Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega raðhús eða parhús í Garðabæ, á
Seltjarnarnesi eða í Lindum í Kópavogi. Staðgreiðsla í boði fyrir rétta eign.
Upplýsingar veitir Magnea Sverrisdóttir fasteignasali
í síma 588 9090 eða 861 8511.
Raðhús/parhús óskast
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær eru einkum tvær
meginniðurstöður í áliti Þórarins.
Annars vegar sú að ekki séu lög-
eða samningsbundnar heimildir
fyrir skylduaðild að Lífeyrissjóði
verslunarmanna og ekki sé hægt
að knýja menn til að greiða þang-
að iðgjöld. Hins vegar kemst Þór-
arinn að því að skilyrði til skyldu-
aðildar að lífeyrissjóði séu ekki
fyrir hendi ef sjóðurinn á ekki fyr-
ir heildarskuldbindingum sínum.
„Það hefur verið sá skilningur
uppi á milli ASÍ og Samtaka at-
vinnulífsins, og áður VSÍ, að samn-
ingurinn árið 1969 um lífeyrismál,
sem er grundvöllur núverandi líf-
eyriskerfis, hafi náð til verslunar-
manna á sama hátt og hann gerði
til annarra félagsmanna ASÍ. Það
var samningur sem ASÍ gerði fyrir
hönd allra sinna aðildarfélaga.
Undanfarin 34 ár hefur verið unn-
ið eftir þessum samningi en í
lögfræðiálitinu kemur fram algjör-
lega ný túlkun á honum. Öll samn-
ingsákvæði síðan, sem snúist hafa
um lífeyrismál, nú síðast í samn-
ingi í desember árið 2001 varðandi
skyldugreiðslu atvinnurekanda
vegna félagsmanna okkar, hafa
náð til félagsmanna Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur. Að
halda öðru fram er bara útúrsnún-
FRAMKVÆMDASTJÓRI Alþýðu-
sambands Íslands (ASÍ), Gylfi
Arnbjörnsson, segir að margt sem
kemur fram í lögfræðiáliti Þór-
arins V. Þórarinssonar fyrir Sam-
tök atvinnulífsins um lífeyrissjóða-
aðild komi sér og öðrum
ASÍ-mönnum algjörlega í opna
skjöldu, einkum sú túlkun að engin
samningsákvæði séu til staðar um
skylduaðild að Lífeyrissjóði versl-
unarmanna. Í svipaðan streng tek-
ur framkvæmdastjóri Landssam-
taka lífeyrissjóða, Hrafn Magnús-
son, sem telur að ýmislegt í álitinu
sé „býsna langsótt“.
ingur,“ segir Gylfi en minnir á að
ASÍ hafi ekki fengið álitsgerðina
alla í hendur, aðeins lesið úr henni
í Morgunblaðinu. Hún verði skoð-
uð nánar á næstunni, ásamt
fulltrúum VR.
Varðandi þá niðurstöðu í álitinu
að skylduaðild sé ekki til staðar ef
lífeyrissjóður eigi ekki fyrir skuld-
bindingum sínum segir Gylfi það
liggja ljóst fyrir að á árunum 1995
og 1996 hafi ASÍ og VSÍ samið
sérstaklega um að ekki væri hægt
að skylda fólk til að greiða í sjóði
sem ætti ekki fyrir skuldbinding-
um sínum. Miðað hafi verið við
ákveðin lágmarksréttindi og 10%
iðgjald. „Það ákvæði hefur verið í
gildi síðan að ekki er skylduaðild
að sjóðum sem ekki standast
tryggingarfræðilega skoðun. Þetta
ákvæði er virt og hefur meðal ann-
ars stuðlað að sameiningu og hag-
ræðingu í lífeyrissjóðakerfinu,“
segir Gylfi og telur að um þetta at-
riði ríki enginn ágreiningur.
Hrafn Magnússon segir álit Þór-
arins í raun vera tvíþætt, annars
vegar um aðild að Lífeyrissjóði
verslunarmanna og hins vegar um
skylduaðild almennt að lífeyris-
sjóðum. Í þessum efnum séu uppi
skiptar skoðanir meðal manna en
landssamtökin hafi ekki tekið
neina efnislega afstöðu til álitsins
ennþá. Hrafn segir að skylduaðild-
in sé geirnegld í lífeyrissjóðalög-
unum og það sé „býsna langsótt“
túlkun hjá Þórarni að í kjarasam-
ingum VSÍ og VR frá 1996 sé ekki
að finna ákvæði um skylduaðild að
lífeyrissjóðum á samningssviði
ASÍ.
