Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 1
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra ræddi við George W. Bush
Bandaríkjaforseta um stöðu varn-
armála Íslands er þeir hittust í boði
í tengslum við allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna í New York. „Ég
fór í móttöku hjá Bush Bandaríkja-
forseta í gær (þriðjudag) og hann
gaf sér góðan tíma til að tala við
mig. Við ræddum um varnarmálin
og af því samtali er ljóst að hann
mun halda áfram að fylgjast með
málinu og gerir sér grein fyrir við-
kvæmni þess,“ segir Halldór í sam-
tali við Morgunblaðið.
Halldór hefur einnig rætt við Col-
in Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, og Elizabeth Jones,
aðstoðarráðherra í utanríkisráðu-
neytinu, sem kom hingað til lands til
viðræðna við íslensk stjórnvöld í
sumar. „Það liggur fyrir eftir þau
samtöl að þetta mál er í eðlilegum
farvegi. Það mun taka nokkurn
tíma að fjalla um þessi mál og alveg
ljóst að Bandaríkjamenn vilja ná
niðurstöðu sem er viðunandi fyrir
báða aðila. Ég er viss um það að
málið mun verða unnið í vinsamlegu
andrúmslofti á grundvelli gagn-
kvæmrar virðingar en ekki með ein-
hliða hætti eins og við vorum af-
skaplega ósáttir við,“ sagði Halldór.
Hann sagði forsetann fyrst og
fremst vilja ná niðurstöðu sem væri
byggð á gagnkvæmni. Halldór segir
það einnig hafa komið skýrt fram í
samtölum við Powell og Jones að
forsetinn sé áhugasamur um málið
og að fyrir liggi skýr pólitískur vilji
af forsetans hálfu að leysa það.
Utanríkisráðherra sagði ekkert
enn liggja frekar fyrir um efnisat-
riði málsins og það væri ljóst að
menn væru ekkert að flýta sér neitt
sérstaklega. „Það eru að hefjast við-
ræður um varnarviðbúnað almennt
í Evrópu. Ég á von á að mál er varða
Ísland muni tengjast því.
Niðurstaða á næsta ári
Jafnframt hefur verið ákveðið af
hálfu Atlantshafsbandalagsins að
setja á laggirnar viðbragðssveitir
og það starf er að hefjast. Ég býst
við því að allt þetta muni tengjast.“
Halldór segist telja að málið muni
taka nokkurn tíma. „Ég sé ekki fyr-
ir mér niðurstöðu í þessu máli fyrr
en einhvern tímann á næsta ári.“
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra ræddi varnarmál Íslands við Bush Bandaríkjaforseta
Skýr pólitískur vilji að finna lausn
Lausn á grunni gagnkvæmrar virðingar
Halldór Ásgrímsson ræddi m.a. við George W. Bush, Colin Powell og
Elizabeth Jones í Bandaríkjaferð sinni. Hann segist viss um að málið
verði unnið „á grundvelli gagnkvæmrar virðingar“.
AP
Frá fundi olíumálaráðherra OPEC-
ríkjanna í Vínarborg í gær.
Olíuverð
hækkar
OPEC minnkar framleiðsl-
una um 900.000 föt á dag
Vín. AFP.
OLÍUVERÐ hækkaði á heimsmarkaði í
gær eftir að tilkynnt var að samtök olíu-
útflutningsríkja, OPEC, hefðu ákveðið að
minnka olíuframleiðsluna um 900.000 föt á
dag. Ákvörðunin tekur gildi í byrjun nóv-
ember og stefnt er að því að OPEC-ríkin
ellefu framleiði þá 24,5 milljónir olíufata á
dag.
Þessi tíðindi komu á óvart á olíumörk-
uðunum og urðu til þess að verðið á Brent-
hráolíu úr Norðursjó hækkaði um 1,16 doll-
ara í 26,68 dollara á fatið. Verðhækkunin í
New York var svipuð.
STOFNAÐ 1913 259. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Guðni verðbréfamiðlari og Bryndís
eru heima í 5 mánuði Viðskipti 10
Semur
fyrir Kylie
Kylie Minogue syngur lag eftir
Emilíönu Torrini Fólk 50
Glæpasögur
áberandi
Anna Einarsdóttir og Bókastefnan
í Gautaborg Listir 27
Frábært
feðraorlof
BRÆÐURNIR Hákon Guttormur
og Höskuldur upplifðu mikið æv-
intýri í sumar ásamt föður sínum,
Gunnlaugi Sigurðssyni, þegar
stærstu ávextir sem þeir höfðu
augum litið tútnuðu út í gróður-
húsi þeirra feðga í Kópavoginum,
risastór grasker sem orðin eru 30
kg að þyngd. „Þeir höfðu þann
starfa piltarnir að sjá um þessar
plöntur í sumar og urðu gríðar-
lega spenntir, því þeim fannst
þetta eitthvað dularfullt sem var
að gerast fyrir augunum á þeim.
