Morgunblaðið - 08.10.2003, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2003 39
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur gott skopskyn og
mikið ímyndunarafl. Þú býrð
yfir hæfni, en í þér býr einn-
ig rómantík og þú myndir
gefa allt fyrir ástina. Miklar
breytingar eru framundan
og þær eru jákvæðar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Ekki loka á óvænt samtöl
við nána vini eða félaga.
Dagurinn gæti komið
skemmtilega á óvart, en þú
þarft að vera á varðbergi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nýjar og óhefðbundnar leið-
ir til að afla peninga gætu
opnast. Þá gæti ný tækni,
sem kynnt verður í
vinnunni, orðið þér til fram-
dráttar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ný ást gæti lífgað upp á
daginn. Fólk sem er ólíkt
þér verður skyndilega aðlað-
andi og eitthvað gæti slegið
þig út af laginu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Eitthvað óvenjulegt mun
lífga upp á heimilið. Það
gæti tengst sjónvarpi, tölvu
eða tækni, sem gerir að
verkum að þér finnst þú
vera með á nótunum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þér gæti leiðst að þurfa að
ganga í gegnum hina dag-
legu hringekju í dag. Þú
þarft á tilbreytingu að
halda.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Skyndigróði eða óvænt
tækifæri gætu komið sér
vel. Gott er að vera opin/n
fyrir því að nálgast hlutina
með nýjum hætti.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú mátt búast við einhverju
spennandi í lífi þínu í dag.
Eitthvað óvænt og örvandi
mun gera daginn ánægju-
legan.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú ert opin/n fyrir nýjum
leiðum til að höndla ham-
ingjuna gæti það valdið
þáttaskilum í því hvernig þú
hugsar.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Platónskir vinir gætu orðið
elskhugar í dag. Samband
getur myndast við ólíkleg-
asta fólk.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Óvænt hól eða jafnvel launa-
hækkun gæti beðið þín í
dag. Mikilvægt fólk er
ánægt með það hvað þú ert
úrræðagóð/ur. Ekki óttast
nýjar hugmyndir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Best er að hlusta með opn-
um huga á málflutning ann-
arra í dag. Þú átt auðvelt
með að finna til samkenndar
með öðrum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú gætir fengið óvæntar
gjafir í dag. Aðrir gætu nú
reynst þér rausnarlegir og
þú átt að grípa tækifærið.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HEIMURINN OG ÉG
Þess minnist ég, að mér og þessum heimi
kom misjafnlega saman fyrr á dögum.
Og beggja mál var blandið seyrnum keimi,
því báðir vissu margt af annars högum.
Svo henti lítið atvik einu sinni,
sem okkur, þessa gömlu fjandmenn sætti:
að ljóshært barn, sem lék í návist minni,
var leitt á brott með voveiflegum hætti.
Það hafði veikum veitt mér blessun sína
og von, sem gerði fátækt mína ríka.
Og þetta barn, sem átti ástúð mína,
var einnig heimsins barn og von hans líka.
- - -
Steinn Steinarr
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
80 ÁRA afmæli. Í dag,8. október, er áttræð
Stella Stefánsdóttir, Lækj-
argötu 22a, Akureyri. Eig-
inmaður hennar er Gunnar
Konráðsson. Þau taka á
móti ættingjum og vinum í
dag á Fiðlaranum, 4. hæð,
milli klukkan 18 og 21. Blóm
og gjafir eru vinsamlegast
afþakkaðar.
50 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8.
október, er fimmtugur Ei-
ríkur Jónsson, stuðlastjóri
Íslenskra getrauna, Álf-
hólsvegi 10a, Kópavogi.
Eiginkona hans er Hulda
Björk Nóadóttir. Þau hjón-
in hafa þegar haldið fagnað
með ættingjum og vinum.
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 c6
4. Rf3 d6 5. Be3 b5 6. Bd3
Rf6 7. Dd2 Rg4 8. Bg5 h6 9.
Bh4 O-O 10. h3 Rf6 11. O-
O-O Da5 12. Kb1 b4 13. Re2
Be6 14. Rc1 Rbd7 15. Hhe1
Hfb8 16. Rb3 Dc7 17. g4 a5
18. g5 hxg5 19. Rxg5 Rf8 20.
f4 a4 21. Rc1 c5 22. d5 Bxd5
23. e5 b3 24. cxb3
axb3 25. a3 c4 26.
Bf1
Taflfélagið
Hellir sendi lið í
karla – og
kvennaflokk í
Evrópukeppni
taflfélaga sem
fram fór á Krít og
lauk fyrir
skömmu. Staðan
kom upp í fyrstu
umferð mótsins
þar sem Mikhail
Krasenkov (2585)
hafði svart gegn
Sigurbirni
Björnssyni (2302). 26...
