Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR
34 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Elías Tómassonfæddist í Viðey
15. mars 1929. Hann
lést af völdum bif-
reiðaslyss 31. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Tómas Tómasson, f.
30. mars 1899, d. 4.
feb. 1980, og Jakob-
ína Elísabet Elías-
dóttir, f. 1. júlí 1902,
d. sept. 1988.
Elías var fjórði í
röð átta syskina, hin
voru Bjarni Guð-
mundur, f. 22. des.
1922, d., Jens, f. 22. sept. 1925,
Margrét Rakel, f. 20. ágúst
1927, Fjóla, f. 25. nóv. 1930, d.,
Sóley, f. 25. nóv 1930, Haukur
Sigurður, f. 14. febr. 1932, og
Fjóla Sigríður, f. 3. des. 1933.
Elías var ókvæntur og barn-
laus. Aðeins
tveggja ára var
hann settur í fóstur
og fluttur vestur í
Hnífsdal til móður-
bróður síns Sigurð-
ar Elíassonar sem
var sjómaður og
var þá barnlaus en
síðar eignaðist
hann dóttirna Jónu
Kristínu með konu
sinni Guðmundínu
Guðmundsdóttur en
hún dó fjórum árum
síðar. Elías ólst upp
hjá Sigurði fóstra
sínum til 16 ára aldurs en þá
flutti hann til Reykjavíkur og
stundaði þar almenna verka-
mannavinnu og mun hann eitt-
hvað hafa verið til sjós.
Útför Elíasar hans fór fram í
kyrrþey 9. september.
Mig langar að minnast Ella
frænda míns með fáeinum orðum.
„Hann batt ekki bagga sömu hnút-
um og margir aðrir“, fyrir það var
hann sérstakur. Hann setti
skemmtilegan svip á mannlífið.
Elli var sjálfum sér nógur og fór
sínar eigin leiðir og sótti ekkert til
þjóðfélagsins og yfirgaf jarðlífið án
þess að skulda neinum neitt. Hann
lifði ekki í vellystingum og var
nægjusamur með það litla sem
hann hafði.
Elli bar sig alltaf vel, sagðist
vera fílhraustur, fékk aldrei kvef,
varð aldrei misdægurt og þurfti
aldrei að leita til læknis. Hann var
sterkur og hraustur og mikill
göngugarpur. Elli var einfari en
hafði gaman af að deila skemmti-
legum sögum sínum með öðrum,
eitt var sameiginlegt með sögum
hans að þær voru gæddar kímni og
húmor.
Ég kynntist Ella á heimili elsku-
legrar móður hans er ég aðstoðaði
hana við heimilisverk. Eftir lát
hennar heimsótti frændi okkur
hjónin oft og áttum við saman
margar skemmtilegar stundir,
hann kom til að segja mér fréttir
og fá hjá mér fréttir af sameig-
inlegum frændgarði okkar.
Elli var bundinn Hnífsdalnum og
Ströndinni sem móðir hans og
frændi voru fædd á. Fyrir tveimur
árum kom hann glaður til mín í
heimsókn til að segja mér ferða-
söguna er hann fór vestur á æsku-
stöðvarnar með Fjólu og Sóleyju
systrum sínum.
Elli hafði sterkar taugar til
fóstra síns og frænda Sigurðar
Elíassonar og bar mikla virðingu
fyrir honum.
Elli hafði gaman af að tefla og
mun Jens bróðir hans oft hafa
stytt honum stundir í skák. Það
var snemma í vor er fór að halla
undir fæti hjá frænda, hann varð
fyrir því óláni að axlarbrotna og
leið oft þrautir út af brotinu.
Stundaglas hans var að renna út,
þetta náttúrubarn þurfti ekki að
liggja mánuðum saman á sjúkra-
húsi. Við hjónin kveðjum Ella með
söknuði.
Ég veit að í stormviðri lífsins
varð hann fyrir kali en trúi að nú
sé allt bætt. Ég kveð hann með
eftirfarandi ljóðlínum Einars
Benediktssonar.
Ef tæpt er fyrir fótinn
og fátt er um vinarhótin
þá sjá, þinn mátt í sorg þú átt
þig sjálfan, það er bótin
því fjær sem heims er hyllin
er hjartað Guðs þér nær.
María Rósinkarsdóttir.
