Morgunblaðið - 08.10.2003, Page 38
DAGBÓK
38 MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Í dag
eru væntanleg Stella
Pollux, Dettifoss,
Mánafoss og Helgafell.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur. Skrifstofa
s. 551 4349, opin mið. kl.
14–17.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa og postulín,
kl. 13 postulín. Hár-
snyrting, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og handavinna, kl.
10.30–11.30 heilsu-
gæsla, kl. 13–16.30
smíðar og handavinna,
kl. 13 spil.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
13 hárgreiðsla, bað, kl.
9–12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 9–17
fótaaðgerð, kl. 10–10.30
bankinn, kl. 13–16.30
bridge/vist, kl. 13–16
glerlist.
Félagsstarfið, Dalbraut
18–20. Kl. 9 aðstoð við
bað og hárgreiðsla, kl.
10 leikfimi, kl. 14.30
bankinn, kl. 14.40 ferð í
Bónus, kl. 9–16.30 pútt-
völlurinn opinn.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 opin verslunin,
kl. 13.30 bankinn, kl.
11–11.30 leikfimi.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9 postu-
lín, kl. 13 trémálun, kl.
9–13 hárgreiðsla, kl. 9–
16.30 fótaaðgerð.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9.30
hjúkrunarfræðingur á
staðnum, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
Félag aldraðra í Mos-
fellsbæ. Gönguferð með
nesti í Skógarnes og
Löngufjörur á Snæ-
fellsnesi laug. 11. okt.
Farið frá Hlégarði kl.
10. Þátttakendur til-
kynni sig til Sólveigar
sími 556 8563 eða Ingi-
bjargar sími 566 6212.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30 stóla-
leikfimi, kl. 10.20 og
11.15 leikfimi, kl. 13
handavinnuhornið, kl.
13.30 trésmíði, nýtt og
notað, kl. 14 fyrirlestur
um Vífilsstaði í Garða-
bergi.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Skrifstofan
er opin í dag frá kl. 10–
11.30, viðtalstími í Gjá-
bakka kl 15–16
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli.
Kl. 9 dagblöðin, rabb og
kaffi. Tréútskurður kl.
9. Myndmennt kl. 10 og
16. Línudans kl. 11.
Glerlist kl. 13. Pílukast
og billjard kl. 13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Söngfélag
FEB, kóræfing kl. 17.
Línudanskennsla Sig-
valda kl. 19.15.
Gerðuberg, félagsstarf.
s. 575 7720. Kl. 9–16.30
vinnustofur, kl. 10.30
gamlir leikir og dansar,
kl. 10.30 sund- og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug. Frá hádegi
spilasalur opinn. Kl.
13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–17 handavinna, kl.
9.30 boccia, kl. 9.30 og
kl. 13 glerlist, kl. 13 fé-
lagsvist, kl. 16 hring-
dansar, kl. 17 bobb. Kl.
15.15 söngur.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
9.05 og kl. 9.55 leikfimi,
kl. 10 ganga, kl. 11
boccia.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
hárgreiðsla, fótaaðgerð
og banki, kl. 13 brids.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9–15 handmennt, kl. 9–
10 og kl. 10–11 jóga, kl.
10.30–11.30 ganga, kl.
15–18 myndlist. Fóta-
aðgerðir. Hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi.
Á morgun er Keila í
Mjódd kl. 10.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 vinnustofa, kl. 9–
16 fótaaðgerð, kl. 13–
13.30 bankinn, kl. 14 fé-
lagsvist, kaffi, verðlaun.
Vesturgata 7. Kl. 8.25–
10.30 sund, kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 12.15-14.30
verslunarferð, kl. 13–14
spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður.
Haustbingó kl. 13.15.
Hana-nú Kópavogi.
Fundur í Bókmennta-
klúbbi í kvöld kl. 20-
21.30 á Bókasafni
Kópavogs. Skáld
kvöldsins er Pjetur
Hafstein Lárusson. All-
ir velkomnir í Gjábakka
Fannborg 8. Valgerður
Snæland Jónsdóttir
skólastjóri er gestur
kvöldsins.
Kiwanisklúbburinn
Geysir, Mosfellsbæ.