Hxa3! 27. bxa3 Hvítur yrði
óverjandi mát eftir 27. exf6
Ha1+! 28. Kxa1 Da7+ 29.
Kb1 Ha8. Eftir textaleikinn
er taflið einnig gjörtapað.
27... c3 28. Dd3 c2+ 29. Kb2
cxd1=D 30. Dxd1 dxe5 31.
fxe5 Re4! og hvítur gafst
upp. Þetta var eina tap Sig-
urbjörns í keppninni en ár-
angur hans í henni samsvar-
aði áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
SUÐUR spilar fjóra
spaða og fær á sig þægilega
vörn í byrjun. En það eru
holur á veginum framundan.
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ KD98
♥ ÁK108
♦ 64
♣G62
Suður
♠ ÁG1042
♥ 7432
♦ ÁD
♣D5
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Dobl Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Vestur tekur tvo fyrstu
slagina á ÁK í laufi og spilar
því þriðja. Austur fylgir lit.
Tígulkóngurinn er ábyggi-
lega hjá opnaranum í vestur
og því virðist rökrétt er að
henda tíguldrottningu í lauf-
gosa. Eða hvað?
Það er auðvitað í lagi ef
hjartað liggur 3-2 (eða ef
vestur á fjórlit). En það
liggur ekkert á að koma
tíguldrottningunni fyrir –
hún getur eins farið niður í
fríhjarta síðar. Því er ná-
kvæmara að henda hjarta í
laufgosann og halda þannig
opnum þeim möguleika að
spila vestri inn á tígulkóng.
Sá möguleiki verður virkur í
þessari legu:
Norður
♠ KD98
♥ ÁK108
♦ 64
♣G62
Vestur Austur
♠ 75 ♠ 63
♥ 6 ♥ G95
♦ KG1032 ♦ 9875
♣ÁK1094 ♣873
Suður
♠ ÁG1042
♥ 7432
♦ ÁD
♣D5
Sagnhafi tekur tvisvar
tromp, leggur niður hjarta-
ás, fer heim á tromp og spil-
ar hjarta að blindum með
því hugarfari að láta tíuna ef
vestur fylgir smátt. En vest-
ur hendir tígli. Þá er drepið
á hjartakóng, tígulás tekinn
og vestur síðan sendur inn á
tígulkóng. Hann verður að
spila út í tvöfalda eyðu og þá
hverfur tapslagurinn á
hjarta heima.
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
40 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8.
október, er fertugur Karl
Th. Birgisson, fram-
kvæmdastjóri Samfylking-
arinnar. Hann og Katrín
Ösp Bjarnadóttir bjóða vin-
um og vandamönnum til
fagnaðar á BSÍ laugardag-
inn 11. október kl. 21.
FRÉTTIR
ÁGÚST Georgsson, deildarstjóri
sjóminjasafns Þjóðminjasafns Ís-
lands, hefur sent Morgunblaðinu
athugasemd vegna ummæla Sig-
rúnar Magnúsdóttur, formanns
undirbúningshóps um stofnun sjó-
minjasafns í Reykjavík.
Haft er eftir Sigrúnu í Morgun-
blaðinu 2. október sl.: „Að sögn Sig-
rúnar hefur verið rætt við Þjóð-
minjasafnið um að nýja sjóminja-
safnið í Reykjavík fái til vörslu alla
reykvíska muni aftur, en margir
gripanna voru upphaflega í eigu
borgarinnar þegar sjómenn settu
upp vísi að sjóminjasafni á Hall-
veigarstöðum á sínum tíma.“
Í athugasemd Ágústar segir:
„Þessar upplýsingar eru ekki alls
kostar réttar og hljóta að byggjast
á misskilningi. Vísir að sjóminja-
safni hefur aldrei verið settur upp á
Hallveigarstöðum og ekki er heldur
um það að ræða að tilteknar sjó-
minjar í vörslu Þjóðminjasafnsins
hafi upphaflega verið í eigu Reykja-
víkurborgar.
