Morgunblaðið - 08.10.2003, Blaðsíða 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ársfundur Háskólans
á Akureyri 2003
Ársfundur Háskólans á Akureyri verður haldinn
í sal háskólans í Þingvallastræti 23
föstudaginn 10. október næstkomandi.
Fundurinn hefst klukkan 14:00.
Dagskrá fundarins er sem hér segir:
1. Skýrsla um starfsemi Háskólans á Akureyri
árið 2002 og áætlun ársins 2003.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor.
2. Fjármál Háskólans á Akureyri árið 2002.
Ólafur Búi Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri.
3. Umræður og fyrirspurnir.
4. Önnur mál.
Á fundinum verður dreift ársskýrslu Háskólans á Akureyri
fyrir árið 2002.
Ársfundurinn er öllum opinn.
STJÓRNIR hestamannafélag-
anna Funa og Léttis fordæma
niðurstöðu stjórnar LH þess efnis
að stefnt skuli að samningum við
Vindheimamela sf. varðandi stað-
arval landsmóts hestamanna
2006. Félögin áskilja sér jafn-
framt allan rétt til skaðabóta ef
fram fer sem horfir varðandi
staðarvalið 2006. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í opnu bréfi
Funa og Léttis til stjórnar
Landssambands hestamanna, eft-
ir sameiginlegan fund stjórna fé-
laganna í vikunni. Í bréfinu segir
að ef samningar nást við Vind-
heimamela sf., sem engin ástæða
er til að ætla að
náist ekki, verður mótsvæði
Melgerðismela af 17 milljóna
króna framlagi Eyjafjarðarsveitar
og kostnaður meiri en mótshaldið
skilaði og var séð fram á að með
landsmóti 2006 yrði endum náð
saman. Með ákvörðun þessari
skilur stjórn LH félögin Funa og
Létti eftir með fjárhagsskuld-
bindingar fyrri tíðar og hefur af
félögunum 17 milljónir sem fyrir
greinir.
Þá skal tekið fram að formaður
LH hefur sagt, og vitnað í skýrslu
mannvirkjanefndar LH máli
sínu til stuðnings, að aðstandend-
ur Melgerðismela hafi látið þá
skoðun í ljós við nefndina að
landsmótsstöðum þyrfti að fækka
og landsmót ætti að halda á fjög-
urra til sex ára fresti á hverjum
stað. Þau orð féllu aldrei og eru
hrein ósannindi, segir í bréfi
Funa og Léttis.
þau haldin annað hvert ár en ekki
fjórða hvert eins og áður var. Það
fyrirkomulag var samþykkt á
landsþingi 1995 og frá þeim tíma
hafa landsmót verið haldin til
skiptis á Gaddstaðaflötum, Fáks-
svæðinu, Vindheimamelum og
Melgerðismelum.
Félagslegt réttlæti
fótum troðið
Með ákvörðun stjórnar LH nú
er félagslegt réttlæti fótum troðið
en í reglum um undirbúning
framkvæmda fyrir landsmót LH
segir m.a. Við staðarval skal
stjórn LH hafa til hliðsjónar fjár-
hagslega hagkvæmni svo og yf-
irsýn á félagslegt réttlæti. Mikið
og varanlegt uppbyggingarstarf
var unnið fyrir landsmótið 1998
og Akureyrarbæjar til frekari
uppbyggingar svæðisins en sú
upphæð er skilyrt því að lands-
mót hestamanna 2006 verði haldið
á Melgerðismelum.
Ljóst er af þeim gögnum er
lágu til grundvallar ákvarðana-
töku á staðarvali þ.e. skýrslur
Landsmóts ehf. og mannvirkja-
nefndar LH að Melgerðismelar
og Vindheimamelar eru lagðir að
jöfnu og aðstandendum Melgerð-
ismela sem og Vindheima-mela sf.
er treyst til að standa að glæsi-
legu mótshaldi.
Þess má geta, segir ennfremur
í bréfinu, að eftir að eyfirsku fé-
lögin gengu úr LH var gerð sátt
og félögin gengu aftur til liðs við
samtökin. Sáttargerðin fólst m.a. í
því að landsmótum var fjölgað og
Stjórnir hestamannafélaganna Funa og Léttis fordæma niðurstöðu LH
Mótssvæði félaganna verð-
ur af 17 milljónum króna
BETUR fór en á horfðist þegar afrennsl-
isrör frá heitavatnskerfi fór í sundur í lofti
biðstofu slysadeildar Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri um kl. 06 í gærmorgun.
Um 25–30 gráðu heitt vatn sprautaðist yfir
biðstofuna og flæddi vatn inn á gang slysa-
deildar og eina sjúkrastofu og inn á gang
röntgendeildar. Einn hjúkrunarfræðingur
og ræstitæknir voru á vakt þegar óhappið
varð en biðstofan var mannlaus.
