Morgunblaðið - 25.09.2003, Síða 44
ÍÞRÓTTIR
44 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
REAL Madrid hampaði Santiago
Bernabeu-bikarnum í fyrrakvöld,
þegar leikið var um hann í 25. skipti.
Bikarinn ber nafn fyrrverandi for-
seta liðsins og einnig völlur liðsins.
Real vann argentínska liðið River
Plate fyrir framan 23 þús. áhorfend-
ur, 3:1. Santiago Solari og Javier
Portillo, tvö, skoruðu mörk Real.
SVO skemmtilega vildi til að
sama dag voru liðin nákæmlega 50
ár síðan Argentínumaðurinn Al-
fredo di Stefano lék sinn fyrsta leik
fyrir Real, en hann er talinn einn
besti knattspyrnumaður heims.
Hann var átta sinnum Spánarmeist-
ari með liðinu og Evrópumeistari
fimm ár í röð.
DI Stefano, 77 ára, byrjaði sinn
knattspyrnuferil með River Plate.
Hann var heiðraður sérstaklega fyr-
ir leikinn í Madrid – fékk skjöld með
jafn mörgum bikurum og hann
hampaði með Real Madrid. „Líf mitt
var og verður alltaf knattspyrna,
alltaf,“ sagði Di Stefano.
PAUL Scholes leikmaður Man-
chester United er allur að koma til
eftir kviðslit og ef allt gengur að ósk-
um verður hann í liði United sem
mætir Stuttgart í Meistaradeildinni
í næstu viku. Scholes hefur verið frá
í mánuð vegna meiðslanna.
SVEN Göran Eriksson landsliðs-
einvaldur Englendinga tekur frétt-
unum af Scholes með gleði því hann
ætti að geta teflt honum fram í hin-
um mikilvæga leik á móti Tyrkjum í
undankeppni EM sem fram fer í Ist-
anbul 11. október.
ÍTALSKA B-deildarliðið Napoli
verður að spila næstu fimm heima-
leiki sína fyrir luktum dyrum.
Ítalska knattspyrnusambandið
ákvað í gær að refsa félaginu vegna
óeirða sem urðu í leik liðsins á móti
Avellini á mánudaginn og leiddu til
dauða eins stuðningsmanna félags-
ins og 30 lögreglumenn slösuðust.
Napoli má ekki spila heimaleiki sína
á leikvangi félagsins, San Paolo, og
verður því að flytja leiki sína á ann-
an völl.
OLEG Luzhny, fyrrverandi leik-
maður Arsenal, sem leikur nú með
Wolves, er hættur við að leggja
landsliðsskóna á hilluna, en hann til-
kynnti í sl. viku að hann myndi ekki
leika fleiri landsleiki fyrir Úkraínu.
Ástæðan fyrir sinnaskiptum Luzhn-
ys er að Oleg Blokhin hefur tekið við
starfi landsliðsþjálfara og sett sig í
samband við varnarmanninn sterka
og beðið hann að leika áfram með liði
Úkraínumanna.
ÞAÐ er nú ljóst að Ole Gunnar
Solskjær, norski landsliðsmaðurinn
hjá Manchester United, verður frá
keppni út þetta ár. Hann var skorinn
upp við meiðslum í hné á þriðjudag.
Þetta er áfall fyrir United, þar sem
Solskjær, 30 ára, fékk það hlutverk
að taka stöðu Davids Beckhams á
miðjunni.
FÓLK
ÉG er Framari og hef verið frá
blautu barnsbeini. Ég styð mína
menn. Mæti á völlinn þegar ég get,
hvet þá áfram og svekki mig þegar
illa gengur. Nú er lokið fimmta
keppnistímabilinu í röð, þar sem
liðið mitt hefur barist í bökkum og
rétt náð að bjarga sér frá falli úr
efstu deild í síðasta leik Íslands-
mótsins. Ég man þá tíð, að Fram
vann næstum alla leiki. Það eru
svona 13–18 ár síðan. Þá undi mað-
ur hlut sínum betur. Þá var oftast
gaman að fara á völlinn. Upp á síð-
kastið hefur það oftar en ekki verið
óskemmtilegt. Leikirnir tapast og
knattspyrnan er slök.
