Morgunblaðið - 25.09.2003, Qupperneq 42
DAGBÓK
42 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Pol-
artank kemur í dag.
Dettifoss, Helgafell og
Atlas fara í dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, jóga, kl. 10
boccia, kl. 13 myndlist.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 9–12.30
bókband, kl. 9.30
boccia, kl. 10.30–10.55
helgistund, kl. 11 leik-
fimi, kl. 13–16.30 smíð-
ar og handavinna, kl.
13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 13–16
bókband, kl. 14–15
dans.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinna, kl. 9–12 íkona-
gerð, kl. 10–13, versl-
unin opin, kl. 13–16
spilað.
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 9 postulín,
kl. 13 handavinna, kl.
9–16.30 púttvöllurinn
opinn.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 10–11
leikfimi, kl. 13.30 söng-
hópurinn.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 13 föndur og
handavinna. Bingó kl.
15.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 10 gler-
bræðsla, kl. 13. búta-
saumur og málun, kl.
13.15 leikfimi karla.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl 9. Vídeókrókurinn
opin. Leikfimi í Bjark-
arhúsi kl. 11.20, glerlist
kl. 13, bingó kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Brids kl. 13.
Námskeið í framsögn
kl. 16.15, leiðbeinandi
Bjarni Ingvarsson. Fé-
lagsvist kl. 20.
Félagsstarf eldri borg-
ara Mosfellssveit. Opið
kl. 13–16, kl. 13 tré-
skurður, kl. 15 les-
klúbbur, kl. 17 starf
kórs eldri borgara,
Vorboðar.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. kl. 10.30
helgistund, umsjón
Guðmundur Karl
Ágústsson, frá hádegi
vinnustofur opnar, kl.
13.15 félagsvist.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinna,
kl. 9.05 og 9.55 leikfimi,
kl. 9.30 glerlist og ker-
amik, kl. 10.50 róleg
leikfimi, kl. 13 fé-
lagsvist og gler- og
postulín, kl. 17 bobb.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulín, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinna.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, perlu-
saumur, kortagerð og
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 boccia,
kl. 11 leikfimi, kl. 14 fé-
lagsvist. Á morgun
föstudag verður haust-
fagnaður. Matseðill:
m.a. sviðasulta, salt-
kjöt, borðhald hefst kl.
12.30. Anna Þrúður
Þorkelsdóttir segir frá
dvöl sinni í Afríku.
Línudans og fjölda-
söngur. Spilað verður
bingó. Skráning á
skrifstofu eða í s.
587 2888.
Hvassaleiti 56–58. Kl.
9–13 bútasaumur, kl.
10–11 boccia, kl. 13–16
hannyrðir, kl.13.30–16
félagsvist.
Korpúlfar, Grafarvogi.
Á morgun, föstudag,
kl. 9.30 sundleikfimi í
Grafarvogslaug.
Norðurbrún 1. opin
vinnustofa kl. 9–16.45.
Kl. 10–11 ganga, leir.
Vesturgata. Kl. 9.15–
15.30, handavinna, kl.
9–10 boccia, kl. 10.15–
11.45 enska, kl. 13–14
leikfimi, kl.13–16 kór-
æfing.
Vitatorg. Kl.
8.45smíði, kl. 9.30 gler-
skurður, perlusaumur
og morgunstund, kl. 10
boccia, kl. 13 hand-
mennt og brids.
Gullsmárabrids.
Bridsdeild FEBK,
Gullsmára, spilar í fé-
lagsheimilinu í Gull-
smára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45. Spil hefst kl.
13.
Félag áhugamanna
um íþróttir aldraðra.
Leikfimi í Bláa salnum
kl. 11.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.20 í Digra-
neskirkju.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 tafl.
Blóðbankabíllinn.
Ferðir blóðbankabíls-
ins: sjá www.blodbank-
inn.is.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Fundur kl. 17.
Sveinbjörg Arnmunds-
dóttir sér um bæna- og
vitnisburðarstund.
