Morgunblaðið - 09.10.2003, Blaðsíða 42
ÍÞRÓTTIR
42 FIMMTUDAGUR 9. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
HK – Breiðablik 41:21
Digranes, Kópavogi, Íslandsmót karla, RE/
MAX-deildin, suðurriðill, miðvikudaginn 8.
október 2003.
Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 3.2, 6.2, 9:3, 12:6,
13:7, 19:7, 22:9, 23:9, 24:11, 28:11, 30:15,
32:19, 36:20, 40:20, 40:21, 41:21.
Mörk HK: Andrius Rackauskas 6/1, Davíð
Höskuldsson 6, Elías Már Halldórsson 5,
Jón Heiðar Gunnarsson 5, Már Þórarins-
son 5, Augustas Strazdas 4, Ólafur Víðir
Ólafsson 3/1, Samúel Árnason 3, Atli Þór
Samúelsson 1/1, Björgvin Gústafsson 1,
Jón Bersi Ellingsen 1, Vilhelm Gauti Berg-
sveinsson 1.
Varin skot: Björgvin Gústafsson 17/1 (þar
af 2 til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur, þar af fékk Jón
Bersi Ellingsen rautt spjald vegna þriðju
brottvísunar á 43. mínútu.
Mörk Breiðabliks: Björn Óli Guðmundsson
7/3, Gunnar B. Jónsson 5, Stefán Guð-
mundsson 4, Ágúst Ö. Guðmundsson 2,
Einar Eiríkur Einarsson 2, Kristinn Logi
Hallgrímsson 1.
Varin skot: Hákon Valgeirsson 1. Skúli
Eggertsson 9/1 (þar af 2 til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson.
Áhorfendur: 200.
Haukar – Selfoss 39:27
Ásvellir, Hafnarfirði:
Gangur leiksins: 3:4, 6:5, 14:6, 16:8, 18:12,
23:15, 28:16, 31:17, 34:20, 35:24, 39:27.
Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson
10/1, Dalius Rasikevicius 7/1, Andri Stefan
4, Vignir Svavarsson 4, Matthías Árni Ingi-
marsson 3/1, Jón Karl Björnsson 3/1, Þórir
Ólafsson 3, Þorkell Magnússon 2, Birkir Ív-
ar Guðmundsson 1, Pétur Magnússon 1,
Robertas Pauzuolis 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 17/1
(Þar af 3 aftur til mótherja), Þórður H.
Þórðarson 3 (þar af eitt aftur til mótherja).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Selfoss: Atli Freyr Rúnarsson 7,
Ramunas Kalendauska 7, Jón Einar Pét-
ursson 4, Andri Már Kristjánsson 2, Arnar
Gunnarsson 2, Atli Kristinsson 2, Guð-
mundur Eggertsson 2, Helgi Héðinsson 1.
Varin skot: Sebastian Alexandersson 16
(þar af 2 aftur til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Guðjón Sigurðsson og Arnar
Kristinsson.
Áhorfendur: 100.
Staðan í suðurriðlinum:
Haukar 6 5 0 1 184:147 10
ÍR 5 5 0 0 156:123 10
HK 7 4 0 3 194:182 8
FH 5 3 0 2 138:122 6
Stjarnan 5 2 1 2 127:131 5
Breiðablik 6 2 0 4 152:195 4
ÍBV 4 0 1 3 121:128 1
Selfoss 6 0 0 6 149:193 0
Bikarkeppni kvenna
SS-bikarinn, 16 liða úrslit:
Fylkir/ÍR – KA/Þór.............................. 31:28
FH – Valur ............................................ 19:18
Grótta/KR – Víkingur .......................... 27:21
Þýskaland
Bikarkeppnin, helstu úrslit:
Cottbus – Wilhelmshavener ................ 22:31
Augustdorf – Magdeburg .................... 24:34
Flensburg – Nordhorn......................... 31:26
Konstanz – Wetzlar.............................. 24:33
Forchheim – Wallau-Massenheim...... 25:29
Aue – Göppingen .................................. 31:40
Hüttenberg – Kronau-Östringen........ 30:28
Friesenheim – Grosswallstadt ............ 23:24
Köndringen – Essen............................. 19:30
Düsseldorf – Pfullingen ....................... 33:25
Emsdetten – Lemgo ............................ 27:39
Obernkirchen – Kiel............................. 19:40
Römerwall – Gummersbach................ 28:38
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
Njarðvík – ÍS ........................................ 56:43
ÍR – KR ..................................................72:52
KNATTSPYRNA
Spánn
Bikarkeppnin, 64 liða úrslit, helstu leikir:
Barakaldo – Racing Santander............... 0:1
Oviedo – Real Sociedad............................ 1:2
Pontevedra – Celta Vigo.......................... 1:1
Celta sigraði í vítaspyrnukeppni.
