Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 25.09.2003, Blaðsíða 20
AUSTURLAND 20 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Stöðvarfirði | Petra Sveinsdóttir fann um daginn tvær sérkennilegar lirfur á blómkvisti í garði sínum. Reyndust það vera lirfur aðmíráls- fiðrilda sem hún kom á legg í gler- krukku, sem geymd var ofan á ís- skápnum hjá henni í nokkra daga. Þegar Petra fann lirfurnar þóttu henni þær torkennilegar og ásamt Þorgeiri Eiríkssyni, sem síðar tók að sér að ljósmynda kvikindin, reyndi hún að tegundargreina lirf- urnar, en hafði ekki erindi sem erf- iði. „Við settum þetta bara í ræktun í krukku sem stóð inni á ísskáp hjá Petru í á aðra viku,“ segir Þorgeir. „Lirfurnar voru á blómi og við tók- um það og viðbótarlauf og settum í krukkuna lirfunum til viðurværis. Lirfurnar átu það af bestu lyst. Svo einn morguninn voru komnar svona líka fallegar púpur, gullslegnar og yfir tveir cm að lengd.“ Þorgeir seg- ir fiðrildin hafa verið mjög stutt á púpuskeiðinu, eða eitthvað um sex daga. „Við sáum nú ekki þegar þau brutust út úr púpunum, en út komu tvö gullfalleg aðmírálsfiðrildi.“ Slæðingur hefur verið af aðmír- álsfiðrildum í landinu í sumar og á síðustu árum. Vænghaf fiðrildanna er á milli 4 og 5 cm. Tvö aðmírálsfiðrildi klekjast út í eldhúsinu í Steinasafni Petru á Stöðvarfirði Ljósmynd/Þorgeir Eiríksson Aðmírálsfiðrildi á lirfustiginu en þau fengu lauf sér til viðurværis. Púpuðust í eldhúsinu hjá Petru Stöðfirska aðmírálsfiðrildið hennar Petru teygir úr litfögrum vængjunum en vænghafið er á milli 5 og 6 cm. Einn daginn voru komnar gullslegnar fiðrildapúpur, yfir 2 cm að lengd. Egilsstöðum | Verkfræðistofa Sig- urðar Thoroddsen í Reykjavík opnar á föstudag formlega nýtt útibú á Eg- ilsstöðum. VST er elsta verkfræði- stofa landsins og með þeim stærstu í geiranum. VST rekur nú, auk nýrrar skrifstofu á Egilsstöðum, útibú á Sel- fossi, Akureyri, Ísafirði, í Borgarnesi og Vestmannaeyjum. Björn Sveinsson tæknifræðingur hefur verið ráðinn útibússtjóri VST á Egilsstöðum, en hann var áður fram- kvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Héraðsverks. „Opnun hér hefur verið í undir- búningi síðan í maí,“ segir Björn. Stefnt er að því að tveir starfsmenn verði hjá VST eystra til að byrja með en Björn segir umsvifin verða meiri er fram líða stundir. „Verkefni VST á Aust- urlandi eru mjög stór. Við erum aðilar að HRV samsteypunni, sem ásamt Bechtel hannar og reisir álverið við Reyðar- fjörð og leiðum hóp fimm fyrirtækja sem hanna Kárahnjúkavirkjun, sem er langsamlega stærsta verkefni VST.“ „Mér líst ágætlega á þær framkvæmdir sem standa fyrir dyrum á Austurlandi,“ segir Björn. „Það sem við er- um að sjá núna er bara brot af því sem á eftir að verða. Svo dæmi sé tekið þá er fyrirsjáanleg jarðvegsvinna vegna álversins mjög stórt verkefni á ís- lenskan mælikvarða. Framkvæmdir við að- rennslisgöng og stöðvarhús Kára- hnjúkavirkjunar eru mikið undir yfirborð- inu og ekki svo mjög sjáanlegar, en næsta sumar munum við sjá á stíflumannvirkjun- um hversu gífurlega umfangsmikið verk er um að ræða.“ Björn, sem er frá Egilsstöðum, hefur nýlokið störfum hjá Héraðsverki, en það fyrirtæki hefur meðal annars verið í viðamiklum vegaframkvæmdum að virkjanasvæðinu. Hafa ekki vélakost Björn segir verktaka á Austur- landi vel í stakk búna til að taka þátt í framkvæmdunum, en þeir hafi þó ekki vélakost í meginframkvæmd- irnar. Það séu fremur alls kyns hlið- arframkvæmdir sem falla betur að núverandi tækjakosti þeirra. Hann nefnir sem dæmi vegagerð úr Fljóts- dal inn að Kárahnjúkum og vinnu við aðkomugöng 3 í virkjuninni, en Hér- aðsverk vann ásamt fleiri verktökum að þeim verkefnum. Fyrsta verkefni VST á Egilsstöð- um verður eftirlit með viðbyggingu við Hótel Hérað, auk þjónustu við verktaka á svæðinu. Kárahnjúkavirkjun og álver meðal verkefna nýs útibús VST á Egilsstöðum Björn: Gífurlega umfangsmikið verk. Nú sjáum við aðeins lítið brot af því sem koma skal Fáskrúðsfirði | Víkingur AK 100 kom með fyrstu síldina sem fer í vinnslu hjá Loðnuvinnslunni á Fá- skrúðsfirði á þessu hausti. Skipið var með 140 tonn og var síldin blönduð og fremur smá. Hún fer að hluta í flökun en annað verður fryst í beitu. Skipið hafði áður komið með um 200 tonn af síld sem fór í bræðslu. Morgunblaðið/Albert Kemp Síldin flökuð og fryst í beitu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.