Næstu fimmtudags-
kvöld kl. 20.30 verður
spiluð félagsvist í Kiw-
anishúsinu í Mosf.
ITC-deildin Melkorka
heldur fund í Borg-
artúni 22, 3 hæð. mið. 8.
okt. kl. 20. Öllum opinn.
Nánari uppl. veitir
Gunnlaug, s. 581 1172.
Hafnargönguhóp-
urinn. Kvöldganga kl.
20 alla mið. Lagt af stað
frá horni Hafnarhúss-
ins norðanmegin.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra, Hátúni 12. Kl.
19.30 félagsvist.
Í dag er miðvikudagur 8. októ-
ber, 281. dagur ársins 2003. Orð
dagsins: Ég segi yður: Héðan af
munuð þér eigi sjá mig, fyrr en
þér segið: Blessaður sé sá sem
kemur, í nafni Drottins.
(Matt. 23,39.)
Ingólfur Kjartansson,skólastjóri grunnskóla
Tálknafjarðar, blæs íbú-
um Barðastrandar hvatn-
ingarorð í brjóst í gestap-
istli á vefsíðunni
Patreksfjörður.is. „Við
erum stolt af því að búa í
þessum harðbýla lands-
hluta. Við erum stolt af
því að vera þátttakendur
og um margt leiðandi afl
í þeim markmiðum sem
þjóðin hefur sett sér, til
dæmis í nýtingu eigin
auðlinda. Við erum ekki
síður stolt af því að til
okkar er tekið sem
áhrifavalda þegar kemur
að umfjöllun um mótun
sögu íslenskrar þjóðar í
rúm ellefu hundruð ár.
Við erum Barðstrend-ingar. Við erum af-
komendur þeirra sem hér
fyrstir höfðu búsetu í
okkar harðbýla landi,
frumkvöðlar úr aust-
urvegi. Það fólk átti því
láni að fagna að dvelja á
Barðaströnd og njóta
þeirra landgæða og
þeirrar náttúru sem þar
er. Þetta verðum við sem
hér búum nú að hafa í
huga þegar við eigum
stöðugt meir og meir
undir högg að sækja. Íbú-
um hér fækkar stöðugt.
Um leið fækkar atvinnu-
tækifærum sjálfkrafa.
Sóknarfærum sömuleiðis.
Allt tal um nýsköpun er
framreitt fyrir stöðugt
vondaufari eyrum. Þetta
er auðvelda og örugga
leiðin til auðnar.“
Hann spyr hvar mót-vægið, sóknarfærin
og mannauðinn sé að
finna. „Hvar annars stað-
ar en í okkur sjálfum?
Hér er nefnilega margt
að gerast sem er þess eðl-
is að efla bjartsýni, von
og trú á kraftmeira
mannlíf hlaðið tækifær-
um og tiltrú. Við eigum
ekki stöðugt að kveina í
þingmönnum og ráðherr-
um: „Hvar eru efnd-
irnar?“ Slíkt tal er til
þess fallið að beina
ábyrgðinni frá þeim sem
hana eiga að axla. Okkur
sjálfum. Við eigum okkur
hins vegar að sjálfsögðu
hauka í horni þar sem
eru kappsamir og ötulir
stjórnmálamenn. En við
vitum það vel, Barð-
strendingar og Vestfirð-
ingar allir, að hjá okkur
liggur frumkrafturinn.
Það höfum við sýnt svo
oft. Þar ætlum við skóla-
fólk að vera í fararbroddi
og munum láta einskis
ófreistað við að efla
byggð og auka mögu-
leika fólks á að búa hér,
lifa, starfa og mennta
sig.“
Í lokin segir Ingólfur:„Sameinumst því, íbú-
ar Vestur-Barðastrand-
arsýslu, um að finna
lausn á þeim vanda sem
nú steðjar að. Frammá-
menn í íslensku þjóðlífi,
jafnt stjórnmálamenn
sem og aðrir, hafa
óhræddir haldið því fram
að mikilvægt sé að styðja
við bakið á okkur. Þessi
orð eru okkur mikilvæg –
en einungis ef orðum
fylgja verk.“
STAKSTEINAR
Við erum
Barðstrendingar
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI hefur átt erindi áLandspítalann við Hringbraut
reglulega um hríð og hann hefur
komist að þeirri niðurstöðu að oftast
sé ógjörningur að fá þar bílastæði.