Union Irun – Osasuna.............................. 0:2
Badajoz – Real Betis ................................ 1:4
Conquense – Atletico Madrid ................. 2:3
Zamora – Valladolid ................................. 0:2
Sabadell – Mallorca.................................. 2:4
Elche – Espanyol...................................... 2:3
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Intersportdeildin:
Ísafjörður: KFÍ – Haukar ....................19.15
DHL-höllin: KR – Breiðablik...............19.15
Sauðárk.: Tindastóll – Snæfell .............19.15
Þorlákshöfn: Þór Þ. – ÍR ......................19.15
1. deild karla:
Grindavík: ÍG – Ármann/Þróttur.........19.15
1. deild kvenna:
Keflavík: Keflavík – UMFG .................19.15
Í KVÖLD
„SPÁIN leggst vel í mig, en deildin
getur farið á alla vegu þótt mark-
mið okkar séu á hreinu,“ sagði Erla
Þorsteinsdóttir, leikmaður Íslands-
meistaraliðs Keflavíkur í kvenna-
flokki í körfuknattleik. „Keflvík-
ingar heimta sigur og maður finnur
fyrir pressu en það truflar okkur
ekki neitt, hvetur okkur frekar
áfram. Liðið er að mestu óbreytt,
helsta breytingin er að Sonja Ort-
ega er farin en Erla Reynisdóttir
komin frá Bandaríkjunum.“
Spáin er Keflavík 105 stig, ÍS 84,
Grindavík 60, KR 54, Njarðvík 48
og ÍR 27 stig.
Liðið sem kemur á óvart
„Ég held að við verðum liðið sem
kemur á óvart í deildinni í ár og við
stefnum mun hærra en í fjórða
sæti,“ sagði Gréta María Grét-
arsdóttir þjálfari KR-kvenna.
„Annars líst mér vel á þessa spá.
Við erum með mikið breytt lið frá í
fyrra og af fyrstu fimm í byrj-
unarliðinu í fyrra er ein eftir en
það kemur maður í manns stað og
við þurfum smátíma til að slípa lið-
ið saman, því nýir leikmenn koma
inn.“
Úr efnilegu til árangurs
Pétur Guðmundsson þreytir
frumraun sín við þjálfun kvennaliðs
en hann verður með Grindavík í
vetur. „Þetta verður ný reynsla og
eflaust allt öðruvísi en að þjálfa
karla og ég hlakka til. Það verður
gaman að sjá hvað er hægt að ná
miklu út úr liðinu, það er ungt en
lengi verið talað um hvað það sé
efnilegt. Það er ein úr landsliðinu
og fjórar úr unglingalandsliðinu
svo að hæfileikar eru til staðar og
kemur í ljós hvað ég næ langt með
þær. Það kom mér mest á óvart
hvað þær vildu byrja að æfa seint
svo það var lítill tími til undirbún-
ings,“ sagði Pétur, sem þarf ekki að
kynna og hann vill árangur.
„Maður fer rólega af stað því það
er ekki mikill tími fram að úr-
slitakeppni en við verðum tilbúin
þegar kemur að henni. Ég vil ná ár-
angri. Aðrir hafa skilað þeim svona
langt og mér finnst tími til kominn
að þær sýni hvað í þeim býr og
ungu stúlkurnar fá örugglega að
spreyta sig.“
Keflvíkingar heimta sigur
Keflavík fékk 410 atkvæði í efstasæti deildarinnar en mest var
hægt að fá 432 stig. „Það er einhver
pressa á mér, leik-
mönnum og félaginu
en þetta var líka
svona í fyrra, eins og
svo oft áður. Ég skil
samt ekki af hverju sex lið af tólf fá
ekki atkvæði í efsta sæti, það segir
manni að þessi sex lið gefa ekki
sjálfu sér stig í efsta sæti. Í mínum
huga sýnir það ekki mikinn metnað
ef þú sérð þig aldrei í efsta sæti eða
ofarlega í töflunni. Ég ég er alltaf
jafnhissa þegar sum liðin fá ekki eitt
einasta stig því ég viðurkenni alveg
að ég set okkar lið alltaf í efsta sæti,“
bætti Guðjón við. Hann hefur nokkr-
um sinnum hætt en síðan mætt á
skotpallinn sinn upp við endamörk.
„Ég verð ekki með, það er nóg af
bakvörðum svo að það er öruggt.
