Morgunblaðið - 24.08.2003, Page 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 21
Dagskrá:
Borin verður upp tillaga um að hluthafafundur samþykki
að kaupa samtals 60.611.274 hluta nafnverðs í félaginu
(eigin hluti) af Skeljungi hf. á genginu 27,3 og lækki
samhliða hlutafé félagsins um 60 milljónir hluta
nafnverðs, eða úr 585 milljónum niður í 525 milljónir
hluta að nafnverði.
verður haldinn mánudaginn
8. september 2003, kl. 16.00.
Fundarstaður: Grand Hótel Reykjavík.
í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
Hluthafafundur
ÞÓTT höfundur bókar þessarar sé
sjálfur skráður fyrir útgáfunni hefur
hann notið margvíslegrar aðstoðar,
meðal annars stuðnings fjársterkra
fyrirtækja og stofnana á heimaslóð.
Formála skrifar Halldór Blöndal.
Ekki amalegt að hefja útreiðar á
skáldfáknum í fylgd sjálfs þingforset-
ans sem er þar að auki landskunnur
hagyrðingur! Upplýst er í eftirmála
að Jón hafi meir en ekki komið við
sögu félagslífs í héraði, meðal annars
glatt heimamenn með hljóðfæraleik.
Þar sem hann er maður aldurhniginn
má vafalaust líta á stuðninginn sem
þakklætisvott fyrir góða skemmtun
og vel unnin störf. Enn er á að líta að
kveðskapur hans tengist mjög lífinu í
átthögunum, ekki beint lífsbaráttunni
sem slíkri heldur stóru stundunum í
lífinu. Í bókinni er að finna fjölmörg
tækifæriskvæði um nafngreinda ein-
staklinga. Þar til má telja eftirmæli,
brúðkaupsljóð og afmælisvísur. Sumt
er kveðið í orðastað annarra, og þá
vafalaust nágranna eða skyldmenna
sem einnig eru þá nafngreind. Þar
tekst Jóni vafalaust best upp. Hann
fer gætilega með gáfu sína, gerist
ekki um of nærgöngull við yrkisefnið,
sveipar það fremur viðeigandi hátíð-
leika og fetar troðnar slóðir í brag-
arháttum og orðavali. Á þann veg
verður að skoða og meta þessi ljóð.
Þetta er stemmingakveðskapur þar
sem fegurð og hugljómun svífur yfir
vötnunum. Orð eins og: geislafagur …
fagurblár … sólgullinn … safírblár …
töfrandi … glitrandi – setja víða svip á
textann.
Kynslóð Jóns ólst upp við skólaljóð
og söngtexta þar sem Þorsteinn og
Einar skipuðu öndvegi. Enginn ætl-
ast til að lærisveinninn verði fremri
meistaranum. Að hætti gömlu skáld-
anna heldur Jón órofa tryggð við rím
og ljóðstafi. Síst skal það lastað. En
fastheldnin við formið leiðir stundum
til að annað verður undan að láta, svo
sem venjubundin orðaröð. Láta fall-
ast í svefn verður þannig »svefn í fall-
ast láta« svo dæmi sé tekið. Svona
nokkuð kölluðu menn skáldaleyfi svo
aftur sé skírskotað til gömlu góðu
daganna. Sem dæmi þess hvernig Jón
getur best kveðið skal tekið Aðventu-
ljóð, »gert fyrir kirkjukór Ólafsfjarð-
ar« eins og þar stendur. Auk þess sem
kvæðið er einfalt og þýtt vitnar það
um trúartraust höfundar, sem reynd-
ar kemur fram víðar í bókinni:
Alkyrrðar upp runnin stund
umvefur dali og grund,
í bæ hverjum blasa við ljós,
boða þá fegurstu rós.
Um undrið sem alltaf er nýtt
óma nú söngvarnir þýtt,
færandi frið yfir grund
og fögnuð á heilagri stund.
Þótt blási oft stórviðri stríð,
styttist í fagnaðartíð.
Gefi oss gleðileg jól
guðs mildi – og hækkandi sól.
Lausavísur Jóns eru síðri, nema
dýravísur sem hann hefur allmargar
ort.
Sveitarskáld var sá fyrrum kallað-
ur sem orti fyrir sveit sína með svip-
uðum hætti og þjóðskáld kvað fyrir
þjóðina. Af kvæðum þeim, sem Jón
hefur ort til sveitunga sinna, og stuðn-
ingi þeim, sem útgáfa bókar hans hef-
ur notið, má líta svo á að hann rísi vel
undir þeirri nafnbót.
Ljóst er að vandað hefur verið til
útgáfunnar – með einni undantekn-
ingu þó. Setning textans hefur sýni-
lega miðast við allmiklu stærra brot
með þeim afleiðingum að blaðrendur
eru óþolandi naumt skornar. Mjóu
munar t.d. að hluti formálans – þar
með talin undirskrift þingforsetans –
hverfi inn í kjölinn.
BÆKUR
Kvæði
eftir Jón Árnason frá Syðri-Á. 87 bls. Útg.
höfundur. Prentvinnsla: Svansprent.
Ólafsfirði 2003.
FJALLAÞYRNAR OG FJÖRUSPREK
Tækifæriskveðskapur
Erlendur Jónsson
Í upphafi var
morðið eftir Árna
Þórarinsson og
Pál Kristin Páls-
son er komin út í
kilju.
Kristrún er ung-
ur kvikmyndaleik-
stjóri sem er að
vinna að heimild-
armynd um ár í ævi jökuls þegar
móðir hennar deyr með voveiflegum
hætti. Samband þeirra mæðgna
hafði, eins og fleira í fortíð Krist-
rúnar, verið erfitt og átakamikið. Áð-
ur en Kristrún veit af er hún sjálf
komin á kaf í rannsókn á dularfullri
atburðarás sem kollvarpar því sem
hún hafði áður talið sannleikann um
ævi sína.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 268 bls., prentuð í Dan-
mörku. Kápu hannaði Ámundi Sig-
urðsson. Verð: 1.599 kr.
Kilja
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111