Það er brýn nauðsyn að bæta úr
bílastæðamálum spítalans því það
getur tekið tíu til tuttugu mínútur að
bíða eftir að fá stæði í göngufæri og
oft myndast örtröð á lóð spítalans
þar sem margir eru að hringsóla og
bíða.
Þar sem Víkverji hefur stundum
staldrað við á spítalanum í nokkurn
tíma í þessum heimsóknum sínum
hefur hann velt því fyrir sér hvers
vegna ekki sé kaffihús eða kaffitería
á spítalanum fyrir gesti eða þá sem
eru að koma til aðstandenda og
staldra lengi við. Að vísu er að sögn
kunnugra búið að koma upp slíkri
aðstöðu á barnaspítalanum en Vík-
verji er sem sagt að tala um aðalspít-
alann.
Það væri frábært að geta brugðið
sér í annað umhverfi innan spítalans
og tyllt sér niður yfir einum cappuc-
ino eða tebolla, nú eða þá keypt sér
súpu og salat ef heimsóknin stæði
yfir á matmálstíma.
Og af því Víkverji er nú farinn að
nöldra eina ferðina enn þá langar
hann líka að minnast á biðstofuna
sem þeim er boðið upp á sem eru að
koma í lyfjameðferð vegna krabba-
meins.
Hún er svo lítil og stólar svo fáir
að oft þurfa sjúklingar að standa
heillengi og bíða áður en þeir komast
svo að hjá sínum lækni.
Ef einhverntímann er þörf á hlý-
legum og þægilegum vistarverum þá
er það í svona tilfellum. Og það er af-
ar langt frá því að umrædd biðstofa
uppfylli þau skilyrði.
VÍKVERJI er annars afar glaðurmeð úrvalið af salattegundum
undanfarið. Hann hefur getað geng-
ið að því nokkuð vísu að til væri
klettasalat í búðinni hans, romaine í
Sesar-salatið, frisse, spínat og eik-
arlauf auk þessara venjulegu teg-
unda, kínakáls, jöklasalats og lamb-
hagasalats. Ef þessar tegundir hafa
ekki verið til ferskar og heilar þá
hefur hann að minnsta kosti geta
keypt þær í poka niðurskornar. Vík-
verji vonar að aukið framboð í fleiri
verslunum en áður sé merki um
aukna sölu og að framhald verði á.
x x x
VINKONA Víkverja er afar óhressmeð að Skjár 2 skuli bara standa
þeim til boða sem eru með breið-
bandið. Hún vill gjarnan kaupa
áskrift að þessari nýju sjónvarps-
stöð því henni líst ágætlega á þætti
sem þar munu standa til boða. Þegar
hún fór á Netið til að athuga hvort
von væri á breiðbandinu í hennar
götu sá hún að það var ekkert í sjón-
máli. Konan sagðist bara fara og
kaupa sér gervihnattadisk fyrst
þessi möguleiki stæði sér ekki til
boða á næstunni.
Morgunblaðið/Júlíus
Víkverji vill gjarnan geta skroppið
á kaffiteríu þegar hann á erindi á
Landspítalann.
Málefni MS-félagsins
MÁLEFNI MS-félagsins
voru fyrir nokkrum vikum
til umfjöllunar í fjölmiðl-
um, en síðan hefur ekki
heyrst orð um hvernig
þeim málum lyktaði. Þar
kom fram að einn starfs-
maður var ákærður fyrir
að hafa tekið sér fé úr
sjóði félagsins. En ég vil
koma því áleiðis að á upp-
lýsingafundi hjá félaginu
kom það skýrt fram að
það er ekki rétt, og var
þess krafist af fundar-
mönnum að starfsmaður-
inn yrði beðinn opinber-
lega afsökunar. Enn hefur
það ekki gerst.
Er hægt að bjóða nokk-
urri manneskju upp á það
að hægt sé að sverta
mannorð hennar opinber-
lega án þess að viðkom-
andi fái rönd við reist?