„Þegar lögin um lífeyrissjóði
voru sett árið 1997 var tekinn af
allur vafi um skylduaðild launþega
að starfandi lífeyrissjóðum. Þar
voru sett inn ákvæði um hvað sjóð-
um beri að gera ef skuldbindingar
eru umfram eignir. Ef þær eru
meira en 10% af eignum sjóðsins
ber honum að grípa til aðgerða. Ef
skuldbindingarnar eru á milli 5 og
10% í fimm ár samfellt ber sjóðn-
um einnig að grípa til aðgerða. Að
öðru leyti er ekki um neinar sér-
stakar aðgerðir að ræða af hálfu
sjóðanna og þetta á að mínu mati
ekki að hafa neinar breytingar í
för með sér á skylduaðild að sjóð-
unum,“ segir Hrafn. Hann telur
það koma til greina að leita eftir
fleiri lögfræðilegum greinargerð-
um um þau álitaefni sem fram
komi hjá Þórarni.
Lífeyrissjóðaálitið kemur
ASÍ í opna skjöldu
Niðurstöðurnar langsóttar segir tals-
maður Landssamtaka lífeyrissjóða
Hrafn
Magnússon
Gylfi
Arnbjörnsson
ÞAÐ er skammt „sellóanna“ á milli hjá Sinfón-
íuhljómsveit Íslands þessa dagana. Í síðustu
viku lék Erling Blöndal Bengtsson einleik með
hljómsveitinni, en í kvöld verður það norski
sellóleikarinn Truls Mørk. Hann leikur einleik
með hljómsveitinni í nýjum sellókonsert eftir
Hafliða Hallgrímsson, en Hafliði samdi kons-
ertinn sérstaklega fyrir Truls Mørk.
Hafliði segir að helst megi lýsa nýja konsert-
inum sem löngum og miklum einþáttungi.
„Þegar á heildina er litið virkar konsertinn
frekar friðsæll, en inn á milli eru alls konar
upphlaup og uppátæki. Ég þekki nú hin og
þessi brögð – það er mikilvægt í svona stóru
verki að skapa ákveðna fjölbreytni, og flest það
sem ég veit um sellóið kemur þarna fram. Það
fær að syngja, nota pizzicat, þar sem streng-
irnir eru plokkaðir, það eru alls konar tvígrip í
verkinu, áttundir, hin og þessi upphlaup, þar á
meðal kafli sem er svolítið staglkenndur og
hraður. Alltaf kemur þó ró yfir verkið aftur, og
það er kannski meira eins og löng gönguferð
þar sem maður fer upp hóla og hæðir – það er
töluvert um slíkt flatlendi, og ég vona að það sé
ekki leiðinlegt.“
Hafliði segir að á meðan smíði verksins stóð
hafi lítið norskt lag eftir Grieg sótt mjög á sig.
„Þetta er fyrsta lagið sem ég spilaði sjálfur í út-
varp, – lítil vögguvísa, og mér þótti hún ekki
merkileg þá, og reyndar ekki enn. En af ein-
hverjum undarlegum ástæðum sótti hún svo á
mig, að ég var sífellt að bægja henni frá mér.
Það kom þó að því að ég leyfði henni að vera
með. Hún kemur þó ekki fram í heild sinni,
heldur vitna ég í hana. Það eru bara tveir tónar,
en þeir sem þekkja lagið gætu áttað sig á að það
er aðeins verið að ýja að þessu gamla lagi, sem
gæti allt eins verið þjóðlag. Það fer ekki illa á
því, því verkið er samið fyrir Truls Mørk.“
Hef yndi af því að
spila konsertinn
Hafliði er sjálfur afbragðs sellóleikari, og að-
spurður hvort ekki sé sérstakt að leika einleiks-
konsert eftir annan sellóleikara segir einleik-
arinn, Truls Mørk, það í raun mjög sjaldgæft.
„Ef þú hugsar um alla stóru píanókonsertana,
þá voru tónskáld þeirra jafnframt frábærir pí-
anóleikarar. Oftast erum við sellóleikarar að
leika konserta eftir tónskáld sem þekkja hljóð-
færið hvorki til hlítar né tæknileg mörk þess.
Það gerir það enn stórkostlegra að leika verk
eftir tónskáld sem jafnframt er sellóleikari. Allt
sem Hafliði skrifar í verkinu er vel úthugsað og
tæknilega mögulegt. Á sama tíma er verk Haf-
liða mjög ögrandi og afskaplega vel samið fyrir
sellóið. Hann þekkir öll hljóð og öll litbrigði
hljóðfærisins í þaula. Þetta er mjög erfitt verk,
og mjög fallegt. Tónmál Hafliða er mjög per-
sónulegt og það heyrir maður vel; – en engu að
síður er verkið í sterku sambandi við hefðina.