Fyrir utan breytingar með útlend-
inga verðum við með sama lið auk
þess sem Hjörtur Harðarson spilaði
ekki í lokin hjá okkur. Endurnýjun
hefur verið ágæt hjá okkur, við erum
alltaf að fá einn og einn ungan í við-
bót. Í fyrra voru Jón Nordal Haf-
steinsson og Magnús Gunnarsson að
vinna titil í fyrsta sinn og nú er kom-
in ákveðin hefð og reynsla sem þeir
byggja á. Ég myndi segja þetta
mjög gott lið, það þarf bara að slípa
það saman. Veturinn verður langur
hjá okkur því Evrópukeppnin spilar
inn í hann. Við erum með frábæran
mannskap en þó ekki sé hægt að
ætlast til að vinna allt en liðið á að
geta náð árangri.“
Keflavík fær 410 stig, Grindavík
378, KR 346, Njarðvík 314, Haukar
299, Snæfell 235, Tindastóll 228,
Breiðablik 138, ÍR 131, Hamar 129,
KFÍ 127 og Þór Þorlákshöfn 69 stig.
Ætlum að halda
okkur í deildinni
„Við áttum von á þessu en mark-
mið okkar er að halda okkur í deild-
inni og viljum ekki vera með of mikl-
ar yfirlýsingar,“ sagði Róbert
Halldórsson í stjórn KFÍ um spána
en Ísfirðingum var spáð 11. sæti
deildarinnar með 127 stig. Reyndar
vantar bara 11 stig til að taka 8. sæt-
ið af Breiðabliki. „Við erum að koma
upp eftir nokkurn tíma en það er
mikill metnaður hjá okkur og líka
hugur í fólkinu fyrir vestan svo það
verður erfitt að sækja okkur heim í
vetur, við ætlum að fylla húsið og fá
stemmninguna með okkur. Ef við
vinnum okkar heimaleiki er aldrei að
vita hvað gerist. Það eru margir góð-
ir í liðinu og einnig margir ungir
efnilegir strákar að skila sér úr
yngri flokkunum og munu sanna sig
í vetur. Það hefur helst háð okkur að
útlendingarnir okkar eru að koma til
landsins daginn fyrir fyrsta leik.“
Þjálfari Þórs afneitar
botnsætinu
Nýliðum Þórs frá Þorlákshöfn var
spáð neðsta sæti deildarinnar en
Billy Dreher þjálfari þeirra ætlar
sér í úrslitakeppni. „Ég get bara
ábyrgst að við verðum ekki í tólfta
sæti. Ég þjálfaði hjá Þór fyrir
nokkrum árum, þá vorum við ekki
með nærri eins gott lið og nú en unn-
um samt nokkra úrvalsdeildarleiki
og bikarleiki,“ sagði þjálfarinn í gær.
„Ef maður lítur á tölfræðina höfum
við ekki mikla reynslu en hjá okkur
eru fjórir leikmenn sem geta skorað
tuttugu stig í hverjum leik. Við mun-
um því koma nokkrum liðum á óvart
með traustu fjölbreyttu liði – við ætl-
um okkur í úrslitakeppnina og ég
held að við eigum góða möguleika á
því. Við höfum suma af bestu stuðn-
ingsmönnum á Íslandi og fáum góða
áhorfendur á heimaleiki svo það
verður erfitt að vinna okkur heima
auk þess að góður hópur mun fylgja
okkur á útileiki.“
Guðjón Skúlason, annar þjálfari Íslandsmeistaraliðs Kefla-
víkur í körfuknattleik, er ánægður með meistaraspána
„Mikill stöðug-
leiki hjá okkur“
„SPÁIN leggst vel í mig, hún er bara eins og okkar menn vilja að
þetta sé hjá okkur,“ sagði Guðjón Skúlason, sem mun þjálfa Kefl-
víkinga ásamt Fali Harðarsyni. „Það hefur alltaf verið þannig að
menn vilja vinna ríkjandi meistara og breytist ekkert. Menn vilja
taka þetta af okkur en ég held að við höfum bæði keppnisskap og
vilja til að halda okkar sæti. Ég held að við séum búnir að koma því
inn hjá Keflvíkingum að það sé stöðugleiki í liðinu og þeir vilja halda
þessu sæti en það þarf að vinna fyrir því.“
Eftir
Stefán
Stefánsson
FÓLK
JALIESKY Garcia, landsliðsmað-
ur í handknattleik og fyrrum leik-
maður HK, skoraði 7 mörk í gær-
kvöld þegar lið hans vann Aue, 40:31,
í þýsku bikarkeppninni. Annar fyrr-
um HK-ingur kom mikið við sögu því
hinn tékkneski Michal Tonar skor-
aði 6 mörk fyrir Aue.