ELÍAS
TÓMASSON
Áskirkja. Opið hús kl. 14–17 í neðri safn-
aðarsal fyrir unga sem aldna. Organisti Ás-
kirkju leiðir söng. Allir velkomnir.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12. Umsjón Lovísa Guðmundsdóttir.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Org-
elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn-
aðarheimilinu eftir stundina.
Háteigskirkja. Taize-messa kl. 20.
Landspítali – háskólasjúkrahús. Arnar-
holt. Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund kl. 12 á
hádegi. Gunnar Gunnarsson leikur á org-
elið frá kl. 12. Þjónustu annast Sigurbjörn
Þorkelsson. Kl. 12.30 er léttur málsverður
í boði í safnaðarheimilinu. Alfafundur kl.
19. Umsjón hefur Nína Pétursdóttir og
með henni hópur sjálfboðaliða, sem lang-
ar að kynna gestum sínum grundvallarat-
riði kristinnar trúar. Skemmtilegt og fræð-
andi samfélag þar sem matur er á borð
borinn og friður og gleði við völd. Uppl. í
síma 588 9422.
Neskirkja. Krakkaklúbburinn kl. 14.30.
Starf fyrir 8 og 9 ára börn. Sögur, leikir,
föndur o.fl. Stúlknakór Neskirkju kl. 16.
Kór fyrir 8 og 9 ára stúlkur. Stjórnandi
Steingrímur Þórhallsson organisti. Uppl.
og skráning í síma 896 8192. NEDÓ ung-
lingaklúbburinn. 8. bekkur kl. 17, 9. bekk-
ur og eldri kl. 20. Hundleiðinlegi fundur-
inn. Umsjón Munda og Hans.
Félagsstarf aldraðra laugardaginn 11. okt.
kl. 14. Farið verður í heimsókn í bjálkahús
Nordmanslaget í Heiðmörk. Kaffiveitingar.
Þátttaka tilkynnist í síma 511-1560 milli
kl. 10 og 13 til föstudags. Allir velkomnir.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Helgistund í íbúðum
aldraðra á Skólabraut kl. 13.30.
Óháði söfnuðurinn. Tólf sporin, andlegt
ferðalag í kvöld kl. 19. Hóparnir hafa
lokast.
Árbæjarkirkja. Kl. 15.15 STN-starf með
sjö til níu ára börnum í Selásskóla.
Digraneskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Leikfimi ÍAK kl. 11.15. Bænastund kl.
12.10. Unglingakór Digraneskirkju kl.
16.30–19. (Sjá nánar: www.digranes-
kirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Stelpustarf fyrir stelpur í 3., 4. og
5. bekk kl. 16.30. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30–12 í umsjá
Lilju djákna.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10.
Dagskráin er fjölbreytt. Boðið er upp á
áhugaverða fyrirlestra og skemmtilegar og
fræðandi samverustundir. Kirkjukrakkar
fyrir börn á aldrinum 7–9 ára kl. 17.30–
18.30 í Grafarvogskirkju og einnig í Húsa-
skóla á sama tíma. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga í 8. bekk í Grafarvogskirkju kl.
20.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar, 7–9 ára
starf kl. 16.30.
Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 19 Alfa-nám-
skeið í Salaskóla.
Seljakirkja. KFUM 9–12 ára kl. 17.30.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Bænarefnum er hægt að
koma til prestsins fyrir stundina.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund (sbr.
mömmumorgunn) í dag kl. 13. Kjörið tæki-
færi fyrir heimavinnandi foreldra til að
koma saman og eiga skemmtilega stund í
notalegu umhverfi. Kaffi og léttar veiting-
ar, spjall, föndur, fyrirlestrar, kynningar og
fleira.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára krakka kl. 16.30–18.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi: kl. 15.10–15.50 8.A. í Holta-
skóla, kl. 15.55–16.35 8.B í Holtaskóla.
Ytri-Njarðvíkurkirkja. Stoð og styrking
fundur fimmtudaginn 9. október kl.17. 30.
Kaffi á könnunni og eru allir velkomnir.
Fyrsti fundur á þessum vetri. Spilakvöld
aldraðra og örykja fimmtudaginn 9. októ-
ber kl. 20. í umsjá félaga úr Lionsklúbbi
Njarðvíkur, Ástríðar Helgu Sigurðardóttur
og sr. Baldurs Rafns Sigurðssonar. Nat-
alía Chow organisti leikur á orgel við helgi-
stund að spilum loknum. Stjörnukórinn;
barnakór fyrir 3 til 5 gömul börn æfir í kirkj-
unni laugardaginn 11. október kl. 14.15.
