Morgunblaðið - 24.08.2003, Síða 27
þessu fólki. Slíkt tal er ábyrgðar-
laust. Það er líka ábyrgðarlaust að
reka fólk úr meðferð vegna þess að
því líkar ekki hugmyndafræðin og
trúarlegi þátturinn sem ítrekað er
reynt að sannfæra með. Tregðan við
að endurskipuleggja meðferð-
arkerfið og taka upp annað hug-
myndakerfi en AA er þriðja ástæðan
fyrir því að meðferðarstofnanir hér
eru alltaf fullar.
Fjórða ástæðan er svo tengd
óskipulegu forvarnarstarfi.
Umræða um forvarnir við mis-
notkun vímugjafa og fíkn í vímu-
gjafa kemur alltaf uppá yfirborðið
með reglulegu millibili. Ýmiss konar
átök hafa verið í gangi hér um lengri
eða skemmri tíma sem miða að for-
vörnum og úttekt er gerð á nýgengi í
hópi neytenda. Sumir segja að unga
fólkið sé að minnka við sig neyslu
aðrir segja að neyslan aukist ár frá
ári. Ýmislegt bendir til þess að rann-
sóknaraðilar séu oftar en ekki að
skoða ólíka þætti meðal ólíkra hópa
og fái því ólíkar niðurstöður, þannig
að öll umræðan um gagnsemi for-
varna verður ákaflega stefnu- og
merkingarlaus. En eitt er víst að í
huga almennings er vímugjafa-
neysla ungmenna hvort heldur
neysla áfengis eða ólöglegra vímu-
gjafa skelfilegt böl, og mun meira
böl en neysla foreldrakynslóð-
arinnar, sem er mun neyslufrekari á
vímugjafa en unglingarnir. En sem
betur fer verða ekki allir háðir vímu-
gjöfum sem prófa þá. En hver og
einn er samt sem áður í ákveðinni
áhættu, líka góði, prúði unglingurinn
sem stundar íþóttir af kappi. Það
virðist sem að aflokinni hverri for-
varnarherferðinni vaxi tvö höfuð á
drekann ógurlega eftir að eitt hefur
verið höggvið af. Herferðir standa
yfirleitt í stuttan tíma, ná ákveðnu
risi í byrjun og lognast svo útaf og
enginn tekur mark á neinu. Þær eiga
það flestar sameiginlegt að vera ein-
angraðar frá flestu því sem fólk
tengist í daglegu lífi, hvort heldur
unglingar, ungt fólk eða hinir eldri.
Skilvirkni í árangri við að draga
úr skaða sem vímugjafaneysla veld-
ur, þarf að byggja á forvörnum,
meðferð og eftirfylgni eftir meðferð.
Þessir þrír þættir þurfa að tengjast
hugmyndafræðilega. Nauðsyn er að
endurskoða gaumgæfilega þá hug-
myndafræði og meðferðarlíkan sem
notuð eru á meðferðarstofnunum og
meta árangur á núverandi meðferð
af óháðum aðilum með við-
urkenndum vísindalegum aðferðum.
Ef ekki, þá þróast málin hratt í þá
átt að meðferðirnar og forvarnirnar
verða algerlega sjálfmiðaðar, aðeins
til fyrir eigin hag en ekki fyrir þann
hóp sem þeim var í upphafi ætlað að
þjóna.
Höfundur er doktor frá Minnesota-
háskóla í ráðgefandi sálfræði.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 2003 27
Hagamelur - neðri sérhæð
Glæsileg 171 fm neðri sérhæð við Hagamel í nýlegu
fjórbýlishúsi auk 28,0 fm bílskúrs. Hæðin skiptist m.a.
í 3-5 svefnherbergi, stórar samliggjandi stofur með
stórum svölum til suðurs, stórt amerískt eldhús með
nýjum sérsm. innréttingum, gesta salerni og stórt bað-
herbergi. Þvottaaðstaða er í íbúðinni. Vandaðar inn-
réttingar og gólfefni.
