Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 25

Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 25 H ön nu n: G un na r S te in þ ór ss on / M ar ki ð / 09 . 2 00 3 John Daly www.markid.is • Sími: 553 5320 • Ármúla 40 Heil golfsett með poka: Alpha heilt sett 9 járn + 3 tré + pútter + standpoki Stál sköft, tilboð kr. 21.900, áður kr. 31.500 Graphide sköft, tilboð kr. 26.900, áður kr. 38.500 Kerrur og pokar: Howson kerra, Stow-a-Way, verð nú kr. 3.900, áður kr. 6.900 Howson Standbag 7,5”, tilboð kr. 3.900, áður kr. 7.900 Howson Burðarpoki Dual Stap 8,5”, tilboð kr. 5.500, áður kr. 8.500 Barnagolf: Junior Whale golfsett í poka, tilboð kr. 8.900, áður kr. 12.900 Hippo Power golfsett í poka, tilboð kr. 9.900, áður kr. 13.900 Golfboltar: HIPPO Dual Titanium 36 stk. tilboð kr. 3.600, áður 6.200 HOWSON Tungsten 15 stk. tilboð kr. 1.700, áður 2.490 YCH Two pice 12 stk. tilboð kr. 990, áður kr. 2.400 Driver 300 series, alvöru driver. Ótrúlegt verð kr. 29.900, áður kr. 57.900 Í golfferðina: CARGO GOLF harður ferðapoki, kr. 12.900, áður kr. 15.900 HIPPO DeLuxe Coverall, nú kr. 4.900, áður kr. 7.900 JS Golf Travel Cover, nú kr. 1.900, áður kr. 2.600 Járnasett: Howson Derby dömu SW-3, aðeins kr. 9.900, áður kr. 25.500 Graphide sköft herra og dömu, tilboð kr. 15.900, áður kr. 38.900 FIMMTUDAGS- TILBOÐ Suðurlandsbraut Sími 533 3109 Opið mán.-fös. kl. 12-18 laugardaga kl. 10-16 Moonboots Litur. Silfur, blátt og svart St. 22-35 Verð áður 1.995 Verð nú 1.595 HAGSTÆTT VERÐ RAFSTÖÐVAR m/HONDA MÓTOR SÝNINGIN Humar eða frægð – Smekkleysa í 16 ár verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni kl. 20 í kvöld, fimmtudagskvöld. Við opnunina mun höfundur sýningarinnar, Ólaf- ur J. Engilbertsson, flytja erindi um rætur Smekkleysu í sjálfsútgáfu skálda og tónlistarmanna og Mar- grét Sigurðardóttir mun flytja er- indi um stefnuskrá Smekkleysu. Sýningin var í Spitz Gallery í London og í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, í sumar. Þar sem sýn- ingin þykir höfða til námsmanna var afráðið að setja hana upp að nýju, í því sem næst sömu mynd og hafa hana aðgengilega gestum í Þjóðar- bókhlöðunni. Að sögn er mikil eftirspurn eftir sýningunni erlendis frá og þegar eru nokkrir sýningarstaðir bókaðir á næsta ári, m.a. í Danmörku og Lett- landi. Smekkleysa áformar að hafa ýmsar dagskrár í haust í tengslum við sýninguna; m.a. verður Úlfhildur Dagsdóttir, bókmenntafræðingur, með erindi um myndbönd Bjarkar. Sýningin stendur til 23. nóvember í Þjóðarbókhlöðunni. Menningarborgarsjóður, Lista- safn Reykjavíkur og ráðuneyti utan- ríkis- og menntamála hafi styrkt sýninguna. Smekkleysa í Þjóðarbókhlöðu ÞÓRGUNNUR Snædal rúnafræð- ingur heldur opinberan fyrirlestur kl. 17 í dag, fimmtudag, sem nefn- ist „Daglegt móðurmáls rit og stafagjörð.