Ný dögun. Fræðslu-
fundur um sorg- og
sorgarviðbrögð verða í
safnaðarheimili Há-
teigskirkju í dag kl. 20.
Fyrirlesari Jóna Krist-
ín Þorvaldsdóttir.
Í dag er fimmtudagur 25. sept-
ember, 268. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Þá mælti Páll: „Jó-
hannes skírði iðrunarskírn og
sagði lýðnum að trúa á þann, sem
eftir sig kæmi, það er á Jesú.“
(P. 19, 4.)
Þórunn Sveinbjarn-ardóttir alþingis-
maður skrifar á heima-
síðu sína um atvinnuleysi
kvenna.
„Langmestur kynja-
munur er á Vestfjörðum
en þar eru 80% atvinnu-
lausra konur. Fast á hæla
Vestfjarða koma Aust-
firðir en þar eru 79% at-
vinnulausra konur en á
Suðurnesjum er sama
hlutfall 65%,“ skrifar
Þórunn.
„Þau svæði þar sem at-
vinnuleysi kvenna er
mest, þ.e.a.s. Vestfirðir
og Austfirðir, eiga það
sameiginlegt að þar er
einhæfni atvinnulífs mik-
il. Það er gömul saga og
ný að fábreytni á vinnu-
markaði er konum mót-
dræg. Matvælaiðnaður og
frumvinnslugreinar, svo
sem sjávarútvegur, kalla
á æ færri hendur en
þeirri þróun hefur ekki
verið svarað með upp-
byggingu í öðrum at-
vinnugreinum nema í
mjög litlum mæli. Eftir
stendur að víða á lands-
byggðinni er fá störf að
hafa fyrir konur, ekki síst
ef þær hafa áhuga á því
að leggja eitthvað annað
fyrir sig en fiskvinnslu
eða kennslu.
Fyrir austan er rífandigangur í virkj-
anaframkvæmdum við
Kárahnjúka. Í hinni löngu
deilu um Fljótsdals-
virkjun og svo Kára-
hnjúkavirkjun var því oft
haldið fram af fylg-
ismönnum fram-
kvæmdanna að þær
myndu gjörbylta atvinnu-
ástandinu fyrir alla Aust-
firðinga og jafnvel stuðla
að fólksfjölgun á Héraði
og niðri á fjörðum. Víst er
að mikinn mannskap þarf
á byggingartíma virkj-
unar og álvers en hvað
verður þegar því er lokið
er óljóst á þessari stundu.
Eitt er þó ljóst í dag. Kon-
urnar streyma ekki aust-
ur til þess að reisa virkjun
og verksmiðju og at-
vinnuleysistölurnar gefa
vísbendingu um að þessar
miklu framkvæmdir séu
ekki að skila sér til
kvenna.“
Þórunn segir jafnframt:„Á það hefur margoft
verið bent að uppbygging
stóriðju er atvinnu-
uppbygging miðuð að
þörfum og menntun
karla. Byggðastefnan
hefur alla tíð litast af
mjög karllægri hugsun
og óhætt að fullyrða að
sjónarmið og hagsmunir
kvenna á vinnumarkaði
hafi farið halloka við
framkvæmd hennar. Og
staðreyndirnar blasa við:
Ungu konurnar eru farn-
ar eða á förum af lands-
byggðinni. (Ætli Eyja-
fjarðarsvæðið sé ekki
eina undantekningin hér
á?) Á Miðausturlandi er
kynjahallinn nú þegar
orðinn mjög óhagstæður
og uppbygging stóriðju
mun litlu breyta þar um.
Kvenmannslaus lands-
byggð á dapurlega fram-
tíð fyrir sér. Því hlýtur at-
vinnuuppbygging í þágu
kvenna að vera aðalatriði
byggðastefnu sem á að
standa undir nafni.“
STAKSTEINAR
Stóriðja og atvinnuleysi
kvenna
Víkverji skrifar...
