinstrihreyfingarinn-
ar – græns framboðs lýsir fullri
ábyrgð á hendur formanna stjórn-
arflokkanna fyrir að hafa gert Ís-
land samábyrgt fyrir ólögmætu
árásarstríði í Írak sem réttlætt
var með blekkingum og lygum.“
Flokksráð Vinstrihreyfingarinnar
Sakar stjórnina um svik
SENDIHERRAR Íslands erlendis
koma saman til fundar í utanríkis-
ráðuneytinu 25.–26 ágúst. Tilgang-
urinn er að ræða helstu pólitísku
áherslumálin á Íslandi, samræma
starfið og skiptast á upplýsingum
um störf og starfshætti sendiráð-
anna.
Þetta kemur fram í fréttatilkynn-
ingu frá utanríkisráðuneytinu.
Fundurinn hefst með erindi utan-
ríkisráðherra, Halldórs Ásgrímsson-
ar, um megináherslur og verkefni
framundan í íslenskum utanríkis-
málum. Síðan ýmis önnur mál, þ.m.t.
hvalveiðar, á dagskránni.
Síðari daginn munu sendiherrar
funda með Davíð Oddssyni forsætis-
ráðherra, Valgerði Sverrisdóttur
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
Geir H. Haarde fjármálaráðherra.
Þetta er í fyrsta sinn sem skipulagð-
ur samráðsfundur sendiherra er-
lendis er haldinn á Íslandi.
Sendiherrar
Íslands hittast