“ – Um rúnir á Íslandi að fornu og nýju. Fyrirlesturinn, sem er í boði heimspekideildar Háskóla Íslands, verður haldinn í stofu 101 í Odda. Þórgunnur hefur um langt skeið unnið að rannsóknum á íslenskum rúnum og hefur afrakstur þeirrar vinnu birst í þremur greinum um efnið. Hún vinnur nú að grein um hin fjölmörgu handrit um rúnir og rúnaristur (frá lokum 17. aldar til upphafs 20. aldar) sem varðveitt eru í handritadeild Lands- bókasafns Íslands – Háskóla- bókasafns. Þórgunnur Snædal lauk stúd- entsprófi í Svíþjóð og árið 1976 lauk hún fil.kand.-prófi í norræn- um fræðum, þýsku og indóevr- ópskri samanburðarmálfræði frá Stokkhólmsháskóla. Árið 1977 var hún ráðin rúnafræðingur við Riks- antikvarieämbetet og hefur síðan verið einn af þremur fastráðum rúnafræðingum sænska ríkisins. Hún hefur m.a. umsjón með sænsku rúnasteinunum sem að- allega eru frá 11. öld og eru hátt á annað þúsund. Árið 2002 varði hún doktorsritgerð sína, Medan världen vakar – Studier i de got- ländska runinskrifternas språk och kronologi – við Uppsalahá- skóla. Morgunblaðið/Þorkell Þórgunnur Snædal rúnafræðingur vinnur hér að því að hreinsa upp rúnasteininn yfir leiði Sigurðar Vigfússonar í gamla kirkjugarð- inum við Suðurgötu. Fyrirlest- ur um rúnafræði ÞORSTEINN S. Ásmundsson rekstrarfræðingur er nýráðinn framkvæmdastjóri Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhús- inu og hefur hann tekið við af Magnúsi Árna Skúlasyni. Þorsteinn útskrifaðist frá Verzlunarskóla Íslands. Hann nam m.a. Rekstrar- og við- skiptafræði hjá Endurmennt- unarstofnun Háskóla Íslands. Þorsteinn hefur starfað víða við framkvæmda- og fjármála- stjórnun, m.a. hjá Iceland Re- view ehf. Suðurgarði hf., og Plastiðjunni ehf. auk þess að hafa verið sjálfstætt starfandi rekstrarráðgjafi. Hann hefur einnig átt sæti í stjórn ýmissa fyrirtækja. Framkvæmdastjóri LR er ábyrgur fyrir rekstrarlegum þáttum félagsins, þ.m.t. fjár- málum, starfsmannamálum, áætlanagerð, sölu- og kynning- armálum, leiksviðs-, ljósa-, hljóð-, smíða-, sauma-, smink- og leikmunadeild, veitinga- og miðasölu og útleigu hússins. Framkvæmdastjóri vinnur náið með listrænum stjórnanda félagsins sem er Guðjón Ped- ersen leikhússtjóri. Þorsteinn er kvæntur Elsu B. Ásmundsdóttur og eiga þau þrjú börn. Nýr fram- kvæmda- stjóri LR ÞÝSKI myndlistarmaðurinn Rolf Bier hefur opnað sýningu á verkum sínum í GUK+. Hann kallar verk sitt „Hvernig er hægt að lengja dvölina“. GUK+ býður listamönnum að sýna verk á fjórum stöðum samtímis: í garði á Selfossi, skúr í Lejre, Danmörku, eld- húsi í Bremen, Þýskalandi og á skjá fartölvu sem var stödd á Íslandi, á leið milli Borgarfjarð- ar og Akureyrar, á opnuninni. Káið í GUK+ sem áður stóð fyrir eldhús og síðan gang í Hannover stendur nú fyrir eld- hús (Küche) í Bremen. Upplýsingar um Rolf Bier og sýninguna er að finna á vefsíðu GUK+ http://www.simnet.is/ guk. Sýningin stendur yfir til 2. nóvember. Aðgangur er ókeyp- is. Rolf Bier sýnir í GUK+

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.