Kennari Natalía Chow Hewlett og undir-
leikari Julian Michael Hewlett.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn/foreldramorgunn í safn-
aðarheimilinu. Sr. Þorvaldur Víðisson. Kl.
20 Tólf spora vinna heldur áfram í kvöld í
KFUM&K heimilinu. Ennþá opið öllum. Allir
sem hafa áhuga á því að vinna af einlægni
með tilfinningar sínar með það að mark-
miði að verða betri og sterkari einstakling-
ar ættu að kynna sér málin. Sr. Þorvaldur
Víðisson og umsjónarfólk. Kl. 20.30 kaffi-
húsamessa verður í safnarheimilinu á
þessum tíma eftir viku.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
AD KFUM&K. Fundur í kvöld kl. 20. sálm-
ar Marteins Lúthers. Efni og hugleiðing í
umsjón Þorgils H. Þorbergssonar, guð-
fræðings og kennara. Allir karlmenn vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á vægu
verði í Safnaðarheimili eftir stundina.
Kvenfélag Akureyrarkirkju: Fyrsti fundur
vetrarins kl. 20 í safnaðarheimili.
Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 20 ung-
lingaafundur fyrir 8. bekk og upp úr.
NÁMSKEIÐ um Postulasög-
una hefst í Leikmannaskóla
kirkjunnar laugardaginn 11.
október kl. 11.00 undir leið-
sögn sr. Arnar Bárðar Jóns-
sonar.
Postulasagan er eitt rita
Nýja testamentisins. Höfundur
hennar er talinn vera læknir-
inn Lúkas og er ritið sjálfstætt
framhald af guðspjalli hans. Í
Postulasögunni greinir höf-
undur frá tilurð kirkjunnar og
þróun hennar á fyrstu áratug-
um eftir upprisu Jesú Krists.
Hún er því stórmerk heimild
um líf og trú frumsafnaðarins.
Ritið er skemmtilegt aflestrar
og áhugavert fyrir margra
hluta sakir. Á námskeiðinu
verður leitast við að fræða um
helstu stef Postulasögunnar,
guðfræði höfundar og þýðingu
ritsins fyrir kirkjuna nú á tím-
um.
Skráning fer fram í síma 535
1500 eða á vef skólans,
www.kirkjan.is/leikmanna-
skoli.
Námskeið um
Postulasöguna
KIRKJUSTARF
Lundi V/Nýbýlaveg
564 4566 • www.solsteinar.is
Sími 562 0200
Erfisdrykkjur
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs unnusta míns, sonar okkar,
bróður og frænda,
SKÚLA MÁS NÍELSSONAR,
Teigagrund 4,
Laugarbakka.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim sem
lögðu fram ómælda vinnu og aðstoð í tengsl-
um við útför hans.
Brynja Ósk Víðisdóttir,
Níels Ívarsson, Jónína Skúladóttir,
Sigrún Eva Þórisdóttir,
Friðbjörn Ívar Níelsson,
Guðrún Ósk Níelsdóttir,
Helga Rós Níelsdóttir,
Róbert Arnar Sigurðsson.
Okkar innilegustu þakkir sendum við öllum
þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
EDITHAR GERHARDT ÁSMUNDSSON,
Reynimel 76,
Reykjavík.
Þórunn K. Arnardóttir, Ásgeir Jóhannsson,
Ásdís E. Arnardóttir,
Erna Arnardóttir, Gunnar Þór Jakobsen,
Anna María Arnardóttir, Hermóður Gestsson,
Páll Ingólfur Arnarson, Halldóra Ingadóttir,
Guðjón Pétur Arnarson, Svava Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS S. GUÐMUNDSSONAR,
Hjallatúni, Vík í Mýrdal,
áður til heimilis
á Skólavöllum, Selfossi.
Synir og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
JÓNÍNU MARGRÉTAR JÓNASDÓTTUR,
Suðurgötu 51,
Siglufirði.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er
sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út-
prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu-
síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda
þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn
einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar
skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17
dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er
hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að
það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki
stuttnefni undir greinunum.
Morgunblaðið/ÓmarNeskirkja í Reykjavík.
Safnaðarstarf