MS-félagar, erum við
tilbúin að láta þá stjórn
sem nú er við lýði komast
upp með það? Málefni fé-
lagsins eru í algjörum
hnút eins og sýnir sig með
öllum þeim uppsögnum
starfsmanna sem hafa átt
sér stað, og illt er til þess
að vita að þeir sem virki-
lega þurfa á því að halda
að eiga MS-heimilið að
sem athvarf skuli margir
hverjir vera hættir að
sækja það. Sá góði heim-
ilisandi sem hefur ríkt þar
er nú horfinn.
Ég skora á ykkur fé-
laga að láta til ykkar
heyra.
Sigríður Einarsdóttir.
Konan á Nesbala
KONAN á Nesbala sem
ég fékk svartan kettling
hjá sunnudaginn 28. sept-
ember er beðin að hafa
samband við Grétu í síma
587 2474 eða 662 4637.
Gylliboð
til ungmenna
Í DV sl. mánudag er grein
eftir unga konu, Sigríði
Víðis Jónsdóttur, sem hún
kallar Þrælahaldarar nú-
tímans? Þar fjallar hún
um hvernig bankar og
aðrar stofnanir keppast
við að senda henni alls
konar gylliboð – þótt hún
eigi ekki bót fyrir boruna
á sér, eins og hún orðar
það sjálf.
Er ég hjartanlega sam-
mála því sem Sigríður er
að skrifa um. Á mínu
heimili búa tvö ungmenni
um tvítugt og þekki ég
þetta af eigin raun. Inn á
heimilið streyma alls kon-
ar tilboð frá bönkum,
símafyrirtækjum og fleiri
fyrirtækjum.
Er ekki varhugavert að
koma því inn hjá ung-
mennum í dag að þau geti
ekki komist af án þess að
eiga nýlegan bíl, tölvu,
nýjustu tegund af gsm-
síma og kreditkort í vas-
anum?
Og ef þessi sömu ung-
menni freistast til að taka
þátt í þessu kapphlaupi
um dauða hluti lenda þau
jafnvel í fjárnámi eða öðru
verra, jafnvel áður en þau
hafa lokið skóla.
Móðir.
Gestgjafinn 1998
ER einhver sem á jólablað
Gestgjafans 1998 oggetur
útvegað mér það með fyr-
irfram þökk? Þeir sem
gætu liðsinnt mér vinsam-
lega hafi samband í síma
6953805 eða á hanna-
teitsd@hotmail.com.
Tapað/fundið
Lyklakippa í óskilum
RAUÐ lyklakippa merkt
Herb fannst á Langholts-
vegi. Upplýsingar í síma
561 1795.
Dýrahald
Týri er týndur
TÝRI er 7 ára stór svart-
hvítur fressköttur, til
heimilis í Bauganesi 3 í
Skerjafirði. Hann er með
rauða ól. Ekkert hefur
spurst til hans síðan
mánudaginn 29. septem-
ber, sem er afar óvenju-
legt þar sem hann heldur
sig mest á sömu slóðum,
vestast í Stóra-Skerjafirði.
Þeir sem hafa orðið hans
varir vinsamlegast hafi
samband í síma 561-2169
eða 694-5113.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
MR-ingar, búa sig undir róðrakeppni við Versló.
LÁRÉTT
1 kurr, 4 brattur, 7 fugl-
um, 8 sitt á hvað, 9 guð,
11 tætti sundur, 13
hræðsla, 14 deilur, 15
óveðurshrina, 17 hagn-
aðar, 20 blóm, 22 stiga-
gatið, 23 bíll, 24 kaka, 25
híma.
LÓÐRÉTT
1 fyrir neðan, 2 gaf sam-
an, 3 vítt, 4 heitur, 5 sé í
vafa, 6 náði í, 10 öfgar, 12
lengdareining, 13 gruna,
15 helmingur, 16 vatns-
flaumur, 18 klettasnös,
19 skyggnast um, 20
elska, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 værukærar, 8 útlit, 9 innbú, 10 ann, 11 tágin,
13 garns, 15 senna, 18 ólgan, 21 pól, 22 safna, 23 ennið,
24 vaðsekkur.
Lóðrétt: 2 ærleg, 3 urtan, 4 æfing, 5 agnir, 6 fúlt, 7
húns, 12 inn, 14 afl, 15 sess, 16 nefna, 17 apans, 18 óleik,
19 gengu, 20 níða.
Krossgáta
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16