Að sögn Hrafnhildar Lilju hjúkrunar-
fræðings hafði vatnið sprautast úr rörinu í
um hálfa klukkustund, þegar pípulagninga-
maður spítalans kom til að loka fyrir
rennslið. „Þá náði vatnið í ökkla, auk þess
sem töluverð gufa var í biðstofunni og sá ég
ekki handa minna skil,“ sagði Hrafnhildur,
sem sagðist hafa hlaupið í gegnum vatns-
gusuna í biðstofunni til að opna út. „Það var
sem betur fer rólegt hér á deildinni,“ sagði
Hrafnhildur.
Slökkvilið og lögregla komu fljótlega á
staðinn og eftir að búið var að loka fyrir
vatnsrennslið, gekk vel að hreinsa upp
mesta vatnið, með vatnssugum og sköfum.
Ræstitæknar spítalans sáu svo um að ljúka
verkinu. Arnór Þorgeirsson pípulagninga-
maður á FSA sagði að þarna hefði farið
ótrúlega vel og að skemmdir séu óveruleg-
ar. Hann sagði að bæði slökkviliðs- og lög-
reglumenn sem fjölmenntu á staðinn hefðu
gengið hratt til verks við að hreinsa upp
vatnið og staðið sig með miklum sóma.
Vatn flæddi
um slysa-
deild FSA
SVO gæti farið að Kaupfélag Ey-
firðinga kæmi aftur að rekstri
matvöruverslana á Norðurlandi og
víðar á landinu. Kaupfélag Suð-
urnesja hefur óskað eftir samstarfi
við KEA um framtíðareignarhald á
Samkaupum. Eins og fram hefur
komið hefur Kaldbakur hf. selt
50,4% eignarhlut sinn í Sam-
kaupum hf. til Kaupfélags Suð-
urnesja svf., sem áður átti 49,6% í
Samkaupum á móti Kaldbaki, sem
er að stærstum hluta í eigu KEA.
Stjórn KEA hefur falið Andra
Teitssyni, framkvæmdastjóra fé-
lagsins að taka upp viðræður við
forsvarsmenn Kaupfélags Suð-
urnesja – með það fyrir augum að
tryggja sem best hagsmuni fé-
lagsmanna KEA og aðra stað-
bundna hagsmuni. Andri sagði að
áður en kaupin á hlut Kaldbaks
hefðu farið fram hefði Kaupfélag
Suðurnesja leitað eftir samstarfi
við KEA um kaupin. Af því varð
ekki en Andri sagði að stjórn KEA
hefði málið til skoðunar en að ekki
hefði verið tekin nein ákvörðun.
Aðspurður sagði Andri ekki úti-
lokað að KEA kæmi að Sam-
kaupum og þá að rekstri mat-
vöruverslana á þess vegum. Hann
sagði að ekki væri um sérstök
tímamörk að ræða „en ég geri ráð
fyrir að Suðurnesjamenn vilji fá
svör fljótlega“.
KEA aftur í matvöruna?
Börnin tefla | Skákfélag Akureyrar hefur
reglulegar barna- og unglingaæfingar sín-
ar nk.laugardag, 11. október kl. 13.30. Að-
alþjálfari í vetur verður Björn Ívar Karls-
son og er öllum krökkum í bænum boðið í
Íþróttahöllina á skákæfingu. Að venju
verða æfingar ókeypis í allan vetur.
Lagfært
við Lax-
dalshús
Morgunblaðið/Kristján
UNDANFARNAR vikur hefur
starfsfólk Framkvæmdamiðstöðvar
Akureyrarbæjar unnið að end-
urbótum á framlóðinni við Lax-
dalshús, elsta hús bæjarins, sem
stendur við Hafnarstræti í gamla
innbænum. Grjóthleðsla framan
við húsið er m.a. endurnýjuð og
hækkuð og í gær voru þau Gunnar
Th. Gunnarsson og Sigríður D.
Jónsdóttir garðyrkjufræðingar að
vinna við grjóthleðsluna. Fram-
kvæmdin breytir mjög ásýnd húss-
ins en vinnu við þennan áfanga er
að ljúka. Stefnt er að því ljúka
framkvæmdum á lóðinni á næsta
ári.
Laxdalshús mun hafa verið
byggt 1795. Klemens Jónsson segir
frá því í Akureyrarsögu sinni að
kaupmaður að nafni Kyhn hafi lát-
ið byggja húsið og verslun hans
var rekin í húsinu um tíma.
INGVILL Plesner félagsfræðingur fjallar
um tilraunir fræðimanna til að svara hinu
sígilda viðfangsefni félagsfræðinnar um
það hver sé grundvöllur samfélagsins á
Félagsvísindatorgi í dag, miðvikudaginn
8. október. Fyrirlesturinn verður fluttur í
húsakynnum Háskólans á Akureyri í Þing-
vallastræti 23, stofu 214 og hefst kl. 16.30.
Ingvill mun í erindi sínu fjalla um þau
gildi sem liggja til grundvallar starfi
grunnskóla á Norðurlöndum eins og þau
koma fram í lögum og námskrá skóla.
Hvað heldur
samfélaginu saman?
mbl.isFRÉTTIR