Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 8

Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skjáturnar ykkar, ætlið þið að setja stéttina endanlega á hausinn með þessu ofáti ykkar? Evrópski tungumáladagurinn Að efla vitund um tungumál EVRÓPSKI tungu-máladagurinnverður verður haldinn á morgun, föstu- dag. Morgunblaðið ræddi við Sigfríði Gunnlaugs- dóttur, verkefnastjóra hjá Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur í erlendum tungumálum, um dag- skrána sem í boði er. Er löng hefð fyrir Evr- ópskum tungumáladegi? „Evrópskur tungumála- dagur er haldinn hátíðleg- ur núna í þriðja skiptið. Fyrsta skiptið sem hann var haldinn hátíðlegur var í tilefni af Evrópska tungu- málaárinu árið 2001. Það var síðan ákveðið að þetta yrði árlegur viðburður.“ Hver eru markmið dagsins? „Markmið dagsins eru að efla vitund almennings um mikilvægi tungumálakunnáttu og auka fjöl- breytni tungumála sem eru kennd með það að markmiði að stuðla að fjöltyngi og skilningi á menningu annarra þjóða. Einnig að vekja at- hygli á tilveru og gildi allra tungu- mála sem töluð eru í Evrópu og að hvetja til símenntunar í tungumál- um, bæði til að koma til móts við efnahagslegar, félagslegar og menningarlegar breytingar í Evr- ópu og sem lið í því að styrkja sjálfsmynd einstaklingsins.“ Hvaða dagskrá er í boði á Evr- ópskum tungumáladegi? „Það er margvísleg dagskrá í boði. Til dæmis hafa skólar, menntastofnanir og aðrir hags- munaaðilar um allt land verið hvattir til þess að vinna að verk- efnum tengdum tungumálum og menningu Evrópuþjóða. Það virð- ast mjög margir skólar og stofn- anir ætla að taka þeirri áskorun. Það verða sérstök tungumála- verkefni í gangi í mjög mörgum skólum. Ég get nefnt sem dæmi að skólar úti á landi, t.d. á Vest- fjörðum, ætla að fá erlenda íbúa í heimsókn. Grunnskólinn á Súða- vík ætlar að bjóða fólki frá ýmsum löndum sem er búsett í þorpinu í skólann og hafa morgunkaffi og fá það til að kenna krökkunum og kennurum nokkur orð úr sínu tungumáli. Svo hafa tónmennta- kennararnir verið að æfa lög, t.d. frá Finnlandi og Makedóníu, sem þau ætla að syngja saman. Þau ætla að eiga þarna notalega stund saman og velta fyrir sér mikilvægi þess að vera læs á aðra menning- arheima. Þá ætlar Kvennaskólinn að vera með samsöng á erlendum tungumálum og fleira slíkt verður í gangi. Þar verða einnig spjöld látin ganga sem nemendur eiga að skrifa á í tungumálatíma á mið- vikudag og fimmtudag. Svo verð- ur þeim safnað saman á plaköt og hengd upp í skólanum. Taka fleiri stofnanir þátt í dag- skránni? „Það verður dagskrá í stofnun- um eins og til dæmis Alþjóðahús- inu, sem verður með heilmikla dagskrá og einnig í Goethe-stofn- uninni. Nú á að halda sér- stakt málþing á föstu- dag? „Já, Stofnun Vigdísar Finn- bogadóttur verður með stórt mál- þing á föstudaginn af þessu tilefni sem verður helgað ungu fólki og tungumálakunnáttu. Þar koma fulltrúar bæði grunn- og fram- haldsskólanemenda og verða með framsögur um tungumál og menn- ingu framandi landa. Þar kennir ýmissa grasa, það verður þarna fólk sem talar japönsku, þýsku, frönsku, ensku, o.s.frv. Svo verður til dæmis eitt erindi þar sem kom- ið verður inn á fornmálin en nemi úr Menntaskólanum í Reykjavík, Atli Freyr Steinþórsson, ætlar að fjalla lítillega um þau en mér skilst að MR sé í rauninni að verða síðasta vígi fornmálanna. Þá verða þarna tvær mæður sem ætla að fjalla um tungumálakunn- áttu. Önnur þeirra er Sigurlín Hermannsdóttir sem er sjálf móð- ir tveggja sona og fósturmóðir sex skiptinema frá ýmsum löndum, eins og t.d. Belgíu, Bandaríkjun- um, Ástralíu og Kína. Erindið hennar heitir: Íslenska út í heim, máltaka og menningarlæsi er- lendra skiptinema. Svo verður þarna kona sem nefnist Hin móð- irin, en hún heitir Elín Eiríksdótt- ir en hún á þrjú tvítyngd börn og ætlar að fjalla um þær áherslur. Erindi hennar heitir Þegar mamma talar íslensku veit ég að hún er reið – að ala upp tvítyngd börn. Svo verða bæði nemendur úr Kvennaskólanum, Fjölbrauta- skólanum á Suðurlandi, Verslun- arskólanum og Menntaskólanum í Reykjavík. Þeir munu fjalla um eitt og annað, t.d. nám og störf á Spáni, tungumálanám í íslenskum menntaskóla og fleira og fleira.“ Er málþingið öllum opið? „Þetta málþing er öllum opið. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á tungumálum og menningu al- mennt að mæta og hlusta á þetta frambærilega unga fólk ræða um tungumál og menningu.“ Hvar verður mál- þingið haldið? „Það verður haldið í hátíðarsal Háskóla Íslands frá klukkan 15–17 á föstudag og öll- um er heimill aðgangur á meðan húsrúm leyfir. Í lok málþingsins ætlar frú Vigdís Finnbogadóttir að stjórna pallborðsumræðum um ungt fólk, tungumálakunnáttu og menningarlæsi og einnig verður veitt Evrópumerki fyrir ný- breytniverkefni í tungumálanámi og kennslu.“ Sigfríður Gunnlaugsdóttir  Sigfríður Gunnlaugsdóttir er fædd í Reykjavík 14. júlí 1965. Hún lauk BA-prófi í ensku frá HÍ 1988, prófi í uppeldis- og kennslufræðum 1989 og MA- gráðu frá Bretlandi 1991. Um áramót lýkur hún rekstrar- og viðskiptanámi í Endurmennt- unarstofnun HÍ. Hún var fram- kvæmdastjóri AFS 1990–92 og þýðandi hjá utanríkisráðuneyt- inu frá 2000. Frá júní hefur hún starfað sem verkefnastjóri hjá Stofnun Vigdísar Finnboga- dóttur. Sigfríður á eina dóttur, Kristrúnu Ingunni. Margvísleg dagskrá verður í boði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.