Morgunblaðið - 09.10.2003, Side 7

Morgunblaðið - 09.10.2003, Side 7
 RHONDA M. Erlingsdóttir lauk dokt- orsprófi (Ph.D) í heyrnarfræði (Audiology) sl. vor frá James Madison- háskólanum í Virginíu í Bandaríkjunum. Titill dokt- orsritgerðarinnar er „Consonant Confusion in Noise and Reverb- eration for Normal-Hearing Young Listeners“. Ritgerðin fjallar um skiljanleika mælts máls í hávaðamenguðu umhverfi og þar sem ómun er til staðar. Rhonda er fædd og uppalin í Reykjavík, lauk grunnskólaprófi frá Hlíðardalsskóla í Ölfusi 1991, og stúdentsprófi frá Tyrifjord Vid- eregående Skole, Røyse, Noregi árið 1994. Fór þá til náms í Bandaríkjunum og lauk BA prófi í tónlist og BS prófi í talmeina- og heyrnarfræði (Speech-Language Pathology and Audiology) frá Andrews University, í Michigan, með ágætum (magna cum laude) árið 1998. Rhonda starfar nú við háskóla- sjúkrahús Michigan-háskólans í Ann Arbor, (University of Michig- an Health System) bæði á háls- og eyrnalækningadeild og við rann- sóknir. Doktor í heyrnarfræði FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 7 MORGUNBLAÐINU hefur borist yfirlýsing frá Arngrími Jóhanns- syni, stjórnarformanni Air Atlanta, vegna fréttar um kjör starfsmanna fyrirtækisins sem birtist í blaðinu á þriðjudag: „Air Atlanta vísar því alfarið á bug að laun flugmanna og flugvél- stjóra hjá félaginu séu léleg. Því var haldið fram andmælalaust í frétt Morgunblaðsins í gær [á þriðjudag] af stjórnarmanni í Fé- lagi íslenskra atvinnuflugmanna, en í því félagi eru einkum flugmenn sem starfa hjá Flugleiðum. Atlanta greiðir flugstjórum, sam- kvæmt samningum við Frjálsa flug- mannafélagið, að jafnaði yfir 600 þúsund krónur á mánuði. Þeir starfa 21 dag erlendis og fá síðan jafnmarga frídaga á Íslandi. Að- stoðarflugmenn og flugvélstjórar búa við sömu skilyrði og fá greiddar að jafnaði yfir 450 þúsund krónur. Til viðbótar fá flugliðar verulegar aukagreiðslur fljúgi þeir fleiri en 75 klst. á mánuði. Nú getur hver mað- ur fyrir sig svarað hvort þetta eru léleg laun eða ekki. Atlanta ræður einnig erlenda starfsmenn í gegnum erlendar starfsmannaleigur. Meðalgreiðslur til flugstjóra fyrir hvern unninn mánuð eru yfir 8.400 Bandaríkja- dala eða um 650 þúsund krónur. Erlendir flugliðar eru ráðnir ýmist til skamms tíma til að mæta tíma- bundnum sveiflum eða til lengri tíma sem oftast eru tvö ár. Þeir njóta ríflegra frídaga og allt að tveggja ára veikindaréttar. Dæmi eru um starfsmenn hjá félaginu sem hafa unnið á þessum kjörum í allt að tíu ár. Með þessum hætti getur félagið tekið þátt í útboðs- verkefnum um allan heim og náð árangri. Air Atlanta mótmælir aðdróttun- um stjórnarmanns í FÍA varðandi skattamál. Öfugt við það sem haldið er fram í Morgunblaðinu þá stað- festir nýlegt álit skattstjóra frá 27. ágúst 2003 um starfsemi alþjóð- legra fyrirtækja að sköttum sé haldið eftir hjá þeim starfsmönnum sem koma til landsins og starfa þar. En slíkt eigi ekki við um erlenda starfsmenn íslenskra fyrirtækja á erlendri grund,“ segir í yfirlýsingu frá Arngrími Jóhannssyni. Yfirlýsing frá Arngrími Jóhannssyni, stjórnarformanni Air Atlanta Meðalgreiðslur 600 þúsund krónur FARÞEGUM um Flugstöð Leifs Eiríkssonar fjölgaði um tæplega 15% í septembermánuði miðað við sama tíma í fyrra, úr tæplega 106 þúsund farþegum árið 2002 í tæp- lega 122 þúsund farþega nú. Mest vegur fjölgun farþega til og frá Íslandi sem er rúmlega 20% milli ára. Á sama tíma hefur far- þegum sem millilenda hér á landi á leið yfir Norður-Atlantshafið fækk- að um rúm 5%. Alls hefur farþegum um Flug- stöð Leifs Eiríkssonar því fjölgað um tæplega 10% það sem af er árinu miðað við sama tíma árið 2002, eða úr tæplega 987 þúsund farþegum í rúmlega 1.084 þúsund farþega. 15% fjölgun farþega í september HÆKKUN lóðaverðs í Reykjavík er um 18% á sjö mánuðum, ef marka má hærra lóðaverð í Norðlingaholti miðað við útboð á lóðum í Grafarholti í janúar og mars á þessu ári. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá sjálfstæðismönnum í borgarstjórn. Sjálfstæðismenn hafa gagnrýnt borgarstjóra harðlega m.a. fyrir þau ummæli hans að lóðaframboð í Reykjavík hafi ekki verið meira ára- tugum saman, og að segja að færri lóðum hafi verið úthlutað í níu ára valdatíð R-listans en á sambæri- legum tíma þegar Sjálfstæðisflokk- urinn var við völd. Í tilkynningunni segir ennfremur: „Sjálfstæðismenn í borgarstjórn benda á að afleiðing þessa háa lóða- verðs í borginni er hækkandi bygg- ingakostnaður og söluverð íbúða og í framhaldinu hærra fasteignamat og fasteignaskattar. Þessi þróun leiðir síðan til þess að húsaleiga á almenn- um markaði hækkar enn frekar.“ Lóðaverð hækkað um 18% frá því í ársbyrjun ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.