Það sem valdið getur þessum
misskilningi er að árið 1939 var
haldin sjávarútvegssýning í Mark-
aðsskálanum í Reykjavík, að hluta
til söguleg, en hann stóð þar sem nú
eru Hallveigarstaðir. Sýningin var
á vegum sjómannadagsráðs en það
hafði stofnun sjóminjasafns í mörg
ár á stefnuskrá sinni. Í kjölfar sýn-
ingarinnar var skipuð opinber
nefnd til þess að vinna að söfnun
sjóminja og sjóminjamálum. Matt-
hías Þórðarson þáverandi þjóð-
minjavörður var formaður nefndar-
innar. Það sem nefndinni hafði
áskotnast var að lokum afhent
Þjóðminjasafni Íslands til eignar og
varðveislu. Munir þessir mynduðu
síðan uppistöðuna í sjóminja-
sýningu á neðstu hæð safnsins en
þar með hafði þessum minjaflokki
verið gert verulega hátt undir höfði
í sýningum safnsins.“
Sjóminjar Þjóðminjasafns
ekki í eigu borgarinnar
60 ÁRA afmæli. Í dag,miðvikudaginn 8.
október, er sextug Helga
Hauksdóttir hárgreiðslu-
meistari, Stakkhömrum 11,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Jóhann Örn Guð-
mundsson.
Ég nenni ekki heldur að
fara. En hugsaðu þér bara
hvað þau verða ánægð ef við
afboðum. Best að koma sér!
Haustferð
sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík 11. október
Efnt verður til árlegrar haustferðar sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík laugardaginn
11. október. Að þessu sinni verður farið um
Reykjanes og ýmsir áhugaverðir staðir skoð-
aðir. Meðal annars verður farið í Garðskaga-
vita, Gunnar Marel Eggertsson sýnir vík-
ingaskipið Íslending, Árni Sigfússon, bæjar-
stjóri í Reykjanesbæ, tekur á móti hópnum
og kynnir uppbygginguna í bænum, komið verður við í
Helguvík þar sem gefur að líta mesta landbrot utan virkjana-
svæða og smábátahöfnin og bátasafn Gríms Karlssonar verð-
ur skoðað. Boðið verður upp á kaffiveitingar í veitingastof-
unni Ránni og á heimleiðinni verður skoðað framtíðarsvæði
Íslendings og Smithsonian-safnsins. Lagt af stað frá Valhöll
kl. 13.00 og er reiknað með að koma til baka um kl. 18.30.
Allir eru velkomnir og kostar ferðin 1.000 kr.
Umsjón með ferðinni hefur Sjálfstæðisfélagið
í Nes- og Melahverfi.
Þátttakendur skrái sig í síma 515 1700 fyrir 10. okt.
Afmælisþakkir
Sendi öllum þeim, sem glöddu mig með kveðj-
um, gjöfum og heimsóknum á níutíu ára af-
mæli mínu miðvikudaginn 24. september sl.
innilegar þakkir og kveðjur.
Í Guðs friði.
Magnús Jónsson
frá Kollafjarðarnesi.
STJÓRN Siðmenntar, félags um
borgaralegar athafnir, hefur afhent
alþingismönnum „Stefnu Siðmennt-
ar í trúfrelsismálum“.
Stjórn Siðmenntar telur að mark-
mið stjórnvalda eigi að vera að
tryggja frelsi einstaklinga og vernda
rétt þeirra til að lifa samkvæmt þeim
lífsskoðunum sem þeir sjálfir kjósa.
„Stjórnvöld eiga að vera hlutlaus,
óháð trúarbrögðum og eiga ekki að
hygla ákveðnum lífsskoðunum um-
fram önnur. Þess vegna verður að
aðskilja ríki og kirkju. Aðskilnaður
ríkis og kirkju felur m.a. í sér að
jafna lagalega, fjárhagslega og fé-
lagslega stöðu þeirra hópa sem að-
hyllast ólíkar lífsskoðanir. Öðruvísi
verður trúfrelsi, og þar með frelsi
einstaklingsins, ekki tryggt,“ segir í
fréttatilkynningu.
Samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi
Gallups vill meirihluti landsmanna
aðskilja ríki og kirkju. Gallup hefur
rannsakað viðhorf almennings til að-
skilnaðar ríkis og kirkju frá 1993 og
hefur meirihluti landsmanna alltaf
verið hlynntur aðskilnaði. Fylgið við
aðskilnað hefur þó aukist jafnt og
þétt og nú vilja 67% landsmanna að
ríki og kirkja verði aðskilin.
Stjórn Siðmenntar telur kröfuna
um aðskilnað ríkis og kirkju vera
fyrst og fremst kröfu um frelsi og
jafnrétti. Stjórnin telur að ef alþing-
ismenn eru hlynntir jafnrétti verði
þeir að vera fylgjandi aðskilnaði og
því að ólík staða mismunandi lífs-
skoðanahópa verði jöfnuð.
Félagið þakkar stuðning stjórn-
málaflokka sem lýst hafa stuðningi
við sjónarmið þess.
Siðmennt færir þingmönn-
um trúfrelsisstefnu sína