Allar nánari uppl. veitir Guðmundur á skrifstofu Fasteignamarkaðarins.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Bílaþvottastöðin Bílasturtan
Bíldshöfða
Er með í einkasölu vel rekna bílaþvottastöð í eigin húsnæði á
frábærum stað á Bíldshöfða í Reykjavík. Fyrirtækið er vel tækjum
og búnaði búið og með fína viðskiptavild. Húsnæðið er um 300
fm að stærð ásamt millilofti. Um er að ræða tvær sjálfvirkar
vélar og tekur önnur þeirra allt að 35 tommu dekk. Þarna er
um að ræða fyrirtæki með mikla vaxtamöguleika.
Allar nánari uppl. veitir Kristinn í síma 897 2338.
53 50 600 www.husin.is 53 50 600
Sigurður Óskarsson, lögg. fastsali.
Sveinn Óskar Sigurðsson, lögg. fastsali.
Opið hús milli 13 - 16
BARÓNSSTÍGUR 43
Vorum að fá mjög góða 3ja herbergja íbúð á
1. hæð. Rúmgóð stofa. Tvö svefnherbergi.
Gestasalerni. Baðherbergi innaf hjónaher-
bergi. Eldhús með ljósri innréttingu. Parket og
dúkur á gólfi. Stutt í alla þjónustu. Verð 10,9
millj. (594) Páll Diego sýnir.
GVENDARGEISLI 24
Glæsilegar 4ra herbergja 127 fm fullbúnar
íbúðir með sérinngangi ásamt stæði í bílakjall-
ara. Íbúðirnar skilast fullfrágengnar með park-
eti á gólfum. Eldhúsinnrétting verður spónlögð
úr mahóníi, rafmagnstæki hvít, keramikhellu-
borð, ofn og vifta. Baðherbergi skilast flísalagt
í hólf og gólf. Hjónaherb. hafa fataherbergi
innaf. Barnaherbergi skilast með fataskáp.
Þvottahús/geymsla innan íbúðar.
Verð 18,9 millj. Sigtryggur sýnir.
Opið hús milli 14 - 17
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Heiðarás - einbýli
Fallegt og vel skipulagt 279 fm einbýlishús á tveimur
hæðum með 49 fm innb. bílskúr. Á neðri hæð er for-
stofa, hol, gestasalerni og eitt herb. auk 2ja herb. sér-
íbúðar. Uppi eru saml. stofur með arni og mikilli loft-
hæð, eldhús m. eikarinnrétt., búr inn af eldhúsi, 2-3
svefnherb. og flísal. baðherb. Vestursvalir út af stofu.
Gróinn garður. Hiti í stéttum og í innkeyrslu. Áhv.
húsbr. 6,4 millj. Verð 32,0 millj.
Heiðargerði - parhús
Gott 232 fm parhús á tveimur hæðum auk 30 fm bíl-
skúrs. Á neðri hæð er forstofa, hol, 2-3 herb., þvotta-
herb., geymsla, eldhús og borðstofa. Uppi eru sam-
liggjandi stofur, 2 herb. og baðherbergi. Hiti í stéttum
og plani. Skjólgóður og fallega ræktaður garður. Verð
27,9 millj.
Móabarð - einbýli
Fallegt 165 fm einbýlishús sem er hæð og kj. auk 31
fm bílskúrs. Hæðin skiptist í forst., flísal. baðherb.,
rúmgóða stofu, eldhús m. borðaðst. og 3 góð herb.
auk 2ja-3ja herb. séríbúðar í kj. Ræktuð lóð m. hellul.
verönd. Hús klætt að utan. Áhv. 15 millj. langtímalán.
Ekkert greiðslumat. Áhv. 15 millj. langtímalán. EKK-
ERT GREIÐSLUMAT. Verð 18,5 millj.
Staðarbakki - raðhús
Fallegt 145 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt 22 fm
bílskúr. Eignin skiptist í forstofu, þrjú herbergi auk for-
stofuherb., eldhús með búri inn af, stofu með útgangi
á stórar flísalagðar suðursvalir, flísalagt baðherbergi
og þvottahús. Fallegur garður með timburverönd. Áhv.
húsbr. 7,3 millj. Verð 20,5 millj.