Ég hef komist að þeirri niður-
stöðu að félögin í Reykjavík séu of
mörg. Nýliðið tímabil sýnir þetta
vel. Fram, Valur og Þróttur börð-
ust um fall. Tvö liðanna féllu en
eitt hélt sér uppi. Í sjálfu sér var
það hrein tilviljun sem réði því,
hvert þeirra það var. Valur og
Þróttur komu upp úr 1. deild á síð-
asta ári og féllu strax aftur. Varla
er mikil hamingja á ferðinni meðal
þeirra sem að þessum félögum
standa.
Gerum eitthvað í málinu. Sam-
einum þessi þrjú félög í eitt og Vík-
ingur væri einnig inni í myndinni.
Þetta eru liðin sem hafa aðsetur í
gamla austurbænum í Reykjavík.
Við getum látið yngri flokkana
keppa áfram aðskilið svo að garð-
urinn verði vel ræktaður. Meist-
araflokkurinn verði einn. Út úr
þessu myndi koma kapplið, sem
ætla má, að reglulega myndi leika
á toppi úrvalsdeildar en ekki botni.
Sterkir stofnar stæðu að því. Það
myndi vonandi reglulega ná þátt-
tökurétti í Evrópukeppnum með
þeim tekjumöguleikum sem þar
liggja. Við stuðningsmennirnir
þyrftum sjaldnar að kveljast í
stúkunni yfir ófarnaðinum inni á
vellinum. Liðið yrði fyrst og fremst
myndað úr efniviðinum sem kæmi
upp úr stoðunum þremur (eða fjór-
um). Aðstaðan yrði góð, æfinga og
keppnisvellir á þremur (fjórum)
stöðum. Keppnisbúningurinn yrði
treyja með bláum og rauðum rönd-
um eins og hjá Barcelona, og
hvítar buxur. Nafnið gæti orðið
FVÞ eða eitthvert alveg nýtt nafn.
Þá gæti aftur orðið gaman að
fara á völlinn.
Jón Steinar Gunnlaugsson
Framari
Sameinaðir stöndum vér en
sundraðir föllum vér (í 1. deild)
ENSKA 1. deildarliðið Stoke City er
á höttunum eftir íslenska landsliðs-
manninum Ívari Ingimarssyni sem
er á mála hjá enska úrvalsdeildarlið-
inu Wolves. Félagið reyndi fyrir
helgina en ekkert varð úr því þar
sem hann vill ekki fara til annars liðs
sem lánsmaður. Samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins er Ívar tilbú-
inn að yfirgefa Úlfana og fara til
Stoke ef liðið er tilbúið að kaupa
hann eða til einhvers annars liðs í 1.
deild en fleiri lið en Stoke hafa sýnt
Ívari áhuga.
„Við höfum áhuga á að fá Ívar til
liðs við Stoke og teljum hann vera
manninn sem liðið vantar. Hann get-
ur bæði leyst stöðu miðvarðar og
miðjumanns eins og hann gerði svo
vel þegar hann fékk tækifæri hjá
Wolves í byrjun síðasta tímabils. Við
vorum búnir að ná samkomulagi við
Úlfana um mánaðarlán en leikmað-
urinn hafnaði því. Okkur þótti það
mjög miður,“ sagði Gunnar Þór
Gíslason, stjórnarformaður Stoke,
við Morgunblaðið en eftir að Pétur
Marteinsson var leystur undan
samningi er enginn íslenskur leik-
maður á mála hjá félaginu þar sem
Íslendingar ráða ríkjum.
Aðspurður hvort Stoke sé tilbúið
að kaupa Ívar sagði Gunnar Þór;
„Það hefur ekkert reynt á það hvað
Úlfarnir vilja fá fyrir að láta hann
fara frá sér en það verður að vera
einhver fjárhagsleg glóra í því ef við
eigum að kaupa hann. Við erum
búnir að gefast upp á að reyna að fá
hann að láni svo það er óljóst hvað
verður.“
Svo virðist sem Ívar sé ekki inni í
myndinni hjá Dave Jones knatt-
spyrnustjóra Wolves en Jones hefur
ekki gefið íslenska landsliðsmann-
inum nein tækifæri á leiktíðinni.
