Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kannski liggur vonin um björgun landbúnaðarins, með föðurlandsprjóni og ketáti, á bak við þessa miklu aðdáun á Impregilo? Ráðstefna um konur, stríð og öryggi Heimurinn kemur okkur við HALDIN verðurráðstefna um kon-ur, stríð og öryggi í hátíðarsal Háskóla Ís- lands laugardaginn 11. október milli kl. 13 og 17. Að henni standa Rann- sóknarstofa í kvenna- og kynjafræðum við HÍ, Mannréttindaskrifstofa Íslands og UNIFEM á Ís- landi. Allir eru velkomnir á ráðstefnuna og er að- gangur ókeypis. Í tengslum við ráðstefnuna verður heimildarmynd Grétu Ólafsdóttur og Sus- an Muska Women, The Forgotten Face of War frumsýnd á morgun kl. 17.30. – Hvert er tilefni ráð- stefnunnar? „Ráðstefnan er haldin í tilefni af ástandi heimsmála, ekki aðeins eins og það er í dag, heldur eins og það hefur verið undanfarna áratugi. Við höfum séð borgar- styrjaldir í mörgum ríkjum Afr- íku og á Balkanskaga, ástandið í Afganistan og nú í Írak. Hug- myndin að þessari ráðstefnu kviknaði sl. vetur þegar Rann- sóknastofa í kvenna- og kynja- fræðum hélt málþing um orðræðu um konur og stríð. Ákveðið var að Rannsóknastofan, UNIFEM á Ís- landi og Mannréttindaskrifstofa Íslands stæðu fyrir ráðstefnu þar sem Elisabeth Rehn fyrrum varn- armálaráðherra Finna yrði fengin til þess að kynna skýrslu UNI- FEM um konur, stríð og frið, sem kom út árið 2002.“ – Hvert er markmið ráðstefn- unnar? „Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á mikilvægi þess að vel sé staðið að uppbyggingu á átakasvæðum og að tekið sé tillit til sjónarhorns kvenna, að þær verði þátttakendur í uppbygging- arstarfinu – og ekki síður að þær taki þátt í friðarumleitunum. Á þetta hefur verið lögð mikil áhersla innan Sameinuðu þjóð- anna. Það er leitast við að sam- þætta jafnréttissjónarmið, stefnumótun og ákvarðatöku á vettvangi SÞ, en á ráðstefnunni munu fræðimenn m.a. velta því fyrir sér hvernig til hefur tekist.“ – Hver eru helstu þemu ráð- stefnunnar og hverjr taka til máls? „Þátttakendur eru áðurnefnd Elisabeth Rehn, fyrrum jafnrétt- is- og varnarmálaráðherra Finn- lands, en hún mun kynna skýrslu UNIFEM, Women, War, Peace, sem er úttekt á 14 átakasvæðum í heiminum. Skýrslan var unnin af Rehn og Ellen Sirleaf Johnson, fyrrverandi forsetaframbjóðanda í Líberíu, en þær höfðu sér til halds og trausts hóp sérfræðinga. Skýrslan er einmitt nýstárleg fyr- ir það að þar er fjallað um nauð- syn þess að konur komi að frið- arumleitunum og uppbyggingu eftir stríð og að konur hafi áhrif á skipulag friðargæslu, svo nokkuð sé nefnt. Aðrir sem taka til máls eru Páll Skúlason, rektor Há- skóla Íslands, sem set- ur ráðstefnuna. Þá mun Ardiana Gijna læknir og faraldsfræðingur frá Kosovo flytja stutt ávarp, en var hún túlkur Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska við gerð heimild- armyndar þeirra Women, The Forgotten Face of War, sem verður sýnd í tilefni ráðstefnunn- ar. Gijna var auk þess sjálf flótta- maður í Kosovo og Albaníu. Þá taka við fjórir fyrirlestrar þar sem leitt er saman gagnrýnið sjónarhorn fræðanna og reynsla af vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Gréta Gunnarsdóttir, varafasta- fulltrúi í fastanefnd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, mun flytja fyrirlestur um ályktun Öryggis- ráðsins númer 1.325 en hún fjallar um konur, öryggi þeirra og friðargæslu, í ljósi stöðu jafnrétt- ismála á vettvangi SÞ, en jafn- réttismál hafa verið mjög til um- ræðu á þeim vettvangi. Þórdís Ingadóttir, lögfræðingur hjá New York University og stundakenn- ari við Háskóla Íslands, mun í fyrirlestri sínum ræða um konur og alþjóðadómstóla. Valur Ingi- mundarson, dósent við Háskóla Íslands, flytur fyrirlestur sem hann nefnir Undir feðraveldi og friðargæslu: Konur í Kosovo eftir stríðið. Magnús Þ. Bernharðsson, lektor við Willams College, skoð- ar aftur á móti stöðu kvenna í Írak og nefnir fyrirlestur sinn „Frelsi“ hverra? Stríð, Írak og staða kvenna. Elisabeth Rehn tekur þátt í allri ráðstefnunni og því fer hún fram á ensku.“ – Af hverju er mikilvægt að halda ráðstefnu á borð við þessa? „Vegna þess að heimurinn kemur okkur við. Það skiptir okk- ur máli hvort það er stríð eða frið- ur í heiminum. Þessi ráðstefna er tilraun til þess að benda á mik- ilvægi þess að konur komi að frið- arumleitunum, friðargæslu og uppbyggingarstarfi að stríði loknu. Íslendingar taka þátt í frið- argæslu og við þurfum að ræða hvort lögð sé nægjan- leg áhersla á þátttöku og hagsmuni kvenna. Ráðstefnan er ætluð öllum áhugasömum um heimsmálin og fræðin, jafnt körlum sem konum. Stríð og friður kemur okkur öllum við og þess vegna er mikilvægt að ræða þessi mál.“ – Hvað getur þú sagt mér um heimildarmyndina Women, The Forgotten Face of War? Hún fjallar um afleiðingar stríðsins í Kosovo á konur. Þetta er áhrifamikil mynd sem sýnir svart á hvítu ömurleika stríðs. Irma Erlingsdóttir  Irma Erlingsdóttir er fædd í Reykjavík 1968. Hún lauk BA- prófi í bókmenntum og frönsku frá Háskóla Íslands 1992, lic- enceprófi 1993, mastersprófi 1994 og DEA-prófi í bókmennt- um frá Háskólanum París VIII árið 1995. Hún var fastráðin stundakennari í frönsku við HÍ 1997–2001. Deildarstjóri Rann- sóknarstofu í kvenna- og kynja- fræðum frá 1998–2000 og for- stöðumaður síðan 2000. Irma er í sambúð með Geir Svanssyni, framkvæmdastjóra Nýlistasafns- ins, og eiga þau tvær dætur. Tillit tekið til sjónarhorns kvenna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.