EFTIR að fréttir bárust um gríð-arleg húfu- og vettlingakaup
starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun
í kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöð-
um fór Víkverji að velta því fyrir
sér hvernig muni fara fyrir þessum
vesalings mönnum í vetur, þegar ís-
lenski veturinn dembist yfir þá af
krafti og miskunnarleysi. Þarna
uppfrá eru víst allnokkrir erlendir
verkamenn sem hafa unnið víða um
heim en aldrei þurft að nota vett-
linga við störf sín. Hvernig er það
eiginlega, þurfa þeir sjálfir að öngla
saman fyrir þessum hlutum? Á ekki
vinnuveitandinn að útvega þeim
viðunandi vinnufatnað? Það er líka
nöturleg sú lýsing á ofangreindum
viðskiptum að erlendu starfsmenn-
irnir séu auralitlir og skrapi saman
í húfu á fimmhundruðkall á meðan
íslensku verkamennirnir kaupa sér
brækur og boli fyrir mörg þúsund
krónur í kaupfélaginu. Þeir erlendu
eru sumir hverjir berfættir í skón-
um við vinnu sína. Nær þetta nokk-
urri átt? Vonandi verður vel tekið í
þá hugmynd einhvers að kven-
félagið á staðnum prjóni á þá föt og
sendi þeim upp í virkjun. Móðir
Víkverja prjónaði fína vettlinga á
hann og nokkra vini hans í vetur og
aldrei að vita nema Víkverji leggi
inn beiðni fyrir hönd erlendra
verkamanna við Kárahnjúkavirkj-
un. Þeir yrðu ekki sviknir af há-
fjallavettlingum móður Víkverja.
Það er alveg á hreinu.
x x x
ÞEKKTUR íslenskur sjónvarps-maður sagði frá skelfilegustu
lífsreynslu sinni í Fréttablaðinu um
helgina. Í hverju skyldi hún hafa
falist? Jú, hann meig undir hjá
tengdaforeldrum sínum. Oftar en
einu sinni.
Víkverji veltir því fyrir sér hvort
svona lagað sé látið flakka í kæru-
leysi og sjónvarpsmaðurinn geti
kannski brosað að þessu eftirá?
Eða liggur þetta eins og mara á
aumingja manninum enn þann dag
í dag? Fyrst fannst Víkverja þetta
beinlínis fyndið en svo fór hann að
vorkenna viðkomandi og skamm-
aðist sín bara. Það er mörgum
spurningum ósvarað um þetta mál.
Var til dæmis reynt að leyna
þessu fyrir tengdaforeldrunum?
Hvernig vildi þetta til? Var hann
veikur eða fullur eða stressaður?
Eða var þetta kannski dulið sjálfs-
próf fyrir lesendur, viðbragðapróf
einhvers konar?
Víkverji vonar að það hendi hann
ekki að pissa undir á heimili
tengdaforeldra sinna, en hann er
þegar orðinn svo taugaveiklaður að
hann þorir varla inn fyrir dyr hjá
þeim næstu mánuði eða ár. Óttinn,
sem er verri en allar samanlagðar
vetrarhörkur Kárhnjúkavirkjunar
næstu 50 ár, nagar hann miskunn-
arlaust.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
ÉG finn mig knúinn til að
taka upp hanskann fyrir
Jerry Seinfeld og félaga
sem skemmta okkur á Stöð
2 kl. 18.05 mánudaga til
fimmtudaga í viku hverri.
Óánægður áskrifandi
Stöðvar 2 skrifaði í Velvak-
anda laugardaginn 20. sept.
sl. og lýsti þar vanþóknun
sinni á Seinfeld og stakk
upp á að þátturinn um Ally
McBeal yrði sýndur í stað-
inn.
Mig langar að benda
þessum óánægða viðskipta-
vini Stöðvar 2 að hann er
ekki einn í heiminum og að
það er til fólk sem finnst
Seinfeld allt annað en drep-
leiðinlegur, þeirra á meðal
er ég.
Ég mótmæli því hér með
tillögu þessa óánægða
áskrifanda og vona að Sein-
feld og hans vinir haldi
áfram að skemmta okkur á
Stöð 2.