Vaxandi þrýstingur er hins vegar
kominn á stjórn Wolves að fá nýjan
mann í brúnna, enda hefur gengi
liðsins verið afar slakt. Verði sú
raunin gæti staðan breyst hjá Ívari,
sem er orðinn afar óþreyjufullur að
fá að spila og auka þannig líkur á að
vinna sér sæti í landsliðinu.
Wolves tók tilboði QPR
Morgunblaðið hefur heimildir fyr-
ir því að tvö önnur ensk 1. deildarlið,
bæði í toppbaráttunni, hafi reynt að
fá Ívar að láni í síðstu viku en af
sömu ástæðum og hjá Stoke vildi Ív-
ar ekki fara sem lánsmaður. Þá bauð
2. deildarliðið QPR 100.000 pund í
Ívar fyrir nokkru sem Wolves tók en
Ívar var ekki tilbúinn að fara í 2.
deildina. Ívar lék með Brighton stór-
an hluta af síðasta tímabili og hefur
stjóri þess, Steve Coppell, af og til
reynt að lokka Ívar aftur til félags-
ins en án árangurs.
Morgunblaðið/Kristinn
Ívar Ingimarsson á hér í höggi við skoska landsliðsmanninn Don Hutchison í landsleik Skota og
Íslendinga í Glasgow. Næsta verkefni Ívars og landsliðsins er í Hamborg 11. október.
Stoke vill
fá Ívar
ÍSLENSKA landsliðið í knattspyrnu hækkar um átta
sæti frá síðasta mánuði á nýjum styrkleikalista Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA, sem gefinn var út í
gær. Ísland er í 48. sæti á listanum og er í 27. sæti á með-
al Evrópuþjóða. Íslenska landsliðið hrapaði um tíma nið-
ur í 70. sæti á listanum, en frá því Ásgeir Sigurvinsson
og Logi Ólafsson tóku við liðinu hefur það klifrað hratt
upp listann. Undir stjórn þeirra hefur liðið leikið fjóra
leiki. Það sigraði Færeyinga í tvígang í Evrópukeppn-
inni – 2:1 í Reykjavík og einnig í Þórshöfn, sigraði
Litháa í Evrópukeppninni á útivelli – í Kaunas, 3:0,og
gerði jafntefli við Þjóðverja á EM á Laugardalsvelli, 0:0.
Heimsmeistarar Braslíumanna eru sem fyrr í efsta
sæti listans, Frakkar eru í öðru sæti, Spánverjar í
þriðja, Argentínumenn í fjórða, Mexíkóar í fimmta,
Englendingar í sjötta, Hollendingar í sjöunda, Tyrkir í
áttunda og Tékkar og Þjóðverjar í níunda til tíunda
sæti.
Ísland upp um átta
sæti á FIFA-lista
ÁRNI Gautur Arason, landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, segir
það líklegast að hann gangi til liðs
við Sturm Graz frá áramótum en
austurríska félagið hefur gert hon-
um tilboð eins og Morgunblaðið
hefur greint frá. Árni Gautur losn-
ar undan samningi við Rosenborg
um áramót en hann kveður þá fé-
lagið eftir sex ára dvöl.
„Þetta tímabil hefur ekki verið
neinn dans á rósum hjá mér en
svona getur þetta verið í fótbolt-
anum. Ég verð að þrauka í þrjá
mánuði til viðbótar og verð bara að
láta mig hafa það. Eins og er þá eru
mestar líkur á að ég fari til Sturm
Graz en ég er samt opinn fyrir
öllu,“ sagði Árni Gautur við Morg-
unblaðið í gær en hann var þá
staddur í Lettlandi með Rosenborg
þar sem hann sat á bekknum í gær-
kvöldi í leik Rosenborg á móti
Ventspills í UEFA-keppninni.
Árni Gautur hefur aðeins spilað
einn deildarleik með Rosenborg á
leiktíðinni en tólfti meistaratitilinn
í röð hjá félaginu er innan seil-
ingar. Árni Gautur hefur því orðið
meistari öll fimm árin sem hann
hefur verið hjá liðinu en þar sem
hann hefur ekki náð að spila 10
leiki með Rosenborg á tímabilinu
kemur hann ekki til með að fá verð-
launapening þegar Rosenborg
verður krýndur meistari.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Árni Gautur Arason
Sturm Graz líklegast hjá
Árna Gauti Arasyni