Hamrahlíð - hæð
Glæsileg og vel skipulögð 107 fm 4ra herb. efri sér-
hæð í góðu steinhúsi auk bílskúrsréttar og sérbíla-
stæðis á lóð. Hæðin skiptist í rúmgott hol, eldhús með
nýjum innréttingum og góðri borðaðstöðu, saml. stof-
ur, tvö góð herbergi, bæði með skápum og flísalagt
baðherbergi. Parket á gólfum. Stórar suðursvalir.
Geymsluris yfir íbúð. Áhv. byggsj./húsbr. 2,5 millj.
Verð 18,9 millj.
Klapparstígur - 3ja herb.
Góð 84 fm íbúð á 2. hæð í nýlegu fjölbýli. Rúmgóð
stofa, vestursvalir, eldhús m. góðri borðaðst. og 2
rúmgóð herbergi. Þvottaaðst. í íbúð. Vel staðsett eign
í miðborginni. Áhv. byggsj./húsbr. 3,7 millj. Verð 13,5
millj.
Reykjahlíð - 3ja herb.
Góð 85 fm íbúð á 2. hæð á þessum eftirsótta stað. Íb.
skiptist í forst., saml. skiptanl. stofur, eldhús m. borð-
aðst., búr, 1 herb. og flísal. baðherb. Vestursvalir. Nýir
gluggar og gler. Verð 14,2 millj.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Ránargata 12a - sérinngangur
Mjög falleg og nánast algjörlega endurnýjuð 84 fm efri
sérhæð og ris í fallegu steinhúsi. Á hæðinni er stórt
opið rými, stór stofa og eldhús m. eyju og vönd. tækj-
um og baðherb. með þvottaaðst. og í risi er stórt opið
rými, nýtt sem svefnherb. Vand. innrétt. og nýlega
slípuð furugólfborð á gólfum. Verð 14,7 millj.
Verið velkomin í dag á milli kl. 14 og 16.
Grenimelur 26 - neðri sérhæð
Mjög falleg, mikið endurnýjuð og vel skipulögð 101 fm
neðri sérhæð auk 25 fm bílskúrs í fallegu steinhúsi.
Hæðin skiptist í forstofu þaðan sem er innangengt í
sameign í kjallara, stórt hol, rúmgóðar skiptanl. stofur,
eldhús með nýlegum innréttingum, 2 svefnherb. og
baðherb. Vandaðar innréttingar og gólfefni Sér-
geymsla í kjallara. Verð 21,2 millj.
Verið velkomin í dag á milli kl. 14 og 16.
Furugrund 62 - auka íbúð í kjallara
Falleg og þó nokkuð endurnýjuð 138 fm íbúð á 2. hæð
í tveggja hæða litlu fjölbýlishúsi á þessum eftirsótta
stað. Íbúðin sem er 110 fm skiptist í hol (sjónvarps-
hol), rúmgott eldhús með frábæru útsýni yfir Foss-
vogsdalinn, stofu, þrjú parketlögð herbergi og flísalagt
baðherbergi. Suðursvalir. Þvottaaðstaða í íbúð. Auk
þess fylgir 28 fm einstaklingsíbúð og sérgeymsla í
kjallara. Verð 16,9 millj.
Verið velkomin í dag á milli kl. 14 og 16.
Opin hús í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Um er að ræða fallega og vel
skipulagða 4ra herbergja íbúð,
106 fm, á 3. hæð. Fallegar end-
urnýjaðar innrétt. Sérþvottahús
inn af eldhúsi. Þrjú svefnher-
bergi. Yfirbyggðar svalir. Stutt í
alla þjónustu.
Verð 10,9 millj.
Kristín býður ykkur velkomin.
Sími 568 5556
Völvufell 50
Opið hús í dag, sunnudag,
kl. 14-17
Kokkabókastatíf
Verð 3.990 kr.
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Litir: Svart, blátt,
grænt, grátt
Nýtt! drapplitur