Mér finnst Hafliði einmitt mjög frumlegur í því
hvernig hann nýtir hefðina á mjög persónu-
legan og nútímalegan máta. Sjálfur hef ég mik-
ið yndi af að spila konsertinn; þetta er ljóðrænt
verk, hlaðið tilfinningu.“
Truls Mørk þekkir síðasta einleikara hljóm-
sveitarinnar, Erling Blöndal Bengtsson, vel, en
faðir Mørk, sem einnig er sellóleikari, var nem-
andi Erlings. Truls Mørk segir varla hægt að
greina mun á kynslóðum meðal núlifandi selló-
leikara; Erling Blöndal Bengtsson sé dæmi um
mjög nútímalegan sellóleikara, þótt hann sé
kynslóðinni eldri. „Það þarf að fara lengra aftur
til að greina kynslóðamun. Ef þú hlustar til
dæmis á upptökur með leik Pablo Casals frá
fjórða áratugnum, þá heyrirðu að þar er önnur
leiktækni notuð, og aðrar aðferðir notaðar við
að leysa tækniþrautir, þótt Casals hafi verið
gríðargóður hljóðfæraleikari. Sellóleik og leik-
tækni hefur fleygt fram síðan þá. Fiðlu- og pí-
anóleikur tók þróun í leiktækni út öld fyrr; –
sellóið hefur komið mun síðar, og margt í leik-
tækni dagsins í dag fremur nýtt.“
Truls Mørk segir frumflutninginn á selló-
konsert Hafliða Hallgrímssonar eitt af sínum
stærstu og mest spennandi verkefnum í vetur.
„Það er alltaf gaman að frumflytja verk, og ég
vona að ég eigi eftir að geta ferðast með kons-
ert Hafliða og spilað hann með hljómsveitum
víða.“
Þess má geta að verk Hafliða er samið fyrir
tilstuðlan Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Fíl-
harmóníusveitarinnar í Ósló og Skosku kamm-
ersveitarinnar, sem Hafliði hefur unnið mikið
með, enda búsettur í Skotlandi. Truls frumflutti
konsertinn á tónleikum norsku Fílharmón-
íunnar á föstudaginn og mun leika hann með
Skosku kammersveitinni síðar á þessu ári.
Ríkisútvarpið sendir tónleikana út í beinni
útsendingu að vanda, en í þetta skiptið verða
hlustendur óvenju margir, því tónleikarnir eru
jafnframt sendir um gjörvalla Evrópu í sam-
vinnu við Samband evrópskra útvarpsstöðva,
EBU. Þrettán lönd höfðu bókað þátttöku sína í
gær, þar á meðal Norðurlöndin, Eystrasalts-
löndin, Frakkland, Pólland og Ungverjaland.
Truls Mørk kveðst sérstaklega ánægður með
að verk Hafliða skuli fá svo fjölmennan áheyr-
endahóp strax, og tónskáldið samsinnir því:
„Það er auðvitað gott að það heyrist í manni. Þó
er maður alltaf upptekinn af því hvort verkið
uppfylli innri kröfur hjá manni sjálfum. Það
verður aldrei, því manneskjan er ófullkomin.
En maður verður þó að halda áfram að reyna.“
Fyrir tónleikana ætla þeir að kynna verkið,
og hefst kynningin kl. 18.30. Tónleikarnir hefj-
ast svo kl. 19.30. Önnur verk á efnisskránni
verða Fantasía eftir Ralph Vaughan-Williams
um stef eftir Thomas Tallis og Sinfónía nr. 2
eftir Beethoven. Rumon Gamba stjórnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hafliði Hallgrímsson og Truls Mørk. Á milli þeirra, baka til, er hljómsveitarstjórinn, Rumon Gamba.
Truls Mørk frumflytur sellókonsert eftir Hafliða Hallgrímsson á Sinfóníutónleikum í kvöld
Gönguferð um hæðir, hóla og flatlendi
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi karlmann um fertugt í eins
árs fangelsi fyrir innbrot, þjófnað,
eignarspjöll, skjalafals og ölvunar-
akstur. Hálfþrítugur samverkamað-
ur hans í nokkrum afbrotanna var
dæmdur í hálfs árs fangelsi og tvítug
stúlka sem falsaði og seldi ávísanir í
samstarfi við þá hlaut 30 daga skil-
orðsbundinn dóm. Í innbrotunum
var stolið skartgripum og margs
konar munum fyrir rúmar 6 milljónir
kr. Elsti maðurinn var sviptur öku-
rétti í 12 mánuði og ber hann kostn-
að upp á 300 þúsund krónur vegna
málsvarnarlauna og bóta.
Valtýr Sigurðsson héraðsdómari
dæmdi málið. Dagmar Arnardóttir,
fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík,
sótti málið fyrir ákæruvaldið.
Eins árs
fangelsi
fyrir auðg-
unarbrot