Það er líka annað sem
hinn óánægði áskrifandi
verður að athuga; hver
þáttur af Ally McBeal tek-
ur rúmar 40 mínútur í sýn-
ingu. Það þýðir að þáttur-
inn kemst ekki fyrir í
dagskránni kl. 18.05 því
eins og allir vita hefst Ís-
land í dag kl. 18.30.
Ánægður áskrifandi
Stöðvar 2.
Að sjá björtu
hliðarnar
ÉG er búin að vera að lesa
þessar kvartanir um Anim-
al Planet-stöðina, en ég og
margir aðrir sem ég veit
um eru mjög fegnir því að
hætt sé að sýna þessa stöð
seint á kvöldin vegna þess
að þegar dagskrá Animal
Planet er búin eru alltaf
þessar blessaðar klám-
myndir sýndar, ruglaðar að
vísu, en samt ekki svo að
fólk sér alveg hvað er um að
vera. Ég á börn á ólíkum
aldri og var mér illa við að
vita til þess að þau gætu
verið að horfa á þetta því
þetta var nú ekki beint fyr-
ir börn að vera að horfa á.
Sem sagt; ég er fegin að
þetta er ekki sýnt lengur og
mér finnst bara gott að
geta horft á eitthvað sem
ég missti af á Stöð 2 á þess-
ari stöð sem endursýningar
eru á.
Eigum við bara ekki að
hætta þessum kvörtunum
og finna eitthvað mikilvæg-
ara til þess að kvarta yfir
og sjá björtu hliðarnar,
ekki alltaf þetta neikvæða.
Margrét.
Á réttri leið
ÉG sá í blöðunum nýlega
frétt af því að dagmömmu
var synjað um starfsleyfi
vegna þess að hún bjó í
blokk. Finnst þessi mál
vera á réttri leið, þ.e. að
hugað verði vel að aðbúnaði
barna hjá dagmömmum.
Eins vil ég koma því á
framfæri hvað ég er ánægð
með að máli dagföður í
Kópavogi var vísað til
Mannréttindadómstólsins.
Lesandi.
Tapað/fundið
Gamall gullhringur
í óskilum
GAMALL hvítur gull-
hringur fannst fyrir framan
bílastæðishúsið á Vestur-
götu 7. Eigandi hafi sam-
band í síma 557 1504.
Dýrahald
Birta er ennþá týnd
BIRTA er hvít persnesk
læða sem týndist frá Fella-
smára 1 í Kópavogi. Hún er
með græn augu og brotna
vígtönn. Eyrnamerkt en ól-
arlaus. Birtu er sárt saknað
og vilja eigendur hennar
vita hvort hún er lífs eða
liðin. Þeir sem hafa orðið
hennar varir eru vinsam-
legast beðnir að hafa sam-
band í síma 564 2001 eða
820 7050. Fundarlaun.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Seinfeld
Morgunblaðið/Ómar
Hross á Álftanesi skiptast á leyndarmálum.
LÁRÉTT
1 höfuðfatið, 8 stórir
menn, 9 merkja, 10 ekki
marga, 11 landabréfa, 13
horaðan, 15 iðja, 18 her-
bergi, 21 fareind, 22 hug-
leysingi, 23 ásýnd, 24
bæklingar.
LÓÐRÉTT
2 verkar, 3 landareign, 4
framar, 5 ástundar, 6 lin,
7 hafði upp á, 12 guð, 14
fiskur, 15 vers, 16 gamli,
17 afrétt, 18 undin, 19
sofa, 20 satt.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 girnd, 4 kutar, 7 tóman, 8 regns, 9 díl, 11 runa,
13 hrun, 14 gettu, 15 forn, 17 gróa, 20 bak, 22 telja, 23
remma, 24 kenna, 25 terta.
Lóðrétt: 1 gítar, 2 rúmin, 3 dund, 4 kurl, 5 tugur, 6 rós-
in, 10 ístra, 12 agn, 13 hug, 15 fátæk, 16 rolan, 18 rómur,
19 apana, 20 bana, 21 Krít.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16