EINAR Örn Jónsson skoraði 2
mörk en Rúnar Sigtryggsson ekkert
þegar lið þeirra, Wallau-Massen-
heim, vann Forchheim, 29:25, í bik-
arkeppninni.
GUÐMUNDUR Hrafnkelsson og
félagar í Kronau-Östringen voru
slegnir út úr bikarnum af 3. deild-
arliðinu Hüttenberg en þeir töpuðu,
30:28, eftir framlengingu. Düssel-
dorf úr 2. deild, með Alexanders
Petersons, vann stórsigur á 1. deild-
ar liði Pfullingen, 33:25.
NORSKA staðarblaðið Budstikka
segir frá því að eini maðurinn sem
hafi verið vonsvikinn eftir sigur Sta-
bæk á Brann í norsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu hafi verið Íslend-
ingurinn Tryggvi Guðmundsson en
hann var í leikmannahóp liðsins, en
kom ekki við sögu í 6:0, sigri Stabæk.
Að sögn blaðsins lyftist brúnin á
Tryggva daginn eftir þegar hann
skoraði þrennu í 4:2 sigri varaliðsins
gegn Kvik Halden í 2. deildinni.
GAUTE Larsen, þjálfari liðsins,
segir að það sé vel skiljanlegt að
Tryggvi hafi ekki verið ánægður
með að sitja á bekknum gegn Brann
en liðinu hafi gengið vel á meðan
leikmaðurinn hafi jafnað sig á fót-
broti. Tryggvi mun hafa strunsað út
úr búningsherberginu eftir leikinn
gegn Brann á meðan aðrir leikmenn
voru enn að fagna sigrinum.
DON Hutchison, leikmaður West
Ham, hefur orðið við beiðni Berti
Vogts landsliðsþjálfara um að taka
sæti í skoska landsliðshópnum fyrir
leikinn á móti Litháum á laugardag-
inn. Vogts hefur þurft að sjá á eftir
nokkrum leikmönnum sínum sökum
meiðsla og segist þurfa á Hutchison
að halda.
MARK Palios, framkvæmdastjóri
enska knattspyrnusambandsins, til-
kynnti á blaðamannafundi í gær-
kvöld að enska landsliðið færi til
Tyrklands í dag vegna leiksins þar í
undankeppni Evrópumótsins á
laugardag. Leikmenn liðsins höfðu
áður hótað því að fara ekki vegna
þess að Rio Ferdinand var settur út
úr landsliðshópnum fyrir að mæta
ekki í lyfjapróf.
Pallios sagði í stuttri yfirlýsingu
að málið hefði verið rætt fram og til
baka við leikmennina og niður-
staðan lægi fyrir. Nú væri leikurinn
sjálfur aðalatriðið og allir viðkom-
andi myndu einbeita sér að honum
og engu öðru.
Sven Göran Eriksson, landsliðs-
um að það hafi brugðist okkur mjög
illa. Einum félaga okkar var refsað
án þess að hann fengi að bera hönd
fyrir höfuð sér, eins og hann átti
rétt á. Þeir sem tóku þessa ákvörð-
un hafa veikt lið okkar, gegn vilja
þjálfarans og leikmannanna. Við
biðjum þjálfara, starfslið og stuðn-
ingsmenn afsökunar á þeim áhyggj-
um sem við kunnum að hafa valdið
en í hugum okkar var aldrei nein
spurning um þátttöku okkar í þess-
um leik.,“ sagði meðal annars í yf-
irlýsingunni. Talið er að Ferdinand
hafi sjálfur haft mikil áhrif á félaga
sína í landsliðinu því hann hvatti þá
eindregið til að fara til Tyrklands.
„England er stærra en Rio Ferdin-
and,“ sagði varnarmaðurinn.
þjálfari Englands, sagði að undir-
búningur fyrir leikinn hefði verið
erfiður og fram að þessu hefði ekk-
ert verið rætt um sjálfan fótbolt-
ann. Nú yrði hægt að einbeita sér
að honum, leikmenn enska liðsins
hefðu í stuðningi sínum við Rio
Ferdinand sýnt hversu samstilltir
þeir væru, og þeir myndu sýna það
sama inni á knattspyrnuvellinum í
Tyrklandi.
Þeir Palios og Eriksson svöruðu
ekki spurningum fréttamanna á
fundinum, sem stóð aðeins í örfáar
mínútur.
Yfirlýsing frá leikmönnunum var
lesin upp á fundinum. „Sambandið
sem við tilheyrum hefur komið illa
fram við einn félaga okkar. Við telj-
Leikmenn Englands fara en
telja sambandið hafa brugðist