Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ                                                     BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÝLEGA var ég viðstaddur tvennar ráðstefnur eða mannfundi, þar sem ræðumenn létu til sín heyra. Ég nafngreini hvorki ráð- stefnur né ræðumenn, það er ekki viðeigandi, að mínum dómi. Á öðr- um staðnum var hvorki hljóðnemi né hátalari festur á ræðumenn, enda var hljómburður afar lélegur. Þetta er einkar slæmt, þegar um lágmælta ræðumenn er að ræða. Áheyrendur munu flestir hafa lítið heyrt af máli þess fólks, sem þarna lét til sín heyra, og er illt til afspurnar. Fólk kemur á mann- fundi, þar sem talað orð er flutt, að það hafi einhver not af því, sem sagt er. Þetta þarf að laga – og það án tafar! Á hinum staðnum var öðruvísi á málum haldið. Þar var þess vel gætt, að hljóðnemi væri staðsettur þannig, að mál ræðumanns heyrð- ist, jafnvel til þeirra, er fjærst voru í samkomusalnum. Þegar ræðumaður virtist ekki veita hljóð- nemanum nægilega athygli, var hann færður til, svo að hann og áheyrendur fengju sem best not af honum. Þarna heyrðu allir vel það, sem flutt var, jafnvel þeir sem teknir eru eitthvað að tapa heyrn. Hvílíkur munur á tveimur mann- fundum! Alls staðar, þar sem mál manna er flutt, þarf að sjá til þess, að allir hafi af því not! Þessu vildi ég koma á framfæri. Með þökk fyrir væntanlega birt- ingu. AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík. Svo að mál manna heyrist Frá Auðuni Braga Sveinssyni NÚNA er rúmlega tíu og hálfur mánuður síðan samningur ríkis- stjórnar og aldraðra var gerður. Samningur þessi var í níu tölusett- um liðum og jafnframt samnings- gerð þessari undirrituðu nokkrir ráðherrar viljayfirlýsingu þess efn- is að staðið yrði við samninginn. Aðeins hefur verið staðið við fyrsta hluta eða fyrsta tölusetta liðinn í samningnum, þar sem talað var um að hækka tekjutryggingu og tekju- tryggingarauka. Umsamin hækkun til þeirra, sem fá óskerta tekjutryggingu og óskertan tekjutryggingarauka var sem svaraði rúmlega 160 krónur á dag. Aðrir fengu minna og fjöl- margir ekkert, en þessar 160 krón- ur skerðast ef eftirlaunaþeginn fær einhverjar greiðslur úr öðrum sjóð- um, en almannatryggingum. Samkvæmt upplýsingum úr hag- tölum Tryggingastofnunar eru það aðeins rúmlega fjögur hundruð manns, sem fá óskerta tekjutrygg- ingu og fengu þessar rúmlega 160 kr. á dag. Við eldri borgarar, sem sömdum um þessar rausnarlegu hækkanir til okkar, þessar hækkanir frá kr. 0 og upp í 160 kr. á dag, getum verið stoltir af því að kjaradómur eða kjaranefnd, sem ríkisstjórn og þingmenn láta skammta sér laun, komst að þeirri niðurstöðu á kjör- dag sl. vor, að vegna hækkunar okkar þyrftu laun ráðherra, þing- manna og æðstu embættismanna þjóðarinnar að hækka um sem svaraði 2.000 kr. til 6.000 kr. á dag. Í fjórða tölusetta liðnum í sam- komulaginu var talað um flýtifram- kvæmd á Vífilstöðum, þ.e. bráða- birgðalagfæringar svo hægt yrði að nota hann sem hjúkrunarheimili næstu 3–5 ár á meðan verið væri að byggja varanleg hjúkrunarheimili og áttu þarna að vera tilbúin um 70 rúm í byrjun þessa árs. Talað var um janúar–febrúar 2003. Ekki hefur verið staðið við þetta heldur hefur verið farið í varanleg- ar breytingar á Vífilstaðaspítalan- um og verður hann ekki tilbúinn fyrr en í janúar–febrúar á næsta ári, og þá aðeins fyrir 50 rúm. Þetta er seinkun um heilt ár og ekkert heyrist um að aðrar bygg- ingar hjúkrunarheimila séu að koma til framkvæmda, þó svo að biðlistar aldraðra eftir hjúkrunar- heimila- og spítalavist lengist stöð- ugt. Nú er Alþingi farið að starfa og hafa ráðamenn boðað hækkanir á komugjöldum til lækna og heilsu- gæslu. Er þetta réttlætið hjá yfirvöld- um gagnvart öldruðum? Er ekki tímabært að því fari að linna? KARL GÚSTAF ÁSGRÍMSSON, form. félags eldri borgara í Kópavogi. Réttlætið og aldraðir Frá Karli Gústafi Ásgrímssyni Ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012 frá okt.-apríl Orator, félag laganema

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.