Fyrst komu feikilega áberandi
stór blóm og síðan mjög hressileg-
ir ávextir. Þeir ætluðu varla að
trúa sínum eigin augum að sjá
hvað þetta stækkaði mikið,“ segir
Gunnlaugur. Nú hyggst fjöl-
skyldan hesthúsa graskerin.
„Þetta er ágætismatur og Banda-
ríkjamenn nota grasker mikið í
bökur og súpur. Það tekur vel
kryddi og er náskylt kúrbít.“Morgunblaðið/Árni Sæberg
Risagrasker
í Kópavogi
25 ÁRA karlmaður var handtekinn í Stokkhólmi í
gær vegna gruns um að hann hefði myrt Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Sænskir
fjölmiðlar sögðu að lögreglan væri sannfærð um
að hún hefði náð morðingjanum. Rannsókn á hári
af hinum grunaða er sögð hafa komið lögreglunni
á sporið. Peter Althin, lögmaður hans, sagði í
gærkvöldi að hann neitaði sök.
Hálffertugur Svíi, sem áður hafði verið hand-
tekinn vegna málsins, var leystur úr gæsluvarð-
haldi skömmu síðar og er ekki lengur grunaður
um morðið.
Yfirsaksóknarinn Agneta Blidberg sagði að
handtakan í gær byggðist á traustari forsendum
en fyrri handtakan. Hún lagði hins vegar áherslu
á að ekki væri hægt að skýra frá sönnunargögn-
unum fyrr en á laugardag þegar óskað yrði form-
lega eftir því að hinn grunaði yrði úrskurðaður í
gæsluvarðhald.
Fréttavefur sænska dagblaðsins Dagens
Nyheter kvaðst hafa heimildir fyrir því að hinn
handtekni væri alveg eins í útliti og maðurinn á
myndunum úr öryggiskerfi NK-verslunarmið-
stöðvarinnar í Stokkhólmi þar sem morðið var
framið. „Þetta er hann!“ fullyrti heimildarmaður
blaðsins í lögreglunni. „Við erum viss um að hafa
náð rétta manninum,“ hafði TT-fréttastofan eftir
lögreglumanni sem tekur þátt í rannsókninni.
Að sögn Dagens Nyheter tókst lögreglunni að
tengja hinn grunaða við morðvopnið og húfu sem
talið er að morðinginn hafi átt. Blaðið segir að
hann hafi farið til hárskera skömmu eftir morðið
og lögreglan fengið að rannsaka hárið sem klippt
var af. DNA-rannsókn á hárinu hafi staðfest
grunsemdir hennar og orðið til þess að skriður
komst á rannsóknina.
Dagens Nyheter segir að hinn grunaði sé 25
ára, á sakaskrá og búi á Stokkhólmssvæðinu.
Hann hafi ánetjast fíkniefnum og eigi við geðræn
vandamál að stríða. Hann hafi leitað sér hjálpar á
geðsjúkrahúsi eftir morðið en honum hafi verið
vísað á dyr þar sem sjúkrahúsið hafi ekki getað
annast hann.
Sænska lögreglan sögð viss um að hafa náð morðingja Önnu Lindh
Hárið kom upp um hann
AP
Leif Jennekvist lögregluforingi og Agneta
Blidberg yfirsaksóknari á blaðamannafundi.
GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti og
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands,
sættust eftir margra mánaða deilur um
Írak á fundi þeirra í New York í gær.
Bush sagði eftir að hafa rætt við Schröd-
er að deilur þeirra um Írak heyrðu nú sög-
unni til og þýski kanslarinn tók í sama
streng. Þetta var fyrsti fundur leiðtoganna í
sextán mánuði og stirt hefur verið á milli
þeirra á þeim tíma vegna harðrar andstöðu
Schröders við stefnu Bandaríkjastjórnar í
Íraksmálinu.
Bush og
Schröder
sættast
Sameinuðu þjóðunum. AFP.
Ágreiningurinn/12
♦ ♦ ♦